Þjóðviljinn - 29.04.1975, Síða 1
múÐvnnNN
Þriðjudagur 29. april 1975 — 40. árg. 96. tbl.
Kjör kvenna
til umrœðu
á ráðstefnu
i
Neskaupstað
— sjá 6. siðu
Alagningarhækkunin
er yfir miljarð á ári
Samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið fékk hjá
Þjóðhagsstofnun og á
skrifstofum verð-
lagsstjóra i gær hækkar
verslunarálagning
vegna nýjustu sam-
þykktar rikisstjórnar-
innar um liðlega einn
miljarð króna.
Hjá Þjóðhagsstofnun fékk
Þjóðviljinn þær upplýsingar að
um áramót hefði álagning verið
áætluð 8 til 9 miljarðar á þessu
ári. Nú hefur verðlag hækkað
mjög siðan um áramót, þannig að
gera má ráð fyrir að þessi tala sé
milli 9 og 10 miljarðar króna.
Hjá skrifstofu verðlagsstjóra
fékk Þjóðviljinn svo þær upplýs-
ingar að með siðustu samþykkt
rikisstjórnarinnar hefði visitala
smásöluálagningar hækkað úr
79,2stigum i 90 stig miðað við 100
stig I júni 1972, eða um liðlega
12%. Það jafngildir i' upphæðum
talið á öðrum miljaðri króna á
ársgrundvelli.
Nýlega hefur verið samþykkt i
rikisst jórninni að heimila hækkun
verslunarálagningar. Heildsölu-
álagning hækkar um 6% og að
auki hækkar liðurinn vextir i
verðreikningi úr 1% i 1,5%. Smá-
söluálagning hækkar um 14%.
Hækkunin tekur gildi um mán-
aðamótin.
Hækkunina ber að skilja svo, að
álagningarprósenta I heildsölu
sem áður var t.d. 10% verður nú
10,6%. Alagningarprósenta i
smásölu sem áður var t.d. 30%
verður nú 34,2%.
Framhald á 14. siðu.
Auk verkalýðsfélaganna i
Reykjavik gengst Bandalag
starfsmanna rikis og bæja auk
Iðnnemasambands islands fyrir
kröfugöngu og útifundi fyrsta
ntaí i ár, og birta þessir aðiiar
sameiginlegt ávarp vegna dags-
ins.
A fimmtudaginn, 1. mai, verður
safnast saman að Hlemmtorgi
klukkan 13:30, en klukkan 14:00
leggur kröfugangan af stað niður
Laugaveg og Bankastræti og
staðnæmist á lækjartorgi þar sem
efnt verður til útifundar. Lúðra-
sveit verkalýðsins og Lúðrasveit-
in Svanur munu leika i göngunni
Vöruskipta-
jöfnuður
óhagstœður
um 4,2
miljarða
í mars!
Oft hafa vöruskiptatölur is-
lendinga verið óhagstæðar, en
aldrei eins og nú fyrir sl. mán-
uð. Samkvæmt bráðabirgða-
yfirliti Hagstofu Islands um
verðmæti útflutnings og inn-
flutnings i mars 1975 var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
I þessum mánuði um 4,2 inilj-
arða króna. Að visu ber að
taka með i reikninginn að út-
flutningur sl. febrúarmánaðar
var færður á marsmánuð, og
sama giiti um innflutning i
febrúar vegna gengisfelling-
arinnar. Otflutningur i mars
er af þessum sökum talinn
miklu hærri að verðmæti en
annars hefði orðið.
Vöruskipta jöfnuðurinn á
fyrstu þremur mánuðum
þessa árs var óhagstæður um
7,4 miljarða króna.
og á fundinum.
Fundarstjóri á Lækjartorgi
verður Sigfús Bjarnason, form.
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna i
Reykjavik.
Ræðumenn verða Eðvarð
Sigurðsson, formaður Verka-
mannafél. Dagsbrúnar, Vilborg
Teitsdóttir, iðnnemi, Gunnar
Hallgrimsson starfsmaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur og
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, en nú munu vera ein 15 ár
siðan BSRB hefur átt ræðumenn á
1. mai og enn lengra siðan sam-
tökin tóku opinberlega þátt i há-
tiöahöldum dagsins. — úþ
Ur 1. maí ávarpi verkalýðsfélaganna
í Reykjavík, BSRB og INSÍ
Ríkisstj órninni ber
að
víkja
„Það er höfuðkrafa reykvisks
verkafólks i dag, að kjarasamn-
ingarnir, sem gerðir voru á sið-
asta ári, taki gildi á ný. Ríkis-
stjórn, sem beitir valdi sinu til
að hindra framgang þessarar
kröfu verkafólks, en styður að
enn frekari auðsöfnun atvinnu-
rekenda og hvers kyns gróða-
afla, ber að vikja.”
Þannig hljóðar hluti af sam-
eiginlegu 1. mai-ávarpi fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna i
Reykjavik, Bandalags starfs-
manna rikis og bæja og Iðn-
nemasambands Islands.
