Þjóðviljinn - 01.12.1974, Qupperneq 15
Sunnudagur 1. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Nýr ódýr 2ja manna sófi
Yerð aðeins kr. 24.570,-
Ath.
Nokkrir lítið gallaðir svefnbekkir til sölu
með 15-20% afslætti næstu daga.
SVEFNBEKKJAIÐJAN,
LEIKFANGALAND
T .j r * i Fjölbreytt úrval leik-
LeiKjangalana fanga fyrir börn á öllum
veitusundi í.simi 18722. aldri. - Póstsendum.
\ 1 ✓
FUNI H.F.
BORGARTÚNI 25 - REYKJAVlK
SlMI 19645
HANDUNNIÐ
KERAMIK
Tilvaldar
tækifærisgjafir
FUNA-KERAMIK FÆST A EFTIRTÖLDUM
STÖÐUM:
Reykjavík
Alaska v/Miklatorg
Blóm og ávextir Hafnarstræti 3
Blómaval v/Sigtún
Blómaglugginn, Laugavegi 30
Bristol, Bankastræti 6
Búsáhöld og gjafavörur,
Glæsibæ
Hamborg, Laugavegi 22
Raflux, Austurstræti 8
Thorvaldsensbasar,
Austurstræti 4
Hafnarfjörður:
Blómav. Burkni, Linnetstig 3
Keflavtk:
Rammar og gler
Hveragerði:
Paul. V. Michelsen
Selfoss:
Kaupfélagið Höfn
Akranes:
Verslun Helga Júliuss6nar
Borgarnes:
Kaupfélag Borgfirðinga
ísafjörður:
Neisti h/f
Bolungavík:
Verslun Einars Guðfinnssonar
Sauðárkrókur:
Gjafabúðin
Sigluf jörður:
Bókaverslun Hannesar
Jónssonar
ólafsfjörður:
Kaupfélag Ólafsfjarðar
Akureyri:
Klæðaverslun Sigurðar
Guðmundssonar
Húsavík:
Kaupfélag Þingeyinga
Vopnaf jörður:
Kaupfélag Vopnafjarðar
Neskaupstaður:
Kaupfélagið Fram
Eskif jörður:
Rafvirkinn
Fáskrúðsf jörður:
Verslunin Þór
Höfn Hornafirði:
Verslun Sigurðar Sigfússonar
SITT
ÚR
HVERRI
ÁTTINNI
Ekki svo
heimskulegt
eftir allt...
Vikum saman lá á einu póst-
húsanna i Salt Lake City i
Bandarikjunum bréf, sem skrif-
að var utaná „til heimskasta
lögfræðings borgarinnar" Að
lokum gaf einn lögfræðingurinn
sig fram og tók við bréfinu. 1 þvi
voru 100 dollarar og seðill sem á
stóð: „Þú ert ekki eins heimsk-
ur og ég hélt!”
LTfsreynslan
"Þegar farið var i gegnum
pappira hollenska bókarans
William van Groot, sem nýlega
lést i Haag, fannst umslag með
árituninni: ,,Ég lifði þrjár un-
aðsstundir og þrjátiu áhyggju-
ár”. í umslaginu var giftingar-
vottorð hans og dánarvottorð
eiginkonunnar.
TVÖFÖLD
NOT
VISNA-
ÞÁTTUR
S.dór.l
ÞRIR GÓÐIR..
Höggvir þú eldivið þinn
sjálfur, hitar hann þér tvisvar.
(Nýtt sænskt orðtæki eftir oliu-
kreppuna i fyrravetur).
Veðurfræöilegt
Frásögn úr norsku blaði i
sumar:
t gær kom hingað breskur
ferðamaður i 30 stiga hita og var
lagður inn á sjúkrahús með sól-
stungu. Þar kom i ljós, að hann
var klæddur loðskinnsfrakka,
tvidfötum, tveim vestum, peysu
og siðum ullarnærfötum. Hann
útskýrði þetta fyrir lækninum:
— Mér var jú sagt, að það
væri alltaf svo kalt i Noregi.
Of litið höfum við gert af þvi
að birta gamanmál hér i visna-
þættinum. Or þessu verður að
bæta, þvi að sjaldan nýtur stak-
an sin betur en þegar hún hittir i
■ mark hjá húmorista, sem jafn-
framt er góður hagyrðingur.
Þess vegna skulum við nú lita á
nokkrar stökur eftir þá Jón
Pálmason fyrrum alþingis-
mann, kollega hans Karl
Kristjánsson og Bjarna
Asgeirsson. Allir voru þeir góðir
hagyrðingar og húmoristar
miklir.
Einhverju sinni hitti Jón
Pálmason mann á götu sem
sagðist ekki mega tefja, hann
væri að fara á „Konur annara”
en það var leikrit sem þá var
verið að sýna i Iðnó. Þá orti
Jón:
Flýti ég mér og fer af stað
fylltur glæstum vonum.
Ég hef keypt mér aðgang að
annara manna konum.
