Þjóðviljinn - 26.03.1975, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. marz 1975.
Minningarorð
Sigrún Aðalsteinsdóttir
Fœdd 28.5. 1944
Sigrún
Dag slær dimmum skugga
dauðinn tekið hefur
ljósið burt, sem lýsti
logann deytt á skari.
Hún er horfin héöan
hún, sem allir sakna.
Hvi er enn og aftur
allt i burtu tekið?
2.
Ó, að væri aftur
allt, sem forðum daga.
Lékum við i lautu,
leyndardóma fundum.
Seinna vinir vorum
vina allra bestir.
Systir og vina, svona
sáum arin liða.
3.
Systir min, þú sefur,
sál þin fær að hvilast
leyst frá þungum þrautum.
Þó er sárt að skilja.
Sárt, að aldrei aftur
okkar fundir verða.
Aldrei brosin björtu
birtu á veginn senda.
4.
Hugarrödd i húmi
hvilsar mér við eyra:
,,Bið ég þin, uns aftur
eigum við að finnasl,
handan heljar myrkurs
handan fljótsins breiða.”
Huggun er það hrelldu
hjarta minu i sárum.
Kósa Aðalsteinsdóttir.
Mánudaginn 17. mars var til
moldar borin Sigrún Aðalsteins-
dóttir. Sigrún stóð á þritugu þeg-
ar hún lést á Borgarspitalanum
eftir erfiða, nærri þriggja mán-
aða banalegu.
Hún var fædd 28. mai 1944, dótt-
ir hjónanna Aðalsteins Guð-
bjartssonar og Mariu Ástmars-
dóttur. Foreldrar hennar voru
bæði vestfirðingar, Aðalsteinn
fæddur á Horntröndum og aiinn
upp i Bolungarvik, en Maria frá
Isafiröi. Aðalsteinn dó haustið
1973, en Maria lifir dóttur sina.
Sigrún átti fjögur systkini:
— dáin 5.3. 1975
Elin, sem er dóttir Aðalsteins og
fyrri konu hans, en hún hefur ver-
ið búsett i Sviþjóð undanfarin ár;
Svanur, sem fórst i bilslysi tæp-
lega fertugur að aldri, mánuði
eftir að faðir hans dó; alsystkini
Sigrúnar eru Rósa, kennari og
húsfreyja að Stóru-Mörk i Vestur-
Eyjafjallahreppi og Aðalsteinn
rennismiður sem býr i húsinu i
Skerjafirði þar sem Aðalsteinn og
Maria ólu börn sin upp.
Að loknu landsprófi settist Sig-
rún i Menntaskólann i Reykjavik,
en var þar ekki nema einn eða tvo
vetur, þvi að sumarið 1962 hélt
hún utan til ársdvalar i Banda-
rikjunum á vegum Kristilegra al-
þjóða-ungmennaskipta (ICYE).
Er heim kom starfaði Sigrún i
Gutenbergprentsmiðjunni um
eins árs skeið en hóf nám i Kenn-
araskólanum haustið 1964. Hún
tók utan skóla fyrsta og annan
bekk á fyrsta vetrinum og lauk
kennaraprófi vorið 1967. Ári siðar
lauk hún stúdentsprófi með fyrsta
stúdentahópnum úr Kennara-
skóla Islands. Á árunum 1968-’70
stundaði Sigrún nám við Mynd-
lista- og handiðaskóla Islands.
Haustið 1968 giftist Sigrún eftir-
lifandi manni sinum, Eyjólfi Har-
aldssyni lækni. Hann hélt utan til
framhaldsnáms i Skotlandi
haustið ’69 og fluttist Sigrún út til
hans, er hún hætti námi sinu við
Myndlistaskólann 1970.
