Þjóðviljinn - 20.04.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 20.04.1975, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN PIOÐVIUINN MÁLGAGN SQSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR , OG ÞJÓÐFRELSIS tJtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Rijstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Vilborg Haröardóttir Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. ÁLEITIN SPURNING Þjóðfrelsisfylkingin i Kambódíu hefur nú unnið fullan sigur i landi sinu. Fréttir bera það með sér að þjóðinni finnist hún hafa losnað úr illum álögum; taka höfuð- borgarinnar varð að gleðihátið þar sem borgarbúar fögnuðu þjóðfrelsisher junum i hverri götu, i hverju húsi; þar sem her- menn sem áður höfðu staðið með alvæpni hver gegn öðrum féllust i faðma. Allir spádómar um blóðbað þar sem tugir eða hundruð þúsunda féllu hafa reynst firrur einar. Slikt hið sama hefur gerst i Suður-Vietnam. Þar hefur ein stórborgin fallið af annarri án þess að hleypt hafi verið af skoti, og menn úr hinum fjar- skyldustu samtökum hafa tekið saman höndum til þess að leysa sameiginlegan vanda, félagar þjóðfrelsisfylkingarinnar, búddamunkar, fyrri starfsmenn hinnar svokölluðu stjórnar i Saigon. Allt bendir til þess að landsmenn séu staðráðnir i þvi að snúa saman bökum, hvar svo sem þeir lentu áður i þeim gerningaveðrum sem erlend áþján magnaði þeim áratug eftir áratug. öll atburðarásin i Indókina er til sann- indamerkis um það að þar hefur verið háð þjóðfrelsisbarátta. Tilraunir bandariskra stjórnvalda til þess að fá heiminn til þess að trúa þvi að sú barátta hafi verið skuggalegt samsæri einhvers ,,heims- kommúnisma” og beita i þvi skyni allri morðtækni sinni er einhver siðlausasti glæpur sem mannkynssagan kann frá að greina. Þau glæpaverk hafa svipt miljónir Vietnama lifi eða heilsu, en þau hafa einn- ig leitt til þess að Bandarikin hafa glatað forustuhlutverki sinu i heiminum jafnt á sviði stjórnmála sem efnahagsmála. Atburðirnir i Indókina hljóta að verða nærgöngulir við samvisku allra þeirra sem nú lifa. A okkur islendingum hvilir þung ábyrgð vegna þess að við erum i hernaðarbandalagi við þau tvö riki sem háð hafa innrásarstyrjöld i Indókina siðustu 20 ár og höfum léð land okkar undir herstöð fyrir annað þeirra. Nú hefur verið lögð fram á alþingi tillaga, flutt af þingmönnum úr Alþýðubandalaginu, Alþýðuflokknum og Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna, þess efnis að rikisstjórn íslands viðurkenni bráða- birgðabyltingarstjórnina i Suður-Vietnam og leggi fram fjármuni til endurreisnar i Indókina i samvinnu við önnur Norður- landariki. Með þvi að viðurkenna bráða- birgðabyltingarstjórnina i Suður-Vietnam er verið að reyna að knýja Thieu, svokall- aðan forseta i Saigon, til þess að viður- kenna staðreyndir, áður en meiri ógnir hljótast af þvi átakanlega hlutskipti sem hann valdi sér, og stuðla þannig að friði. Þátttaka islendinga i aðstoð við endur- reisnarstörf er svo sjálfsögð að ekki þarf að færa rök að henni. Fróðlegt verður að sjá hvernig rikis- sjórn Islands og sérstaklega utanrikisráð- herra bregðast við þessari tillögu. í tið vinstristjórnarinnar féllst Einar Ágústs- son á að viðurkenna rikisstjórnina i Hanoi i Norður-Vietnam og mótmæla þannig árásarstyrjöld Bandarikjanna. í tið nú- verandi rikisstjórnar hefur hinn sami Einar Ágústsson tekið á móti sendiherra Thieus i Saigon og lagt þannig blessun sina yfir árásarstefnu Bandarikjanna i Vietnam. Það er ekkert nýtt að rikis- stjórnir hafi mismunandi stefnu, einnig á sviði utanrikismála. En það þarf ákaflega samviskuliðugan einstakling til þess að leika tveimur skjöldum i jafn örlagariku og viðkvæmu máli, en þá list hefur Einar Agústsson raunar leikið áður i sambandi við hernám íslands. Stjórnmál eru stund- um kölluð list hins framkvæmanlega, og vissulega eru þau það, en