Þjóðviljinn - 05.01.1975, Síða 9
Sunnudagur 5. janúar 1975. þjóÐVILJINN — SIÐA 9
cTMyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar
og sósíalískra samtaka
Frá
Dagsbrúnar
safninu
• f! | í i
■ <
Bókasafn Dagsbrúnar
var fyrir nokkru opnað að
nýju eftir lagfæringar,
ma. málun á lesstofu og
tilfærslur á bókakosti.
Verður lesstofan og safnið
framvegis opið laugar-
daga og sunnudaga kl. 4—7
síðdegis, en það er til húsa
á efstu hæð Lindarbæjar.
Að þvi er Eyjólfur Árnason,
bókavörður Dagsbrúnarsafnsins,
sagði Þjóðviljanum, teljast nú á
safninu um 9800 eintök og eru þá
kauptaxtar og smáprent meðtal-
iö, en meginuppistaðan eru bækur
og rit um verklýðs- og þjóðfélags-
mál, þar af ýmislegt sem vart
mun að finna annarsstaðar hér á
landi. Rit á islensku eru rúmlega
þriðjungi fleiri en rit á erlendum
málum.
A liðnu ári bættust safninu 880
eintökjþaraf 813 að gjöf, frá ýms-
um velunnurum safnsins. Hinn
upphaflegi stofn safnsins var
einnig gjöf, um 3000 bindi bóka og
rita frá Guðrúnu Pálsdóttur,
ekkju Héðins Valdimarssonar, og
töluverður hluti þess bókakosts
sem safninu hefur bæst siðan hef-
ur verið gefinn.
Auk bóka og rita á Dagsbrún i
safni sinu þó nokkuð af ljósmynd-
um úr sögu verklýðshreyfingar-
innar og sósialiskra samtaka,
einsog lesendum Þjóðviljans er
kunnugt, þvi margar þeirra hafa
birst á þessum þáttum. En i þessu
ljósmyndasafni, liklega hinu eina
sinnar tegundar, eru miklar
gloppur og margt sem vantar al-
veg og viijum við skora á þá sem
eiga eitthvað af þessu tagi i fórum
sinum að lána myndir til eftir-
töku. Nokkrir lesenda hafa þegar
brugðist vel við slikri málaleitan,
en við væntum þess, að enn fleiri
eigi eftir að sýna skilning á þvi
hve mikilsvert er að halda sliku
safni saman og eins á hinu, að það
gerist meðan þeir sem hafa for-
sendur til að greina hvaðan
myndirnar eru, hvenær teknar
og hverjir eru á þeim, eru á
meðal okkar.
Að þessu sinni birtum við nýjar
myndir úr Dagsbrúnarsafninu,
þar sem sér inn i bókageymsluna
og lesstofuna eftir lagfæringarn-
ar. Einnig eina eldri mynd, sem
einmitt var tekin við afhendingu
einnar bókagjafarinnar til safns-
ins, en við vitum ekki nákvæm-
lega hvaða ár. Það var Asta
Björnsdóttir, ekkja Þorsteins
Finnbjarnarsonar, sem þarna af-
henti fágætar bækur úr
esperantósafni hans. Þorsteinn
starfaði i deild úr friðarhreyfingu
esperantista og eru þarna við-
staddir stjórnarmenn hennar,
lengst til vinstri Sigurður heitinn
Guðmundsson ritstjóri og frá
hægri Óskar Ingimarsson bóka-
vörður og Kristófer Grimsson,
sem nú er látinn. Maðurinn fyrir
miðju er þáverandi bókavörður
Dagsbrúnar, Geir Jónasson.
I næsta þætti segjum við frá og
birtum myndir úr frægum verk-
föllum bernskuára verklýðsbar-
áttunnar. — vh