Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 06.07.1974, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. júli 1974. Hvernig væri aö kynna sér málflutn- inginn? Ég varð satt að segja meira en litið hissa þegar ég, viku fyrir Alþingiskosningar, las i Þjóðvilj- anum viðtal við Þórunni K. Thors, sem var 6. maður á lista Alþýðubandalagsins i Reykjavik. Orð hennar um rauðsokka og störf þeirra voru eins og hvert annað morgunblaðsþrugl og sem bæði félaga i Alþýðubandalaginu og rauðsokk er mér ómögulegt að láta þeim með öllu ósvarað. Það litur ekki út fyrir að Þór- unn hafi haft fyrir að kynna sér þau mál, sem hún þó leyfir sér að hafa svo ákveðnar skoðanir á, og meira en það, — ráðast i rauninni á vissa félaga sina á listanum. Fróðlegt væri að heyra i hverju það kemur fram, að konur i Rauðsokkahreyfingunni hafi minnimáttarkennd gagnvart karlmönnum? Hvernig getur það samræmst skoðunum sósialista að láta svona út úr sér? Af láglaunafólki eru konur i miklum meirihluta og það er fyrir þær, sem Rauðsokkahreyfingin heyr baráttu sina. Þvi miður hef- ur okkur ekki tekist enn, frekar en Alþýðubandalaginu, að fá þessar konur til að vinna með okkur nema að litlu leyti, en við náum þó til þeirra meira og minna i starfi okkar. Alþýðubandalagið telur sig vera verkalýðsflokk, en ég er sannfærð um, að með svipuðu hugarfari og skoðunum á jafn- réttismálum og fram komu i áð- urnefndu viðtali, verður ekki bar- ist fyrir láglaunafólk. Það er aug- ljóst, að Þórunn litur á baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna sem ein- angrað fyrirbæri i þjóðfélaginu, en flestir sem hafa kynnt sér þessi mál vita, að sú barátta verður ekki slitin úr samhengi við aðra baráttu fyrir breyttu þjóðfé- lagi. Það er hart að verða að lesa i Þjóðviljanum þær rangfærslur og staðlausa stafi, sem þarna koma fram um fóstureyðingarmál, og hefði Þórunn átt aö sjá s'óma sinn i að kynna sér málflutning Rauð- sokkahreyfingarinnar bæði um getnaðarvarnir og fóstureyöingar áður en hún dæmdi. Sannleikur- inn er sá, að Rauðsokkahreyfing- in og fulltrúar hennar hafa senni- lega fjallað meira og fyrr opin- skátt um getnaðarvarnir á opin- berum vettvangi en nokkur annar aðili, bæði i sjónvarpi, útvarpi og ieigin blöðum, t.d. efast ég um að áður hafi komiö fram i fjölmiðli jafn itarlegar upplýsingar um þessa hluti og gefnar voru i einum útvarpsþáttanna „Ég er forvitin, rauð”, sem rauðsokkar sáu um fyrir 2 1/2 ári. Það er algerlega rangt, að við tönnlumst 'alltaf á fóstureyöing- um, en bendum ekki á fræðslu um kynferðismál og getnaðarvarnir. Og við höfum aldrei haldið öðru fram en að fóstureyðing væri neyðarúrræði. En um þetta má reyndar lesa nánar i þeim blöð- um, sem við höfum gefið út. Nú eru grannlönd okkar hvert af öðru að lögleiða rýmkuð á- kvæði um fóstureyðingar og verði það ekki gert á Islandi verða það eingöngu efnaðar konur, sem geta farið til útlanda og fengið fóstri eytt, þegar þær finna sig til þess knúðar af einhverjum ástæð- um. En fyrir hvaða