Sigrún tók virkan þátt i marg-
vislegu félagsstarfi. Á Kvenna-
skólaárunum mun hún hafa verið
i Kristilegum skólasamtökum, en
ég kynntist henni þegar við tókum
saman sæti i stjórn KAUS, sam-
taka skiptinema, við stofnun
þeirra haustið 1965. Þegar starf
TENGLA hófst 1966 skipulagði
Sigrún hóp úr Kennaraskólanum
til þátttöku i þessu félagsstarfi
sem miðaði að þvi að rjúfa ein-
angrun geðsjúkra, vangefinna og
fleiri slikra hópa i samfélaginu.
Sigrún var alltaf veislustjóri á
skemmtunum sem TENGLAR
héldu með vinum sinum er dvöldu
á hinum ýmsu stofnunum. Þá list
að skipuleggja veitingar fyrir
hundrað manna veislur lærði hún
af tengdamóður sinni, Sólveigu
Eyjólfsdóttur i Hafnarfirði, sem
Sigrún aðstoðaði gjarnan við slik
störf. Sigrún sat i æskulýðsnefnd
Þjóðkirkjunnar um nokkurt
skeið.
Ég kynntist Sigrúnu sem ein-
lægum og eldheitum sósialista og
naut ég þess oft að hún var mér
fyrri til um þroska að þessu leyti.
Hún var félagi i Æslulýðsfylking-
unni I nokkur ár og eignaðist
raunar félaga úti i Skotlandi sem
hún fann sér starfsgrundvöll með
og vánn um tima i bókaverslun
byltingarsinnaðra samtaka þar
úti.
Sigrún átti þess kost að ferðast
viða um lönd. Dvölin i Banda-
rikjunum var henni mikils virði,
þar eignaðist hún fjölda góðra
vina og fósturfjölskyldu sem hún
tengdist traustum böndum.
Fóstra hennar þaðan kom i heiin-
sókn til Sigrúnar siðastliðið
haust. Sigrún ferðaðist seinna
viða um Evrópu, Norðurlönd,
Mið- og Suður-Evrópu, að ó-
gleymdu írlandi, sem Sigrún
hreifst mjög af, en þau Eyjólfur
áttu þar sex vikur saman sumarið
1968.
Mér er Sigrún ofarlega i huga
þar sem hún sat á kaffihúsi eða i
strætisvagni og ávallt með bók i
hönd. Ég man meira að segja eft-
ir þeirri bók sem hún var að lesa
þegar við kynntumst haustið ’65.
Það var bókin Annað kynið eftir
Simone de Beauvoir. Hún var
lengi að lesa þá bók, en henni var
stáða konunnar i þjóðfélaginu
mikið mál. Sigrún var silesandi
og þá ekki sist bækur tilvistar-
heimspekinnar (eksisten-
sjalisma) og rit um geðlæknis- og
sálarfræði á grundvelli tilvistar-
stefnunnar. Þessi áhugi náði svo
langt, að Sigrún átti bréfaskipti
við Simone de Beauvoir og Ron-
ald Laing, en hann kom henni i
samband við þekktan sálkönnuð i
Skotlandi sem Sigrún hafði reglu-
legt samband við um tveggja ára
skeið.
Sá sjúkdómur sem dró Sigrúnu
til dauða svo langt um aldur fram
hafði liklega búið um sig i fjölda
ára og tók að láta á sér kræla
nokkru áður en hún hélt utan 1970.
Þar úti ágerðust þessi einkenni
nokkuð. En það var þó ekki fyrr
en fyrir réttu ári siðan að alvar-
leiki hans kom i ljós. Sigrún lá
þungt haldin á sjúkrahúsi i Skot-
landi um tveggja mánaða skeið
snemma árs ’74. Þá um vorið
fluttu þau Eyjólfur heim, en hann
hafði þá lokið prófum sinum eftir
margþætt sérfræðinám. Sigrún
lagðist strax eftir heimkomuna
inn á Borgarspitalann og nú lá
hún i 3 mánuði. Hún komst á fæt-
ur aftur undir haustið og ekki var
neinni uppgjöf fyrir að fara, þvi
nú hóf hún nám i ensku við Há-
skólann jafnframt þvi sem hún
hélt heimili fyrir Eyjólf sinn og
systurson. Það var svo i janúar að
sjúkdómurinn náði aftur yfir-
hendinni. Sigrún vissi að hv’erju
stefndi þegar hún gekk undir
heilauppskurð i janúar siöastlið-
inn. ómögulegt reyndist að kom-
ast fyrir meinið, en þó tókst að
bæta þannig úr að grið gáfust um
hrið. En i lok febrúar var óhjá-
kvæmilegt að framkvæma aðra
skurðaðgerð. Sigrún komst ekki
til meðvitundar eftir það og fékk
hægt andlát 5. mars.
