Þjóðviljinn - 26.03.1975, Síða 11

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Síða 11
Miövikudagur 26. marz 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11 SæmdursilfurmerkiGLI Litla bikarkeppnin: Breiöablik náöi jafntefli gegn skagamönnum2:2 Blikarnir úr Kópavogi gerðu heldur betur góða ferð upp á Akranes si. laugardag er þeir léku gegn heimamönnum í Litlu bikarkeppninni. Þeir náðu jafn- tefli 2:2 gegn tslandsmeisturun- um og ekki bara það, heldur unnu þeir upp 2:0 forskot skagamanna og voru óheppnir að skora ekki sigurmarkiö i síðari hálfleik, þvi þá áttu þeir m.a. stangarskot og . nokkur mjög góð marktækifæri. Skagamenn réðu lögum og lof- um i fyrri hálfleik og þeir Matt- hias og Hörður Jóhannesson skoruðu sitt markið hvor, auk þess sem Teitur Þórðarson átti skot i stöng. En i siðari hálfleik snérist leikurinn við, þá voru það Breiðabliksmenn sem sóttu mun meira. Hinrik Þórhallsson og Þór Hreiðarsson skoruðu sitt markið hvor og jöfnuðu þar með 2:3. Siðan áttu Blikarnir skot i stöng og undir lokin komst Þór Hreiðarsson einn innfyrir ÍA- vörnina en mistókst að skora sigurmarkið. Bikarnir mega vel við una úr- slitþessara 2ja fyrstu leikja sinna i LB. Þeir hafa náð jafntefli gegn gull- og silfurliðunum siðasta tslandsmóts. Geri önnur 2. deildarlið betur. Hreinn Ilalldórsson setur tslandsmet sitt á tslandsmótinu I lyftingum,(Mynd: Einar) íslandsmótið í lyftingum Hreinn bætti íslands- metið um heil 85 kíló og aðrir keppendur féllu í skuggann fyrir heljarmenninu af Ströndum Heljarmennið af Ströndum, Hreinn Halldórsson, sem er þekktari sem kúluvarpari en lyftingamaður, tók að gamni sinu þátt i Islandsmótinu i lyftingum um siðustu helgi og gerði þar slika hluti að áhorfendur sem keppendur stóðu á öndinni. Hreinn hefur ekkert æft lyftingatviþrautina, en afl hans er slikt að menn hreinlega trúðu vart sinum eigin augum. An þess að kunna nokkra tækni i lyfting- um bætti hann íslandsmetið i yfirþungavigt um 85 kg. og setti samtals 5 tslandsmet á mótinu. Hreinn snaraði 150 kg. jafnhattaði 175,5 kg. eða samtals 325 kg. Eldra samanlagða metið var 240 kg. Með meiri tækni gæti Hreinn hæglega orðið einn besti lyftinga- maður heims, sliku heljarafli býr hann yfir. 1 þungavigt sigraði Oskar Sigurpálsson, snaraði 130 kg. og jafnhattaði 190, samtals 320 kg. Óskar átti mjög góða tilraun i jafnh. við 200 kg. en náði ekki jafnvæginu. I milliþungavigt sigraði Guð- mundur Sigurðsson, snaraði 140 kg. en jafnhattaði 180 kg. eða samtals 320 kg. Og i léttþungavigt sigraði Árni Þór Helgason, snaraði 105 kg. jafnhattaði 140 kg. eða samtals 245 kg. 1 næsta mánuði fer Norður- landameistaramótið hér fram og búast menn við eftir þessum árangri að dæma að tsland geti þar náð 3. sæti i flokkakeppninni. Þegar Landsflokkaglimunni lauk sl. laugardag gekk Kjartan Bergmann Guðjónsson form. Gllmusam- bands tslands fram og kallaði til sln elsta þátttakandann I Landsflokkagllmunni, Pétur Sigurösson, sem stendur á fimmtugu en lét sig ekki muna um að taka þátt I keppninni og ná 3. sæti I slnum þyngdarflokki. Kjartan sæmdi Pétur þarna silfurmerki GLt fyrir langt og heilladrjúgt starf að gllmumálum. A mynd- inni sést Pétur þakka Kjartani heiðurinn. Þróttur í_L____ deild Þróttur er kominn uppi 1. deild I handknattleiknum. Liðið sigraði KR 22:19 i siðasta leik sinum I 2. deild sl. laugardag og þar með er liðið komið upp i 1. deild i fyrsta sinn. Þróttur hlaut 23 stig, KA 21 og KR 20 stig. Þróttarar geta þakkað Bjarna Jónssyni öðrum fremur velgengni sina I vetur. Bjarni hefur verið þjálfari og leikmaður liðsins og fyrir utan það að hafa verið góður þjálfari hefur hann verið sá leik- maðurinn sem bundið hefur liðið saman i vörn og sókn, einmitt sá leikmaður sem Þrótt hefur vantað undanfarin ár, þvi alltaf hefur vantað herslumuninn hjá Þrótti. Þetta er þvi mikill per- sónulegur sigur fyrir Bjarna. Fullyrða má að Þróttur eigi fullt erindi uppi 1. deild. Liðið er með þeim bestu sem komið hafa upp undanfarin ár. —S.dór 1. deildarliö Prottar. Bjarni Jónsson þjáltari þess er I neðri röð lengst t.v.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.