Þjóðviljinn - 19.09.1974, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
m
Lœknadeild háskólans enn að hugsa um takmörkun
Annarsárs-nemar í
læknisfræði vígbúast
Hundrað nemendur skráðir á fyrsta ár i lœknisfræði
Rúmlega niuhundr-
uð nýstúdentar hafa
nú látið skrá sig til
náms i Háskóla ís-
lands, en það er tals-
vert fleira en á sama
tima i fyrra, en þá
höfðu innan við sjö-
hundruð nýir nem-
endur látið skrá sig
um miðjan septem-
ber. í fyrra var heild-
artala frumskráðra
stúdenta 954 fyrir
skólaárið 1973—4, á
báðum misserum.
Frumskráning
stúdenta við háskól-
ann hófst 15. júlí og
stóð i hálfan mánuð,
en enn er þó búist við
að þó nokkrar eftir-
legukindur bætist i
hópinn.
í læknadeild hafa nii þegar
látið skrá sig u.þ.b. 100 nem-
endur á fyrsta ári. Er þvi sýni-
legt að ekkert lát virðist vera
á aðsókn i þá deild, þrátt fyrir
viðleitni hennar til að draga úr
fjölda námsmanna i læknis-
fræði.
Takmörkun á
fjölda hótað
Blaðið hefur t.a.m. fregnað,
að þeim 60—70 nemendum,
sem þegar hafa sest á annað
ár i deildinni, hafi verið gefið
það til kynna, að deildin hefði
fullan hug á þvi að grisja þann
hóp og losa sig við 30—40 nem-
endur. Ef af þvi verður eru
komnar til framkvæmda sí-
endurteknar hótanir deildar-
innar á takmörkun á fjölda
nemenda. Eina leiðin til að
framkvæma þetta er að ganga
á röðina og vikja mönnum
burt, sem ekki hafa náð tilskil-
inni lágmarkseinkunn, sem
yrði þá að ákveða á ný i sam-
ræmi við það, hversu mjög
þarf að sigta úr, til að ná æski-
legum fjölda, að mati deildar-
innar.
Verður þetta.ef af verður, að
teljast mjög ósanngjarnt
gagnvart þeim nemendum,
sem þegar hafa staðist þær
faglegu kröfur, sem gerðar
voru til þeirra i prófum á sið-
astliðnu vori, en nú eiga það á
hættu aö verða ýtt út. Nem-
endurnir segja sig þó vera við
öllu búna og kveðast munu
gripa til aðgerða, til að reyna
að koma i veg fyrir að jafn
freklega verði gengið á þeirra
rétt, sem að framan er lýst.
Þess má og geta, að stjórn
Stúdentaráðs hefur heitiö
stuðningi slnum þeim lækna-
nemum á öðru ári, er i hlut
eiga, og lýst sig reiðubúna til
að standa með þeim að aö-
gerðum i þessu sambandi.
Reiðubúnir til
aðgerða
öllum munu vera minnis-
stæðar aðgerðir læknanema á
siðasta vetri, er þeir mót-
mæltu þvi að láta nota sjálfa
sig sem „skjöld” I baráttunni
við rikisvaldið, til að ná fram
endurbótum á kennsluaðstöðu
i læknadeild háskólans.
Læknanemar með kröfuspjöld sin við Arnarhvol l fyrra. Þá heim-
sóttu þeir bæði hcilbrigöisráðherra og menntamálaráöherra til aö
bera fram kröfur um aukið húsnæði til læknisfræðináms og til að
mótmæla fjöldatakmörkunum i læknadeild háskólans. (Ljósm
A.K.)
Það er þó ekki endilega vist,
að það sé einungis húsnæðis-
skorturinn og peningaleysið
sem er til grundvallar þessari
takmörkunarviððleitni lækna-
deildarinnar. t Frakklandi
hefur til að mynda verið tals-
vert rósturssamt i læknadeild-
um þarlendra háskóla og iðu-
lega verið gripið til langvar-
andi verkfallsaðgerða meðal
nemenda, vegna viðleitni
stjórnvalda til að grisja fjölda
læknanema. Þar munu það þó
vera samtök læknanna
sjálfra, sem á bak við standa.
