Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN Laugardagur 6. juli 1974—39. árg.—116. tbl. iPOTEK OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7, NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2. SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3 SÍMI 40102 ÞAÐ430RGAR SIG AÐ VERZLA í KRON Geir gerir fyrstu tilraim Forseti fól Geir Hallgrímssyni að kanna möguleika á rikisstjórn undir forustu Sjálfstœðisflokksins Forseti Islands fól i gær Geir Hallgrimssyni að kanna möguleika á stjórnarmyndun undir forustu S jálf stæðisf lokksins. Blaðinu barst i gær eftirfarandi fréttatilkynning frá skrifstofu forseta íslands: „Slðdegis I dag kvaddi forseti Islands formann Sjálfstæðis- flokksins Geir Hallgrlmsson á sinn fund og óskaði þess að hann kannaði hverjir möguleikar væru á að mynduð yrði undir forustu Sjálfstæðisflokksins rlkisstjórn, sem nyti meirihluta á Alþingi. Aður en forseti tók þessa ákvörðun hafði hann átt viðræður við formenn stjórnmálaflokkanna og auk þess þá formenn þing- flokka sem ekki eru jafnframt formenn stjórnmálaflokka.” Búast má við að Geir Hallgrlmsson muni næstu daga kanna viðhorf annarra stjórn- málaflokka til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Eins og kunnugt er hafa Sjálfstæðismenn 25 þingmenn og ekki er möguleiki á nýrri viðreisnarstjórn þvl Alþýðuflokkurinn fékk aðeins fimm þingmenn, en 32 þarf til að rlkisstjórn hafi starfhæfan meirihluta á þingi I báðum deildum. Þvl er viðbúið að erfitt reynist fyrir Sjálfstæðisflokkinn að mynda stjórn að minnsta kosti i þessari fyrstu atrennu. Talið er að Framsóknar- flokkurinn hafi lltinn hug á að ganga til samstarfs við Ihaldið Geir Hallgrimsson Fyrstu Islensku fiskiönaðarmennirnir. Myndina tók Ari Kárason aö loknum skólaslitum I gær. t fremri röö fyrir miöju situr skólastjóri Fiskiönskólans, Siguröur B. Ilaraldsson. MERKUR DAGUR í SÚGU FISKVEIÐIÞJÓÐAR; Fyrstu fiskiðnaðarmennirn- ir voru útskrifaðir í gær undir íorsæti Geirs og þvl verði ekki um helmingaskiptastjórn að ræða I bili. Tlminn hefur veriö með getgátur um myndun nýsköpunarstjórnar þ.e. að Sjálf- stæðisflokkur og Alþýöubandalag myndi stjórn, en það „fróma” blað gleymir þá, að m.a. er djúp- stæður ágreiningur milli þessara flokka um varnarmálin og alla stefnu I efnahagsmálum. Þvi er almennt talið að nokkuð löng stjórnarkreppa verði hér á landi að þessu sinni, en fyrsta, tilraun er hafin Sojus tengdur Saljut Moskvu 5/7 — í dag var geimskipið Sojus 14. tengt við geimstöðina Saljut 3 úti i geimnum og gekk það snurðulaust að sögn Tass. Geimfararnir tveir/ Pavel Popovitsj og Júri Artjúkin, fóru út úr geimfarinu í 100 metra fjarlægð frá geim- stöðinni og gengu yfir í hana. I gær voru fyrstu fisk- iðnaðarmennirnir á islandi brautskráðir frá Fiskiðn- skólanum. Þessi fyrsti hópur fiskiðnaðarmanna telur 23 slíka, en einn á ó- lokið prófum, en þeim fékk hann frestað vegna veikinda. . Skólastjórinn gaf formanni skólanefndar, Guðmundi Magn- ússyni, orðiö fyrstum. Sagði hann að nemendur þeir, sem nú út- skrifast, hefðu hafið nám við skólann fyrir þremur árum. Fyrstu tvö árin, eða vel það, fór kennslan að mestu fram á Skúla- götu 2 I Reykjavik i húsi Fiskifé- lagsins. Nú fer bóklega námið fram i Hafnarfirði, að Trönu- hrauni 8, en unnið er að þvl að verklega námið geti farið fram hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, og að þvl stefnt að þar geti það hafist næsta haust. í haust hefst einnig kennsla i framhaldsdeild skólans, og sagði Guðmundur að undirbúningur væri hafinn undir U.ð, að ein- staka bekkjardeildir gætu tekið til starfa víðs vegar úti á landi. Skólastjórinn, Siguröur B. Har- Gunnar Alexandersson flytur á- varp fyrir hönd nemenda skólans. aldsson sagði að 51 nemandi hefði stundað nám við skólann I vetur, 24 i þriðja bekk, 11 i öörum bekk og 16 i 1. bekk. Við skólann störf- uöu i vetur tveir fastir kennarar auk skólastjóra og tiu stunda- kennarar meðan bóklega kennsl- an stóð yfir, en kennslu I skólan- um er skipt i bóklegar- og verk- legar annir. Skólaárið er 11 mán- uðir. Tveir þriðju hlutar hinna nýút- skrifuðu fiskiðnaðarmanna munu geta haldið áfram námi I fram- haldsdeildinni, en hún mun út- skrifa fiskvinnslumeistara eftir eins árs nám til viðbótar og fisk- tækna að loknu tveggja ára námi. Ekki rhun enn vera ákveðið um stöðu nemenda Fiskiðnskóians I námslánakerfinu, en skólastjóri bjóst við, að þetta mál yrði ljóst orðið I haust. Nokkurri deilu hefðu valdið i vetur þau starfsréttindi, sem skóli þessi kynni að veita nem- endum sinum. Skýrði skólastjóri frá þvi að nú virtist það mál vera að komast á úrslitastig, og nefndi Framhald á bls. 13 Þeir höfðu tengt geimförin tvö úr sömu fjarlægð og að þvi loknu settu þeir tæki geimstöðvarinnar i gang. Rannsóknir þær sem Sal- jut 3 á að gera eru á yfirborði jarðar, gufuhvolfinu og úti i geimnum. Einnig yerða rannsök- uð áhrif geimferða á mannslik- amann og hvernig bæta má vinnuskilyrði geimfara um borð i geimstöðinni. Að sögn Tass liður geimförun- um vel og öll tæki geimstöðvar- innar starfa eðlilega. Thailand Bangkok 5/7 — Miklar mót- mælaaðgerðir hafa verið við- haföar I Bangkok undanfarna daga og er þeim beint gegn aðallögreglustöð borgarinnar. Lögreglan hcfur mætt aðgerð- unum af mikilli hörku og tvi- vegis skotið að mannfjöldan- um. Hafa a.m.k. 23 látiö lifið Lögreglan myrðir 23 og fjöldi manna særst. Öeirðirnar hófust er lögregl- an handtók kinverskan bilstjóra sem hafði að sögn lagt bilnum sinum ólöglega. Lögreglan i Bangkok hefur áunnið sér mikið hatur borgarbúa eftir óbilgjarnar aðfarir i óeirðunum sem urðu i október og veltu stjórn lands- ins úr sessi. Lögreglan lokaði öllum göt- um sem liggja að lögreglustöð- inni en þá létu mótmælendur flöskum og grjóti rigna yfir hana. Forsætisráðherra landsins hefur lýst yfir neyðarástandi i borginni. Stjórnin hefur visað á bug fullyrðingum um að óeirðirnar stafi af kynþáttahatri milli kinverja og thailendinga en þessi þjóðarbrot áttu i miklum illdeilum stuttu eftir siðari heimsstyrjöld.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.