Þjóðviljinn - 08.09.1974, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. september 1974.
Gerald Ford og peningaspilið mikla
„Gerald Ford sagði við
mig/ að í Washington væru
það peningar sem spilað
væri um. Með tímanum
fékk Jerry smekk fyrir
peningum. Tveim árum
áður hafði hann verið á
báðum áttum og ófram-
færinn# en nú var hann
handviss um# að taflið
snerist um peninga...
Alveg eins og áður, ein-
mitt. Þrjú þúsund dollarar
i einu. Þú skalt bara skrifa
tíu ávísanir upp á þrjú þús-
und hverja, og ég skal fá
Jerry Ford þær, eina í
einu".
(Ór bókinni „The Washington
Payoff” eftir Robert Winter-
Berger.)
Blöðin hafa lýst eftirmanni
Guðföður i Hvita húsinu sem
heldur leiðinlegum og óglæsileg-
um stjórnmálamanni, sem sé
hinsvegar heiðarlegur og laus við
pólitiska spillingu. Gaman væri
að vita, hvort þeir blaðamenn
sem þarna eru að verki hafa
nokkru sinni lesið bókina „The
Washington Payoff” eftir einn af
áhrifamestu baktjaldapólitikus-
um i Washington, Robert N.
Winter-Berger. Berger fékk að
lokum slika kligju af spillingar-
vefnum i Washington að hann
skrifaði bók til að afhjúpa það
móverk.
Winter-Berger var viðstaddur i
skrifstofu John McCormacks,
forseta fulltrúadeildar, þegar
Lyndon B. Johnson féll saman og
brast i grát og lýsti sig reiðubúinn
til að borga miljón dali, til að
koma i veg fyrir að Bobby Baker,
einn af nánum samverkamönnum
hans, lenti i fangelsi fyrir fjár-
málaspillingu. Winter-Berger var
einnig kosningastjóri fyrir hinn
nýja forseta Bandarikjanna og
skrifaði fyrir hann ræður.
500 fyrir að
taia við Ford.
Winter-Berger skrifar, að það
hafi kostað sig 500 dollara I reiðu-
fé að fá að hitta Ford þegar siðar-
nefndur var orðinn hinn voldugi
foringi repúblikana i fulltrúadeild
þingsins. Peningarnir voru
greiddir Alice Weston, en faðir
hennar var einhver rikasti maður
i kjördæmi Fords og hafði aðstoð-
að verðandi forseta fjárhagslega
á leið hans upp á tinda valdsins.
Winter-Berger segir, að Ford
hafi vel vitað að hann borgaði
Alice Weston undir boröið og að
þeir þúsund dalir sem þangað
fóru i mútur táknuðu að Ford
mundi i framtiöinni endurgjalda
Berger með pólitiskri greiðvikni.
En Ford sýnist ekki hafa haft af
þessu miklar áhyggjur. Ford
sagði einhverju sinni viö Berger,
eins og áður var vitnað til, aö I
Washington væri teflt um peninga
og án þeirra væri maður dauður.
En hinn nýi forseti er miklu
slungnari en Watergate-guðfaöir
hans, Nixon, þegar um þaö er að
ræöa að taka við illkynjuöu fé.
25 ár á þingi
Hinn nýi forseti hefur lifað af 25
ár á þingi i hinu þrælmengaða
pólitiska andrúmslofti I Washing-
ton. Winter-Berger segir, að Ford
hafi verið einkar ánægöur með
þaö að enginn færði honum né
heldur neinum samstarfsmanna
hans peninga I reiöufé eöa gjafir i
skrifstofum hans, aö allir pening-
ar, sem renna áttu I kosningasjóöi
hans, voru reiddir fram I ávísun-
um, sem ekki voru stilaöar á Ford
persónulega, heldur til einnar af
fjórum nefndum sem studdu
kosningaslag hans.
1971 skýrði AP-fréttastofan
frá þvi, að Ford hefði láðst að
gera grein fyrir 11.500 dollurum,
sem hann hafði fengið frá „hluta-
bréfaeigendum” — oliugubba,
bankastjóra, læknum og verka-
lýðsfélagi. Ford viðurkenndi að
hann hefði fengið þessar ávlsanir,
Þessi bófaflokkur er nú allur horfinn úr Hvita hús-
inu. Nýja húsbóndanum þar, Gerald Ford, er
gjarna lýst i blöðum sem heiðarlegum manni, blátt
áfram og áreiðanlegum. í þessari grein tínir Sher-
mann Adams fram nokkrar upplýsingar um ævin-
týri hins nýja forseta, sem benda til þess, að enn
geta menn átt á ýmsu von úr Hvita húsinu þótt Nix-
on sofi nú annars staðar.
