Þjóðviljinn - 13.07.1974, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júll 1974.
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
KENJAR
Mál: Guðbergur Bergsson
78. Fljótur,
fólk vaknar
Uppruna verksins er áreiðanlega að
finna i einhverju ritverki. Hér er á ferð-
inni annað hvort norn eða nunna, sem hef-
ur verið að gamna sér við munka, álfa,
eða karlverur annars heims. 1 morgun-
sáriö, þegar hún hefur gert þá innantóma
eftir tröllskap sinn, gefur hún þeim maga-
fylli.
Sérkennilegt andrúmsloft daöurs og
einfeldni hvilir yfir myndinni. Kerlingin
er auðsæilega miklu llfsreyndari en karl-
arnir. Hún stjórnar bæði atburöarásinni
og myndbyggingunni. Annar karlinn er
eins og álfur út úr hól og furöu lostinn yfir
flsibelgnum, sem hann leikur á, eins og
harmoniku til að vekja reimleika ástar-
innar með vindgangi. Hinn karlinn, sém
Hklega hefur verið magamjórri og nætur-
leikirnir hafa gert glorhungraðan, hugsar
aðeins um matinn.
En kannski er kerlingin aöeins saklaus
skúringarkerling, sem hefur leitt vini slna
I kjallara og matarbúr einhvers klaust-
urs, þar sem hún ræstir gólf, I þeim eina
tilgangi að sýna þeim alla dýrðina, mat-
inn og búrið, svo aö hún verði merkilegri I
þeirra augum á eftir. Nú eru húsbændur
hennar að vakna og best aö halda burt út I
húmiö. Hún heldur á sóflinum til reiðu,
allt er tilbúiö. Og ef hún er norn, þá geta
vinir hennar sest á bak reiðskjótanum og
flogið burt reynslunni og ánægjunni rlk-
ari.
Bandaríkin
með 200
mílna
efnahags-
lögsögu
CARACAS 12/7 1 gær lýsti fulltrúi
Bandarikjanna á hafréttarráð-
stefnunni i Caracas yfir stuöningi
viö 200 milna efnahagslögsögu og
121 milna almenna landhelgi. Er
það i fyrsta sinn sem fulitrúi
Bandarikjanna lætur I ljós stuðn-
ing sinn við svo viðtæka efna-
hagslögsögu.
Bandariski fulltrúinn, Steven-
son, lagði áherslu á að Bandarik-
in hefðu viljað fylgja sveigjan-
legri stefnu I þessum málum.
Hann sagði, að lögfræðilegt inn-
tak slikrar lögsögu strandrikja
væri þýðingarmeira en sjálf tak-
mörk hennar. Þvi væru Banda-
rikin reiðubúin til að fallast á 200
milna efnahagslögsögu, ef að sú
lausn væri snar þáttur I heildar-
lausn sem fæli I sér ákvæði um
siglingafrelsi á sundum og á-
kvæði um nýtingu auðæfa innan
og utan 200 milna markanna.
Hugmyndin um 200 mllna efna-
hagslögsögu nýtur bersýnilega
stóraukins fylgis, en segja má um
stuðning risaveldanna beggja við
hana, að enn er margt á huldu um
það, hvernig þau vilji haga fisk-
veiðilögsögu.
27 ungir
Grikkir fá •
þunga dóma
AÞENU 12/7 27 Grikkir, flestir
stúdentar, voru dæmdir I þunga
fangelsisdóma i Aþenu I dag. Var
þeim gefið að sök aö hafa stofnað
kommúnistasamtök með það
fyrir áugum að steypa herfor-
ingjastjórn Iandsins.
Foringi hópsins, Thomas
Manopoulos, var dæmdur I tiu ára
fangelsi, en aðrir I fjögurra til sex
ára fangelsi.
