Þjóðviljinn - 08.09.1974, Page 5
Samlit hross
Nú er Tricky Dick á brott úr
Hvita húsinu og Gerald Ford sest-
ur i hans stól. En illkvittnir menn
segja aö þaö sé kannski ekki svo
ýkja mikill munur á þeim
kumpánum, þeir séu pólitisk
hross af sama litarhætti. Berger
lýsir f járöflunarmálsverði I
Grand Rapids áriö 1966, en þar
voru þeir Ford og Nixon heiöurs-
gestir. Berger kom upp aö há-
borðinu til að spjalla viö Ford og
heilsa upp á Nixon. Slóst þar i
hópinn maöur aö nafni Tom
Paine. Tom Paine var aö atvinnu
baktjaldapotari fyrir General
Electric. Ford kynnti Paine fyrir
Nixon. Berger heyrði þá þre-
menninga spjalla um stund um
geimferöaáætlun rikisins, og
sagöi þá Nixon viö Paine, aö
„vinur Jerrys er einnig minn vin-
ur”.
Eins og margir auöhringar sem
selja til geimferða veöjar
General Electric á tvo hesta i
senn, greiðir báöum stóru flokk-
unum miklar fúlgur og hefur sin
viöskipti trygg, hvor þeirra sem
vinnur kosningar.
1 janúar 1968 tilkynnti Johnson
forseti aö hann hefði útnefnt
Thomas 0. Pane varaforstjóra
bandarisku geimferöaáætlunar-
innar. Meö þvi aö General
Electric haföi borgaö báöum
flokkum bjóst hringurinn viö þvi,
samkvæmt reglum hins pólitiska
tafls i Washington, aö hann fengi
þóknun fyrir sina dollara, hver
sem annars svæfi i Hvita húsinu
Tveim mánuðum eftir aö Nixon
haföi flutt I þaö hús mundi hann
eftir þeim gamla vini Geralds
Fords, Tom Paine, og skipaöi
hann æösta mann geimferöaáætl-
ananna, the National Aeronautics
and Space Administration,
NASA.
30.000 fyrir sendiherra-
starf.
Hinn nýi forseti Bandarikjanna
var flæktur i eitt af þeim mútu-
hneykslum Nixons sem minnst er
þekkt — sölu á sendiherraemb-
ættum.
Einn af viðskiptavinum
Bergers var Francis Kellog, for-
seti og aðaleigandi International
Mining Corporation. Kellog vildi
veröa sendiherra, helst einhvers-
staöar i Afriku. Enda átti hann
búgarö i Kenya. Hann talaöi lika
svahili, en þaö er liklega meira en
sagt veröur um svipaöa áhuga-
menn um sendiherrastörf.
Kellog fól Berger aö útvega sér
sendiherrastöðu. Berger sagöi
Kellog aö þaö mundi kosta hann
30.000 dollara og aö hann mundi
kynna hann fyrir réttum aðila til
aö koma þessu i kring, Gerald
Ford.
Kellog haföi áhyggjur af lögum,
sem mæla svo fyrir, aö öll fram-
lög i kosningasjóöi sem fara yfir
30.000 dollara veröi aö telja fram.
En Berger huggaöi hann: „Alveg
eins og áöur. Þrjú þúsund i einu.
Þú skalt bara skrifa tiu ávisanir
upp á 3000 hverja og ég skal fá
Jerry Ford þær, eina i einu...”
En nú vildi svo bölvanlega til,
aö Nixon haföi þegar skipaö alla
sina sendiherra i Afriku, og þrátt
fyrir góða æfingu Kellogs I að
gefa út ávisanir, gat Ford ekki
hjálpaö honum. Hinsvegar gat
Ford sent Kellog til Afriku i
bandarisku sendinefndina sem
sat ráöstefnu Afrikurikja i
Marokko.
The General Accounting
Office i Washington hefur reynd-
ar reiknaö þaö út, aö sendiherrar
Nixons hafi alls greitt 1.3. miljón-
ir dollara til aö tryggja guöfööur
sinum áframhaldandi búsetu 1
Hvita húsinu.
Hér fer á eftir sýnishorn úr
þessum lista:
Arthur K. Watson, forseti IBM,
gaf Nixon 300 þúsund dollara og
Nixon skipaði hann sendiherra i
Frakklandi. Tengdasonur
Arthurs, einnig forstjóri hjá IBM,
John N. Irvin, sendi Nixon 50 þús-
und til viðbótar og fékk aö veröa
eftirmaöur Arthurs. Walter
Anneberg, forseti Penn Centrals
járnbrautarfyrirtækisins, gaf
Nixon 240 þúsund og var sendur
til London. Vicent De Roulet gaf
44.500 og var skipaöur sendiherra
á Jamaicu, Gilford Duddy jr. fékk
Kaupmannahöfn fyrir 51 þúsund
dollara....
