Þjóðviljinn - 08.09.1974, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.09.1974, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. scptember 1974. DlQÐVIUINfn MÁLGAGN SoSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ótgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur) Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb> Prentun: Blaðaprent h.f. AFANGA ER NAÐ, EN Einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins flutti á sumarþinginu tillögu til þings- ályktunar um að fela rikisstjórninni að biðja amerikumenn að loka ekki fyrir sendingar Keflavikursjónvarpsins til Reykjavikursvæðisins. Þingmaður þessi, Albert Guðmundsson, er löngu þekktur fyrir það að sleikja alls staðar allar póli- tiskar dreggjar ef hann telur sig geta átt von á nýjum liðsmönnum. En það vakti heldur ekki verulega athygli að Albert Guðmundsson skyldi leggjast hundflatur frammi fyrir bandariska herliðinu. Hitt þóttu með réttu meiri tiðindi, að formaður Sjálfstæðisflokksins lagði blátt áfram blessun sina yfir tillöguflutning Alberts og lýsti þvi yfir að hann væri þvi fylgjandi að hafa Keflavikursjónvarpið inni á öðru hverju islensku heimili áfram. Fullyrða má að islenskur forsætisráðherra hafi aldrei fyrr i sögu þjóðarinnar lagst jafn lágt og Geir Hallgrimsson. Þarf það kannski ekki að koma á óvart þegar þessi fulltrúi islensku auðstéttarinnar hefur beina hagsmuni af hersetunni og þvi her- námi hugarfarsins, sem henni fylgir. Geir Hallgrimsson á milli 10 og 20 fyrirtæki sem öll beint eða óbeint skipta við herinn og hann sjálfur var starfsmaður her- mangsfyrirtækis, og það ekki lágt settur. Takmörkun Keflavikursjónvarpsins er eini merkjanlegi árangurinn af störfum vinstristjórnarinnar i herstöðvarmálinu. Og sá árangur er vissulega ákaflega þýð- ingarmikill. Það tók Einar Ágústsson utanrikisráðherra að visu mikla vafninga VERUM A VERÐI og snúninga að framkvæma skýlausan vilja fráfarandi rikisstjórnar i þessum efnum, og það varð ekki fyrr en Alþýðu- bandalagið krafðist aðgerða að nokkuð var tekið að marki á þessu máli. I baráttunni gegn bandariska her- mannasjónvarpinu hafa islenskir sósialistar átt fjölmarga liðs- menn i öllum stjórnmálaflokkum. Inn- an Sjálfstæðisflokksins hafa jafnvel verið menn sem hafa beitt sér af alefli gegn smán hermannasjónvarpsins og þeim hættum sem þvi fylgja. Einn þeirra manna, sem hvað ötulast hafa beitt sér gegn hermannasjónvarpinu, er Sigurður Lindal, lagaprófessor. 1 viðtali við Sigurð Lindal sem Þjóðviljinn birtir i dag fjallar hann m.a. um þá „röksemd” kanasjón- varpssinna, að það jafngildi frelsinu sjálfu að mega horfa á afsiðunartæki banda- rikjahers. Sigurður segir: „Menn tala mikið um frelsi i sambandi við Keflavikursjónvarpið, en hér er alls ekki um frelsi að ræða. Menn eru ekki frjálsir að þvi að horfa á hvaða sjónvarp sem er. Hér i landi eru tvær sjónvarps- stöðvar. Aðra rekur islenska rikið, en hún sjónvarpar miklu minna. Hina rekur bandariski herinn. Frelsið takmarkast við þessa tvo einkaaðila og er þó hlutur hers- ins raunverulega miklu meiri, þannig að allt tal um frelsi i þessu sambandi er alveg út i bláinn”. Sigurður minnir i þessu sam- bandi á þær takmarkanir sem lagðar eru á atvinnurekendur útlendinga hér á landi; ætli að þeir Albert Guðmundsson og Geir Hallgrimsson yrðu ekki heldur litlir karl- ar i „kaupsýslunni” ef yfirboðarar þeirra útlendir settust að hér á landi með umsvif sin? 1 viðtalinu bendir Sigurður Lindal á þau áhrif sem sjónvarpið og hersetan hefur þegar haft á þjóðina: „Fyrir tuttugu árum var það nokkurn veginn viðurkennt að hersetan væri nauðsynlegt böl. Enginn taldi hann æskilega. Jafnvel þeir sem vildu hafa herinn hér, töldu hann nauðsyn- legan, litu á hann sem óæskilegan. Nú er enginn vafi á að herinn er orðinn mjög vinsæll meðal stórs hluta þjóðarinnar. Þar ber margt til, en ég álit að þessi fjölmiðl- unarstarfsemi hersins hafi ráðið þar mestu um, og björgunarstarfsemin. Og nú gæti svo farið að stjórnmálamennirnir færu að keppa um vinsældir hersins meðal ákveðins hluta þjóðarinnar”. Sjónvarp bandariska hersins á Kefla- vikurflugvelli hefur verið