Þjóðviljinn - 20.08.1974, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 20. ágúst 1974.
Þriðjudagur 20. ágúst 1974. ÞJÖÐVILJINN — StÐA 7
, J • '
ipulag heilbrigðismála á Kúbu og Kína
Eins og við sögðum frá í
sunnudagsblaðinu hefur
orðið mikil og góð breyting
á Læknanemanum. Áhugi
fyrir þjóðf élagsmálum
hef ur aukist mikið og jaf n-
framt áhugi fyrir sósíal-
isma. Til dæmis hafa birst
í blaðinu greinar um
ástand og þróun heil-
brigðismála í tveimum
sósíalískum löndum, Kúbu
og Kína. Hér á eftir verður
efni þessara greina rakið.
Fidel Castro gefur blóö
KÚBA
Framþróun heilbrigöismála á
Kúbu hefur veriö geysihröö siðan
byltingin var gerö I ársbyrjun
1959. A þeim fimmtán árum sem
liðin eru sjúkrahús þotiö upp um
alit land, læknar verið framleidd-
ir I hundraðavis og þaö sem mest
er um vert: allt skipulag heil-
brigðismála lagaö aö þörfum
fólksins I landinu, i staö þess aö
vera féþúfa og forréttindi yfir-
stéttarinnar.
Fyrirbyggjandi starf
í greininni um Kúbu er lögð á
það megináhersla strax i upphafi
að framfarir þær sem orðið hafa i
landinu séu þvi gð þakka að þar
var gerð sósialisk bylting, og að
forsendan fyrir lausn á gifurleg-
um vandamálum þróunarland-
anna i heilbrigðismálum sé
sósialisk bylting.
„Auðvaldslækningar miða að
lækningum sjúkdóma, en á þann
hátt gagna þær mest þeim, sem
eru í nábýli við lækna og geta
borgað. Sósialiskar lækningar
stefna að fyrirbyggingu sjúk-
dóma meðal þjóðarinnar, hvar
sem fólk býr og hverjar sem tekj-
ur þeirra eru.”
Fyrir byltingu var til einn
læknaskóli á allri Kúbu. Hann var
sniðinn að þeim þörfum auðvalds-
ins að hafa sem mestan hagnað af
lækningum. Engin kennsla var i
faraldsfræði og heilsufræði var
óverulegur liður i náminu. Nú eru
þrir læknaskólar á Kúbu og þar
eru ofannefnd fög grundvallar-
fög.'
Fyrir byltingu var ástandið
svipað þvi sem það er i öðrum
löndum Suður-Ameriku enn þann
dag i dag. Viðmiðanir lækna var
gróðinn og einstaklingshyggjan
og yfirstjórnin var gerspillt. Eftir
byltingu var þörfin á heilsugæslu
i landinu öllu könnuð, samin áætl-
un fyrir allt landið og dreifðir
þættir heilbrigðismálanna sam-
aneinaðir i einn.
Fyrir byltingu voru allflestir
læknar samankomnir i borgunum
en sveitavargurinn fékk að deyja
i friði þvi hann átti enga peninga.
Nú er hjálpin send út á land og er
ókeypis. Arið 1964 tóku lækna-
nemar ákvörðun um að heita þvi
að fara ekki út i einmennings-
praxis og að eyða tveimur fyrstu
árum að loknu námi á læknamið-
stöðvum og sjúkrahúsum i af-
skekktum héruðum.
Fólksf lótti
og viðskiptabann
Eitt höfuðatriði heilbrigðismál-
anna eftir byltingu hefur verið að
dreifa þjónustunni um landið. Ar-
ið 1958 var til einn héraðsspitali i
dreifbýlinu með tiu rúmum. Nú
eru þeir orðnir 47 að tölu með 1300
rúmum. Fjöldi sjúkrahúsa i land-
inu hefur þrefaldast á fimmtán
árum, úr 57 i 170, og við það bæt-
ast 250 læknamiðstöðvar sem áð-
ur þekktust ekki. Sjúkrarúmum
hefur fjölgað úr 21 þúsundi i 42
þúsund og eru nú 5.4 á hverja þús-
und ibúa.
