Þjóðviljinn - 05.01.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 05.01.1975, Qupperneq 5
Sunnudagur 5. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 MAGNÚS KJARTANSSON Þúsund miljónir króna í frosthörkum og illviðrum i vetur hefur enn einu sinni sannazt hversu veikt raforkukerfi okkar er í flestum landshlutum. Þar eru að verki náttúruhamfarir sem seint mun takast að koma i veg fyrir, og litil orkuframleiðsla og rennslisvirkjanir sem bregðast ævinlega þegar verst gegnir. Og þá kemur upp sú freisting að kenna einhverjum um; ófáar eru þær greinar sem birzt hafa i málgögnum Sjálfstæðisflokksins og telja vinstristjórnina bera á- byrgð á öllum örðugleikum i raf- orkumálum. Ég geymi mjög vandlega samþykkt sem Sam- band ungra Sjálfstæöismanna geröi fyrir rúmuári þess efnis að öll vandkvæði i raforkumálum væru Magnúsi Kjartanssym að kenna! Allir þeir sem eitthvað hugsa gera sér þó ljóst að framkvæmd- ir I raforkumálum eru tima- frek verkefni: alllangt árabil liður ævinlega frá þvi að ákvarðanir eru teknar og þar til þær hafa breytzt i veruleika. Þvi vill það einatt verða svo að rikisstjórn uppsker það eitt á sviði raforkumála sem sáð hafði verið til i tið fyrirrenn- ara hennar. 1 tið vinstristjórnar- innar tók aðeins ein ný virkjun til starfa, vegna þess að viðreisnar- stjórnin hafði ekki hafizt handa um neinar aðrar framkvæmdir. Þessi eina framkvæmd var Laxárvirkjun, sem skuldbundin hafði verið þremur vikum áður en vinstristjórnin tók við — og þarf ég ekki að rifja upp hversu skyn- samleg og hagkvæm sú ákvörðun hefur reynzt. En þar með er arfur viðreisnarstjórnarinnar á þessu sviði upptalinn. í ár mun Gunnar Thoroddsen hins vegar eiga þess kost að vigja Lagarfossvirkjun á Austfjörðum og Mjólkárvirkjun II á Vestfjörðum. Endist rikis- stjórnin fram á næsta ár mun hann eiga þess kost að vigja Sig- ölduvirkjun. Og þrauki rikis- stjórnin út kjörtlmabilið mun hann einnig hreppa það ánægju- lega hlutskipti að vígja Kröflu- virkjun. Samtals jafngilda þessar virkjanir, sem vinstristjórnin bar hitann og þungann af eða tók á- kvarðanir um, heilli Búrfells- virkjun. Þá eru ótaldar fram- kvæmdir eins og miðlunin mikla i Þórisvatni sem hefur stóraukið öryggi Búrfellsvirkjunar, sveita- rafvæðingin, stofnllna sem tengir saman Noröurlandssvæðin, stofn- lína sem tengir Snæfellsnes við Landsvirkjunarsvæðið, og stófn- linan sem tengir saman Norður- land og Suðurland og verður ekki stöðvuð þótt núverandi rikis- stjórn hafi þvi miður tafið framkvæmdir við hana frá þvi I september I haust. Umskiptin sem urðu i tið vinstristjórnarinn- ar má marka af þvi að á siðasta heila viðreisnarárinu voru rúmar 300 miljónir króna ætlaðar til orkumála á fjárlögum og i framkvæmdaáætlun, en i fyrra var hliðstæð upphæð hálfur annar miljarður. Allar munu þessar stórauknu framkvæmdir valda miklum umskiptum, þegar þær koma i gagniö. Og þá mun trúlega ekki standa á Morgunblaðinu að færa Gunnari Thoroddsen verð- ugar þakkir fyrir mikla athafna- semi — gagnstætt framtaksleysi fyrirrennara hans. Samningurinn frá 1966 Það er margskonar arfur sem viö sitjum uppi meö. Menn mega til að mynda ekki gleyma þvi að þótt orkuskortur sé i mörg- um landshlutum eiga lands- menn þess ekki kost aö kaupa nema tæpan helming þeirrar raforku sem þeir framleiða þó sjálfir! Arið 1966 gerði viðreisnarstjórnin samning við svissneska auðhringinn Alusuisse og heimilaði honum að koma upp alerlendri álbræðslu hérlendis, og var hún undanþegin Islenzkum lögum og Islenzkum dómstólum. Jafnframt var gerð- ur samningur um að álbræöslan fengi tvo þriðju hluta af öllu afli Búrfellsvirkjunar, rúman helm- ing af allri þeirri raforku sem þá var