Ég kom til Sigrúnar þrem dög-
um fyrir seinni aðgerðina. Það
var óbuguð kona sem ég hitti fyr-
ir, lifsneistinn og kjarkurinn ann-
ars vegar og ástrikið og hlýjan
hins vegar. Hún talaði um kofann
sem hún ætti eftir að mála og
minntist á nokkra vini, kvaddi
mig með kossi og bað fyrir kveðju
til Adda bróður sins.
Sigrún stóð aldrei ein i erfið-
leikum sinum og dauöastriði.
Maria móðir hennar hélt utan til
Skotlands strax og Sigrún veiktist
alvarlega fyrir ári siðan og var
við sjúkrabeð hennar alla daga.
Þannig var það lika eftir að heim
kom. Og þá stóð Sigrún ekki ein
þar sem Eyjólfur var; vandfund-
inn mun jafn traustur og hlýr
maður.
Það er erfitt að sætta sig við að
missa slikan vin og félaga sem
Sigrún var. Hún var frábær kona,
lifandi og ástrik. En mér hefur
komið i hug að hún muni lifa á-
fram i ástvinum sinum og félög-
um, veitandi okkur lifskraft sinn
og kjark eins og áður.
Sveinn R. Hauksson.
Minning hjónanna
á Þorbergsstöðum
Ágústa Kristjánsdóttir
Fœdd 14.8. 1906 — dáin 8.2. 1975
Hún Agústa er dáin og dó með þeim hætti
eins og dýrast er talið aö hverfa á braut.
Hún stóö upp frá kvöldverði, hvfla sig þráði
og kvaddi á þann hátt sinn lífsförunaut.
Sálin er horfin til himnanna föður
en hjúpurinn lagður i ættjarðarskaut.
Þú stóðst eins og hetja i striðanda lifi
þvi stofninn var ferskur og rótin var traust.
Margs handtaksins þörfnuðust Þorbergsstaðir
og þar eins og allsstaðar virðingar naust.
Nú betur en áöur fjölskyldan finnur
hve þú framkvæmdir hlutverk þitt annmarkalaust.
Þinn hressandi andblær og hlæjandi mildi
var hornsteinn þins skaplyndis, Ágústa min.
Nú saknar þin makinn, sonurinn, börnin
og sárt er aö geta ekki leitað til þin.
Þvl hvenær var bónum barnanna neitað,
nú er brostinn sá strengur, en minningin skin.
Við kveöjum þig öll, sem að kynntumst þér nánast
og hvarvetna er hlýja frá minninga stund.
Þvi heiðrikjubirtan, sem brosinu fylgdi
hún bætti sérhverja nærstadda lund.
Nú fylgja þér kveðjur og kærleiksóskir
þá komin ertu á herra þins fund.
Benedikt Björnsson
Jakob Benediktsson
Fœddur 24.6. 1898 — dáinn 18.2. 1975
Það er svo margt, sem mætti um þig segja,
en mér væri nú eflaust vænna aö þegja
en ætla að meta manndóminn þinn rétta.
En af þvi aö þú, frændi, fórst að deyja,
þá finnst mér að ég verði að reyna þetta.
Óskadraumur þinn var Þorbergsstaður.
— það var heila máliö, gamli maður,
I Istaðinu ævinlega staðið.