En inn i þetta dæmi vantar
erfiðleikana sem aö steðjuðu eftir
byltingu vegna fólksfiótta og af
völdum viðskiptabanns Banda-
rikjanna. Einn þriðji af allri
læknastétt landsins, eða um 2000
læknar, flúðu land og af 158
læknaprófessorum við læknaskól-
ann i Havanna voru 17 eftir. Allar
lyfja-, tækja og timaritasending-
ar stöðvuðust skyndilega þar sem
þær höfðu nær allar komið frá
Bandarikjunum.
Nú eru læknar orðnir 7 þúsund i
Che Guevara var læknir og eftir honum eru höfö einkunnarorö kúb-
anskra heilbrigöismála: „Eitt Iif manns er meira viröi en rfkidæmi
auökýfingsins.”
landinu öllu eða þúsund fleiri en
voru fyrir byltingu og fólksflótta
og í læknaskólum eru nú 5 þúsund
nemendur i stað 3500 áður, þar af
útskrifast 500 læknar á ári i stað
350 áður. Af læknanemum eru
48% kvenkyns. Kennaraliðið sem
datt niður i 17 eftir byltingu er nú
orðið 250 að tölu.
„Venjan er sú, að læknir kemur
ekki heim til sjúklings nema i
neyð. Þess i stað kemur sjúkling-
urinn til rannsóknar og meðferð-
ar á þá læknamiðstöð, sem næst
er. Ef rannsóknir og sérfræðings-
álit eru nauðsynleg, "er sjúkling-
urinn sendur til héraðssjúkra-
hússins eða, ef nauðsyn krefur, til
þess spitala i Havana, sem er sér-
hæfður i þvi, sem upp kemur.
Sjúkraskýrslan er siðan send i
læknamiðstöðina til þess læknis,
sem fyrstur sá sjúklinginn, og þar
er eftirmeðferð gefin eftir þvi,
sem hæfa þykir”.
Menningarmiðstöð
Vitnað er i lækni einn sem fór
árið 1968 til Kúbu og sá þar m.a.
geðsjúkrahús. Hann segir:
„Fyrir 1958 var þetta gamall
vitlausraspítali þar sem 5000
sjúklingar fengu skrimtmeðferð.
Nú er búið að breyta þessu i op-
inn, rúmgóðan nýtiskulegan og
aðlaöandi stað, með iþróttavelli,
útibiói, kennslustofum, verkstæð-
um, bókasöfnum og aðstöðu fyrir
landbúnað og garðyrkju.
20% sjúklinganna eru i gæslu
vegna veikinda sinna. Annars
voru allir eitthvað að sýsla. Eng-
inn var i bælinu eða að flækjast á
deildinni. Mér fannst ég vera
staddur i vinnu- eða menningar-
miðstöð. Ekki sá ég nein höft eða
varðmenn. Sjúklingarnir sjá um
einhverja stærstu tilrauna-
hænsnarækt á Kúbu. Ég eyddi
einum tima i samkomusalinn, þar
sem sjúklingarnir eru allan dag-
inn að vinna i leiklist, tónlist og
dansi. Að þvi er virðist lifa þessir
sjúklingar heilbrigðu lifi i skipu-
lögðu samfélagi að geðsjúkdómn-
um slepptum.”
Fjárútlát til heilbrigðismála
hafanæráttfaldastániuárum, úr
21 miljón peseta árið 1958 upp i
158 miljónir árið 1967. Þetta sýnir
vel hve mikla áherslu Kúbumenn
leggja á gott heilsufar þjóðarinn-
ar. Þeir stefna að þvi að fyrir-
byggja sjúkdóma og að veita
ókeypis lyf og læknishjálp. Einnig
að hafa hjúkrunarfólk, lækna og
tannlækna þar sem þörf er á.
Mikill árangur
Og hvaða árangur skyldi þetta
bera?
Blaðið segir að tölfræðin sanni
að með aðferðum byltingarinnar
megi fækka sjúkdómum og
dauðsföllum i þeim mæli sem
ekki er hugsanlegur i auðvalds-
rikjum álfunnar. En eins og menn
vita var ástandið á Kúbu að öllu
leyti mjög svipað þvi sem það nú
er i Suður-Ameriku allri.
