Þjóðviljinn - 06.07.1974, Page 3

Þjóðviljinn - 06.07.1974, Page 3
Laugardagur 6. júli 1974. pjóÐVILJINN — SÍÐA 3 Alþýðubandalagið Byggt við Kvennaskólann Klassíska línan Fróöir menn telja að hreindýrin séu a.m.k. 3700 að tölu, þar af rúmlega 600kálfar. Nærri4000 hreindýr Leyft verður að veiða 850 hreindýr í haust Dagana 22. og 23. júni fór fram talning hrein- dýra og reyndust þau vera 3.395, þar af 624 kálfar. Hins vegar gera talningarmennirnir ráð fyrir, að þrátt fyrir góð leitarskilyrði megi ætla INSÍ í eigið húsnæði Iðnnemasamband Islands hefur flutt starfsemi sina i rúm- gott eigið húsnæði að Njálsgötu 59 R. Skrifstofan verður opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.30 til 20.30 og fer þar fram venjuleg þjónusta við iðnnema og aðra, sem til INSI þurfa að leita. Einnig verður starfrækt i húsinu venjuleg félagsstarfsemi og áætl- ' anir eru um starfsemi. stóraukna fræðslu- Nýlega var INSl veitt aðild að Alþýðuorlofi og geta nú iðnnemar notið ódýrra orlofsferða á vegum þess, bæði til sólarlanda og or- lofsdvalar i Reykholti. Upplýs- ingar eru veittar á skrifstofu INSI og hjá Alþýðuorlofi. að dýrin séu allt að 10% fleiri eða rúmlega 3.700. Talningin fór fram samkvæmt loftmyndum er teknar voru úr flugvél og önnuðust þeir Ingvi Þorsteinsson og Agúst Guð- mundsson talninguna. Menntamálaráðuneytið hefur gefið út reglur um hreindýraveið- ar á Austurlandi árið 1974 þar sem heimilað er að veiða allt að 850hreindýr á timabilinu 1. ágúst til 15. september. Fleiri sveitarfé- lög fá nú hlutdeild i veiðinni en áður eða samtals 27. en ekki nema 17 i fyrra. erí „VIKT0RIA" sófasettinu ’Viktoria“ sófasettiö er fáanlegt í fjölbreyttu áklæöaúrvali. Unglingar og börn, sem störfuðu fyrir Alþýðubandalagið i Reykjavik við borgarstjórnar- eða alþingiskosningarnar, eiga kost á ókeypis ferð Þingvallahringinn. Farið verður með langferðabilum frá Sigtúni við Suðurlandsbraut - klukkan tiu á morgun, sunnudag, og komið til baka fyrir kvöldmat sama dag. Þátttakendur þurfa að láta skrá sig á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins eftir kl. 2 i dag, simi 2-86-55, og hafa með sér nesti. Farar- stjórar standa fyrir söng og leikjum. — Stjórnin. A fundi fræðsluráðs Reykjavíkur 13. júní sl. komu til umræðu upp- drættir að viðbyggingu við Kvennaskólann og þeir afgreiddir. Samþykkt var að heimila viðbygginguna með fimm atkvæðum gegn einu/ einn sat hjá. Fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í fræðsluráði/ Þorsteinn Sigurðsson var einn andvígur viðbygging- unni og lét hann bóka svo- fellda greinargerð fyrir atkvæði sinu: „Ég er andvigur viðbyggingu við Kvennaskólann af eftirtöldum ástæðum:l. Kvennaskólinn er ekki hverfisskóli. Hann er stað- settur i elsta hverfi borgarinnar, þar sem búast má við frekari út- þynningu ibúafjölda. Skóla- bygging á þessum stað er ekki i neinum tengslum við áætlanir borgar og rikis um uppbyggingu grunnskóla og framhaldsskóla (sjá álitsgerð nefndar mennta- málaráðuneytisins og borgar- stjórnar frá i april 1974). 2. Skólamálastefna stjórnar Kvennaskólans (úrvalsskóli annars kynsins) samrýmist ekki lengur nútima hugmyndum um uppeldisstarf og skólahald eins og þær birtast i ákvæðum um grunn- skóla og fjölbrautaskóla. Kvennaskólinn hefur fyrir löngu lokið sögulegu hlutverki sinu. Tilvist hans byggist ein- vörðungu á hefð. Allar tilraunir til að fella hann að skólakerfinu, án þess að brjóta hefðina eru dæmdar til að mistakast. Þess vegna mun ég greiða atkvæði gegn umræddri við- byggingu.” Á fundi borgarstjórnar á fimmtudaginn færði Adda Bára Sigfúsdóttir þetta i tal er fundar- gerð fræðsluráðs var til umræðu. Tók hún undir orð Þorsteins og beindi þvi til borgarfulltrúa að hugleiða þetta mál af kostgæfni. Þá reis upp Albert Guðmundsson heildsali, borgar- fulltrúi og núverandi alþingis- maður. Kvaðst hann vilja benda Alþýðubandalagsmönnum á að byltingin væri ekki um garð gengin og að þrátt fyrir það að rauðsokkar og annað vont fólk væri á móti skólanum þætti honum Kvennaskólinn góður skóli og myndi hann styðja hann af ráðum og dáð. Mótmælti hann harðlega þeim skilningi að skólinn væri i andstöðu við nútima stefnu i skólamálum! —ÞH Fellsmúla 26 (Hreyfilshúsinu) Simi: 85944 151 skráður atvinnulaus Þar af eru 114 konur en aðeins 37 karlar Atvinnulausir voru aðeins 151 á öllu landinu um siðustu mánaðamót samkv. skrán- ingu Félagsmálaáðuneytis- ins. Þar af voru 114 konur en aðeins 37 karlar. Fyrir mánuði voru 383 skráðir atvinnulaus- ir. I kaupstöðunum 30 karlar atvinnulausir og 64 konur, samtals 94 en voru 268 mánuði áður. 1 Reykjavik voru 52 atvinnulausir, þar af 35 konur, á ísafirði 21, þar af 19 konur, á Siglufirði 12, Sauðár- króki 5 og i Hafnarfirði ein kona. I kauptúnum með yfir 1000 ibúa voru 14 konur atvinnu- lausar, allar i Stykkishólmi. 1 öörum kauptúnum voru 43 skráðir atvinnulausir, þar af 36 konur. Þar er Djúpivogur efstur á blaði með 15 konur at- vinnulausar, á Stöövarfirði voru 11 atvinnulausir þar af 9 konur, á Vopnafirði 6 (4 konur), á Drangsnesi 5 konur, á Blönduósi 3 konur og á Hofsósi 3 karlar. Fulltrúi AB mótmœlir i frœðsluráði — „Kyngreining er samrýmanleg nútima stefnu i skólamálum” segir Albert

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.