Þjóðviljinn - 26.03.1975, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. marz 1975.
í kvöld :
Enginn átti
möguleika
gegn Svavari
Sigurjón hefndi ófaranna úr
síðustu tveim mótum og sigraði
Viðar Guðjohnsen glæsilega
var Carlsen
rsson í afgerandi
gerði útum viðureign
(Ljósm. S.dór)
Sigurvegararnir I tslandsmótinu i júdó, f.h. Svavar Carlsen, þungavigt, Benedikt Pálsson, léttþunga-
vigt, Sigurjón Kristjánsson, millivigt, Haildór Guðbjörnsson léttmillivigt og Jóhannes Haraldsson, létt-
vigt.
Millivigt.
1. Sigurjón Kristjánsson, JFR
2. Viðar Guðjohnsen, Á
3. Hilmar Jónsson, Á
Sigurjón vann Viðar i geysi-
harðri keppni. Viðari var dæmt
viti, en Sigurjón var sókndjarfari
og hafði frumkvæði alla lotuna.
Viðar vann alla nema Sigurjón á
mjög fallegum úrslitabrögðum.
Allar glimur Sigurjóns voru mjög
góðar. Hann hefur tapað fyrir
Viðari á tveimur mótum i vetur,
en var nú ákveðinn i að verja
tslandsmeistaratitilinn og vann
til eignar bikar þann sem um var
keppt.
Léttmillivigt
1. Halldór Guðbjörnsson, JFR
2. Gunnar Guðmundsson, UMFK
3. Ómar Sigurðsson, UMFK
Halldór glimdi af öryggi og
vann allar sinar viðureignir á
mesta stigamun (10 stig). Kefl-
vikingarnir eru i stöðugri fram-
för.
Léttvigt
1. Jóhannes Haraldsson, UMFG
2. Jökull Jörgensen, JFR
3. Marteinn Ingi, Gerplu
Jóhannes varði titil sinn auð-
veldlega. Jökull og Marteinn eru
kornungir og mjög efnilegir júdó-
menn.
KONUR
Þyngri flokkur
1. Sigurveig Pétursdóttir, Á
2. Þóra Þórisdóttir, Á
3. Anna Lára Friðriksdóttir, A
Léttari flokkur
1. Ólafia Jensdóttir, UMFG
2. Ástrún Ástþórsdóttir, Á
3. Berglind Jónsdóttir, A.
islandsmótið i júdó 1975
var haldið i iþróttahúsi Kennara-
háskólans s.l. sunnudag. Keppni
var mjög jöfn og spennandi, og is-
lenskir júdómenn greinilega i
góðri þjálfun. Þeir hafa æft vel
undanfarið undir stjórn landsliðs-
þjálfarans Michai Vachum sem
býr nú bestu júdómenn okkar
undir Norðurlandameistaramótið
sem verður haldið hér i Reykja-
vík i næsta mánuöi. Úrslit i ein-
stökum þyngdarflokkum urðu
sem hér segir:
KARLAR
Þungavigt
1. Svavar Carlsen, JFR
2. Hannes Ragnarsson, JFR
3. Gisli Þórðarson, Á
Svavar sigraði örugglega og
vann til eignar bikar þann sem
um var keppt i þessum þyngdar-
flokki
Léttþungavigt
1. Benedikt Pálsson, JFR
2. Bjarni Björnsson, JFR
3. Halldór Guðnason, JFR.
Þetta er fyrsti sigur Benedikts i
keppni. Þetta er annað keppnisár
hans, og hefur hann tekið örum
framförum. Menn söknuðu hér
Sigurðar Kr. Jóhannssonar, en
hann gat ekki verið með sökum
meiðsla.
Valur — FH
í bikarnum
t kvöld kl. 20.15 hefst i Laug-
ardalshöllinni siðasti leikur-
inn i 8-liða úrslitum bikar-
keppni HSi og leika þá Valur
og FH.
Þrjú lið hafa þegar tryggt
sér sæti i undanúrslitum,
Fram, Leiknir og Haukar.
Annað kvöld að loknum leik
Vals og FH verður svo dregið
um hvaða lið leika saman i
undanúrslitunum.
Erfitt er að spá um úrslit i
leik Vals og FH. FH sigraði i
siðasta leik liðanna í 1. deild
en þess ber þar að geta, að
leikurinn skipti engu máli fyr-
ir liðin og var meira um
gamanmál en alvöru i þeim
leik.
Þá er þess og að geta, að
Ólafur Benediktsson leikur
ekki með Val i kvöld, hann
meiddist alvarlega i lands-
leiknum I fyrra kvöld og leikur
ekki meira með á þessum
vetri.
Það er þvi ekki óliklegt að
FH beri sigur úr býtum að
þessu sinni, enda munar um
minna en óla Ben. fyrir Vals-
liöið.
Ólafur Benediktsson
snillingurinn i marki Vals
verður ekki með liði sfnu I
kvöld þegar það mætir FH I 8-
liða úrslitum bikarkeppni HSi.
Það slitnaði vöðvi i fæti Ólafs I
landsleiknum i fyrrakvöld og
hæpið að hann leiki meira með
i vetur.
Nýtt
heims-
met í
milli-
þunga-
vigt
Sovéski lyftingamaðurinn
Pavid Rigert bætti eigið
heimsmet i milliþungavigt i
lyftingum i jafnhöttun, lyfti
216 kg. Eldra metið sem hann
átti sjálfur eins og áður segir
var 215 kg.
Urslit í
yngri fl.
í körfu
Úrslit liggja nú fyrir i öllum
yngri flokkunum i islandsmót-
inu i körfuknattleik. i 1. fl.
sigraði KR, i 2. fl. Fram, i 3. fl.
UMFN og i 4. flokki sigraði lið
Tindastóls frá Sauðárkróki, og
vakti þetta unga lið geysilega
og verðskuldaða athygli hér i
Reykjavik i úrslitakeppninni
og þykir citthvert efnilegasta
lið sem lengi hcfur sést hér á
landi.
1 2. fl. kvenna sigraði Hörð-
ur frá Patreksfirði og i 3. deild
sigraði lið ÍBÍ.
4ra liöa
mótið
hefst á
morgun
4ra liða mótið i handknatt-
ieik sem Ilaukarnir gangast
fyrir með þátttöku FH,
Ilelsingör, Vikings og Hauka
hefst á morgun i iþróttahúsinu
i Hafnarfirði. Þá leika saman
Haukar og Helsingör og FH og
Vikingur.
Siöan heldur mótið áfram á
laugardag, en þvi lýkur á ann-
an dag páska I Laugardals-
höll.
íslandsmótiö í júdó: