Þjóðviljinn - 19.09.1974, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 19. september 1974.
Gamalt
land
60
Skáldsaga
eftir
J.lb Priestley
Tuttugasti og fyrsti kafli
Þegar búi5 var að bera fram
kjúklinginn, sem matreiddur var
á einhverja italska vísu, byrjaði
Tom að lýsa þvi sem hann hafði
Húseigendur
athugið!
Látið okkur skoða hús-
in fyrir haustið. Onn-
umst hvers konar
húsaviðgerðir.
Húsaviðgerðir sf.
Sími 12197
séð og heyrt i Abbey Lodge. Svo
bætti hann við: — Mig langar að
taka tvennt fram, þótt ykkur sé
það trúlega ljóst nú' þegar. 1
fyrsta lagi gat ég ekki þolað
hótelið eða Hewson-Smart majór
og gesti hans. Þeir eru imynd alls
þess sem mér mislíkar mest i
Englandi og i fari Englendinga.
Og þvi var ég i hálfleiðu skapi all-
an timann sem ég var þar —
— Ég skil, sagði Júdý. — Það
er eins og ofmæmi.
— Og þetta hefði getað haft
áhrif á dómgreind mina. Og til
viðbótar — og það er seinna atrið-
ið — þá er mér nú ljóst, að þarna
kom sært stolt lika við sögu. Þetta
pakk talaði um föður minn — föð-
ur minn — eins og hann væri
gamalt húsdýr. Þessi Riseburn
sagði meira að segja að majórinn
vildi ekki láta hann. Hamingjan
sanna! Reynið ekki að segja mér
að ég hafi hugsað meira um sjálf-
an mig en hann. Ég veit það vel.
En þetta særða stolt gerði mér
ekki auðveldara fyrir þarna niður
frá. Og ég veit svei mér ekki
hvert næsta skref ætti að vera.
Hann leit á Júdý, finlega og lit-
rika I dökkgulum kjól, siðan á Ali-
son, dökkleita og hrukkótta og
skýrlega i skærgrænum jakka:
siðan aftur á Júdý sem rétti hon-
Bókhaldsaðstoó
með tékkafeerslum
fjFBÚ N AÐARBANKIN N
\l\J REYKJAVÍK
Brúðkaup
Þann 24/8 voru gefin saman i
hjónaband i Neskirkju af sr.
Frank M. Halldórssyni Helga
Jónsdóttir og Arnór Hermanns-
son. Heimili þeirra verður að
Arnartanga 51, Mosfellssveit.
(Ljósm.st. Gunnars Ingimars).
Þann 17/8 voru gefin saman i
hjónaband i Laugarneskirkju af
sr. Garðari Svavarssyni Jónina
Vilborg ólafsdóttir og Karl Ólsen.
Heimili þeirra verður að Hóla-
götu 31, Ytri-Njarðvik. (Ljósm.st.
Gunnars Ingimars).
um jarðarber og rjóma og lyfti
brúnum framan i hann, ef til vill
til tilbreytingar frá þvi að yggla
sig.
— Þúkemur mér á óvart, Tom,
sagði hún. — Ef þú hefur ráð á þvi
þá liggur næsta skref alveg beint
við. Þú losar hann þaðan. En
fyrst þarftu að gefa honum tæki-
færi til að fleygja einhverju i
Hewson Smart majór.
— Hefurðu efni á þvi? spurði
frænka hennar. — Eða kemur
mér það ekki við?
— Vertu ekki að þessu, Alison,
sagði Tom dálitið óþolinmóðlega.
— Við stöndum öll að þessu sam-
an. Jæja, ef með er talið það sem
ég erfði eftir mömmu og það sem
mér hefur tekist að öngla saman,
þá ætti ég að eiga — við skulum
sjá —- já — um það bil sextán eða
sautján þúsund sterlingspund. Og
ef ég læt hann hafa helminginn —
— Ekki allt i einu, vona ég,
sagði Alison fljótmælt. — Ég veit
að það væri ekki heppilegt.