vitnisburður um andlega niðurlægingu, sem á hvergi sinn lika um viða veröld, nema i Suður-Viet- nam þar sem bandarikjamenn reka sjón- varpsstöð. Áhrif bandarikjamanna á ís- landi hafa orðið geysileg vegna herset- unnar, hermangaranna og sjónvarpsins. Nú hefur verið tekið fyrir það siðast- nefnda. Áfanga hefur verið náð, en blikur eru á lofti, þegar forsætisráðherra þjóðar- innar er svo andlega litilsigldur að gera sér ekki grein fyrir háskanum af erlendu sjónvarpi inni á islenskum heimilum. Slikur maður er til alls vis. Þess vegna verða allir þeir sem enn eiga i brjósti hug- sjón um kjarnmikla og fjölþætta íslenska menningu að vera á varðbergi. Guðbrandur Magnússon, Sauðárkróki: Kreppu auðvaldsins velt yfir á verkalýðinn Undanfariö hafa átt sér staö miklar framfarir út á landi. En fram- undan griliir i stöönun og þá hættir steypan e.t.v. aö renna dr nýjum steypubilunum. Afturhaldsstjórnin boöar samdrátt og kaupskeröingu. Kjaraskeröingin mun ekki sist bitna á sjómönnum. Skipin sigla i land og landfestar bundnar — atvinnuleysi! Sú kreppa sem herjaö hefur á auövaldsheiminn undanfarið, hefur siðastliöna mánuöi verið aö koma fyrir sig fótunum hér á landi. Útgerðarauðvaldið með Llú- kllkuna i fararbroddi hefur verið hvað iönast við aö útlista allt tap- ið á rekstrinum og nefna i þvi sambandi alis konar tölur til að „sanna” tapið o.s.frv. Og frá fleiri greinum atvinnu- lifsins en I sjávarútvegi hafa ramakveinin borist. Þegar svo þessi öfl hafa þurft að horfa upp á minnkandi gróöa i nokkurn tima — hvað gerist þá? Þau sameinast. öfl sem háð hafa linnulaust strið um markaði, hráefni og gróða sameinast i þvi aö skerða kjör verkafólks svo mikið að þau verði ánægð með sinn hlut. Og þarf nú þónokkuð til að svo sé. Þessi öfl er aðallega að finna innan Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Engan skyldi þvi undra það, hve fljótt tókst aö ná málefnalegri sam- stöðu þessara tveggja stærstu borgaraflokka, þvi gróöaöflin i báðum flokkum sáu fram á tilval- ið tækifæri til að ná þarna áður burt teknum auð, og hvöttu þvi ráðamenn alla til samstarfsins. Kraftur auðsins er mikill, hann getur jafnvel sameinað auðvalds- öflin! Hvað er það þá sem blasir við? Það er enginn vafi á þvi að það er gengisfelling: Og þaö þýöir alls- herjar kauplækkun og atvinnu- leysi! 1 fáum orðum sagt, ráðið til að mæta kreppu auövaldsins er að velta henni yfir á herðar verka- lýðsins. Þetta er sigilt ráð auð- valdsaflanna, og þannig mun það alltaf vera svo lengi sem kapital- iska þjóðskipulagið viögengst. Með þessu tryggja arðránsöflin að hvað sem á gengur, þá hafa þau allt sitt á þurru. Islenska yfirráðastéttin er ekki sammála um hvaða krákustiga hún eigi aö feta i stjórnmálunum, en allir fulltrúar hennar eru sam- mála um að mæta beri kreppunni með þvi að velta henni yfir á bak vinnandi mannsins. Menn tala mikið um tap út- gerðarinnar, en vita þó ekki alveg hverju um skal kenna. Sumir kenna þvi guði sinum almáttug- um um, aðrir vinstri stjórninni, en flestir vilja þó koma sökinni yfir á verkalýðinn og samtök hans (verkalýðsfélögin eða Al- þýðubandalagið). En ef litið er hlutlausum augum á þetta mál, — þegar litið er á gegndarlausa sóunina, snikjulif þeirrar afætuhjarðar sem sogið hefur sig fasta á þessa aðal-at- vinnugrein Islendinga, dæma- lausa vaxtabyrði, sem er afleið- ing ævintýramennsku i fjármála- stjórn útgeröarmanna, og svo sið- ast en ekki sist falsað bókhald i sambandi við skattsvik og fjár- flótta, þá gegnir furðu að tapið skuli ekki vera margfalt meira. Við sósialistar (og kommúnist- ar) höfum lært það mikið af sög- unni aö við vitum að fullkomin hagnýting á gæðum landsins, sem fær hverjum vinnufærum tslend- ing verk i hönd, og sköpun at- vinnulifs með hagsmuni fólksins fyrir augum, er ekki möguleg nema þvi aðeins að uppræta al- gjörlega allt skrifstofuvald og spillingu sem fylgir auðvalds- skipulaginu eins og skugginn. Til þess aö svo megi veröa þarf sósialiska umsköpun. Hvort henni fylgir valdbeiting eða ekki verður sagan að skera úr um. Sauðárkróki 29/8 1974. Guöbrandur Magnússon

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.