Iðrakvef er einn af fimm skæð-
ustu fellivöldum i Suður-Ame-
riku. 1 Kólombiu deyja 105.4 af
hverjum 100 þúsund íbúum úr þvi
á ári hverju, i Guatemala 229, i
Venesúela 64.4 og i Perú 103.5. A
Kúbu dóu 50.8 af hverjum 100 þús-
und ibúum úr iðrakvefi árið 1962
en 19.6 árið 1966. Þannig var 2.500
mannslifum bjargað á fjórum
árum.
Mænuveiki hefur verið útrýmt
með bólusetningu á Kúbu og er
hún eina landið i álfunni þar sem
það hefur gerst. Malaria er annar
skaðvaldur og fyrir byltingu
komu upp 7-10 þúsund tilfelli af
henni á ári. Arið 1962 hafði þeim
fækkað um helming, niður I 3519,
og árið 1967 var veikin svo til
horfin, 10 tilfelli á árinu. Tauga-
veikitilfellum fækkaði á árunum
1964-6 úr 1158 niður I 167.
Þessi velgengni er þvi að þakka
að heilbrigðisyfirvöldum hefur
tekist að fá þjóðina til liðs við sig i
baráttunni gegn sjúkdómunum.
Stéttarfélög, kvennasamtökin og
byltingarnefndirnar fara um
landið og bólusetja börn. Arið
1964 voru tæplega 2.5 miljónir
barna undir 14 ára aldri bólusett
gegn mænuveiki og tæplega 1.5
miljónir barna undir sex ára
aldri til viðbótar árið 1966. A
hverju ári eru hundruð þúsunda
barna bólusett við kúabólu, berkl-
um, barnaveiki, kighósta, stif-
krampa og taugaveiki.
Arangurinn lætur heldur ekki á
sér standa. í flestum rikjum Suð-
ur-Ameriku er barnadauði yfir 80
af hverjum þúsund lifandi fæddra
barna og sums staðar yfir 100. Á
Kúbu var hann 37.7 árið 1966.
Engin breyting
án sósíalisma
Lokaorð blaðsins um Kúbu eru
á þessa leið:
„En þrátt fyrir að mikið þurfi
að gera, eru afrekin þegar orðin
mörg i heilbrigðismálum Kúbu.
Þar skiptir mestu máli hið nýja
sjónarmið, sem rikir. Fólk er
meðhöndlað sem manneskjur,
sem eiga heimtingu á bestu með-
ferð, hvernig sem fjárhag er hátt-
að. Meginreglan er höfð eftir
Che: „Eitt lif manns er meira
virðien rikidæmi auðkýfingsins.”
1 heilbrigðismálum er Kúba til
fyrirmyndar fyrir litt þróuð riki
— án sósialiskrar byltingar þýðir
ekkert að gera umbætur, þær lina
aðeins sársaukann, en lækna ekki
sjúkdóminn. — ÞH tók saman
KÍNA
Eftir menningarbyltinguna I
Kina hefur heilbrigöisþjónustan
og kennsia heilbrigöisstétta veriö
algerlega umsköpuö en fram aö
þvi haföi hún veriö svipuö þvl sem
gerist á Vesturlöndum. 1 endur-
skipuiagningunni voru tvær meg-
inreglur hafðar I hávegum:
„1. Heilbrigöisþjónustan varö
aö ná til allra hluta landsins, en
ekki bara til þéttbýlu svæöanna.
2. Eins og meö aöra menntun þá
vcrður læknanám aö stjórnast af
fólkinu, en ekki aö byggjast á
akademiskum ramma. Innganga
i æöra menntakerfi er aö mestu
leyti bundin viö þaö hversu djúpt
og mikiö umsækjandinn hefur
stúderaö kommúnisma”.
Frá fólkinu —
til fólksins
Læknar og læknastúdentar eru
skyldaðir til að fara út i dreifbýlið
og vinna þar vissan hluta úr ári.
Það er gert til þess aö ekki rofni
tengsl menntamanna við lif og
Nálalækningar eru upprunnar I Klna og stundaöar þar jafnhliða vest-
rænum aðferöum og alþýðulækningum.
starf bændanna og þeir taki þátt I
þvi og skilji það.
„Stefnan sem mótuð var i
menningarbyltingunni miðaði að
þvi, i fyrsta lagi að menntastétt-
irnar störfuðu i anda og þágu
fólksins og i öðru lagi að mennta-
stéttirnar væru skipaðar mann-
skap, sem kæmi frá f jöldanum úr
öllum landshlutum”.