framleidd i landinu. Samið var um afar lágt verð — tæpa 30 aura á kilóvattstund miðað við núverandi gengi — og skyldi það verðhaldast óbr. i dollurum allt til ársins 1997 hvað svo sem gerð- ist I orkumálum I heiminum. Fróðlegt er að rifja upp nokkrar þeirra fáránlegu röksemda sem notaðar voru til þess að réttlæta þennan samning-Þvi var haldið fram að þá væru sfðustu forvöö að koma orkulindum okkar i verð, þvl að orkuverö myndi fara hrið- lækkandi á ókomnum árum, bæði verðá raforku frá kjarnastöðvum og verð á oliu! Sagt var aö mjög hagkvæmt væri að gera samning um fast raforkuverð til ársins 1997 — þvi að þá bitnaði alþjóöleg verðlækkun á orku ekki á okkur. Og Islenzk stjórnarvöld lögðu á það sérstaka áherzlu að Sviss- lendingarnir yrðu að borga raf- orkuna með dollurum — en ekki með svissneskum frönkum eips og þeir buðu sjálfir — en þaö leiddi til þess að hrunið á gengi dollarans bitnaði einhliða á okk- ur. Allar þessar röksemdir sýndu aö viðreisnarherrarnir högðuöu sér eins og börn i samskiptum við auðhringinn og virtust trúa öllu sem þeim var sagt. Þeir höföu einnig komið sér i þá að- stöðu, að lán til Búrfellsvirkjunar frá Alþjóðabankanum var bundið þvi skilyrði að samið yröi við Alu- suisse; og menn sem þannig hafa látið festa sig i gapastokki eiga ekki margra kosta völ. Þegar alþingi samþykkti ein- róma heimild til Búrfellsvirkjun- ar var gert ráð fyrir þvi að Lax- árvirkjun sameinaðist Lands- virkjun og að lögð yröi stofnlína milli Suðurlands og Norðurlands. Þessi heimild alþingis var hins vegar ekki hagnýtt og engin sam- tenging framkvæmd. Ekki ætti að þurfa að lýsa þvi frekar, að á- standið I orkumálum á tslandi væri annað og betra ef orkuveitu- svæðin hefðu verið tengd saman og ef landsmenn ættu nú kost á þeirri raforku sem seld er ál- bræöslunni fyrir smánarverð. Miljarður á ári Verðið sem álbræðslan greiddi var þegar i upphafi undir fram- leiðslukostnaðarverði og það þvi fremur sem siðar þurfti að ráðast i miðlunarframkvæmdir til þess að tryggja Búrfellsvirkjun lág- marksöryggi og leggja nýja stofnlínu til Reykjavlkur. Þróun- in slðan hefur sannað með hverju nýju ári hversu hraksmánarlegur þessi samningur var. Um það er nú tiltækt mjög eftirminnilegt dæmi. A slðustu árum hefur verið kannað hvort hagkvæmt væri að koma upp járnblendiverksmiöju herlendis, Islenzku fyrirtæki sem lyti i einu og öllu islenzkum lögum og islenzkum dómstólum, en bandariski auðhringurinn Union Carbide ætti minnihluta I. 1 þeim samningsdrögum sem nú liggja fyrir er reiknað með þvi að þetta fyrirtæki greiði sem svarar 118 aurum fyrir kilóvattstundina af forgangsorku og samt skili verk- smiðjan góðum arði. Þetta er semsé talið eðlilegt gangverð á rafmagni til orkufreks iðnaðar á þessu ári, og jafnframt eru i samningsdrögunum ákvæði um að raforkuverðið skuli fara stig- hækkandi og verði endurskoðað reglulega i samræmi við alþjóð- lega þróun. Það sem nú er talið eðlilegt gangverð á rafmagni til orkufreks iðnaðar er ferfalt hærra en það verð sem álbræðsl- an greiðir og á að greiða fram til ársins 1997. A siðasta ári mun ál- bræöslan hafa greitt um 326 miljónir króna fyrir þá raforku sem hún keypti frá Landsvirkjun. Ef hún hefði greitt það sem nú er talið sanngjarnt gangverð og for- senda fyrir rekstri hugsanlegrar járnblendiverksmiðju hefði heildargreiöslan átt að vera 1304 miljónir króna. Mismunurinn er tæpur miljarður króna á einu ein- asta ári, miljarður sem hinn erlendi auðhringur hiröir i arð og flytur úr landi — þvl að álbræðsl- an er erlent fyrirtæki og ábati hennar verður ekki eftir i landinu. Einn miljarður króna er ámóta upphæð og það kostar að leggja fullgilda stofnlínu milli Suður- lands