En þeim er það mjög i hag að
halda niöri tölu lækna i land-
inu, til að viðhalda einokunar-
aðstöðu sinni og forréttindum i
lifskjörum umfram aðra þjóð-
félagshópa. Segir það sig
sjálft, að sá göfugi starfshópur
i þvi landi er ekki að hugsa um
hag sjúklinga sinna, þegar
reynt er að takmarka fjölda
lækna á þann hátt, sem að
framan er lýst, en Frakkland
mun vera einna verst sett
allra evrópulanda hvað snert-
ir fjölda lækna i hlutfalli við
fjölda sjúklinga, næst á eftir
Spáni.
—ráa
Eru íslendingar hreinlegri
en grannarnir?
Ekki umtalsverð aukning
kynsj úk dómatilfella
1 ársskýrslu Heilbrigðismála-
ráðs Reykjavikur fyrir árið 1973,
sem blaðinu hefur nýverið borist,
kemur það fram að af þeim 791
sem á deildina komu á árinu,
voru það 632 sem báru sig upp
vegnagrunsum kynsjúkdóma. Af
þeim reyndust 191 hafa kýnsjúk-
dóm. 6 reyndust hafa sárasótt en
185 þjáöust af lekanda. 401 voru
ennfremur rannsakaðir vegna
gruns um kynsjúkdóma, en af
þeim reyndust: 38 hafa flatlýs, 12
höfuðlús, 18 maurakláða, 3 kossa-
geit, en 126 höfðu aðra húðsjúk-
dóma.
A deildinni störfuöu tveir lækn-
ar i hlutastarfi og ein hjúkrunar-
kona i hálfu starfi. Það kemur
lika fram aö 550 smásjárskoðanir
voru gerðar, 587 ræktanir, 270
blóðprufur voru teknar og gefin
891 penicillininndæling.
1 töflu sem með skýrslunni fylg-
ir kemur það fram, aö á timabil-
inu 1964—73 er aukning kynsjúk-
dómatilfella u.þ.b. 42,6%. Arið
1964 fundust 164 tilfelli, en siðar
nær tala sjúkdómstilfella há-
marki árið 1966 eða 203 tilfelli, en
dalar siöan jafnt og þétt fram til
ársins 1971, þegar finnast 143 til-
felli. Arið 1972 eru tilfellin aftur
orðin 189 og svo á siðasta ári 191
eins og áður sagði.
Blaöið hafði samband við
Hannes Þórarinsson sérfræöing i
húð- og kynsjúkdómum og innti
hann eftir þvi hvort einhvern lær-
Framhald á 11. siðu.
Flokksfélag AB
Peningar og
tjáningarfrelsi
t heilsiðufrétt i Morgunblað-
inu i gær eftir Hreggvið Jóns-
son, einn af 12-menningum
„Varins lands”, kemur fram
harla athyglisvert sjónarmið,
semsé það að efnahagur
manna skuli ráða þvi, hvaða
orðbragð þeir megi nota i
ræðu og riti. 1 tilefni af máls-
höfðunum tólffótunganna á
hendur okkur „óráðvöndum
orðstrákum” kemst viðhregg-
ur þessi meðal jnargs annars
svo að orði:
,"Talsmenn varnarleysis
bera, ef marka má ummæli
þeirra, töluverða virðingu
fyrir fjárkröfum okkar. Alykt-
un Stúdentaráðs frá 31. júli s.l.
ber þetta glöggt.með sér. í
henni kemur m.a. fram, að
stefndu séu ekki borgunar-
menn fyrir fjárkröfum okkar.
Hvað eru mennirnir þá að
skrifa hluti, sem þeir geta ekki
staðið við fyrir hlutlausum Is-
lenskum dómi og eru þvi
skaðabótaskyldir fyrir?”
