Þjóðviljinn - 01.12.1974, Qupperneq 9
Sunnudagur 1. desember 1974. ÞJÓÐVILilNN — StÐA 9
svo vissi ég bara alveg hvernig
átti að spila lag, það er enginn
vandi. Fyrst gerði ég bara með
einum putta og svo tveimur og
svo bara með báðum höndum...
en veistu að einn strákurinn i
leikskólanum sá alvöru-ljón i
Kardimommubænum.
— Alvöru-Ljón?
— Já, það er alveg satt, það
var alvöru-ljón, og ég ætla að
fara og sjá Kardimommubæinn
og ljónið.
—■ Ertu ekkert hræddur við
ljónið?
— Nehei, þetta er leikrit, og
ljón i leikritum taka mann ekki,
þó það séu alvöru-ljón, þá
myndu nefnilega engir koma og
sjá leikritin....Mamma segir að
það sé fullt af fallegum lögum i
Kardimommubænum sem ég
þurfi endilega að læra og ég ætla
að gera það.
— Myndirðu vilja fara I skóla
þar sem krakkar læra nótur og
að spila á hljóðfæri?
MYNDIR OG
TEXTI S. DÓR
Menn þurfa ekki að vera háir f loftinu til aðleika vel á pfanó.
--- Já, ég hugsa að það sé
gaman.
— Hvort finnst þér meira
gaman að eiga heima i Reykja-
vfk eða á Siglufirði, þar sem þú
áttir heima?
— I Reykjavik. Það eru svo
margir krakkar sem maður
getur leikið við i Reykjavík. En
stundum var voða gaman á
Siglufirði. Þar kemur svo ofsa-
mikill snjór, og þá getur maður
rennt sér um allt á sleða. Veistu
það að einu sinni var stelpa sem
var að renna sér og hún var
næstum dáin.
— Afhverju var hún næstum
dáin?
— Af þvi að hún fór fyrir bil.
— Keyrði billinn á hana?
— Nei, hann var stoppaður
áður en stelpan kom, en það
munaði voða litlu
— Rennairðu þér nokkuð á
skiðum?
— Ja, pabbi var að kenna mér
á skiðum, en ég datt alltaf á
rassinn, mér fannst ekkert mjög
gaman á skiðum, það var meira
gaman á sleða.
— Geturðu nokkuð rennt þér á .
sleða i Reykjavik?
— Já, já, það eru brekkur hér
úti sem maður getur alveg rennt
sér niður, en þær eru ekki eins
stórar og brekkurnar á Siglu-
firði.
Og siðan hélt þessi litli
skemmtilegi strákur áfram að
segja mér frá sleðaferðum og
öörum svaðilförum sinum i
snjónum á Siglufirði, en ein-
hversstaðar verða viðtöl að
enda, og það getur þá allt eins
■ orðið hér, en það eiga áreiðan-
lega fleiri og sérhæfðari blaða-
menn i tónlist eftir að eiga viðtöl
við þennan dreng þegar fram i
sækir ef allt fer að vonum.
—S.dór
ÞAÐ SKAL
SOFFIU TIL
Það var þegar fyrir mörgum
árum sem franski leikarinn vin-
sæli Jean Gabin sór og sárt viö
lagði, að ekki skyldi hann leika i
fleiri kvikmyndum né stilla sér
upp framan við sjónvarpstöku-
vélar. En nú hefur Sophia Loren
fengið hann til að skipta um skoð-
un og leika móti sér i kvikmynd-
inni ,,Tigrisynjan og fillinn”.
— Þegar ég horfi á Soffiu skipt-
ir það mig engu þótt ég brjóti
fyrirheitin, segir Jean, — en helst
viidi ég aftur vera orðinn fertug-
ur.
Hvaö er g.t.
g.t. er skammstöfun
orðanna gagnkvæmt tryggingafélag.
Samvinnutryggingar g.t.
eru gagnkvæmt tryggingafélag.