Þjóðviljinn - 06.07.1974, Page 6
6 StDA — PJOQVILJINN Laugardagur 6, júli 1974.
nomiuiNN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan óiafsson
Svavar Ge^tsson (áb)
Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
;Prentun: Blaöaprent h.f.
VINSTRIMENN TREYSTA Á ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
- INNAN STJÓRNAR SEM UTAN
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins i
Reykjavik sátu fund Verslunarráðs ís-
lands snemma i mai-mánuði. Þessir þing-
menn eru góðvinirnir Albert Guðmunds-
son og Geir Hallgrimsson. Þeir félagar
samþykktu ásamt öðrum félögum sinum i
islensku kaupsýslustéttinni, að meginat-
riðið við úrlausn efnahagsvandamála væri
að fella niður allt verðlagseftirlit og að
skerða jafnhliða kaupmátt almennra
launa. Þannig boðaði Verslunarráðið fyrir
kosningar hvað Sjálfstæðisflokkurinn
gerði, ef hann kæmist i meirihlutaaðstöðu
á alþingi eins og hann stefndi að.Nú tókst
Sjálfstæðisflokknum ekki að ná þvi marki,
og ekki er heldur unnt að mynda við-
reisnarstjórn. Þess vegna hefur nú komið
fram að vinstriflokkarnir geta áfram haft
meirihluta á alþingi, ef Alþýðuflokkurinn
gengur til samstarfs við vinstristjórnina.
Núverandi stjórnarsamstarf er þriggja
ára gamalt næstu dagana. Það var um
miðjan júli fyrir þremur árum að tókst að
mynda núverandi rikisstjórn.
Vissulega er það rétt sem sagt hefur
verið, að á ýmsu hefur gengið i stjórnar-
samstarfinu, en þvi neitar enginn að það
er fyrst og fremst einn aðili, sem hefur
reynst erfiður i samstarfi. Hér er að sjálf-
sögðu átt við Samtök frjálslyndra og
vinstrimanna. Hins vegar eru þeir aðilar
sem óheilir voru af hálfu þeirra Samtaka
gagnvart vinstristjórninni flestir úr hinni
pólitisku sögu. En samstarf Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalagsins gekk
jafnan mjög snurðulitið i stjórninni.
Nú, þegar menn velta þvi fyrir sér, að
mynda nýja vinstristjórn mun Alþýðu-
bandalagið leggja áherslu á það að haldið
verði áfram þvi uppbyggingarstarfi sem
fráfarandi stjórn beitti sér fyrir innan-
lands.
Alþýðubandalagið leggur áherslu á að i
efnahagsmálum verði vandinn ieystur á
kostnað gróðaaflanna og milliliðanna, en
ekki á kostnað launafólks svo sem gert
yrði undir hvers konar hægri stjórnum.
Alþýðubandalagið mun leggja áherslu á
það að treystur verði grundvöllur efna-
hagslifsins almennt með fjölþættum að-
gerðum i þá veru.
Alþýðubandalagið mun leggja áherslu á
sivaxandi jöfnuð inn á við, að þvi er varð-
ar lifskjör og hvers konar aðstöðu.
Alþýðubandalagið mun leggja áherslu
á, að út á við verði fylgt sjálfstæðri utan-
rikisstefnu, að hermannasjónvarpinu
verði lokað strax, og að staðið verði við til-
lögurnar frá 21. mars sl. um brottför hers-
ins og þeim fylgt eftir af fyllsta þunga.
Þegar samsteypustjórn er mynduð er
nauðsynlegt að festa sem flest atriði mál-
efnasamstarfs fyrirfram. Þess vegna
leggur Þ jóðviljinn áherslu á nauðsyn þess,
að svo verði um hnútana búið fyrirfram,
að sem best sjáist fyrir lausn þeirra
vandamála sem stærst eru, og á blaðið þá
við efnahagsmálin og þjóðfrelsismálin.
Alþýðubandalagið er nú voldugasti
flokkur vinstri manna og verkalýðssinna.
Vinstrimenn treysta Alþýðubandalaginu,
það kom i ljós i kosningunum. Alþýðu-
bandalagið mun ekki bregðast þvi trausti
hvort sem það verður innan stjórnar eða
utan, þegar samningum er lokið um
stjórnarmyndun.