fólk erum við að berjast i Rauösokkahreyfing- unni og i Alþýöubandalaginu? Mig langar að lokum að benda Þórunni K. Thors og öðrum á tvær skýrslur um félagslegar aðstæður á Islandi, sem gagnlegt gæti verið að kynna sér. önnur varðar konur, sem neitað var um vönun og/eða fóstureyðingu, og Svaya Stefánsdóttir félagsráð- gjafi sagði frá I útvarpinu i fyrra, en hin er rannsókn á kjörum ungra, einstæðra mæðra i Framhald á bls. 13 Svava Jakobsdóttir Sigurlaug Bjarnadóttir Ragnhildur Helgadóttir var varaforseti borgar- stjórnar Reykjavíkur síð- asta tímabil. Um leið og jafnréttis- síðan óskar þeim til ham- ingju með árangurinn, væntum við þess, að þær haldi uppi heiðri is- lenskra kvenna, láti ekki skipa sér á neinn sérstak- an ,,kvennamálabás", en standi þó vörð um þau mál, sem sérstaklega varða hag kvenna vegna þeirrar mismununar ÞRJÁR KONUR ÞINGI-5% Á kynjanna sem við búum við í okkar þjóðfélagi í raun, hvað sem lögunum líður. —vh. Þrjár konur eiga sæti á alþingi eftir kosningarn- ar á sunnudaginn var, en það eru 5% þingmanna. Konurnar eru Svava Jak- obsdóttir þingmaður Al- þýðubandalagsins og Ragnhildur Helgadóttir og Sigurlaug Bjarnadótt- ir, þingmenn Sjálfstæðis- f lokksins. Allar eru þessar konur þjálfaðar í stjórnmála- störfum, þær Svava og Ragnhildur áttu báðar sæti á þingi síðasta kjör- tímabil, en nýliðinn á þingi, Sigurlaug Bjarna- dóttir, hefur hinsvegar margra ára reynslu af borgarmálastörf um og ÞRÓUIM Bva-nava SYNM31 l/V IW ’.XXUfSÞJ S5 JUU - 11 AGUST Í'MIA LAfsJDfS OG IajCJOAR • IXXí Af! Kciðraði hcrra I Ákvcðift hefur verið, að haldin verði sýningin „ÞRÓUN — 874 - 1974“ í Rcykjavík nú í sumar að undirlagi Þjóðhál'ðarnefndar. Mun hún fjalla um þróun atvinnuveganna frá upphafi byggðar á íslandi fram á þennan d-»g, en auk þess mun Reykjavíkurborg hafa sérstaka deild og ríkisstofnanir verða með deild út af fyrir sig, þar scm sýndur vcrður þáttur stjórnvalda í uppbyggingu atvinnulífsins. í sambandi við sýninguna verður gefin út vönduð skrá, þar sem bæðLverður skýrt skipulag Aðeins gert ráð fyrir körlum sem auglýsend- um? Með bréfi þvi, sem hér sést upphafið að, fylgdi eftirfarandi orðsending: „Við erum hér tvær kven- kyns, sem vinnum við auglýs- ingadreifingu. Finnst þér hægt að senda okkur svona bréf?” t bréfinu er gefinn kostur á að auglýsa starfsemi fyrirtækis viðtakanda i sýningarskrá, en það er greinilegt bæði á ávarp- inu og i lokin, þar sem stendur, að „hringt verður til yðar innan skamms og þér um þaö spurð- ur”, að það er ekki gert ráð fyrir kvenkyns auglýsendum. «i. Enn við sama heygarðshornift; fari kvenfólk i einkaritarastörf, þá er það lagst undir yfjrmanninn um leift. Blessaðar, farið ekki að eyöa peningum i svonalagaða hugs- unarleysingja. Það væri i mesta lagi, að þið þægjuð ókeypis aug- lýsingu sem yfirbót af þeirra hálfu. Landssambandið, en ekki VR Formaður Verslunarmanna- félags Reykjavíkur, Guðmund- ur H. Garðarsson hringdi i mig vegna greinar frá félaga i Verslunarmannafélagi Reykja- vikur, sem