Þjóðviljinn - 06.07.1974, Síða 5
Hagkvœmur ferðafélagi:
Vegahandbók■
in er komin út
Vega-
þjónusta
FÍB
Helgina 6.-7. júli n.k. verður
vegaþjúnusta FIB eins og hér
segir:
Vegaþjónustubifreið FIB 10
Kollafjörður — Hvalfjörður,
FIB 1 út frá Rvik. — Hellis-
heiði — Arnessýsla, FIB 8
Mosfellsheiði — Þingvellir —
Laugarvatn.FIB 18 til austurs
frá Akureyri, FIB 19 Egils-
staðir — Eiðar, FIB 20 Húna-
vatnssýsla, FIB 5 Borgar-
fjörður.
Aðstoðarbeiðnum er hægt að
koma á framfæri i gegnum
Gufunes-radio s.22384 Brú-
radio s. 951112, Akureyrar-
radio s. 9611004 og Nesradio s.
977200. Ennfremur er hægt að
koma aðstoðarbeiðnum á
framfæri i gegnum hinar fjöl-
mörgu talstöðvarbifreiðai;
sem eru á vegum úti.
Vegaþjónusta FIB vill
benda ökumönnum á að hafa
með sér viftureimar af réttri'
stærð, varahjólbarða og helstui
varahluti i kveikjukerfi. Fé-.
lagsmenn FIB njóta forgangs
um þjónustu og fá auk þess.
verulegan afslátt á allri þjón-
ustu hvort sem um viðgerð á
bilunarstað er að ræða, eðai
drátt á bifreið að verkstseðij
Vegaþjónustumenn Flb
geta þvi miður ekki tekið við
nýjum meðlimum i félagið, né
heldur vangoldnum félags-
gjöldum, en þeir sem áhuga
hafa á að gerast meðlimir i
Félagi Isl. bifreiðaeigenda
gefst kostur á að útfylla
inntökubeiðni hjá vega-
þjónustumönnum, sem þeir
siðan senda aðalskrifstofunni,
Armúla 27, Rvk.
þjónustutimi er frá kl. 14-21
á laugardag 6. júli og
sunnudag 7. júli n.k. frá kl. 14-
23.
Simsvari FIB er tengdur við
sima 33614 eftir skrifstofu-
tima.
Endurskoðuð
með
ítarlegum
leiðbeiningum
Örn og Örlygur hafa gefið út
endurskoðaða útgáfu af VEGA-
HANDBÓKINNI. Frá þvi að bók-
in kom út á sl. ári hefur Vegagerö
rikisins breytt númerakerfinu,
sem bókin byggir á, að talsverðu
leyti, og sáu útgefendur sér ekki
fært að gefa bókina út óbreytta af
þessum sökum. Mikil vinna hefur
verið lögð I breytinguna og tæki-
færið jafnframt notað til þess að
gera mun ýtarlegri og auðskiljan-
legri leiðbeiningar um hvernig
nota eigi bókina.
Það vafðist fyrir mönnum að
nota bókina, sem kom út á sl.
sumri, sökum þess að þeir gátu
ekki sett sig sem skyldi inn i kerfi
bókarinnar. Með hinum ýtarlegu
leiðbeiningum, sem nú er að finna
fremst i hinni nýju útgáfu ætti
hverjum manni að reynast það
auðvelt að nota bókina og njóta
hennar. Það er einnig nýjung I
þessari útgáfu, að fremst i bók-
inni eru ýtarlegar vegalengda-
töflur, prentaðar I tveim litum.
Annar liturinn táknar vegalengd-
ir frá Reykjavik suður um land en
hinn norður um land.
Svo sem I hinni fyrri útgáfu er
uppdráttur á hverri textasiðu af
viðkomandi landssvæði, prentað-
ur i þremur litur. Staðanöfn eru I
svörtum lit, nöfn á ám, lækjum og
sjó eru I bláum lit, en vegir og
vegnúmereru i rauðum. Á hverju
korti er að finna númer vegarins
og nafn, áfangastaði og fjarl.ægð
milli þeirra. Þá eru tilgreindar á
flestum uppdráttum fjarlægðir
frá Reykjavik, Akureyri, Egils-
stöðum og Höfn i Hornafirði.
Til hliðar við uppdrættina er
svo texti, þar sem rakin er i stuttu
máli saga og sérkenni viðkom-
andi staða. Höfundur texta er
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um, en framkvæmdastjóri Ferða-
félags Islands, Einar Guðjohnsen
aðhæfði textann uppdráttunum.
Skipulagningu kortanna gerði
Jakob Hálfdánarson, tæknifræð-
ingur, en teikningu þeirra annað-
ist Narfi Þorsteinsson. Jakob
annaðist alla endurskoðunarvinn-
una á þessari útgáfu.
Ritstjóri Vegahandbókarinnar
er örlygur Hálfdánarson.
6,5 milj. kr.hagnaður
Hagnaður af heildarrekstri
Sjóvátryggingafélags tslands
nam 6,5 miljónum króna á s.l. ári.