„Heiðarlegi,
góði Jerry’
sem voru gefnar út á Republican
Booster Committee.
Ford var alltof sniðugur til að
láta gefa út ávisanir á eigiö nafn,
og þvi var ekki unnt aö saka hann
um að hafa persónulega tekið á
móti stórum peningagjöfum frá
stórfyrirtækjum. Republican
Booster Committee er kosninga-
sjóður sem landsfundur
repúblikana kom á fót til stuðn-
ings við þá frambjóðendur flokks-
ins viða um land, sem höfðu
minnst fjárráö og áttu sér ekki
sérlega auðuga velgjörðarmenn.
Forseti Bandarfkjanna hefur
aldrei átt I vandræðum með að
komast yfirgóðarfúlgur, en hann
er nógu kænn til aö vilja helst fá
sitt pólitiska rekstrarfé I ávisun-
um sem ekki eru upp á meira en
5000 dollara hver og án þess að
nafn hans standi á þeim.
Ford kom til Washington smá-
bæjarmálafærslumaður utan af
landi og átti .að pólitiskum föður
einna helsta baráttumann kalda
striðsins gegn kommúnismanum,
Arthur Vanderberg öldungar-
deildarþingmann. Vanderberg
var eins og Ford frá Grand
Rapids I Michigan og stjórnaði
flokksvél repúblikana i þvi riki.
Fyrsti velgjöröarmaður hins
veröandi forseta var Ray Gillet,
einhver helsti atkvæöamaöur i
fjármálaheiminum i Michigan,
forseti Old Kent Bank og Trust
Company of Grand Papids.
Með árunum urðu þeir Ford og
Gillet nánir vinir, og Gillet gaf fé
til kosningabaráttu Fords, sem
dugði til að senda hann til
Washington hvert kjörtimabil.
Hlutabréfagróði.
1 janúar 1968 var Ford geröur
að forstjóra Old Kent Bank and
TrustCompany. Þessi banki haföi
500 miljónir dollara til ráöstöfun-
ar, var stærsti bankinn I Grand
Rapids og nátengdur bilaiðnaðin-
um I Michigan. Hann fékk og
samninga upp á margar miljónir
dala við alrikisyfirvöld til aö
hressa upp á atvinnulif I borginni.
Ford vissi fátt um bankamál og
var sjaldan viöstaddur stjórnar-
fundLHann barasta tók við árleg-
um gróða af hlutabréfum i bank-
anum. Gillet lánaöi Ford allmikið
fé til að hann gæti keypt hlutabréf
i banka Gillets, ekki vegna þess
að Jerry væri sérlega flinkur á
reiknivélar, heldur til að ýta und-
ir það, að forsetinn verðandi sæi
til þess, að stærri og feitari samn-
ingar héldu áfram aö renna til
þess banka, sem hann sjálfur var
hluthafi i.
Gerðist frekur til fjár
Earl Balik heitir maður, sem
var um tima fótboltaþjálfari við
West Point, helsta herskóla
Bandarikjanna, og haföi áður
verið þjálfari Fords þegar hann
var við Michiganháskóla. Balik
hafði gengið vel viö West Point,
þar til ferli hans innan hersins
var spillt af svindli sem hann var
við riðinn og fór næsta illa meö
liöiö sem hann þjálfaði.
Siðar lenti Balik i Washington
sem baktjaldapotari fyrir Avco
Aviation Company. Er Alrikislög-
reglan, FBI, hleraði samtal milli
Baliks og Fords, komst þaö upp,
að Ford hafði beittáhrifum sinum
til að koma i veg fyrir rannsókn á
samningi þeim, sem Avco gerði
viö stjórnina um sölu á hergögn-
um til Vietnams.
Winter-Berger var framan af
aðdáandi Fords, en sá vinskapur
kólnaði þegar Ford tók að þoka
sér i átt til Goldwaters og Nixons
og tók sér svo stöðu meö þvi að
fljúga um landiö og flytja
áróðursræöur i þágu Ihalds-
samra frambjóðenda repúblik-
ana frá vestur- og suöurrikjun-
um. Berger sá Ford breytast úr
þýðingarlitlum smábæjarpólitik-
us, sem andsnúinn var umbótum
og verkalýðsfélögum, i „girugan
mann” sem rak áróður fyrir
Goldwater og Nixon i sónvarps-
bláum skyrtum.