Skipulag læknanáms
Skipulag námsins við lækna-
skólann i Peking er þannig að
námið tekur þrjú ár. Þeir sem
hefja nám við skólann eru ekki
þangað komnir hina venjulegu
leið upp úr menntaskóla eins og
hér á Vesturlöndum. Þeir eru
valdir af fólkinu sem þeir hafa
starfað með áður og eru útnefndir
af byltingarráði þeirra stofnunar
sem þeir hafa starfað við.
Fjórar meginreglur gilda um
inngöngu i skólann:
„1. Löngun einstaklingsins til
að læra læknisfræði.
2. Meðmæli viðkomandi stofn-
unar sem einstaklingurinn starf-
aði við, t.d. samverkamenn, her-
menn.
3. Að flokkurinn hafi velþóknun
á viðkomandi, að öruggt sé að
hann hafi kynnt sér hugsun Mao
Tse-tungs niður i kjölinn og að
umsækjandinn sé kommúnisti.
4. Samþykki byltingarráðsins
við umsóknina”.
Eftir að umsækjandi hefur
fegnið inngöngu i skólann hefst
námið með niu mánaða bóklegu
námi i liffærafræði, lifeðlisfræði,
lifrænni efnafræði, hefðbundnum
kinverskum alþýðulækningum og
pólitik. Einnig er kennd lyfja-
fræði og örverufræði.
Næstu tvo mánuði eru her-
skylda, likamsþjálfun og erfiðis-
vinna á dagskrá en að þvi loknu
eins mánaðar leyfi.
Næsta hálfa árið fer i fyrir-
lestra með sýnikennslu i lyflækn-
ingum, skurðlækningum, fæð-
ingafræðum og kvensjúkdójum
en síðan koma aðrir tveir mánúö-
ir með herskyldu, likamsæfingum
og erfiðisvinnu og að þvi loknu
eins mánaðar leyfi.
Að leyfinu loknu fara lækna-
nemarnir út i dreifbýlið Og dvelja
þar I níu mánuði með kennurum
sinum og stunda læknisfræðileg
störf. A kvöldin eru fyrirlestrar i
skólahúsum sem notuð eru til
annarrar kennslu á daginn. Einn-
ig læra nemarnir að greina jurtir,
safna þeim og nota og leggja að
auki stund á erfiðisvinnu, t.d.
vegagerð.
Að þessum niu mánuðum liðn-
um er aftur snúið til Peking þar
sem við tekur strangt bóklegt
nám i þrjá mánuði. Að þvi loknu
er herskylda, likamsæfingar, erf-
iðisvinna og leyfi næstu þrjá
mánuðina en að þvi búnu útskrif-
ast nemarnir.
Berfættir læknar
Að námi ioknu snýr hinn nýút-
skrifaði læknir aftur til heima-
byggðar sinnar og stundar sitt
starf meðal fólksins sem útnefndi
hann. Þannig þykir tryggt að
læknar dreifist jafnt út á lands-
byggðina, jafnt eftir þörf og upp-
runa.
Cti á landsbyggðinni starfa
læknar aðallega að sinu fagi en
gripa þó i almenn störf. Einnig
sjá þeir um að mennta svonefnda
„berfætta lækna”. Berfættir
læknar eru bændur sem fengið
hafa þjálfun i hjálp I viðlögum og
eru oftast milliliðir milli lækn-
anna og fjöldans.
1 starfi sinu beita læknar jafnt
vestrænni læknisfræði sem þeirri
sem alþýða landsins hefur skap-
að. Þeir eiga að vera vel úr garði
gerðir fræðilega og pólistiskt og
hafa stundað störf fjöldans.
Þannig þykir tryggt að þeir fjar-
lægist ekki alþýðuna og verði
nokkurs konar yfirstétt eins og
raunin hefur orðið hér i hinum
vestræna heimi. (ÞHtóksaman)
BLAÐAÐ í LÆKNANEMANUM
Amin hefur 10 fast-
ráðnar böðlasveitir
— sem hafa drepið tugi þúsunda manna á fáum
árum. — Sagt frá bók bresks
blaðamanns um hryðjuverk Amins.
þegar bókin er komin út, hefur
Amin við orð að banna öllum
Bretum að koma inn I Uganda og
að hann muni reka alla Breta úr
landi.