A vinafundi varstu jafnan glaður,
er vorið lék um brekkuna og hlaðið
Þér leið svo vel, er varpinn tók að gróa
og vorið flæddi yfir tún og móa
og fyllti loftið fuglasöng og kvaki,
Þá engum tlma illa mátti sóa
og ákafi þinn fannst I handartaki.
A starf þitt hefur drottinn lagt sinn lófa
og leitt þig inn I dýrð að tjaldabaki.
Benedikt Björnsson.
Ahaldahúsmálið
til umrœðu
í borgarstjórn
Óeðlileg
fyrir-
greiðsla
Á borgarstjórnar f undi á
fimmtudaginn kom til umræðu
áhaldahúsmáliö svonefnda, eða
sú ákvörðun borgarráðs að segja
upp yfirverkstjóra áhaldahúss
borgarinnar. Máli þessu hafði
verið frestað á siðasta borgar-
stjórnarfundi.
Alfreð Þorsteinsson, framsókn-
armaður, fór fram á það að at-
kvæðagreiðsla færi fram i
borgarstjórn um ákvörðun
borgarráðs, að vikja verkstjóran-
um úr starfi. Forseti borgar-
stjórnar, ólafur B. Thors, vitnaði
til greinargerðar, þar sem segir
að borgarráð veiti starfsmönnum
Reykjavikurborgar lausn frá
störfum, og úrskurðaði þvi að
ákvörðun borgarráðs kæmi ekki
til atkvæða.
Eftir þetta upphófust miklar
bókanir borgarfulltrúa. Fram-
s ó k n a r m a ð u r i n n Alfreð
Þorsteinsson lét bóka eftir sér, að
honum þætti óeðlilegt að einum
starfsmanni áhaldahússins væri
sagt upp störfum meðan rann-
sóknum á starfsháttum annarra
borgarstarfsmanna, sem fram
ættu að fara, væri ekki lokið, og
Framhald á 15. siðu.
Breytingar á
starfsaðstöðu
ve rkafólks hjá BÚR
Hefjast í
næsta
mánuði
Á siðasta borgarstjórnarfundi
lagði Björgvin Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins og
Samtakanna, fram eftirfarandi
spurningar um Bæjarútgerð
Reykjavikur:
1. Hvenær hefjast framkvæmd-
ir við breytingar á fiskiðjuveri
BÚR til þess að bæta aðstöðu
starfsfólksins?
2. Hver er kostnaðaráætlun
þessara framkvæmda?
3. Hvernig hefur rekstur fisk-
iðjuversins gengið i vetur? Hve
miklum fiski hefur verið tekið á
móti frá áramótum?
Hefur verið næg vinna I fisk-
iðjuverinu I vetur?
Borgarstjóri, Birgir tsleifur
Gunnarsson, svaraði spurningun-
um og sagði að á síðasta ári hefði
Fiskmat Rikisins gert athuga-
semdir við húsnæði BÚR, og er
áætlaður kostnaður við þær
breytingar, sem gera þarf, 17
miljónir króna. Breytingar þess-
ar eru að hluta til hafnar, og hefur
Fiskveiðasjóður lofast til að lána
14 miljónir til þessara breytinga,
eða 80%. 1 næsta mánuði munu
svo hefjast breytingar og betrum-
bætur á aðstöðu starfsfólks.
Kostnaður við endurbætur á að-
stööu fyrir starfsfólk mun verða
12 miljónir af 17 miljón króna
heildarkostnaði við breytingarn-
ar.
Óslitin vinna hefur verið I Fisk-
iðjuveri BÚR i allan vetur, og að-
eins einn vinnudagur fallið úr.
Hjá Fiskiðjuverinu starfa að
jafnaði 150—200 manns. Tekið
hefur verið á móti 425 tonnum af
fiski frá öðrum togurum en BÚR-
togurum frá áramótum og 1175
tonnum af fiski úr BÚR-togurum.
— úþ