Þjóðviljinn - 01.12.1974, Page 11

Þjóðviljinn - 01.12.1974, Page 11
Sunnudagur 1. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Umsjón:Ingólfur Hannesson og Sverrir Sverrl"— KEMUR FRAM Á 1. DES. SKEMMTUN STÚDENTAí HÁSKÓLABÍÓI MEGAS önnum kafinn klásillnr ... og ég bjó þá bara til islenskan Hróa hött. Ný lög viöalla PASSÍUSÁLMANA Magnús Þór Jónsson (með gríska naf nið Megas- Magnús) vakti á sér tölu- verða athygli fyrir nokkr- um árum þegar hann sem námsmaður í Osló gaf út breiðskífu upp á eigin spýtur. Síðan þetta gerðist hefur fremur lítið heyrst í kappanum opinberlega, nema hvað hann gaf út þrjár Ijóðabækur, á einu bretti, stuttu fyrir síðustu jól. Þegar Klásúlur fréttu að Megas ætti að koma fram á 1. des. skemmtun, var forvitni okkar vakin og við mæltum okkur mót á einu kaffihúsi borgarinn- ar. Kls: Nokkuð er nil liðið siðan platan þin kom út, og var hún mjög umdeild á sinum tima. Hvers vegna? Megas: Það var allt á misskiln- ingi byggt. Fólk hélt að ég væri að segja allt annað, en ég raunveru- lega gerði. Það getur ekki gúter- að, að ég tali um kófdrukkinn Jónas Hallgrimsson, en þannig var talað um hann á sinum tima. Kls: Hvers vegna velur þú yrkis- efnið úr islandssögunni? Megas: tslandssagan er höfuð- punkturinn, a.m.s.k. séð með relatiskum augum. Listsköpunin á plötunni ris þó hæst með Eyjólfi bónda, en það er siðasta lag plöt- unnar. Kls: Hvað kom hún út i mörgum eintökum? Megas: Þaö voru 650 einstök, sem seldust öll mjög fljótlega, en það var hlutur sem ég bjóst ekki við. Kls: Nokkur ágóði? Megas: Ja maður lifði hátt með- an peningarnir streymdu inn, en það stóð reyndar ekki lengi. Kls: Af plötunni mætti ætla, að þú sért meira ljóðskáld, en laga- höfundur. Hvað finnst þér um það? Megas: Tja, lögin eru mjög fal- leg. Nei, annars lit ég svo á, að nokkuð jafnt sé á komið með þeim hæfileikum. Megas: Ég man, eitt sinn er ég var að spila i Norræna húsinu, þá sneri ég baki i áheyrendur, þvi ég mundi hreinlega ekki textann. Það var eitthvað vesen i skipúler- ingunni, og ég var kominn inn á sviðið löngu áður en ég átti að byrja. Ég var með textann upp- skrifaðan, og til þess að draga fjöður yfir það, þá settist ég með bakið i áheyrendur og byrjaði að spila. Að visu heyrðist textinn ekki vel aftur i sal, en þeir sem fremstir sátu, heyrðu vel, og létu það sem mest var krafsandi ber- ast til þeirra er illa heyrðu. Kls: Þú hefur gefið út eitthvað af ljóðabókum? Megas: Já, ég gaf út þrjár ljóða- bækur fyrir jólin i fyrra, Megas I, Megas II og Megas III, en ég held að ég doki aðeins við þangað til ég er búinn að koma þessu á þrykk þ.e.a.s. á plötu. Kls: Hvenær kemur nýja platan? Megas: Hvenær platan kemur, já, hún kemur sem allra fyrst eða þegar útgefandi er fundinn, en hingað til hafa menn verið fremur tregir til þess. Þar sem ég hef pælt hef ég alltaf komið að lokuð- um dyrum eða á ég frekar að segja Franz Kafka. Maður kannski opnar dyrnar, kemur inn langan gang og biður þar i hundr- að ár, i biðstofu. Loks kemur gamall kall og segir aðeins: ,,Hér er enginn.” Kls: Hvað hefur þú helst haft fyr- ir stafni siðan platan kom út? Megas: Ég hef unnið mikið stór- virki, þ.e.a.s. ný lög við alla Passiusálmana, fjögur lög við númer 31, tvö lög við númer 49 og þrjú lög við númer 25. Agnus Dei, Passiusálmur númer 51, og Passiusálmur númer 52 eftir Karl Isfeld hafa einnig fengið sin lög og þetta gerir samtals um sextiu melódiur. Ég ætlaði endilega að gefa úr minningaralbúm, svona þrjár til fjórar plötur, núna i október þegar Hallgrimur greyið átti dánarafmæli og það hefði verið mjög við hæfi. Kls: Hver er þinn þáttur i 1. des. skemmtuninni? Megas: Ég á að flytja lög af plöt- unni með aðstoð Pelican og eru þau að einhverju leyti tengd slag- orði dagsins, þjóðsagan og veru- leikinn. Kls:Um hvað fjallar kvæðið sem er hér til hliðar á siðunni? Megas: Það fjallar um Hróa hött Islands, jónas ólaf jóhannesson frá hriflu. Lagið er raunverulega eftirmáli við lag sem gekk hér einu sinni og heitir „John Wresley Harding." ólafur Jóhannesson var þá eiginlega strax kominn i spilið og ég bjó þá bara til is- lenskan Hróa hött. Kls: Hvað viltu segja að lokum? Megas: Ég segi aðeins það sama og Goethe sagði á banasænging- inni: ,,Meira ljós.” JónasÓlafur Jóhannesson frá Hriflu 1. jónas frá hriflu var hollvinur snauðra hann hyglaði soltnum og bjarg þeim fra deyð og reið yf ir landið að líkna þeim ófáu' er lífvana hjörðu við hungur og neyð viðl: jónas ólafur jónas ólafur jónas ólafur jóhannesson frá hriflu 2. hann stóð við í grímsey og stoð var hann mörgum og stytta 'afði hjarta og heila hönd uns barst honum fógetabréf þarsem stóð aðsem brjótuður laga 'yrði 'ann hnepptur í bönd viðl: jónas ólafur jónas ólafur jónas ólafur jóhannesson frá hriflu 3. en fógeta 'ei lukkaðist höndum að hafa i hári 'ans hann hvarf burt og sást ei meir þar en frá öðrum landshlutum fregnir um góðverk hans flugu 'en að klófesta 'ann tókst ekki þar viðl: jónas ólafur jónas ólafur jónas ólafur jóhannesson frá hriflu. 4. yfirvöld landsins þau ofsóttu jónas en einatt hann bjarg sér 'oft snöggklæddur braut því enginn var til sá að tækist að f anga 'ann hann tók ekkert feilspor uns Ijánum hann laut viðl: jónas ólafur jónas ólafur jónas ólafur jóhannesson frá hriflu Megas

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.