Þjóðviljinn - 19.09.1974, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.09.1974, Blaðsíða 1
Vatnsflóð í Samtúni Það hefur engin áætlun fengið lokaafgreiðslu siðan gengið var frá hraðfrystihúsaáætluninni seint i júni. Það er aðeins farið að safna i sarpinn um skylda áætlun Framhald á 11. siðu. Hér kemur saman aftur septemberfólk: Valtýr Pétursson, Steinþór Sigurðsson, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Guðmunda Andrés- dóttir, Kristján Daviðsson og Þorvaldur Skúlason (ljósm. AK). Hér sést hvar iekinn kcmur undan tröppunum. Lækurinn rennur út I garðinn og hefur myndað þar stóra tjörn sem þá og þegar mun fara að leka inn i kjailara hússins. Vatn hefur þegar lckið inn i geymslur sem cru undir tröppunum. ibúar hússins númer 30 við Samtún hér i borg höfðu sam- band við blaðið og sögðu sinar farir ekki slettar i viðskiptum þeirra við Vatnsveitu Iteykja- vikur. Þannig var að fyrir viku tók vatnsrör sem liggur að húsinu að leka og var lekinn undir stétt við útidyr hússins. Þá höfðu íbúarnir samband við Vatnsveituna og báðu um að sendir yrðu viðgerðarmenn. Fengu þeir þau svör að þeirn bæri að gera þetta sjálfir. Siðan jókst lekinn jafnt og þétt og eftir itrekaðar hring- ingar tókst að fá verkstjóra hjá Vatnsveitunni, Ingvar Grimsson, á staðinn til að lita á þetta. Hann gerði það en kvaðst ekkert geta gert i mál- inu vegna mannfæðar. 1 gærmorgun fór svo einn ibúanna til vatnsveitustjóra en þar mætti honum litið ann- að en þéringar og önnur kunnátta. Spurði hann m.a. að þvi hvort skrifleg beiðni lægi fyrir. Sá sem til hans fór sagði honum þá að þetta hefði verið tilkynnt fyrir viku og að verk- stjórinn hefði litið á þetta. En vatnsveitustjóri hafði litið til málanna að leggja annað en að mannfæð kæmi i veg fyrir að nokkuð yrði gert i málinu. En nú er flóðið orðið mikiö og liggur ibúð i kjallara húss- ins undir stórskemmdum ef ekki verður brugðið strax við. Þli UOWIUINN Fimmtudagur 19. september 1974 —39. árg. 179. tbl. Laugardalsvöllur: í DAG KL. 17,30 FRAM GEGN REAL MADRID Engir samningar — segir Snorri Jónsson, varaforseti ASl\ um við- rœðurnar við ríkisstjórnina Hér er ekki um neina samninga að ræða af okkar hálfu, sagði Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ, er Þjóðviljinn ræddi við hann i gær, að loknummið- stjórnarfundi Alþýðusambandsins i gærmorgun. Snorri lagði áherslu á að samningsrétturinn væri hjá verkalýðsfélögunum sjálfum og nú mætti búast við þvi að næstu daga tækju að streyma almennar uppsagnir kjarasamninga frá verkalýðsfélögunum. Snorri sagði að á miðstjórnar- fundinum hefði verið rætt um þær hugmyndir, sem fram hafa komið f viðræöum ríkisstjórnarinnar við sérstaka viðræðunefnd Alþýðu- sambandsins. Viðræðunefndin hefði gefið skýrslu um gang mál- anna i viðræðunum. Búist væri við þvi, að rikisstjórnin kallaði viðræðunefndina til fundar næstu dagana, en talið væri að aðgerðir hennar kæmu senn fram. Snorri Jónsson Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til að Endurskoða lög um F ramkvæmdastofnun Þjóðviljinn hefur fregnað að rikisstjórnin hafi skipað fjóra menn i nefnd til aö endurskoða lög um Framkvæmdastofnun rik- isins, þá Steingrim Hermanns- son, Tómas Árnason, Ingóif Jóns- son og Sverri Hermannsson. Þjóðviljinn bar þessa frétt und- ir Guðmund Vigfússon fram- kvæmdastjóra i stofnuninni. Guð- mundur sagðist ekki þekkja til þessarar nefndarskipunar en sagði að sér þætti hún ekki ótrú- leg þar sem i