skyldi almenn- ingur samt ekki ætlast til þess að stjórn- málamenn eigi einhver föst stefnumið, einhverjar ómengaðar tilfinningar og manndóm til þess áð standa við þau við- horf sin? Sú spurning hlýtur að vera afar áleitin við fyrri kjósendur Framsóknar- flokksins, bæði af þeim tilefnum sem hér hefur verið minnst á og mörgum öðrum. — m. Frá æfingu á togaralelkriti Steinbjörns Jacobsens. Þelr sltja I messanum og kjafta Færeyskt leikrit um togarasjórhenn ( þessari viku var frum- f lutt í Þórshöfn nýtt leikrit eftir færeyska skáldið Steinbjörn Jacobsen, sem heitir Skipið. Leikrit þetta fékk fyrstu verðlaun (5000 danskar krónur) I sam- keppni sem bókmennta- félagið Varðin efndi til. Leikurinn fjallar um efni, sem hlýtur a6 vera færeyingum og is- lendingum mjög hugstætt, en um þaö hefur aldrei veriö fjallaö áöur i færeyskri leikritun segir blaöiö 14. september, og þá ekki i is- lenskri heldur. Þaö fjallar um lif fiskimanna á togurum, fiski- manna sem eru mikinn hluta árs fjarri heimilum og fjölskyldum. Þaö gerist aö verulegu leyti um borö i togara, en á þeim slóöum er Steinbjörn Jacobsen öllum hnút- um kunnugur, hefur sjálfur veriö _ togarasjómaður. Leikarar eru 23. Sigmundur Poulsen fékk önnur verölaun fyrir leikritiö Velferö og Karl A. Thomsen þriöju verölaun fyrir leikritiö Ættarliö. HVAÐ HUGSA BORN OG UNGLINGAR' UM KYNLÍF? t Hamborg hefur fariö fram ýt- arleg könnun á afstööu barna (og unglinga) á aldrinum 11—16 ára til kynferöismála, og vekur hún athygli bæöi vegna þeirrar niöur- stööu sem hún gefur og svo vegna þess, aö fremur sjaldgæft er aö siik athugun nái til svo ungra barna sem hér er um aö ræöa. Eins og flestar félagslegar at- huganir er útkoman ekki mikiö frábrugöin þvi sem menn þóttust vita, en skorti aö visu sönnur á. Spurningarnar voru mjög sund- urliöaðar — þaö var spurt um af- stöðu til sjálfsfróunar, til hjóna- bands, til stórfjölskyldna o.s.frv. Og aö sjálfsögöu var spurt um beina kynferðislega reynslu. Þaö kom á daginn, aö piltar byrja nokkuö fyrr en stúlkur á samför- um, þótt i mjög smáum stil sé. Ellefu og tólf ára stúlkur komust ekki á blaö i þessum efnum, en 4—5% drengja. 2% af stúlkum byrja 13 ára gamlar; á fjórtán ára aldri er lifsreynslan nokkuð svip- uö, 5—6% hjá báöum kynjum hafa átt i samförum, eöa „veriö til byltings” eins og þaö heitir vist á hérlensku. En einmitt á fimmtán ára aldri kemur stórt stökk, og fara þá stúlkur upp fyrir pilta. 22% fimmtán ára stúlkna hafa virka kynferðisreynslu (14% pilta) og 40% sextán ára stúlkna (22% pilta). Flest ellefu ára börn eru sam- mála páfanum um að kynmök Stúlkur skjótast langt upp fyrir pilta I llfsreynslu á fimmtán ára aldri. skuli hafa þann tilgang aö tryggja viðgang kynstofnsins. En þau sem eru orðin sextán ára (74% pilta og 92% stúlkna) telja að kynlif eigi fyrst og fremst aö ,,færa tvær manneskjur nær hver annarri” af þvi aö ,,þaö er skemmtilegt og gott og fullnægir báöum”. Lifi ástin! Unglingar tengja kynlif ekki lengur viö hjónaband fyrst og fremst, heldur viö ástina. Þaö er ástin sem þeir nefna sem höfuö- forsendu fyrir kynmökum. 90% pilta og 98% stúlkna hafna þvi ,,að sofa hjá sem flestum og hátta hjá einhverjum án þess aö um ást sé aö ræöa”. Aö þvi er framtiöina varöar þá vilja hér um bil öll ellefu ára börn eignast eigin fjölskyldu siöar meir. En aöeins um 2/3 hlutar þeirra sem eru 15 eöa 16 ára ætla aö giftast siöar meir. A hinn bóg- inn vilja flest þeirra sem ekki ætla aö giftast finna sér „fastan” vin eöa vinkonu, m.ö.o. efna til sambanda og sambýlis sem likist mjög hjónabandi. Ahugi á stór- fjölskyldu viröist ekki mikill, enda eru tilraunir i þá veru til- tölulega nýjar I umtalsveröum mæli. 6% af fimmtán ára ungling- um hafa áhuga á sliku sambýlis- formi, en hinsvegar ekki nema 1—2% af 16 ára unglingum. (Byggt á Stern)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.