Einhverju sinni var Jón i
bifreið á leið norður. Hjá
bifreiðastjóranum sat kona sem
sagði þegar uppi Hvalfjörð kom
að hún væri sveitt öðrumegin en
að sálast úr kulda á hinni hlið-
inni. Bifreiðastjórinn hét Gunn-
ar. Þá orti Jón:
Gunnars vors er holdið heitt
hitnar þvi að vonum,
er á frúnni orðið sveitt
allt sem snýr að honum.
Svona verkar sitt á hvað
sálaraflið dulda.
Hinu megin — hart er það
hún er blá af kuida.
Þá skulum við lita á visur eft-
ir Bjarna Ásgeirsson. Skúli
Guðmundsson fyrrum alþingis-
maður var vanur að ganga
berhöfðaður. Þegar hann kom
til þings 1940 var hann kominn
með yfirskegg og sýndist sitt
hverjum um prýði þess. Þá orti
Bjarni:
Skúli yrði alþjóð hjá
i æði háu mati,
ef hann skipti i skyndi á
. skeggi og höfuðfati.
Bjarni orti þessa visu eftir að
Jón frá Akri hafði fært sig úr
sæti við hlið Bjarna á Alþingi:
Hann flutti yfir fjöll til min,
i félag drottins barna,
en hélt svo aftur heim til sfn
— helvitið að tarna —
Þegar Aki Jakobsson flutti
jómfrúræðu sina á alþingi þótti
hann hvassyrtur og það'svo, að
'Emil Jónsson forseti neðri
deildar ávitaði hann, þá sagði
Bjarni:
Rægiinála rýkur haf
rastir hvitar brýtur.
Keiðiskálum Emils af
Akaviti flýtur.
Karl Kristjánsson var ekki
siður snjall hagyrðingur en þeir
Jön og Bjarni. Eitt sinn var Karl
Ilangferðabíl sem var fullsetinn
og andlitin að sjálfsögðu fjöl-
breytileg, þá orti hann:
Auðlegðin er eigi smá
og ekki er smiöurinn gleyminn
'að láta sérstakt andlit á
alla, sem komu i heiminn.
Eitt sinn voru þeir á ferðalagi
I Englandi Jón Pálmason og
Karl. Þá sendi Jón Karli þessa
visu:
Enginn vafi er um það
ungum burt frá hrundum
fikjúviðar fýkur blað
fyrr en varir stundum.
Þessu svaraði Karl:
Gerum enga yfirsjón
er það fararkvöðin.
Horfðu á brosin hýru, Jón,
heldur en fikjublöðin.
Eitt sinn i þingveislu orti Karl
þessa sléttubandavisu um Jón
frá Akri:
Akrahöldur staupastór
stýrir málaþingum.
Vakra öldu boðnar bjór
brýtur manninn kringum.
Og aftur á bak.
Kringum manninn brýtur bjór
boðnar öldu vakra.
Málaþingum stýrir stór
staupahöldur Akra .
Látum þetta nægja um þá
þremenningana en snúum okk-
ur að visum sem þættinum hafa
borist. Nýlega fór Halldór
Blöndal óvirðingarorðum
um ásatrúarmenn á Alþingi. Þá
orti — Heyrandi —
Hljómar litt þótt spruugnar
klukkur klingi
kraftlaust orð er gat á
málflutningi,
skopmynd ein af skörungum
á þingi
skammast yfir nýrri
trúarkyngi.
Jóhanna G. Ellingsson sendi
okkur þessar kvöldstemnings
visur:
Leit ég útum ljórann minn
á ljósu sumarkveldi,
dvinaði þar dagurinn
og dó i sólareldi.
Hjúpaði sig himininn
húmsins bláa feldi,
hrifnæmur þá hugur rninn
hófst i æðra veldi.
Þessi visa var ort þegar talið
var upp úr kjörkössum eitt sinn:
Hannibal með hroðinn skjöld
hefur núna engin völd,
máske hann verði,
kannski í kvöld
að kvitta fyrir syndagjöld.
Sæmundur.
BOTNAR
Og þá eru það botnarnir sem
okkur hafa borist við
fyrripartinn:
Ætlar Gcir að semja sátt
og svikja i landhelginni:
Hurðin er i hálfa gátt,
haltu vöku þinni.
H.B.
Rikir hafa aldrei átt
ást nema á pyngju sinni.
Valgerður.
Þess er von úr þeirri átt,
það eru gömul kynni.
Anna.
Skyldi hann efla þeirra þátt
i þýsku útgerðinni?
Magnús Einarsson
Hann yrði þá á auman hátt,
okkur lengi i minni.
S.H
Endurskyn er orðið grátt
af íhaldsflatsænginni.
A+J.
Hans er vani að hyggja flátt,
og hygla að eigin skinni.
Ætlar Geir að semja sátt
og svikja landhelgina.
Aldrei hefur tsland mátt,
thalds treysta syni.
G. G
Ætlar Geir að semja sátt
og svikja landhelgina.
Hann hefur aldrei ísland átt,
utan v-liðina.
H. P