stjórnarsáttmálan- um er talað um endurskoðun á lögum Framkvæmdastofnunar. Núverandi framkvæmdaráð stofnunarinnar er skipað þrem mönnum, þeim Bergi Sigur- björnssyni og Tómasi Arnasyni auk Guðmundar Vigfússonar. Það er þvi að meirihluta skipað mönnum úr andstöðuflokkum nú- verandi rikisstjórnar. Viö spurð- um Guðmund: — Hafið þið framkvæmdastjór- ar fengið uppsagnarbréf? — Enn hefur engin sllk upp- sögn borist. — Hvað um verkefni i stofnun- inni? — Um þau mætti segja langt mál, en ef við rétt tæpum á þessu má segja að það séu engin ný stórtiðindi. Það er unnið áfram að áætlunarverkefnum, og Byggða- sjóður og Framkvæmdasjóður eru á okkar könnu. Geir Hallgrimsson forsætisráð- herra hefur farið fram á það að með efnisatriði viðræðnanna verði farið sem trúnaðarmál og vildi Snorri þvi ekki á þessu stigi málsins gera nánari grein fyrir gangi viðræðna. Þjóðviljinn hefur aflað sér þeirra upplýsinga að rikisstjórnin telji að setja verði bráðabirgða- lög um „láglaunauppbætur” næstu daga svo að timi vinnist til eðlilegs undirbúnings vegna breytinga á launatöxtum fyrir 1. október. Hér er þvi um það að ræða að rikisstjórnin hyggst fella niður visitölubætur á laun, en sið- an greiða þessar sérstöku upp- bætur. Er búist við aö þær verði við það miðaðar að laun sem eru 50.000 kr. i dagvinnu og lægri fái 4.000 kr. hækkun, 51.000 kr. laun fái 3.000 kr. hækkun, 52.000 kr. laun fái 2.000 kr. hækkun og 53.000 kr. laun fái 1.000 kr. hækkun. Sið- an er gert ráð fyrir þvi að sams- konar útfærlsla verði á upphæð- um þessum á eftirvinnu og helgi- dagavinnu. Þá er búist við þvi, að umsamin launahækkun 1. desem- ber — 3% — komi til fram- kvæmda, og ennfremur að miðað verði við að binding vlsitölunnar nái aðeins að tilteknu marki. Fari verðhækkanir fram úr þvi marki, verði ,eð þær farið á sérstakan hátt. Kanar hætta stuðningi við eftir- litsnefnd SAIGON 18/9 — Bandariskt fyrirtæki, sem séð hefur al- þjóðlegu eftirlitsnefndinni i Suður-Vietnam fyrir margvis- legri þjónustu, hefur ákveðið að snögghætta öllum störfum fyrir nefndina og ber þvi við að hún borgi ekki reikninga sina. Þátttökuriki eftirlits- nefndarinnar, sem komið var á fót eftir að ófriðaraðilar sömdu frið I Paris 1973, eru Ungverjaland, Indónesia, Iran og Pólland. Störf nefndarinnar hafa I raun réttri orðið til litils, þvi að Saigon-stjórnin hafði frið- arsamninginn frá upphafi að engu og hefur haldið uppi stöð- ugum árásum á yfirráðasvæöi Þjóðfrelsisfylkingarinnar, með þeim afleiðingum að litið hefurdregiðúr hörku striðsins þrátt fyrir brottför megin- þorra bandariska Ihlutunar- liðsins. Frá nefndarinnar hálfu hefur heyrst að nefnd á- kvörðun hins bandariska fyrirtækis geti orðið til þess að nefndin verði algerlega að hætta störfum. September ’74 Þetta er sumpart sama fóikiöog stóð að september-sýningunum. Það sýnir að við höfum haidið saman. Viðhöfum lengi rætt um að sýna sam- an á nýjan leik, og nú fyrst hefur orðið úr framkvæmdum. Þetta sagði Jóhannes Jóhannesson, listmálari, einn átta, sem á iaugardag opna sýninguna „Sept 74” I Norræna húsinu. Auk Jóhannesar sýna Guð- munda Andrésdóttir, Karl Kvaran, Kristján Davfðsson, Steinþór Sigurðsson, Valtýr Pétursson, Þorvaldur Skúlason og Sigurjón Ólafs- son myndhöggvari, sem er sérstakur gestur sýningarinnar. September-hópurinn hélt sýningar árlega I fjögur ár, fyrst 1947. Vakti hann mikía athygli og er merkur þáttur I Isienskri myndlistar-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.