Þjóðviljinn - 29.04.1975, Page 7

Þjóðviljinn - 29.04.1975, Page 7
Þriðjudagur 29. april 1975. ÞJóÐVILJINN — StDA 7 Sigriður Kristjánsdóttir og fórnfúst starf i þágu liknar- mála oþh., hinsvegar væri spurning hvað konur hefðu áunnið fyrir sjálfar sig með þessu starfi, hvers þær hefðu aflað sér td. i félagsþroska. Hvort stór hópur kvenna væri þarna ekki i rauninni óvirkur spurði hún og hvatti til þess, að konur i hinum hefð- bundnu kvenfélögum létu meira að sér kveða i jafnréttismálunum og efndu til umræðna um stöðu konunnar i nútima þjóðfélagi og til námskeiða fyrir konur i að tala og túlka eigin skoðanir. Þá kynnti Guðrún Hallgrims- dóttir hugmyndina um að konur leggi niður vinnu i einn dag til að sýna fram á mikilvægi vinnu- framlags kvenna i þjóðfélaginu, en stungið hefur verið upp á, að þetta verði gert i tilefni kvenna- ársins á degi Sameinuðu þjóð- anna 24. október. Að lokinni vinnu i starfshópum, sem fjölluðu ma. um verklýðs- mál, tryggingamál, skóla- og uppeldismál, voru aftur almennar umræður og var einkennandi bæði i þeim og umræðum starfshópanna hve nátengd málefni alþýðukvenna til sjávar og sveita eru málefnum verklýðshreyfingarinnar og verða raunar ekki sundur slitin einsog glöggt kemur fram i ályktunum ráðstefnunnar, sem birtar eru annarsstaðar hér á sið- unni. — vh stað Til forystu ASÍ Samþykkt var eftirfarandi áskorun til forystu ASt: „Ráðstefna um kjör kvenna til sjávar og sveita, haldin i Neskaupstað 26. april 1975, skorar á forystu ASl að auka til mikilla muna fræðslustarf á vegum samtaka launafólks og leggur sérstaka áherslu á það, að félagsmálaskóli Menningar- og fræðslusambands alþýðu starfi allt árið og taki við mun lleiri nemendum, svo verkafólki skapist tækifæri til að afla sér pólitiskrar fræðikenningar og félagslegrar þjálfunar. Helmingur nemenda verði hér eftir konur. Jafnframt beinir ráðstefnan þvi til verkalýðsforystunnar að nýta opinbera fjölmiðla til fræðslu og sambands við félaga sina.” Til kvenfélaga Eftirfarandi áskorun var beint til kvenfélaga: „Ráðstefna um kjör kvenna til sjávar og sveita, haldin i Neskaupstað 26. april 1975, skorar á hin ýmsu kvenfélög i landinu að bæta við starfsemi sina fræðslu og umræðum um stöðu islenskra kvenna, nú á kvennaári.” Yfirlitsmynd frá ráðstefnunni. Frá fundi starfshóps. (myndir vh) Söngurinn. Taliö frá vinstri Friöný Þorláksdóttir, Kristrún Ragnars- dóttir, Anna Sigurjónsdóttir, Sigriöur Fanney Másdóttir og Iengst tii hægri Svanhildur óskarsdóttir. Ritarinn hrópaði á vinstri stjórn Það var táknrænt fyrir stöðu Framsóknarflokksins I dag, að ritari flokksins hrópaði ákaft á endurreisn vinstristjórnarinnar á almennum fundi f Hverageröi á dögunum. Fund þennan sóttu um 40 manns og hann var boðaður á vegum Alþýðubandalagsins i Hveragerði og Framsóknar- félags Hveragerðis. Var fundur- inn haldinn á föstudagskvöld. Urðu umræöur afar llflegar og stóðu þær fram yfir miðnætti. Framsögumenn á fundinum voru Garðar Sigurðsson, þing- maður Alþýðubandalagsins og Steingrfmur Hermannsson, ritari Framsóknarflokksins. Til máls tóku auk framsögumanna: Kjartan Björnsson, Páll Þorgeirsson, Þórgunnur B jörnsdóttir , Kjartan Valgarðsson, Auður Guðbrandsdóttir, Guðmundur Wium, Guðmundur