I Austur-Afríkuríkinu
Uganda ríkir ógnarstjórn.
Um 90 þúsundir hafa verið
drepnir á miskunnar
lausasta hátt síðustu tvö til
þrjúárin. Daglega hverfur
fólk sporlaust. Dómarar,
lögfræðingar og læknar
eru drepnir samkvæmt
skipunum Amins forseta,
af því að þeir voru sagðir
njósnarar. í þessari grein
er sagt frá vinnubrögðum
þessa brjálaða ríkisleið-
toga.
Hann öskraði af hrifningu þeg-
ar honum var fært höfuð and-
stæðings sins Husseins. Þar með
hafði Amin gengið af lýðræðinu
endanlega dauðu. Eftir að hafa
horft á höfuðið um stund stakk
hann þvi inn i kæliskáp til þess að
geta siðar meir glatt sig við
fenginn.
Þar með hófst sú miðalda-
ógnarstjórn Idi Amins sem á eng-
an sinn lika á jörðinni i dag og
kennir þó margra grasa. Amin er
stööugt hræddur um lif sitt og
þess vegna myrðir hann landa
sina tugþúsundum saman.
Breski blaðamaðurinn David
Martin hefur nýlega gefið út bók
um ógnarstjórn Amins og blóð-
feril hennar. Bókin heitir
„General Amin”. Martin var um
12 ára skeið fréttaritari
„Observers” i Austur-Afriku.
Hann hafði aðsetur i Tansaniu,
nágrannariki Uganda. Vegna
skrifa sinna hafði Ugandaforseti
þegar útbúið sérstakan klefa fyrir
hann i gjöreyöingar búðum. Nú,
Tíu böðlahópar
Martin lýsir ógnarstjórninni
samkvæmt þvi sem hann hefur
sjálfur reynt,samkvæmt vitnis-
burðum sem fram hafa komið
fyrir sérstaðri rannsóknarnefnd
lögfræðinga og samkvæmt um-
mælum fyrrverandi ráðherra
Amins, sem tókst að flýja land.
Þar kemur fram m.a.: „Með
mikilli varkárni gætt að voru á
fyrstu tveimur valdaárum Amins
drepin 80—90 þúsund manns.
Hann drepur eða lætur tillitslaust
drepa, svo lengi sem það fram-
lengir völd hans, eykur auðæfi
hans eða færir honum kven-
mann.”
Morðin annast tiu hópar at-
vinnubööla, sem fá skipanir beint
frá forsetanum. Opinbert heiti
þeirra er öryggisdeildin” og þeir
fara um landið fram og aftur i leit
að svokölluðum útsendurum.
Yfirmaður deildarinnar Isaac
Malimayungu, var áður leigubil-
stjóri i Kampala, höfuðstað
Uganda. Nóttina sem valdaránið
var framið drap hann liösforingja
og fékk hann samstundis titil
fórnarlambsins, eins og Amin
hafði heitið honum sem öðrum
hjálparmönnum sinum. Liðsfor-
inginn hælir sér nú af þvi að hon-
um láti betur að drepa fólk en
hænsni.
Komiö og sjáið útsendarana,
sagði liðsforinginn hann bauð aö
hlýða á „yfirheyrslur” i Masaka,
fjórða stærsta bæ landsins. Fjórir
hermenn höfðu klætt borgar-
stjóra staðarins úr hverri spjör og
héldu honum föstum. Borgar-
stjórinn bað um að fá að útskýra
mál sitt. Liðsforinginnneitaði þvi
og skipaði svo fyrir að kynfærin
skyldu skorin af manninum, siðan
tók böðullinn penis og hélt að
munni borgarstjórans og sagði:
Talaðu nú við forsetann i gegnum
þennan sima.
Daginn eftir tilkynnti útvarpiö i
Uganda að lik borgarstjórans
hefði fundist á viðavangi. Þeir
sem „fundu” likið voru úr
Idi Amin
„öryggisdeildinni” — böðlasveit-
um Amins.
Forseti hæstaréttar landsins,
Benedicto Kiwanuka hafði keypt
verslun af brottfluttum Asiu-
manni. Amin fékk augastað á
verslun þessari. Dómarinn hafði
auk þess ekki sýnt forsetanum þá
virðingu sem krafist var: Hafði
dómarinn látið Breta nokkurn
lausan úr fangelsi gegn vilja for-
setans. Hermenn Amins
fangelsuðu dómarann sem sat i
sæti sinu i réttarhöldum.