Sunnudagur 8. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
vinstri Halldór Gunnarsson, Ingólfur Steinsson, Magnús R.
„V ærum
ekki
að þessu
annars”
Söngflokkurinn Þokkabót. Frá
Einarsson og Gylfi Gunnarsson.
Síðastliðinn vetur starf-
aði hér í höfuðborginni
söngflokkur er nefndi sig
Þokkabót. Hann skipuðu
þeir Magnús Einarsson,
Ingólfur Steinsson, Gylfi
Gunnarsson og Halldór
Gunnarsson. Þrír þeir
fyrsttöldu eru Seyðfirðing-
ar að uppruna,en Halldór
er frá Hveragerði.
Þokkabót myndi liklega falla i
þann flokk tónlistar sem nefnd er
þjóölagatónlist. Hún hefur komið
fram sem skemmtikraftur hjá
ýmsum starfshópum, stjórn-
málaflokkum og i einkasam-
kvæmum.
Nú á næstu dögum er væntanleg
i verslanir hljómplata meö pilt-
unum og af þvi tilefni ræddi
blaðamaöur viö tvo þeirra á dög-
unum, þá Ingólf Steinsson og
Halldór Gunnarsson. Leyföu þeir
blaöamanni aö hlýða á plötuna af
segulbandsspólu áöur en viötaliö
hófst og fékk hann ekki annað sé
og heyrt en aö hér væri hin eigu-
legasta og áheyrilegasta plata á
ferð.
t upphafi baö biaöamaöur þá aö
segja frá ferli söngflokksins
Þokkabótar.
Hörð samkeppni í
gömlu dönsunum
— Viö byrjuöum að koma fram
i þessari mynd i fyrrahaust. Upp-
haflega ætluöum viö aö stofna
gömludansahljómsveit og hugð-
um á stóra hluti i þeim efnum. En
svo höföum viö samband viö um-
boösskrifstofu Ámunda og þar
komust viö að þvi aö hann haföi
ein 25 nöfn á slikum hljómsveit-
um I skúffunni og aö þær heföu
fremur stopula vinnu. Þá ákváö-
um viö aö fara inn á þessa braut,
aö troöa upp sem skemmtikraftar
og syngja þjóölagatónlist, enda
höföum viö allir átt viö slikt áöur.
— Hvar hafiö þið svo komiö
fram?
— Viö höfum leikið fyrir hinar
ýmsu deildir Háskólans, i einka-
samkvæmum, afmælisveislum,
brúökaupsveislum, árshátiöum
og svo á pólitiskum fundum hinna
aöskiljanlegustu stjórnmála-
flokka, jafnt hér i borginni sem
úti á landi.
— Og hvaö hafiö þiö spiiaö fyrir
fólkiö?
— Viö höfum verið aö flytja
þetta prógramm sem nú er komiö
á plötu, slepptum reyndar sum-
um lögum og tókum önnur ný i
staöinn.
— Nú eru þessi lög úr ýmsum
áttum. Þiö útsetjiö þau sjálfir, er
ekki svo?
— Jú, viö höfum útsett bæði
raddirnar og undirspiliö.
Hafa víða verið
— Nú hafiö þiö komiö fram i
annarri mynd er það ekki?
— Jú, við þrir, þ.e. allir nema
Magnús, komum t.d. fram á bar-
áttusamkomu stúdenta 1. des
1972. Þar lékum viö eitt lag af
plötunni, Nýriki Nonni, og svo
önnur lög sem féllu aö vigoröum
dagsins: Gegn hervaldi, gegn
auðvaldi, t.d. Feröalag Sáms
fóstra. Einnig komum viö fram i
sjónvarpi þennan sama vetur á
gamlárskvöld. Þar sungum viö
Framagosann með texta eftir
Rúnar Armann Arthursson sem
samdi hann á einni nóttu af þessu
tilefni.
— Svo hafið þiö leikiö i dans-
hljómsveitum á sumrin.
— Já við höfum leikiö I svona
fylleriishljómsveitum viöa um
landiö. Viö þrir Seyöfiröingarnir
höfum gutlaö saman frá þvi viö
byrjuöum aö fikta viö hljóöfæri
upp úr bitlaæöinu, maöur vildi
ekki vera minni maöur en Bitl-
arnir. Þá hættu orgeltimar fööur-
ins aö vera nógu finir fyrir okkur
svo viö gripum gitarinn og ætluö-
um okkur stóra hluti. Siöast lék-
um viö Ingólfur, Halldór og Gylfi i
hljómsveitinni Einsdæmi á Seyö-
isfiröi i fyrrasumar og Magnús
lék þá I Nasasjón á sama staö.
Núna I sumar leikur viö Ingólfur,
Magnús og Halldór I hljómsveit-
inni Gustuk á Hornafiröi meö
trommuleikara af staönum.