G. Þórarinsson, Snorri Sigfinnsson, Þórður Snæ- björnsson, Þór Vigfússon, Margrét Björnsdóttir og Sigurður Björgvinsson. Svona sparar borgarsjóður Tveir verkamenn hjá Reykjavíkurborg komu hingað á ritstjórnarskrif- stofurnar í vikunni og bentu okkur á, að á sama tíma og borgin boðar niðurskurð framkvæmda með sparnað fyrir augum, býður hún út verk, sem borgarstarf smenn geta auðveldlega unnið. SÖgðu þeir félagar, að oft bæri svo við, að þegar starfsmenn borgarinnar væru mættir ein- hvers staðar að gera við gang- stéttir, væru iðulega komnir á vettvang verktakar, sem teldu sig eiga að vinna verkið. Einnig hefði það komið fyrir að verktaki hafi gengið inn I gangstéttaviðgerð, sem borgarstarfsmenn hefðu verið byrjaðir á, og iðulega tæki verktaki við verki af borgar- starfsmönnum eftir klukkan 5 á daginn, en lengur fá borgar- starfsmenn ekki að vinna dag hvern. Olafur Guðmundsson hjá em- bætti gatnamálastjóra staðfesti, að útboð væri viðhaft vegna viðgerða á gangstéttum. Sagði hann að einingarverð fyrir að taka upp brotna hellu, slétta undir og setja nýja niður væri þúsund krónur, og tvöfalt hærra fyrir nýlagnir á hellum. Borgarstarfsmennirnir tveir sögðu okkur og frá þvl að ýmis verkfæri borgarinnar væru látin standa ónotuð, meðan sams kon- ar tæki væru tekin á leigu. Þannig hefðu traktorar borgarinnar staðið ónotaðir i allan vetur, en traktorar teknirá leigu hjá einka- aðiljum. Einn traktor hefði td. verið tekinn áleigu austan yfir fjall, á hann sett loftpressa og hann siðan látinn standa verklaus mestan part vetrar, en að sjálf- sögðu þurfti að greiða leigu fyrir slikan grip. Þá skýrðu borgarstarfs- mennirnir einnig frá þvi, að það hefði komið fyrir að borgin seldi verktaka tæki og vinnuvélar, en tæki þau siðan á leigu frá sama verktaka. —úþ Skógræktarfélag Hafnarf jarðar: Sumar- hefjast Nú er Skógræktarfélag Hafnar- fjarðar að hefja sumarstarf sitt. Það hefst að þessu sinni með fræðslu- og kynningarfundi 29. april, I kvöld, i Góðtemplarahús- inu kl. 20.30. Á þessum fundi mun Sigurður Blöndal skógarvörður tala um verkefni skógræktar- félaganna. Þá verða sýndar Sigurður Blöndal. myndir frá skógræktarstarfi hafnfirðinga. matvörur á markaði Fyrsta tölublað Neytenda- blaðsins 1975 er komið út. 1 blað- inu er að finna greinar um marg- visleg efni. Fyrst eru raktar niðurstöður sænska bifreiðaeftir- litsins um sifellt styttri endingar- tima bifreiða, þá er greint frá könnun, sem neytendasamtökin hafa gert I samráði við Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins, sem leiddu m.a. i ljós að ósölu- hæfar matvörur eru til sölu i Reykjavik. 1 blaðinu er grein um uppþvottavélar, leiðbeiningar til þeirra, sem hyggjast festa kaup á ibúð, fjallað er um barnaslys i Reykjavik, greint frá kostum og löstum á pottum og pönnum og sagt frá þvi hvaða hagræði getur orðið af þvi að halda heimilisbók yfir innkaupin. 1 Neytendasamtökunum eru nú um þrjúþúsund félagar. 1 kvöld halda samtökin aðalfund i Nor- ræna húsinu og hefst hann kl. 21. Á dagskrá eru auk venjulegra aðalfundarstarfa, erindi Guð- mundar Einarssonar, formanns N.S., um neytendamál i Evrópu og umræður um framtiðarstörf N.S. á Islandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.