Þjóðviljinn - 29.04.1975, Qupperneq 3
Þriöjudagur 29. apríl 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
9. þing ÆSÍ
um helgina
Jónas Sigurðsson kjörinn formaður
Nú um helgina var haldið
9. þing Æskulýðssambands
íslands. Að þessu sinni
fjallaði þingið einkum um
innri mál sambandsins, en
einnig fór fram stjórnar-
kjör og kosið í utanríkis-
nefnd.
Stjórn ÆSI er nú þannig skip-
uð: formaður Jónas Sigurðsson
frá Alþýðubandalaginu, aðrir i
stjórn Lars Andersen frá SIKN,
Eirikur Valsson frá SFV, Garðar
Sveinn Arnason frá SUJ, Egill
Ásgrimsson frá INSI, RUnar Ar-
mann ArtUrsson frá SHÍ og Pétur
Pétursson frá SUF. Formaöur ut-
anrikisnefndar var endurkjörinn
Elias Snæland Jónsson frá SFV
en aðrir i nefndinni eru: Svanur
Kristjánsson frá SINE, Tryggvi
Þór Aðalsteinsson frá Abl.,
Sveinn RUnar Hauksson frá SHI,
Sigurður Geirdal frá UMFI og
Cecil Haraldsson frá SUJ. For-
maður sambandsins á einnig sæti
i nefndinni.
Þingiðhófstáföstudegikl. 16 og
lauk þvi á sunnudag kl. 18. Starf
þingsins fór að mestu fram i
starfshópum en einnig voru flutt
tvö erindi: SkUli Möller fjallaði
um þróun utanr'ikissamskipta
ÆSI frá þvi siðasta þing var hald-
ið fyrir tveimur árum og Ólafur
R. Einarsson gerði innanlands-
starfinu skil.
Þingið ályktaði um félagsmál
ÆSI, utanrikissamskipti þess og
loks var samþykkt almenn álykt-
un um þjóðfélagsmál. Ályktunum
þingsins verða gerð nánari skil
hér i blaðinu siðar. — ÞH
Jónas Sigurðsson tekur nú við
formannsstarfi i ÆSl en fráfar-
andi formaöur er Gunnlaugur
Stefánsson.
Af Hitaveitu Suðurnesja
Enn er allt
óljóst með
landakaup
Hverjir eru landeigendur?
Stjórn Hitaveitu Suður-
nesja mun í gær hafa útbú-
ið svar til landeigenda
Svartsengis, þaðan sem
ætlunin er að taka heita
vatnið til hitunar húsa á
Suðurnesjum, en landeig-
endur höfðu óskað nánari
lýsingar á því landi, sem
sveitarfélögin vilja fá til
þess að vinna heita vatnið
úr jörðu.
Formaður hitaveitustjórnar er
Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri
i Keflavik. Sagði hann að nokkur
hugur væri i mönnum með að láta
bora eftir heitu vatni i Eldvörp-
um, nnv. af Svartsengi, þ.e.a.s.
nær Keflavik en Svartsengi ligg-
ur. Þar hefur ekki verið borað eft-
ir heitu vatni til þessa.
Tvær djUpar borholur eru i
Svartsengi og tvær grunnar, og
var borunarkostnaður þegar þær
voru gerðar 30 miljónir, sem Jó-
hann taldi liklegt að gæti verið
50—80 miljónir i dag ef eins yrði
staðið að borun við Eldvörp eins
og við Svartsengi. Jóhann sagði
að ef borað yrði við Eldvörpin
yrði það þó ekki gert á sama hátt
og við Svartsengi, og kostnaðin-
um við borun þar yrði dreift á
lengri tima en af borunum við
Svartsengi.
Lögmaður landeigenda, Jónas
Aðalsteinsson hrl., sagði það
samþykki aðila málsins að segja
ekki frá efni bréfs stjórnar hita-
veitunnar til landeigenda að svo
stöddu. Meðal ástæðna fyrir þvi,
að landeigendur óskuðu eftir nán-
ari og fyllri upplýsingum um
stærð þess svæðis, sem hitaveitu-
stjórnin óskaði eftir, væri sU, að á
svæði þessu væri nU bæði malar-
og rauðamalarnám sem landeig-
endur nýttu i dag, og Ur þvi þyrfti
að fá skorið áður en kaupin yrðu
gerð hvort námur þessar lentu
innan þess svæðis, sem ætlunin er
að taka undir hitaveitu.
Lögmaðurinn kvaðst ekki geta
gefið upp nöfn eigenda landsins
að svo stöddu.