Framsókn vildi ekki vinstra samstarf á Eskifirði
VÖLDU ÍHALDIÐ
Þjóöviljanum hefur borist bréf
frá Kristmanni Jónssyni, forseta
bæjarstjórnar Eskifjaröar, en
þaö bréf skrifar hann til þess aö
skýra meirihlutamyndun á Eski-
firöi.
Bréf Kristmanns er svohljóö-
andi:
A forsíöu hinn 15. þ.m. er grein
með yfirskriftinni: Framsókn i
Kópavogi valdi ihaldssamvinnu.
Sjálfsagt mun Framsókn i
Kópavogi svara fyrir sig, finnist
henni ástæða til, en siðar i grein-
inni stendur: ,,En þetta samstarf
ihalds og framsóknar er athyglis-
vert á landsmælikvarða. Sama
hefur skeð á Eskifirði, — ”
Þrátt fyrir kosningaham vona
ég að Þjóðviljinn vilji hafa það er
sannara reynist og birti þvi bréf
þetta.
Framsóknarmenn á Eskifirði
vildu koma á samstarfi innan
hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar,
með öllum flokkum og var unnið
að sliku samstarfi i fleiri daga,
eftir kosningarnar. Fyrst var
talað við fulltrúa Alþýðuflokks er
strax vildi vera með. Næst var
talaö við fulltrúa Alþýðubanda-
lags er lét liklega. Siðast var svo
talað við fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins.
Að lokum varð niðurstaðan sú
að Alþýðubandalagið vildi ekki
vera með i samstarfinu. Það gat
ekki einu sinni stutt bæjarstjór-
ann, er þó hafði verið fulltrúi þess
I hreppsnefnd um áraraðir. A-
greiningur um málefnasamning
var enginn.
Framsóknarmönnum á Eski-
firöi þótti það leitt að ekki skyldi
nú takast sú samstaða i bæjar-
stjórninni er þeir stefndu að og
verður að teljast langeölilegast i
litlu sveitarfélagi, þ.e. að allir
vinni saman eftir kosningar en
stofni ekki til pólitiskrar tog-
streytu. En eins og áður getur:
Alþýðubandalagið vildi ekki vera
með i sliku samstarfi.
Þegar svo virtist komið í við-
ræðunum, skrifaði ég neðanskráð
bréf:
Hr. Grétar Sveinsson,
Eskifiröi.
Það visast til þeirra viðræðna
er ég hefi átt viö alla efstu menn
þeirra lista er buöu fram viö
nýafstaðnar bæjarstjórnarkosn-
ingar á Eskifiröi, — i þeirri
Norrænt æskulýðs-
viðleitni aö fá alla fiokka til sam-
starfs. Þar sem þú hefir i siöustu
viöræöum okkar, lýst þig and-
vlgan sliku samstarfi, þá leyfi ég
mér aö biöja þig góöfúslega aö
staöfesta þaö bréflega og koma
bréfinu i minar hendur fyrir kl. 12
á hádegi,fimmtudag 6. júni.
Virðingarfyllst,
Kristmann Jónsson (sign)
Ekki stóð á svarbréfi Alþýðu-
bandalagsins. Það kom sam-
dægurs.
Herra Kristmann Jónsson.
t bréfi þvi sem mér barst i
hendur i dag óskar þú staö-
festingar á þvi aö AB viiji ekki
taka þátt I meirihlutamyndun i
bæjarstjórn Eskifjarðar, þ.e.a.s.
svokallaö „allra f iokkasam -
steypu” sem ég tel mjög hæpiö
stjórnarfyrirkomulag.
Afstaöa min byggist á þvi aö ég
tei sterkan minnihluta veita
aöhald og gera meirihlutann
ábyrgari geröa sinna. AB mun aö
sjálfsögöu eins og jafnan áöur
hafa málefnalega afstööu til
bæjarstjórnarmáia. Ég vona aö i
þessum fáu oröum komi skoöun
AB fram.