og Noirðurlands. Enginn getur sagt um það hver þessi mis- munur verður orðinn árið 1997, en svo örar hækkanir virðast fyrir- sjáanlegar á orkuverði að heildartap okkar á þessum við- skiptum verður taliö I mörgum tugum miljarða áður en lýkur. Talsmenn auöhringsins Haustið 1973 óskaði ég eftir við- ræðum við forráðamenn Alusuisse um þessi vandamál og fór sá fundur fram i Sviss 6ta og 7- unda september það ár. Ég gerði þar grein fyrir þvi að ég teldi það óhjákvæmilegt réttlætismál að orkusölusamningurinn frá 1966 yrði endurskoðaður, þar sem for- sendur væru gerbreyttar og þær aðstæður sem taldar voru rétt- læta samninginn hefðu ekki reynzt I samræmi við veruleik- ann. Máli minu var mjög fálega tekið og I fyrstu neitað að ræða hugsanlega endurskoðun — raf- orkusölusamningurinn frá 1966 væri helgur dómur! Siðar var þó fallizt á viðræður og fór einn slik- ur umræðufundur fram snemma á siðasta ári, en árangur varð enginn. Það sem torveldaði hvað mest að unnt væri að halda á málstað Islendinga I þessum viðræöum var sú staðreynd að þeir Islenzkir stjórnmálamenn sem gerðu orku- sölusamninginn 1966 hafa til þessa reynzt ófáanlegir til þess að viðurkenna mistök sin; öllu held- ur halda þeir þvi blákalt fram að orkusölusamningurinn frá 1966 sé enn mjög hagkvæmur- Islending- um. Þannig hélt Ingólfur Jónsson, fyrrverandi orkumálaráðherra, langa lofgeröarræðu um samn- inginn rétt áður en þingið fór i jólaleyfi fyrir hálfum mánuði. Það er ekki ónýtt fyrir viðsemj- endur okkar að eiga þvilika tals- menn inni á alþingi Islendinga. Ég er þess þó fullviss að Ingólfur Jónsson og félagar hans skilja og vita hversu óhagkvæmur þessi samningur er orðinn, en persónu- legur hegómaskapur bannar þeim ennþá að viðurkenna stað- reyndir. Þeir mættu þó minnast þess að það er mannlegt að skjátlast, en stórmannlegt að viðurkenna mistök sin. Islendingar veröa að létta af sér þeim klafa sem á þá var lagður 1966. Takist það ekki með sam- komulagi við Alusuisse ber að kanna aðrar leiðir. Vera má að alþjóölegar reglur um „force majeure” — óvænt og ófyrirsjá- anleg atvik — geri okkur kleift að rifta samningunum. Að öðrum kosti ber að kanna hvort unnt sé að þjóðnýta álbræðsluna, en til þess þyrftum við að sjálfsögðu að tryggja okkur hráefni og sölu á framleiðslunni i samvinnu við aöra. Forgangs verkefni Orkukreppan viða um land er afleiðing af ákvörðunum sem teknar voru 1966, þegar rúmum helmingi af framleiðslu okkar var ráðstafað til erlendrar álbræðslu. Ef gerbreytt stefnumörkun vinstristjórnarinnar i orkumálum leiðir til þess að hliðstæður samn- ingur verður aldrei framar gerð- ur, hefur unnizt sigur sem mark- ar timamót i stjórnmálasögu tslendinga. Okkar biður vissulega það verkefni að nýta orkulindir okkar til iðnaðarframleiðslu, sem verði undir yfirráðum okkar og i fyllsta samræmi við hagsmuni okkar. Slik iðnþróunaráform mega þó ekki rekast á þá brýnu nauðsyn aö fullnægja daglegum orkuþörfum almennings hvar- vetna um land. Við verðum að einbeita okkur að þvi verkefni á næstu árum að nýta innlenda orkugjafa i stað oliu og tryggja landsmönnum öllum fullt jafn- rétti á því sviði. Þvi stórvirki er hægt að ljúka fyrir lok þessa ára- tugs, ef við kunnum að raða verk- efnum, tryggja fjármuni og vinnuafl til slikra forgangs- framkvæmda. A meðan lands- menn skortir orku til daglegra þarfa sinna getum við hins vegar ekki ráðstafað henni til orku- frekra iðnfyrirtækja, hversu hag- kvæm sem þau kunnu að vera. En við þurfum ekki að óttast að þau tækifæri hlaupi frá okkur; orku- lindirnar munu á ókomnum ára- tugum verða æ traustari horn- steinn undir islenzku samfélagi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.