Vegna þess að mál þetta er
ekki einvörðungu hagsmunamái
byggðanna á Suðurnesjum, held-
ur allra landsmanna, hefur það
nU runnið upp fyrir fólki hversu
fáránlegt það er að einstaklingar,
sem hvorki hafa lagt fé né fyrir-
höfn i það að gera land sem þeir
fyrir tilviljun eru eigendur að,
verðmætt, heldur krefjast hundr-
uð miljóna fyrir, og mætti fólki
þvi nU vera nokkur missir i frum-
varpi MagnUsar Kjartanssonar
fyrrv. iðnaðarráðherra, sem
hann lagöi fram á þingi i fyrra en
hlaut ekki náð fyrir augum allt of
Framhald á 15. síðu.
lsta
maí-
merki
Eins og venja er verða seld
merki fyrsta mai á götum á
fimmtudaginn, samhliða
göngunni niður Laugaveg og á
Utifundinum á Lækjartorgi.
Merkin verða afhent söiu-
börnum i anddyri skrifstofu
DagsbrUnar frá klukkan 9 að
morgni lsta mai til hádegis og
aftur frá klukkan 1 eftir há-
degi.
Sölubörn fá 15% sölulaun.
Borgarstjórnarmeirihluti
Sjálfstœðisflokksins í Reykjavík
Vill ekki
semja
við
togaramenn
Á borgarráðsf undi í síð-
ustu viku samþykktu full-
trúar Sjálfstæðisflokksins
að sérsamningar Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur við
togaras jómenn mundu
spilla fyrir við lausn kjara-
deilu þeirra við útgerðar-
menn, og greiddu atkvæði
gegn framkominni tillögu
um að samið yrði við tog-
arasjómenn þá, sem starfa
á togurum BÚR.
AheyrnarfulltrUi Alþyðuflokks-
ins og Samtakanna i borgarráði,
Björgvin Guðmundsson, lagði
fram á borgarráðsfundinum til-
lögu þess efnis, að BÚR gerði til-
raun til þess að gera sérsamning
við sjómenn þá sem hjá BÚR
starfa, svo hægt væri að koma
togurunum sem fyrst á veiðar og
fyrirbyggja stöðvun Fiskiðjuvers
BÚR, og að þessu skyldi stefnt
með svo snörum hætti, að ekki
kæmi til framkvæmda uppsögn
kauptryggingar verkafólks hjá
Fiskiðjuverinu.
Eins og fyrr segir felldu sjálf-
stæðismenn þessa tillögu þar eð
þeir töldu að samþykki slikrar
tillögu gæti spillt fyrir heildar-
samningi við togarasjómenn. Þar
hefur verið haft i huga, að ef BÚR
gerði samninga við sjómenn, sem
þeir gætu gengið að, gæti svo far-
ið, að einkaUtgerðarmenn yröu
nauðugir viljugir að gera slika
kjarasamninga einnig. Hafa
borgarráðsmenn þar verið minn-
ugir orða Alberts Guðmundsson-
ar frá siðasta borgarstjórnar-
fundi, að hann vonaðist til þess,
að borgarstjórnarmeirihlutinn
gæti alltaf haldið hlifiskildi yfir
atvinnurekendum.
Borgarráðsmennirnir Sigurjón
Pétursson Alþb., og Kristján
Benediktsson, Framsókn, létu
bóka, að ,,bein afskipti Utgerðar-
ráðs Reykjavikurborgar af
vinnudeilu þeirri.sem nU stendur
yfir á stóru togurunum, muni
fremur stuðla að lausn þessarar
deilu en torvelda lausn hennar.”
Þeir Sigurjón og Kristján
greiddu tillögu áheyrnarfulltrU-
ans Björgvins Guðmundssonar
atkvæði, en borgarráðsmenn
Sjálfstæðisflokksins greiddu at-
kvæði gegn henni. — úþ
ísland úr
NATÓ -
Herinn burt!
Oátalið, en án samþykkis
Æfing Almannavarna á laugardag
Tókst afbragðsvel
Almannavarnir settu á
laugardaginn á svið hóp-
slys við Hlíðaskóla i
Reykjavík. Höfðu þar ver-
ið tillagðir 108 slasaðir, en
alls tóku þátt í æfingu
þessari 1240 manns, þar af
900 á sjúkrahúsum.
Guðjón Petersen, starfsmaður
Almannavarna, sagði Þjóðviljan-
um i gær, að hann væri mjög
ánægður með árangurinn af þess-
ari æfingu. Hann sagði að visu
hefðu sér ekki borist allar skýrsl-
ur vegna æfingarinnar, en sagði
að óhætt væri þó að fullyrða, að
æfingin hefði tekist betur en
nokkur hefði þorað að vona.