Með öðrum orðum : Það er
Arni Björnsson
allt i lagi að brigsla mönnum
um landráð, persónunjósnir
og ausa þá hverskyns illyrð-
um, ef menn aðeins eru borg-
unarmenn fyrir þvi. Geir Hall-
grimsson og aðrir auðkýfingar
mega t.d. svivirða blanka
námsmenn einsog þeim sýn-
ist, þvi þeir geta skrifað nógu
háa ávisun, ef i það fer. Þetta
hefur Morgunblaðið lika getað
og gert áratugum saman, þótt
fæstir hafi nennt að ata sig á
málarekstri við það.
Maður á semsé að gera hjá
sér eignakönnun og gá i
bankabókina, áður en hann
segir meiningu sina, og fátæk-
ur maður reynist þá hafa
minna tjáningafrelsi. Þetta
minnir einna helst á þá tima,
þegar menn höfðu ekki at-
kvæðisrétt i almennum kosn-
ingum, nema þeir væru nógu
efnaðir.
Eg og fleiri bentum i vor á
það fasistiska hugarfar, sem
meðvitað eða ósjálfrátt lægi
að baki aðgerðum tólfmenn-
inganna. Hér gægist upp einn
horaður fingur þeirrar mó-
rauðu krumlu.
Arni Björnsson
stofnað í V-
Barðastrandarsýslu
Mikill sóknarhugur í
v-barðstrendingum
Nýlega var haldinn stofnfundur
flokksfélags Alþýðubandalagsins
i Vestur-Barðastrandarsýslu. Fór
fundurinn fram á Patreksfirði i
siðustu viku, Unnar Þór Böðvars-
son, skólastjóri á Birkimel á
Barðaströnd, sagði i samtali við
blaðið, að á milli 40 og 50 manns
hefðu gerst stofnfélagar þar á
fundinum, cn hinsvegar hefðu a 11-
margir verið á sjó, sem ætlað
liefðu að mæta, og gætu menn þvi
skráð sig sem stofnfélaga til
næstu mánaðamóta.
1 stjórn félagsins voru eftirtald-
irkosnir: Unnar Þór Böðvarsson,
formaður, Rögnvaldur Haralds-
son, gjaldkeri, Jón Ingimarsson,
ritari, en meðstjórnendur voru
kosnir Höskuldur Daviðsson og
Helgi Arnason. Þá voru og kosnir
fulltrúar i kjördæmisráð, og eru
það þeir Jóhann Svavarsson, Jör-
undur Garðarsson, Unnar Þór
Böðvarsson, Daviö Daviðsson,
Guðjón Bjarnason og Gisli Sig-
urðsson. Fulltrúar flokksfélags-
ins á landsfund Alþýðubanda-
lagsins voru kosnir þeir Gunnar
össurarson, Davið Daviðsson,
Jóhann Svavarsson og Unnar Þór
Böðvarsson.
Unnar Þór sagði starfsemi Al-
þýðubandalagsins hafa legiö að
mestu niðri þar i sýslunni fram
til þessa, en nú væri mikill hugur I
fólki að hleypa nýju lifi i slarf-
semina.
Unnar Þór sagði að heyskapur
hefði viðast hvar verið búinn um
miðjan ágúst vestur þar og aö hey
hefðu verið góð, enda einmunatið.
Bændur stæðu viðast hvar i fram-
kvæmdum og væru að byggja sér
nýjar hlöður og fjós. Mikill sókn-
arhugur væri i fólki og afkoma
góð, sem eingöngu mætti þakka
stefnu síðustu rikisstjórnar. A
Birkimel 1 er nú verið aö byggja
nýjan skóla, en lokið er við bæði
nýja skólastjóraibúð og kennara-
ibúð. Þá sagöi Unnar Þór einnig,
að i byggingu væru tvær nýjar
leiguibúðir að Birkimel, sem
hugsaðar væru til ibúðar fyrir
þjónustufólk af ýmsu tagi. Nefndi
hann sem dæmi, að ef þeir hefðu
haft ibúð til reiðu. hefði nýi dýra-
læknirinn i sýslunni sest að hjá
þeim aö Birkimel, en yrði i stað-
inn að setjast að á Patreksfirði,
sem væri heldur lakara.
—ráa