Dómarinn var siðan fluttur til
húss Amins i Kampala. Forsetinn
kvað upp dóminn: „Gerið át af
við hann.” Lifveröir Amins skáru
eyru, munn og nef af manninum,
skáru af honum penis og stungu
upp i hann (Þaö er föst regia
gagnvart fórnardýrunum)
o.s.frv.
Liflátsdómum er fullnægt opin-
berlega og athöfnin er sýnd i sjón-
varpi.
Kvennamál
Pólitisk boðorð Amins eru ein-
föld:
1. Elskið foringja ykkar.
2. Þið verðið að sjá um að aðrir
elski foringja ykkar.
3. Elskið utanrikisráðherra
ykkar, þvi hún segir mér frá öllu.
Rikisstjórn Amins er mest-
megnis skipuð banditum á borð
við liðsforingjana sem áður er
frá sagt — með einni undan-
tekningu: Utanrikisráðherrann
er fyrrverandi ljósmyndafyrir-
sæta, sú fagra prinsessa sem fræg
er úr fréttum. Hún þurfti ekki að
berjast fyrir embætti sinu. Hann
skildi við konur sinar, rak mág
sinn, utanrikisráðherra, úr em-
bætti, og setti prinsessuna i
staðinn. Hann rak. frá sér þrjár
konur sinar kristinnar trúar, þeg-
ar rikisstjórnirnar i Bonn og
London neituðu honum um vopn. 1
staöinn tók hann sér fyrir konur
þrjár múhameðskar.
Þegar rikisbúskapur Amins
varö gjaldþrota fór forsetinn til
Libýu og ræddi við Gadhafi. Þar
fékk forsetinn lán enda fullvissaði
hann Libyuleiðtoga um að 80%
ibúa Uganda væru Múhameöstrú-
ar. Ennfremur iagði Gadhafi
fram sem svarar um 2,4 miljörð-
um isl. króna til þess að byggja
moskur i Uganda — en þetta fé
notaði Uganda — forseti hins veg-
ar til þess að kaupa vopn frá
Sovétrikjunum.
Amin visaði sendiherra Israels
úr landi og þegar morðin voru
framin á Olympiu-leikunum i
Mllnchen i hitteðfyrra sendi Amin
simskeyti til aðalritara
Sameinuðu þjóðanna: „Það var
rétt hjá Hitier að drepa
Gyðingana, þvi að ísraelsmenn
starfa ekki i þágu mannkynsins.
Þess vegna brenndi hann sex mil-
jónir Gyðinga til dauða i þýsku
landi.”
Byrjaði sem
hjálparkokkur
Amin er komin af afar frum-
stæðum ættflokki. Hann er ólæs
og óskrifandi. Móöir hans var
töfralæknir. Sonurinn Amin gekk
1946, i bresku nýlenduhersveitina
„King’s African Rifles” sem
hjálparkokkur. Bresku her-
foringjarnir töldu hann „sniðug-
an strák”, sem byggi yfir bestu
eiginleikum nýlenduhermanns:
Ölæs, 196 sentimetra hár og
sterkur sem björn.
í niu ár var Amin Uganda-
meistari i þungavigt i boxi. Fyrir
þetta varð hann allþekktur og var
þess vegna annar af tveimur
svörtum mönnum, sem áður en
landið hlaut sjálfstæði, náði þvi
að verða liðsforingi. Þáttaka hans
i boxi hafði það hins vegar i för
með sér aö hann varð fyrir heila-
skemmdum sem koma nú fram á
hryllilegasta hátt.
Með valdaráninu 1971 náði hann
öllum völdum i landinu I sinar
hendur. Þessi frumstæði villi
maður hefur æ siðan vakið mikla
athygli erlendis fyrir tiltæki sin.
Hann visaði Asiumönnum úr
landi.hann sendir simskeyti út og
suður meö hvers kyns ábending-
um og „heilræðum” um alþjóða-
mál — m.a. til Nixons meðan
hann átti i Votergeitstriðinu.
Hann þykir óheflaður og rudda-
legur i „finum” samkvæmum er-
Framhald á 11. siðu.