Fyrstu sjUkrabilarnir voru
komnir á slysstaðinn 4 minUtum
eftir Utkall og á sama tima var
lögreglan byrjuð á að loka gatna-
mótum, til þess að auðvelda að-
keyrslu að sjUkrahUsunum jírem-
ur, sem áttu að taka við hinum
slösuðu, en það voru Landspital-
inn, BorgarsjUkrahUsið og
Landakotsspitali.
11 minUtum eftir Utkall kom
fyrsti greiningarlæknirinn á slys-
stað, en þá voru sjUkraliðar bUnir
að veita hinum slösuðu fyrstu
sjUkrahjálp. Guðjón lét þess get-
ið, að læknanemar við Háskóla
tslands hefðu UtbUið hina slösuðu,
og lagt ýmsar gildrur fyrir
sjUkraliðana, þannig gerðar, að
ef ekki hefði verið rétt við brugðið
hefði nokkur skaði átt sér stað.
SjUkraliðar munu ekki hafa fallið
i neinar þessara gildra.
Flutningar á hinum slösuðu til
sjUkrahUsanna hófust svo 12 til 13
minUtum eftir Utkall eða rétt eftir
að greiningarlæknir kom á stað-
inn til þess að dæma um hverja
þyrfti fyrst að flytja á sjUkrahUs.
Einni klukkustund og 5 minUt-
um eftir að Utkall var gert voru
allir hinir slösuðu komnir á
sjUkrahUs.
Guðjón gat þess og, að björgun-
arsveitir sjálfboðaliða, en sjálf-
boðaliðana þarf að kalla Ut sér-
staklega, hefðu komið á vettvang
20—30 minUtum eftir Utkall.
SjUkrahUsin þrjU settu neyðar-
áætlanir sinar i gang og gekk þar
allt vel fyrir sig.
Guðjón sagði, að með þessari
æfingu hefðu Almannavarnir ver-
ið að leita að göllum i skipulagi
sinu, og vissulega hefðu gallar
fundist. Einkum hefði sá galli
verið áberandi, að nokkurt sam-
bandsleysi var á milli spitalanna
og einnig á milli skrifstofu Al-
mannavarna og spitalanna, og
hefði þetta leitt til þess að mis-
mikið álag var á sjUkrahUsunum.
Eftir slika æfingu er hægt að bæta
Ur þeim göllum sem fram komu á
slysavarnarkerfinu, sagði Guðjón
Petersen aö lokum. ..
- uþ
ísland úr Nató, herinn
burt, verða tvær þeirra
krafna sem bornar verða í
kröfugöngu verkalýðsins á
fimmtudaginn fyrsta maí.
Ekki voru allir þeir, sem að
kröfugöngunni standa samþykkir
þvi, að þessar kröfur yrðu bornar
uppi, en það var látið óátalið af
þeim hinum sömu, að þeir, sem
þessa skoðun hafa á málum, haldi
þessum kröfum á lofti, en það
mun þó verða gert án samþykkis
hinna sömu aðila. — úþ
Ung skáld
og œskuljóð
endurtekin í Þjóðleikhúsinu
ÞjóðleikhUsið hefur ákveðið að
endurtaka i kvöld (þriðjudags-
kvöld) ljóða- og söngdagskrána
UNG SKALD OG ÆSKULJÓÐ
vegna mikillar aðsóknar. Dag-
skrá þessi var flutt siðasta vetr-
ardag á Litla sviðinu i LeikhUs-
kjallaranum og hlaut hinar ágæt-
ustu undirtektir. Hér er um að
ræða ljóð og söngva eftir 20 höf-
unda, einkum þá sem enn eru
ungir að árum en einnig æskuljóð
nokkurra eldri höfunda. Flytj-
endur eru leikararnir: Edda Þór-
arinsdóttir, Herdis Þorvaldsdótt-
ir, Margrét Guðmundsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson og Ævar R.
Kvaran. Meginþungann af tón-
listarflutningnum ber söngtrióið
ÞrjU á palli (Edda, Halldór Krist-
insson og Troels Bendtsen) ásamt
Carl Billich. Stefán Baldursson
hefur stjórnað sýningunni og val-
ið efnið ásamt leikurunum. Sýn-
ingin hefst kl. 20:30 og geta áhorf-
endur setið við borð og notið veit-
inga meðan á sýningu stendur.