— Það grunar mig lika. Við
skulum nú sjá. Ef ég fjárfesti
hans hluta fyrir hann, þá fengi
hann svo sem fjögur hundruð og
fimmtiu á ári — um það bil niu
pund á viku. Og þaö er ekki nógu
gott. Meðal annarra orða, kemst
hann ekki bráðum á ellilaun?
Alison hristi höfuðið. — Hann
sagði mér einu sinni að hann væri
utanveltu. Hefði ekki farið eftir
reglunum, sagði hann. Stendur
utan við velferðarrikið.
— Það mætti segja mér að
Hewson-Smart majór og stóð-
merin hans hefðu aldrei greitt
eyri i lifeyrissjóð handa honum.
Hann er þarna eins og gamail
þurfalingur, veslings Charles.
— Ég verð að athuga þetta. En
ef ég léti höfuðstólinn róa og
keypti honum lifeyri — segjum
fyrir svo sem átta þúsund — þá
gæti hann fengið allt að þúsund á
ári og þyrfti sem sagt engan
tekjuskatt að greiða.
— Þú talar eins og lögfræðing-
ur eða bókhaldari, hrópaði Júdý,
ekki ásakandi, heldur altekin að-
dáun.
En hann tók þetta illa upp. —
Ég er nú einu sinni hagfræðingur.
— Vertu nú ekki hörundssár.
Og farðu ekki að telja upp fleiri
atriði. Þetta er ofureinfalt. Þú
labbar þig rakleitt niður eftir,
segir honum hver þú ert og segir
að hann þurfi ekki degi lengur að
umbera þessi skelfilegu Hewson-
Smarthjón né hálfvitana gesti
þeirra. Siðan ferðu með hann til
London og kaupir handa honum
lifeyri eða eitthvað svoleiðis.
Þetta er I rauninni tvennt. Og loks
hringirðu i hana Hildu okkar — þú
veist hverja ég á við. —
Hildu Neckerson.
— Hildu Neckerson — og þú
segir henni að hann tilbiðji hana
ennþá og hvernig henni lítist á að
stinga hann Neckerson sinn af og
taka upp lif i synd meðan Charles
málar eins og óður maður. Ég
veit að þetta hljómar kannski dá-
litiö snöggsoðið, en það er vegna
þess að þú virðist vera að tvi-
stiga, Adamson góður. Skjótar
aðgerðir, segi ég.
— En svona einfalt er þetta
ekki, vina min, sagði Alison. —
Jafnvel þótt Tom geri þetta
kannski fullflókið. —
— Þaðgeri égekki. Auk þess er
ég ekki enn búinn að segja ykkur
mitt álit. Gleymið þvi ekki, að ég
hef bóksaflega verið á hælunum á
honum, fengið að vita hvernig
hann hefur skotið upp kollinum
hér og þar, horfið aftur, birst aft-
ur annars staðar. Það er hálf
raunalegt allt saman. En núna að
undanförnu hefur honum þó tekist
að tolla i starfi, guð má vita
hvernig, en hann hefur þraukað.
Og svo birtist löngu glataði son-
urinn — náunginn sem hann fékk
andúð á i morgun. Og gleymið þvi
ekki heldur, að föður minum þarf
ekki endilega að geðjast að mér —
— Þvi ekki það? hrópaði Júdý
með vanþóknun. — Ekki ertu son-
ur minn.og þú hefur ekki verið að
leita að mér út um allar jarðir og
ætlar ekki að kaupa lifeyri handa
mér, en mér geðjast að þér —
— Það gleður mig, en það er
ekki alveg það sama. Hann hefur
þraukað þarna, og allt i einu birt-
ist ég. Og ég á peninga, meira en
hann hefur haft undir höndum
alla sina ævi og ég segi: — Svona
nú pabbi, þú ert búinn að fá nóg af
þessu puði sem góði gamli
Charles. Þið haldið kannski að
hann myndi vefja mig örmum,
gráta af gleði. En það mætti segja
mér, að hann gæti alveg eins j
FIMMTUDAGUR 19. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrlður Björnsdóttir
heldur áfram lestri sögunn-
ar „Fagra Blakks” eftir
önnu Sewell (10). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
liða. Við sjóinn kl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson talar
um skýrslu rannsóknar-
nefndar sjóslysa. Morgun-
popp kl. 10.40. Hljómplötu-
safniðkl. 11.00 (endurtekinn
þáttur G.G.).