Ragnari Emilssyni.
— Eruö þiö eitthvað músik-
menntaðir?
— Gylfi hefur söngkennarapróf
úr Tónlistarskólanum en viö hinir
erum sjálfmenntaðir eins og
flestir i þessum bransa.
Merkilegur samningur
— Hvernig kom þessi plata til
tals?
— Þaö var einn glaðan dag að
Ölafur Þóröarson I Rió sem er
bekkjarbróðir Gylfa úr Tónlistar-
skólanum kom til okkar og vildi
fá aö heyra i okkur. Eftir þab
bryddaði hann upp á þvi aö upp-
lagt væri aö festa þetta á hljóm-
skifu og vildi gjarnan sjá um að
svo yrði. Viö vorum náttúrlega
dauðfegnir aö losna viö allt um-
stangið sjálfir og samþykktum
tillögu Ólafs. Siðan hefur hann
staöiö eins og klettur i þessu. Með
honum i útgáfunni eru þeir Rúnar
Júliusson og Gunnar Þóröarson i
Hljómum. Hafa þeir stofnaö út-
gáfufyrirtækið ORG og þetta er
þeirra fyrsta plötuútgafa.
— Hvernig sömduð þiö viö þá
um peningahliöina?
— Viö gerðum mjög góöan
samning við þá. Þeir þekkja
sjálfir af eigin raun hvernig út-
gefendur græöa á tónlistarmönn-
um, þeir fá kannski 15% af hagn-
aöi en útgefandinn afganginn.
Þeir sneru blaöinu viö og buöu
okkur aö hagnaðinum yrði skipt i
sjö jafna hluta, þ.e. fyrst yröi all-
ur kostnaöur greiddur en siöan
Rœtt við
tvo meðlimi
söngflokksins
ÞOKKABOT
sem er
í þann mund
að gefa út
sína fyrstu plötu
yröi þvi sem eftir er skipt jafnt
milli okkar fjögurra og þeirra.
Þannig fáum við meira en helm-
ing ágóöans.
Úr ýmsum áttum
Platan var svo tekin upp i júni i
stúdiói Hjartar Blöndal og með
okkur léku undir þeir Olafur og
Gunnar og Erlendur Svavarsson
trommuleikari. Upptakan tók
hálfan mánuö en alls vorum viö 50
klukkustundir i stúdlóinu. Platan
er svo pressuð hjá bandarisku
fyrirtæki, þvi sama og pressaði
siöustu plötu Hljóma. Þeir hafa
aögang að þvi strákarnir.
Umslagið er hannað af
Ólafi Þórðarsyni
— Og hvaö er svo á plötunni?
— Þaö eru tólf lög eftir bæöi is-
lenska og erlenda höfunda en allir
textar eru islenskir. Innlendir
höfundar laga eru Jórunn Viöar,
Jón Asgeirsson og Kristján Guð-
laugsson. Erlendir höfundar eru
Pete Seeger, Donovan, Leon
Russel og tvö norsk lög. Textarnir
eru allir eftir islenska höfunda.
Við höfum ekki farið út i að fá
fastan textahöfund heldur tökum
við bara góba texta þar sem viö
finnum þá. Valgeir Sigurösson
kennari á Seyöisfiröi á þrjá texta,
Kristján Guölaugsson á einn,
Halldóra B. Björnsson, Iðunn
Steinsdóttir systir Ingólfs, Rúnar
Armann Arthursson eiga hvert
sinn texta. Þórarinn Guðnason
læknir hefur þýtt og staöfært text-
ana vib Litla kassa eftir Pete
Seeger, Skúli Thoroddsen laga-
nemi á einn texta og ljóöið viö lag
Jóns Ásgeirssonar er islensk
þjóðvisa.
Ánægðir með pólitikina
— Nú eru á plötunni nokkur lög
með mjög pólitiskan texta, róttæk
ádeila. Eruö þið sjálfir róttækir?
— Já, annars myndum viö ekki
syngja þá. Við erum ekki flokks-
bundnir og höfum ekkert ab ráði
starfaö I pólitik en viö erum allir
sama sinnis og okkar skoðanir
koma vel fram i þessum lögum.
Viö erum mjög ánægöir þegar viö
fáum slika texta og þótt þeir séu
eftir aðra menn þá getum við
komið þeim á framfæri.
— Hvaö er svo um framtiöina
að segja?
— Hún er nú svo til óráðin. Við
verðum allir I bænum næsta vetur
nema Gylfi sem fer aö kenna á
Seyðisfiröi. Viö hinir höfum á-
huga á aö halda áfram og fá ein-
hvern annan I hans staö. Viö ætl-
um aö reyna að halda áfram i
svipuðum dúr og förum þá
kannski út i að flytja frumsamið
efni jafnframt þvi sem viö höfum
samband viö góða menn og fáum
hjá þeim efni.
—ÞH