birtist á siðustu siðu, en þar var sagt frá og birtar myndir af miður smekklegum skritlumyndum, sem greinar- höfundar sagöi úr hátiðablaöi i tilefni 15 ára afmælis félagsins. Þetta er misskilningur, sagði Guðmundur, og svona myndir hafa aldrei birst í félagsblaði VR. Hér væri um að ræða blað, sem Landsamband islenskra verslunarmanna hefði gefið út. Er það hérmeð leiðrétt og hann beðinn afsökunar á mistökun- En eftir sem áður: Hvaö kem- ur þá forráðamönnum blaðs landssamtaka verkalýðsfélaga i ákveðinni grein til aö birta skritlur, sem eru bein móðgun við konur i stéttinni, — og I þess- ari stétt eru konur i meirihluta. Engin kona þar, eða hvað? S.K. hringdi og sagðiist lengi hafa ætlað aö spyrja að þvi, hvernig það væri með Þjóðvilj- ann og Neskaupstaö. Um þann stað hefðu komið hvorki meira né minna en 8 siður i blaðinu i vor, að sinu leyti ágætis efni, en meðal þeirra sem talað hefði verið við þar eystra hefði ekki verið ein einasta kona. Hvers- vegna i ósköpunum ekki? spyr S.K. Sá blaöamaðurinn enga konu þar, eöa hvað? Svo bregðast krosstré... er yfirskrift bréfs frá E.M., sem sendir fróðleikspistil um konur og Nóbelsverðlaun, sem birtist nýlega (6/6) i „Heimilis- timanum”, en þar segir ma. að siðan 1901 hafi mörgum hundr- uðum Nóbelsverölauna verið út- hlutað, en aðeins tólf þeirra hafi konur fengið og eru þær taldar upp i pistlinum (Madame Curie tvisvar efnafræðiverðlaun, dótt- ir hennar Irene Joliot, Bertha von Suttner Austurriki, friðar- verðlaun, Grazia Deledda, ítaliu, bókmenntaverðlaun, Sig- rid Undset, Noregi, bókmennta- verðlaun, Jane Addams, Bandarikjunum, friðarverð- laun, Pearl S. Buck, Bandarikj- unum, bókmenntaverðlaun, Emily Balch, Bandarikjunum, friðarverðlaun, Gerty Cori, Bandarikjunum, læknisfræði, og Nelly Sachs, Þýskalandi, bókmenntaverðlaun). Vegna þess, að ein kona hefur auðsjáanlega fallið úr, skrifar E.M., má geta þess,að Chile- skáldið Gabriella Mistral fékk bókmenntaverðlaunin i lok sið- ari heimsstyrjaldar, 1945 eða '46. Varla verður slik „gleymska” þó skrifuð á reikn- ing karlkynsins. Umsjónarmað- ur blaðsins er Sjólaug Braga- dóttir, sem sjálf er praktiser- andi skáldkona. #/Ég fæ gæsahúö" Ein er, sú auglýsing i sjón- varpinu, sem fer svo hroðalega i taugarnar á mér, að ég fæ gæsa- húð. Þar er verið að auglýsa frystikistu sem vafalaust er ágæt, en hún er sögð „spara konunni sporin og manninum útgjöldin”. Ekki déttur mér i hug að kaupa svona frystikistu til aö spara manninum minum sporin út i búð. Hann hefur gaman af að kaupa i matinn. Útikona Og með bréfinu frá útikonu skuium við loka belgnum i þetta sinn. Nú eru sumarleyfin i há- marki og fólk á ferð og flugi um allar trissur. Þá dettur mér i hug, að „glöggt er gests augað” og varla trúi ég öðru en lesendur rekist á ýmsa hluti á ferðum sinum um landið eða erlendis, sem snerta jafnréttismálin, og væri gaman að fá linu um slikt, hvort sem horfir til góðs eða hins verra. Afram með smérið. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.