Aö lokum harma ég aö ekki
skyldi nást vinstri meirihluti i
fyrstu bæjarstjórn Eskifjaröar.
mót heyrnardaufra
Fréttatilkynning frá Félagi
heyrnarlausra:
Æskulýösmót heyrnardaufra á
Norðurlöndum verður haldið dag-
ana 7.-13. júli n.k. I Finnlandi.
Nokkrir þátttakendur frá fs-
landi sækja þetta mót. Sam-
norrænu mót þessi eru haldin til
skiptis á Norðurlöndunum,annað
hvébt ár.
í ráði er að næsta mót verði
haldiö á fslandi, en slfk mót hafa
ekki verið haldin hér áður.
Eins og getið hefur verið i frétt-
um hélt Norðurlandaráð heyrnar-
lausra stjór,narfund sinn i
Reykjavik nú fyrir skömmu.
fslendingar hafa til þessa Iítinn
þátt tekið i samstarfi Norður-
landa á þessu sviði, en vonir
standa til að á þessu sé að verða
breyting. fslenskum heyrnleys-
ingjum er mikill styrkur að þessu
samstarfi, þvi hvergi mun málum
þessa fólks betur komið en ein-
mitt á Norðurlöndum.
Formaður Félags heyrnar-
lausra er Hervör Guðjónsdóttir.
Fyrir hönd A.B. Eskifjaröar.
Björn Grétar Sveinsson (sign)
Að lokum þetta: Fulltrúar
Alþýðubandalagsins dæmdu sig
sjálfa úr leik á Eskifirði.
Kristmann Jónsson,
forseti bæjarstj.
— 0 —
Þjóðviljinn hafði samband við
Björn Grétar Sveinsson, bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins á
Eskifirði. Björn Grétar benti á,
aö hann hefði i bréfi sinu boðið
Framsókn uppá vinstra
samstarf, en hún hefði hafnað þvi
boði.
— Hvað eiga vinstri flokkarnir
marga fulltrúa i bæjarstjórn
Eskifjarðar?
— Ef við teljum Alþýðu-
flokkinn meðy eru bæjarfull-
trúarnir fimm af sjö. Hægt hefði
verið að mynda vinstri meirihluta
án kratanna, en þeir eiga einn
fulltrúa i bæjarstjórninni.
Það var ekkert launungarmál
hjá okkur við þessa meirihluta-
myndun, að við vildum setja
ihaldið út I horn, og okkur finnst
að það eigi að stefna að þvi alls
staðar.
— Hvað heldurðu að hafi ráðið
þvi, að Framsókn vildi frekar
mynda meirihluta með ihaldinu
en Alþýðubandalaginu?
— Það hefur hvergi komið
fram hvað olli þvi. Ég veit heldur
ekki til þess, að flokkarnir hafi
gert með sér málefnasamning,
nema þá um kjör á forseta bæjar-
stjórnar.
Það mætti gjarnan koma fram,
að Framsókn eignar sér bæjar-
stjórann hér, en þeir hlutu einnig
forseta bæjarstjórnar þrátt fyrir
það, að sá sem var oddviti
hreppsnefndar, Guðmundur Auð-
björnsson, er enn i bæjarstjórn og
var efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar. Framsókn
treystir Guðmundi greinilega
ekki til þess að vera forseti
bæjarstjórnar.
Ég vil aö iokum árétta þaö, aö
okkar stefna er sú, aö þaö eigi
hvarvetna aö reyna myndun
vinstra samstarfs og hafa Ihaldiö
utangarðs eins viöa og hægt er.
— Hvað hefur þú að segja um
úrslit alþingiskosninganna i Aust-
fjarðakjördæmi?
— Framboð Samtakanna hér
hafði það upp úr sér að samtals
féllu um 700 atkvæði dauð hér á
Austfjörðum, og þeir tóku af
okkur Helga Seljan sem
kjördæmakjörinn þingmann og
Sigurð Blöndal sem uppbótar-
mann.
-úþ
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Ðergstaðastr. 10A Simi 16995
UHUlj SKAMGIIim
KCRNFLÍUS
JONSSON
SKÚLAV0ROUSUG8
BANKASIRUI6
í»»m-i«ai8600
SeNOIBÍLASrÖMHP
Duglegir bílstjórar