Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 7
Laugardagur 6. júH 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 v vj41 Líf á öörum hnöttum - fjóröa grein Geimferðir og annarskonar líf sem „ópíum fyrir fólkið” Geimskipið jörðin séð frá tungli: Kenningasmíði um líf á öðrum hnöttum er einatt notuð til að telja fólki trú um að okkar eigin vandamál séu ekki félagsleg heldur aðeins tæknilegs eðlis. Hér I blaðinu hafa birst þrjár greinar að undanförnu um lff á öðrum hnöttum. Fyrst var i þeim reynt að gera grein fyrir likindum á þroskuðu lifi á öðrum hnöttum, scm voru taidir þó nokkrir. Þá var vikið að þvi, að reikna út lfkur á þvi að koma mætti á sambandi við slikt líf, og þóttu þeir mögu- leikar satt að segja I rýrasta lagi. í þriðja lagi gerði höfundur grein fyrir því viðhorfi sinu, að ef að við gætum komist i samband við aðra menningu, þá hlyti hún að vera komin nokkuð á undan okkur. Og þar með gæti hún ekki verið kapi- talisk, vegna þess að hún hlyti að hafa leyst nú þegar þá vist- kreppu, sem hann telur bundna eðli kapitalismans — truflun á eðlilcgu sambandi milli lifvera, milli „manns” og umhverfis. Hér á eftir verða rakin helstu atriðin i lokagrein höfundar, sem fjallar um það, hvernig kenning- ar um lif á öðrum hnöttum eru notaðar i hugmyndafræðilegum eða beinlinis pólitiskum tilgangi.. Höfundur segir sem svo, að það séu kapitaliskir framleiðsluhætt- ir, sem móti lif okkar á þessari jörð aðmestu. Sú skipan er, segir hann, óhugsandi án sifelldrar þenslu, nýrra markaða. En jörðin er sjálf lokað kerfi, og þvi er ekki hægt að auka hagvöxtinn og selja meira endalaust. Þvi er i dag um að ræða andstæður á milli þenslu- stefnu kapitalismans og þess lok- aða kerfis sem hann starfar i, og að sinu leyti þokar til hliðar i vit- und manna þeirri þverstæðu sem þýðingarmest er — andstæðum launavinnu og auðmagns. Geimferöir Hér koma geimferðir til sög- unnar, sem reynast heimsvalda- stefnu til margra hluta nytsam- legar. Þær hafa hernaðarlegu hlutverki að gegna. Þær eru not- aðar til að „gegnumlýsa” hnött- inn i leit að nýjum hráefnalind- um. Þær eru notaðar til að full- komna stjórntæki. En þar með er ekki allt upp talið. Þær andstæður, sem áður voru nefndar, má leysa á tvenns konar hátt. Það er hægt að afnema kapitaliska framleiðsluhætti, láta þá rýma fyrir öðrum framleiðslu- háttum, sem gætu tryggt vist- fræðilegt jafnvægi á jörðunni. Eða þá, að reyna má að stækka hið vistfræðilega kerfi, það er að segja flytja umsvif mannsins út fyrir hnöttinn. Þetta er reyndar ekki mögulegt, a.m.k. ekki innan þess tima sem leysa þarf vist- kreppuna á, ef ekki á illa að fara. En hinsvegar er hægt að telja fólki trú um að þessa kreppu megi forðast, enda þótt ekki sé skipt um framleiðsluhætti, þjóðfélags- skipun. Lítið skref Og það er einmitt þetta sem reynt er að gera með geimferðum og kenningum um lif á öðrum hnöttum. Þegar menn stigu fyrst á tunglið 1969 áttu sjónvarpsþulir og fréttaskýrendur varla orð til að lýsa þvi hve „griðarlegt stökk” þetta „litla skref” hefði verið i sögu mannsins. Einn likti þessum tiðindum við það, er fyrstu dýrin skriðu upp úr sjónum og á land. Geimferðir eru m.