Veitingu styrkja úr
Vísindasjóði lokið
Nú er lokið úthlutun styrkja
Vlsindasjóðs fyrir árið 1974, og er
þetta I sautjánda sinn, sem þess-
um styrkjum er úthlutað. VIs-
indasjóöi er skipt I tvær deildir,
Raunvisindadeild og Hugvisinda-
deild, og var ráðstöfunarfé sjóðs-
ins að þessu sinni skipt þannig, að
Raunvlsindadeild fékk til úthlut-
unar 67%, en Hugvisindadeild
33%. Sú stefna hefur nú verið
mörkuð að auka verulega styrki
til rannsóknarverkefna, en draga
að sama skapi úr styrkjum til
framhaldsnáms, enda hefur
Lánasjóður Islenskra náms-
manna (LtN) tekið við þvi hlut-
verki á siðustu árum.
Að þessu sinni bárust Raunvis-
indadeild 83 umsóknir, en veittir
voru 43 styrkir, sem námu alls
9.26 milljónum króna. Af þeim
voru 24 verkefnastyrkir (alls 5.31
millj. króna), en 19 styrkir til
framhaldsnáms og rannsókna
(alls 3,95 millj. króna). Hæsti
styrkurinn var 800000 kr. og hann
fékk Jónas Hallgrimsson læknir
til efniskaupa og launa handa
meinatækni I eitt ár til rannsókna
á lifefnafræðilegum breytingum á
hjartavöðva. Siðan voru veittir
ellefu 300.000 kr. styrkir, og fengu
þá fimm stofnanir og sex einstak-
lingar. Aðrir styrkir voru lægri.
Hugvisindadeild bárust að
þessu sinni 46 umsóknir, en veittir
voru 28 styrkir, sem námu alls 5,1
milljón króna. Af þeim voru 23
verkefnastyrkir (alls 4.1 millj.
króna) en 5 kandidata- og fram-
haldsnámsstyrkir (1 millj.
króna). Hæst voru veittir tveir
300.000 kr. styrkir, og fengu þá
Stefán M. Stefánsson borgardóm-
ari til að ljúka lögfræðilegri rit-
gerð um starfshætti, skipulag og
valdsvið stofnana Efnahags-
bandalags Evrópu, með sérstakri
áherslu á skýringu og túlkun
þeirra ákvæða sem dómstólinn
varða, og svo dr. Sveinbjörn
Rafnsson til að greiða hluta
prentunarkostnaðar doktorsrit-
gerðar sinnar „Studier I Land-
námabók”.
Á þessu ári hefur þvi verið
veittur 71 styrkur úr Visindasjóði
fyrir 14.36 millj. króna. Styrkirnir
voru jafnmargir I fyrra, en
heildarfjárhæð var þá nokkru
lægri. Formaður Raunvisinda-
deildar er nú dr. Guðmundur
Pálmason, og formaður Hugvis-
indadeildar en dr. Jóhannes Nor-
dal seðlabankastjóri.
Brynja leikstýrir í Þýskalandi:
Lysistrata i Bad Hersfeld
1 gær var Lysistrata eftir
Aristofanes frumsýnd á
leiklistarhátíöinni i Bad Hers-
feld undir leikstjórn Brynju
Benediktsdóttur.
Aðalleikarar eru meðal
þekktustu leikara I Þýskalandi:
Klaus Havenstein og Nicole
Heesters. Tónlist samdi Atli
Heimir Sveinsson sérstaklega
fyrir þessa þýsku uppfærslu.
Aöstoðarleikstjóri er Geirlaug
Þorvaldsdóttir. Búningar eru
fengnir aö láni hjá
Þjóðleikhúsinu, gerðir af Sigur-
jóni Jóhannssyni.
Hátiðin I Bad Hersfeld hófst á
miövikudaginn með sýningu á
Wallenstein eftir Schiller.
Prófessor Ulrich Erfurth, sem
leikstýrði Mariu Stuart hér á
landi I fyrra, er yfirstjórnandi
leiklistarhátíðarinnar og hann
setur á svið leikritið Puntila og
Matta vinnumann eftir Brecht,
sem sýnt var hér I Þjóð-
leikhúsinu fyrir nokkrum árum.
Æfingar fyrir hátlðina hafa
staöið I rúman mánuð. Leikið er
á útisviði I gömlum kirkjurúst-
um. A myndinni sjást leikarar á
æfingu á sviðinu.