Þjóðviljinn - 26.03.1975, Page 11
Miövikudagur 26. marz 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
SæmdursilfurmerkiGLI
Litla bikarkeppnin:
Breiöablik náöi
jafntefli gegn
skagamönnum2:2
Blikarnir úr Kópavogi gerðu
heldur betur góða ferð upp á
Akranes si. laugardag er þeir
léku gegn heimamönnum í Litlu
bikarkeppninni. Þeir náðu jafn-
tefli 2:2 gegn tslandsmeisturun-
um og ekki bara það, heldur unnu
þeir upp 2:0 forskot skagamanna
og voru óheppnir að skora ekki
sigurmarkiö i síðari hálfleik, þvi
þá áttu þeir m.a. stangarskot og .
nokkur mjög góð marktækifæri.
Skagamenn réðu lögum og lof-
um i fyrri hálfleik og þeir Matt-
hias og Hörður Jóhannesson
skoruðu sitt markið hvor, auk
þess sem Teitur Þórðarson átti
skot i stöng.
En i siðari hálfleik snérist
leikurinn við, þá voru það
Breiðabliksmenn sem sóttu mun
meira. Hinrik Þórhallsson og Þór
Hreiðarsson skoruðu sitt markið
hvor og jöfnuðu þar með 2:3.
Siðan áttu Blikarnir skot i stöng
og undir lokin komst Þór
Hreiðarsson einn innfyrir ÍA-
vörnina en mistókst að skora
sigurmarkið.
Bikarnir mega vel við una úr-
slitþessara 2ja fyrstu leikja sinna
i LB. Þeir hafa náð jafntefli gegn
gull- og silfurliðunum siðasta
tslandsmóts. Geri önnur 2.
deildarlið betur.
Hreinn Ilalldórsson setur tslandsmet sitt á tslandsmótinu I
lyftingum,(Mynd: Einar)
íslandsmótið í lyftingum
Hreinn bætti íslands-
metið um heil 85 kíló
og aðrir keppendur féllu í skuggann
fyrir heljarmenninu af Ströndum
Heljarmennið af Ströndum,
Hreinn Halldórsson, sem er
þekktari sem kúluvarpari en
lyftingamaður, tók að gamni sinu
þátt i Islandsmótinu i lyftingum
um siðustu helgi og gerði þar
slika hluti að áhorfendur sem
keppendur stóðu á öndinni.
Hreinn hefur ekkert æft
lyftingatviþrautina, en afl hans er
slikt að menn hreinlega trúðu
vart sinum eigin augum. An þess
að kunna nokkra tækni i lyfting-
um bætti hann íslandsmetið i
yfirþungavigt um 85 kg. og setti
samtals 5 tslandsmet á mótinu.
Hreinn snaraði 150 kg. jafnhattaði
175,5 kg. eða samtals 325 kg.
Eldra samanlagða metið var 240
kg. Með meiri tækni gæti Hreinn
hæglega orðið einn besti lyftinga-
maður heims, sliku heljarafli býr
hann yfir.
1 þungavigt sigraði Oskar
Sigurpálsson, snaraði 130 kg. og
jafnhattaði 190, samtals 320 kg.
Óskar átti mjög góða tilraun i
jafnh. við 200 kg. en náði ekki
jafnvæginu.
I milliþungavigt sigraði Guð-
mundur Sigurðsson, snaraði 140
kg. en jafnhattaði 180 kg. eða
samtals 320 kg. Og i léttþungavigt
sigraði Árni Þór Helgason,
snaraði 105 kg. jafnhattaði 140 kg.
eða samtals 245 kg.
1 næsta mánuði fer Norður-
landameistaramótið hér fram og
búast menn við eftir þessum
árangri að dæma að tsland geti
þar náð 3. sæti i flokkakeppninni.
Þegar Landsflokkaglimunni lauk sl. laugardag gekk Kjartan Bergmann Guðjónsson form. Gllmusam-
bands tslands fram og kallaði til sln elsta þátttakandann I Landsflokkagllmunni, Pétur Sigurösson, sem
stendur á fimmtugu en lét sig ekki muna um að taka þátt I keppninni og ná 3. sæti I slnum þyngdarflokki.
Kjartan sæmdi Pétur þarna silfurmerki GLt fyrir langt og heilladrjúgt starf að gllmumálum. A mynd-
inni sést Pétur þakka Kjartani heiðurinn.
Þróttur
í_L____
deild
Þróttur er kominn uppi 1. deild I
handknattleiknum. Liðið sigraði
KR 22:19 i siðasta leik sinum I 2.
deild sl. laugardag og þar með er
liðið komið upp i 1. deild i fyrsta
sinn. Þróttur hlaut 23 stig, KA 21
og KR 20 stig.
Þróttarar geta þakkað Bjarna
Jónssyni öðrum fremur velgengni
sina I vetur. Bjarni hefur verið
þjálfari og leikmaður liðsins og
fyrir utan það að hafa verið góður
þjálfari hefur hann verið sá leik-
maðurinn sem bundið hefur liðið
saman i vörn og sókn, einmitt sá
leikmaður sem Þrótt hefur
vantað undanfarin ár, þvi alltaf
hefur vantað herslumuninn hjá
Þrótti. Þetta er þvi mikill per-
sónulegur sigur fyrir Bjarna.
Fullyrða má að Þróttur eigi
fullt erindi uppi 1. deild. Liðið er
með þeim bestu sem komið hafa
upp undanfarin ár. —S.dór
1. deildarliö Prottar. Bjarni Jónsson þjáltari þess er I neðri röð lengst t.v.