ö.o. notaðar til að koma inn þeirri blekkingu hjá mönnum að þeir geti rofið hið lokaða kerfi sitt inn- an tiltölulega skamms tima og þar með til að beina athyglinni frá þeim brýnu verkefnum að breyta mannlegu félagi til að það spilli ekki frekar en orðið er lifs- skilyrðum á þvi geimskipi sem jörðin er. Geimferðir verða eins konar ópium fyrir fólkið, eins og Marx kallaði trúarbrögðin. Hvers konar líf? Eins og áður var sagt, eru þó nokkrar likur á þvi, að þroskað lif sé að finna i geimnum. En það sem menn taka siður eftir i vangaveltum um slikt lif er það, að þeir eru alltaf að yfirfæra rikjandi jarðnesk viðhorf yfir á mögulegt lif á öðrum hnöttum. Þegar menn reikna með einskon- ar kreppulausum kapitalisma á öðrum hnöttum, þá eru þeir beint og óbeint að reyna að sanna það fyrir sér, að hið rikjandi skipulag á jörðunni geti áfram verið til án þess að lenda I kreppu sem ann- aðhvort tortimi honum og komi á öðru kerfi, eða þá tortimi sið- menningunni. Með öðrum orðum: menn eru að koma þvi að hjá sjálfum sér og öðrum, að vanda- mál jarðarinnar verði leyst með vissum framförum i tækni, að fé- lagslegar byltingar séu óþarfar. I þessu sambandi tala menn eins og Sebastian von Hörner og Fred Hoyle um að samband við menningu á öðrum hnetti gæti kannski fært svo mikla þekkingu yfir til okkar að við gætum leyst okkar vandamál. Þarna má enn finna hliðstæðu milli félagslegs hlutverks utanjarðarliffræði og trúarbragða: maðurinn leysir ekki vandamál sin með þvi að breyta samfélagi sinu, segja full- trúar beggja beint eða óbeint — heldur með sambandi við þrosk- aðan tækniheim — eða almættið. Náttúruskoðun fyrr og nú Með þessari gagnrýni er ekki verið að kasta rýrð á þau fræöi sem lúta að þvi að kanna mögu- leika á lifi á öðrum hnöttum. Hinsvegar er það dregið fram, að við núverandi aðstæður, hættir þessum fræðum við að taka mið af rikjandi hugmyndafræðilegum viðhorfum. Þessi hugmyndafræði er aö mörgu leyti i andstöðu við fyrra landnám kapitalismans i náttúr- unni. Vegna útþensluþarfar hans var náttúran brotin undir vald hans sem ný hráefni, ný fram- leiðsluöfl. „Það er fyrst við að- stæður kapitalismaV segir Marx, „að náttúran verður manninum hreint og beint nytsamur hlutur, hættir að njóta viðurkenningar sem vald út af fyrir sig”. En á þvi skeiði sem nú stendur yfir kemur náttúran ekki aðeins fram sem tæki til að auka þenslu i kapitaliskum framleiðsluháttum, heldur einnig sem takmörkun slikrar þenslu. Þekking á náttúr- unni er nú um stundir viðurkenn-" ing á náttúrunni sem takmörkun, sem andstæðu við kapitaliska framleiðsluhætti, en ekki sem þjóni þeirra. Við þessar aðstæður hefur það gerst i reynd, að kenningasmíði um náttúru hnattanna er höfð til að felaþær þverstæður sem felast i hinu lokaða vistkerfi okkar. Utanjarðlifsfræði og geimferðir eru hafðar til að fela félagsleg vandamál, til að afneita vist- fræðilegum lögmálum sem i gildi eru i náttúrunni. Og þessi afneit- un tekur meira að segja á sig trúarlegt form: menn fara að trúa á þá hjáguði á öðrum hnött- um sem eiga að frelsa mannkynið i neyð. (AB byggði á greinaflokki eftir Tor Nörre tranders i Informa- tion) Agúrkutímar- og þó NÚ ER HAFINN hinn sæli timi agúrkunnar i blaðamennsku, svo að við depónerum af þeim dönsku I málfari eins og löngum fyrr. Nú færist fjör i angur- værar lýsingar af kyrrlátum smábæjum úti á Jótlandi og suður I Frans, i vangaveltur um það, hvað hefði orðið ef að Hitler hefði haldið sig við klessumál- verk og Mussolini haldið áfram að skrifa