Iðgjaldatekjur félagsins voru 525
miljónir króna á árinu 1973 og
höfðu aukist um 88 milj. kr. frá
árinu 1972. Heildartjón ársins
1973 námu 382 miljónum króna.
Þetta kom fram á aðalfundi
Sjóvár sem haldinn var fyrir
skömmu. Tap varð á bilatrygg-
ingum — um 7 milj. kr. Einnig
var tap á tryggingum fiskiskipa
og slysatryggingu sjómanna.
Tryggingasjóðir Sjóvá námu 492
miljónum króna frá síðustu ára-
mótum og höfðu hækkað um 81
milj. kr. frá árinu áður. Sveinn
Benediktsson er nú stjórnarfor-
maður Sjóvá og aðrir I stjórn:
Agúst Fjelsted, Björn Hallgrims-
son, Ingvar Vilhjálmsson og Teit-
ur Finnbogason. Framkvæmda-
stjóri er Sigurður Jónsson.
Laugardagur 6. júll 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Davíð
°g
Golíat
Eimskipafélag Islands hefur
veriö athafnasamt að undan-
förnu og keypt mörg ný skip sem
færa varning heiman og heim.
Eitt þeirra otar stefninu fram á
þessa mynd, en i skjóli þess klúka
hógværar trillur og lítillátar i
höfninni. (Ljósm. S.dór)
Alverið í Straumsvík
Fser orkufrekan
nágranna
Alverið i Straumsvik fær
innan þriggja ára
nágranna, sem verður ekki
smávaxinn , þrátt fyrir
ungan aldur. Fyrirhugað
er að reisa verksmiðju,
sem mun nýta brotajárn til
vinnslu á steypustyrktar-
stáli og yrði það fyrsta
verksmiðjan hérlendis,
sem nýtti brotajárn.
Það er fyrirtækið Stálfélagið
h/f, sem stendur að stofnun verk-
smiðjunnar. Stálfélagið var sett á
laggirnar árið 1970 og þá gagn-
gert i þeim tilgangi, að kanna
möguleika á stofnun brotajárns-
verksmiðju.
Hingað til hefur allt steypu-
styrktarstál verið flutt inn, en
brotajárn hins vegar nýtt i upp-
fyllingu eða selt úr landi fyrir
hlægilega lágt verð. Gjaldeyrir
ætti þvi að sparast töluvert, ef
fyrirtækið nær að risa.
En ljóst er, að hráefnisskortur
getur hugsanlega staðið i vegi
fyrir eðlilegum framgangi fyrir-
tækisins, þvi tækjakaupin eru það
mikil, að þau geta afkastað
vinnslu á meira magni en hingað
til hefur fengist hér. Forráða-
menn Stálfélagsins eru þvi
uggandi yfir þeirri ákvörðun, að
auka útflutning brotajárns, og
leggja til, að þvi verði safnað
saman og siðan sett i vinnslu, er
nýja verksmiðjan ris af grunni.
Það gæti orðið innan þriggja ára,
jafnvel tveggja.
Brotajárn er orðin eftirsótt
markaðsvara og i dag eru aðeins
tvær þjóðir, sem ekki banna út-
flutning á þvi, en það eru Banda-
rikin og Island. Arið 1980 er talið á
brotajárn verði ófáanlegt á
heimsmarkaði og verði þá hver
þjóð að vera sjálfri sér nóg.
Einkaaðilar standa að stofnun
verksmiðjunnar og hyggjast fjár-
magna hana með sölu hlutabréfa,
sem allir gætu keypt. Telja þeir
að fyrirtækið muni gefa stórkost-
legan arð og mun meiri en dæmi
eru til um islensk fyrirtæki
almennt. Eru þeir kampakátir
yfir þessum nýja fjáröflunar-
möguleika og leggja út i 600
miljóna króna kostnað með bros á
vör. gsP-
Happdrætti
Blindrafélags
Dregið var i Byggingahapp-
drætti Blindrafélagsins þann 5.
júli, og kom vinningur upp á miða
nr. 1922.
Allir miðar seldust og er
það 4. árið i röð sem slikur árang-
ur næst. Blindrafélagið vill af þvi
tilefni þakka landsmönnum öllum
sérstaklega fyrir góðar undir-
tektir og veittan stuðning nú sem
á undanförnum árum.
Vinningurinn er Toyota Mark II
2300 1974 að verðmæti kr.
700.000,00.
Hraði, þægindi
Hinar vinsælu Friendship skrúfuþotur Flugfélagsins sameina lands-
byggðinameð tíðum ferðum, hraða og þægindum. Áætlunarferðir
bifreiða milli flestra flugvalla og nærliggjandi byggðar-
laga eru í beinum tengslum við flugferðirnar. Njótið
góðrar og skjótrar ferðar með Flugfélaginu.
#
SKRIFSTOFUR FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT VEITA NÁNARI UPPLÝSINGAR OG FYRIRGREIÐSLU
FLUGFÉLAC ÍSLAJVDS