A öðrum stað i ávarpinu segir
svo:
„Það er efnahagsstefna rikis-
stjórnarinnar, auðvaids og at-
vinnurekenda, sem á megin sök
á svo stórfelldri kaupmáttar-
skerðingu. Það er þessi stefna,
sem hefur leitt til þess á fáum
mánuðum, að raungildi launa er
1. mai nefnd fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, BSRB og Iðnnema-
sambandsins á fundinum með blaðamönnum I gær.
fallið niður á svipað stig og hér
var fyrir 4—5 árum og þeir
miklu sigrar, sem unnust i
kaupgjaldsbaráttunni á árunum
1970—1974 að engu gerðir.”
Undir þessa tvo þætti 1. maí-
ávarpsins ritaði einn fulltrúi i
fulltrúaráði verkalýðsfélaganna
með fyrirvara. Það var Guð-
mundur Hallvarðsson, en hann
var einn af frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins við siðustu
borgarstjórnarkosningar i
Rvík.
Hins vegar var ekki gerður
fyrirvari um það að reykviskur
verkalýður horfi fram á veginn
og strengi þess heit að sameina
kraftana....til baráttu fyrir þvi
þjóðfélagi, sem færir vinnandi
fólki öll völd yfir framleiðslu-
tækjunum, skipar manninum
sjálfum I öndvegi, en hafnar
þeirri taumlausu auðsöfnun
fárra á kostnað fjöldans, sem i
dag blasir við.”
I 1. mai-ávarpinu er þeirri
áskorun beint til rikisstjórnar
tslands, „að hún viðurkenni
rikisstjórnina I Phnom Penh og
Bráðabirgðabyltingastjórnina i
Vietnam.”
Fyrsta mai-ávarpið verður
birt i heild siðar, svo og kröfur
þær, sem bornar verða upp i
kröfugöngunni þann dag. — úþ
1. MAII REYKJAVIK
Magnús Kjartansson um togaradeiluna utan dagskrúr:
Stjórnin á að sjá um
að atvinnutæki
Atvinnutækin liggja bundin I röð-
um I höfn án þess að stjórnvöld
hafist að.
Hvers vegna horfir rikisstjórn-
in aðgerðalaus á alla stóru skut-
togarana stöðvast með þeim
hrikalegu afleiðingum sem það
hefur fyrir atvinnulifið og afkomu
þjóðarbúsins? I svörum forsætis-
ráðherra við þessari spurningu
Magnúsar Kjartanssonar fólst aö
fram til þessa hefur stjórnin látiö
sér nægja að „fylgjast náiö mcð
málinu”.
Magnús Kjartansson kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár I neðri
deild alþingis i gær i tilefni af þvi
að allir stóru skuttogararnir, 22
að tölu hafa stöðvast i þeirri
kaupdeilu sem nú er um kaup og
kjör og leiddi til verkfalls undir-
manna 9. april sl. en nær nú einn-
ig til vélstjóra. Astæða væri til að
ætla að samningaviðræður væru
slælega reknar. A skipum þessum
væru samtals 528 menn en i fisk-
vinnslustöðvum hefði á annað
þúsund manns verið sagt upp
kauptryggingu vegna stöðvunar
þessara stórvirku veiðitækja.
Raskaði þetta þvi beinlinis hög-
um um 2.000 fjölskyldna, en miklu
fleiri fyndu fyrir þessu.
Magnú s minnti á að þessir tog-
arar hefðu séð fyrir þvi að bol-
fiskafli varð mun meiri framan af
vertiðinni núna en i fyrra en það
yrði fljótt að breytast við langa
stöðvun. Ekki veitti af að tryggja
efnahagslegar undirstöður eftir
mætti, þvi að enn sigi á ógæfuhlið
i gjaldeyrismálum.
Ekki vandi
,,eigenda"
Meirihluti þessara togara væri i
félagslegri eign og allir hefðu þeir
verið keyptir fyrir almannafé
með lánum upp á allt að 102,5% af
kaupverði. Þvi væri stöðvunin
ekki vandi togaraeigenda heldur
allarar þjóðarinnar. Komið hefði
upporðrómur um að sumir hygð-
ust selja togara sina úr landi, en
það ætti ekki að vera einkamál
neinna svokallaðra eigenda hvort
slik sala færi fram.
Það er þegar farið að gæta
samdráttar i atvinnulifinu og
stöðvun togaranna er þvi mjög
hættuleg atvinnuöryggi, ekki sist
i Reykjavik þar sem margir stóru
togaranna eru gerðir út og fisk-
vinnslan er mjög háð afla þeirra.
Þá minnti Magnús á að senn
kæmi skólafólk að leita sér vinnu
og þvi þyrfti sérstaklega að
tryggja að öllu atvinnutæki
gengju. t orði kveðnu hefði rikis-
gangi
stjórnin fulla atvinnu handa öll-
um að stefnumiði.
Væri í athugun
Geir Ilallgrimsson forsætisráð-
herra kvaðst sammála þvi að
verkfallið væri alvarlegt mál, en
rekstrarstaða stóru skuttogar-
anna væri ákaflega erfið og þær
aðgerðir sem fullnægjandi voru
fyrir aðrar greinar sjávarútvegs,
koma þarna ekki i veg fyrir
hallarekstur. Stjórnin hefði fylgst
Framhald á 14. siðu.
Samningar undirritaðir við Union Carbide----------------- 16