sögulega reyfara, i samanburð á Nixon og þeim keisurum Rómar sem hrak- legastir hafa verið, i aulafyndni, gervifréttir þar sem fyrirsögnin er laus við textann 1 merkingu og mikilvægi. Hinn þétti agúrku skógur mun meira að segja kæfa þann meinkvikinda stefnu- varg, sem hefur um hrið hresst okkur Þjóðviljamenn mikið og talið okkur trú um að við værum þó nokkurs virði. Það liggur við, að það mætti leggja niður blöð hér á landi, ef að menn þyrftu ekki enn að átta sig á kosningaúrslitum og spá i framhaldið, þvi óneitanlega koma þeir hlutir okkur meira en litið við. • ÞAÐ VAR KANNSI ekki svo undarlegt, að Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna færu verst út úr kosningunum: það virðast fá skynsamleg rök fyrir þvi að þriðji krataflokkurinn reyni að hasla sér völl á milli hægrikrataflokks eins og Alþýðuflokkurinn er og vinstri- krataflokks eins og Alþýðu- bandalagið nánast er, þott rót- tækni sé reyndar misjafnlega vel þroskuð innan þess. Þó gat maður haldið, að liðsinni ýmissa sómasamlegra manna mundi draga flokkinn lengra. Þvi miður verður ekki visað á bug ábendingum um, að ýmis- legt það sem nú tryggði ihaldinu mikið fylgi megi beint og óbeint rekja til frammistöðu fulltrúa SFV i vinstristjórn. Eins og allir vita beitti Sjálfstæðisflokkurinn mjög fyrir sig i kosningabar- áttunni undirskriftasöfnun Varins lands, allt var gert til að setja jafnaðarmerki i vitund fólks milli flokksins og þess fyrirtækis. Og sú undirskrifta- söfnun náði svo langt sem raun bar vitni meðal annars vegna þess, að allmikill slæðingur af fólki hélt sig með þessu vera að tryggja sér aðgang að kana- sjónvarpi áfram. Hefði vinstri stjórnin og þá menntamálaráð- herra tekið á sig rögg, strax og stjórnin var mynduð, — hún stóð vel að vigi og var að gera ýmsa þarfa og nytsama hluti — , og lokað kanasjónvarpinu, þá hefði margt getað farið öðru- visi. Að visu hefði þó nokkur hópur manna rekið upp mikið væl eins og krakki, sem verið er að venja af snuði. En það hefði fljótt liðið hjá. Núna væri þetta sjónvarp varla orðið meira virði en snjórinn frá þvi I fyrra. Og öll viðbrögð hinna skoðanalitlu við Vörðu landi og spegla- sjónum ihaldsins með það hefðu orðið önnur. • ÉG HELD , að það sé mjög mikilsvert að leggja áherslu á, hvers virði það er að skera niður allt það sem gerir herinn að einhverskonar hluta hversdags- lifs landsmanna. Án slikra áfangasigra vinnst aldrei heldur neinn stórsigur i þeim efnum — og þvi þótti mér skrýtið, þegar Magnús Torfi.bar fram þá siðbúnu kenningu i W laugardags sjónvarpi rétt fyrir kosningar, að hann hefði talið rétt að bæði hyrfu i senn, herinn og hans sjónvarp«Mál sem þessi gætu vel haldið áfram að vera ofarlega á baugi. Þvi það má búast við þvi, að ef Sjálfstæðisflokknum tækist að berja saman stjðrn með Framsóknarmaddömunni, þá mundi hann leggja áherslu á að nota aðstöðu sina til að negla bandariska herinn sem fastast við daglegt lif og afkomu tslendinga. Og hefur þegar flogið fyrir i þvi sambandi, að Geir myndi sem forsætisráð- herra hljóta bliðar viðtökur hjá Alþjóðabankanum og öðrum skyldum stofnunum, eins og áður hafa fengið fulltrúar Suður-Kóreu, Filippseyja, Brasiliu og núverandi stjórnar Chile — sem og aðrir þeir vald- hafar sem Bandarikjunum eru sérstaklega kærir. Árni Bergmann

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.