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Smið-
urinn mikli” eftir Krist-
mann Guðmundsson. Höf-
undur les (17).
15.00 Miðdegistónieikar.
Aubrey Brain, Adolf Busch
og Rudolf Serkin leika Trió i
Es-dúr fyrir horn, fiðlu og
pianó op. 40 eftir Brahms.
Peter Katin og Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leika
Pianókonsert op. 40 eftir
William Mathias; David
Atherton stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
17.30 Frá sjóferðum víða um
heim.Jón Aðils leikari les úr
ferðaminningum Svein-
bjarnar Egilssonar (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson cand. mag. sér
um þáttinn
19.40 Kórsöngur. Kvennakór
Suðurnesja syngur lög eftir
Sigvalda Kaldalóns, Askel
Snorrason, Inga T. Lárus-
son, Schubert og Verdi.
Söngstjóri: Herbert H.
Agústsson. Pianóleikari:
Guðrún Kristinsdóttir.
20.05 Leikrit: „Litli prinsinn”
eftir Antoine de Saint-
Exupéry.
Þýðandi: Þórarinn Björns-
son.
Leikgerð fyrir útvarp ann-
aðist Sigmundur örn Arn-
grlmsson, og er hann jafn-
framt leikstjóri. Tónlist
gerði Atli Heimir Sveinsson,
sem flytur hana ásamt Guð-
nýju Guðmundsdóttur,
Guillermo Figueroa og
William Grubb. Persónur og
leikendur: Sögumaður ...
Róbert Arnfinnsson, Litli
prinsinn ... Sólveig Hauks-
dóttir, Rósin... Edda Þórar-
insdóttir, Kóngur ... Valde-
mar Helgason, Montinn
maður/ Kaupsýslumaður ...
Bessi Bjarnason, Drykkju-
maður/ Ljósamaður ...
Flosi Ólafsson, Landfræð-
ingur ... Þorsteinn ö.
Stephensen, Höggormur ...
Briet Héðinsdóttir, Blóm ...
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Refurinn ... Helgi Skúlason
21.20 Solomon leikur á píanó
sónötur nr. 13 I Es-dúr op. 27
nr. 1 og nr. 31 I As-dúr op.
110 eftir Beethoven.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Septembermánuður”
eftir Fréderique Hébrard.
Gisli Jónsson islenskaði.
Bryndis Jakobsdóttir les
(4).
22.35 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur I umsjá
Guðmundar Jónssonar
pianóleikara.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
1 x 2 — 1 x 2
5. leikvita — leikir 14. sept. 1974
Úrslitaröðin: 11 X — X 1 2 —111 — 11 X
1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 29.500.00
3360 8823 36710+ 36920+ 36933+ 38966 39159+
5344+ 36713 +
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 2.000.00
106 4268 7123 13583 36767 37655 + 38643
413 4946 8174 14248 36861 38032 38745
417 5002 8537 14621 36911 + 38118 39111
423 5122 8821 35067 36914 + 38130 + 39111
840 5258 9014 35067 36924 + 38141 39111
921 5258 9701 35144 36927 + 38141 39150+
1027 5587 9849 35598 37119 38145 39153 +
1179 6843 12699+ 36025 37374 38145 nr. ólæsil.
4125 7091 13286 36134 37633 38601 + nafnlaus
Kærufrestur er til 7. okt. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og
aðalskrifstofunni. Vinningar fyrir 5. leikviku verða póst-
lagðir eftir 8. okt.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK.
Auglýsingasiminn er
17500