Þjóðviljinn - 29.04.1975, Side 13
Þriðjudagur 29. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Atvinna ■ Atvinna
Ellsabet Erlingsdóttir og Kristinn Gestsson.
Tónleikar í Kópavogi
Lög Fjölnis og Þorkels
Ellasabet Erlingsdóttir söng-
kona og Kristinn Gestsson pianó-
leikari halda tónleika á vegum
Tónlistarfélags Kópavogs þriðju-
daginn 29. apríl kl. 9 e.h. í sal Tón-
listarskólans að Alfhólsvegi 11.
A efnisskránni eru þessi verk:
ÞrjU sönglög eftir Fjölni Ste-
fánsson við ljóð úr „Tlmanum og
vatninu” eftir Stein Steinarr,
„Lög handa litlu fólki” eftir
Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð úr
„Fiðrildadansi” eftir Þorstein
Valdimarsson, þrjú lög eftir Al-
ban Berg og loks fjórtán islensk
þjóðlög, sem Fjölnir Stefánsson
og Þorkell Sigurbjörnsson hafa
útsett.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Elisabet og Kristinn eru kenn-
arar við Tónlistarskóla Kópa-
vogs.
V iðskiptaf r æðingur,
hagfræðingur
Bandalag háskólamanna óskar að ráða
viðskiptafræðing eða hagfræðing hálfan
eða allan daginn.
Umsóknir sendist á skrifstofu BHM i
Félagsheimili stúdenta fyrir 10. mai n.k.
BANDALAG
HASKÓLAMANNA
Lausar stöður
Kennarastöður við Fjölbrautaskólann i Breiðholti i
Reykjavik eru lausar til umsóknar. Um er að ræða bók-
legar og verklegar greinar I eftirfarandi kennsludeildum
skólans:
tslenskudeild, deild erlendra mála, stærðfræöideild. eðlis-
og efnafræöideiid, náttúrufræðideild, samfélags- og
uppeldisdeild, viðskiptadeild, heimilisfræðadeild, mynd-
og handmenntadeild, iðnaðar- og iðjudeid, sjómennsku-
deild, og Iþróttadeild.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavlk, fyrir 15. júnf nk. Umsóknareyðublöð fást I
ráöuneytinu og I fræðsluskrifstofu Reykjavlkur.
Menntamálaráðuneytið
23. april 1975
Lausar stöður
Við Æfinga-og tilraunaskóla Kennaraháskóla tslands eru
tvær stöður æfingakennara lausar til umsóknar, önnur á
raungreinasviöi, sem tekur til eðlisfræöi, Ilffræöi og fleiri
greina, en hin I dönsku, og er hún einkum miöuö viö
kennslu á siöasta stigi grunnskóla. Umsækjendur þurfa aö
kunna góö skil á kennslufræöi viökomandi greina.
Viö skólann eru einnig lausar til umsóknar 2-3 stööur
almennra kennara. Hluti úr fullri stööu kemur einnig til
greina. Aö ööru jöfnu mundu þeir umsækjendur ganga
fyrir, sem veriö gætu jöfnum höndum bekkjarkennarar
eldri deilda á barnastigi og kennt einhverjar greinar I
efstu bekkjum grunnskóla, t.d. ensku og samfélagsfræöi.
Umsóknir um framangreindar stööur meö upplýsingum
um námsferii og störf skulu hafa borist menntamála-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 31. mai nk.
Umsóknareyöublöð fást I ráðuneytinu og hjá skólastjóra.
Menntamálaráðuneytið
23. april 1975
Þörf fyrir fisk-
kassaverksmiðju
Ákveðið hefur verið að
hefja þegar undirbúning
að stofnun fiskkassa-
verksmiðju hérlendis og
óskað verður fram-
kvæmdafélags um fram-
leiðsluna og að lagt verði
fram á alþingi frumvarp
að lögum um þetta efni.
Hinn 30. nóv. ’72 skipaöi þá-
verandi iðnaðarráðherra,
Magnús Kjartansson, nefnd,
sem hafði það hlutverk m.a. að
kanna þörf fyrir fiskikassa hér-
lendis, að gera forathugun á
hagkvæmri framleiðslu fiski-
kassa hérlendis og aö gera áætl-
un um hvernig best yrði staðið
að framkvæmd þessa máls.
Nefndin skilaði siðan niður-
stöðum i april ’73 og um ára-
mótin 1973 og '74 var lagt fram
stjórnarfrumvarp um stofnun
undirbúningsfélags til athugun-
ar á hagkvæmri framleiöslu
fiskkassa hérlendis og var
frumvarpið samþykkt i mai
1974.
Undirbúningsfélag Fiskkass-
ar h/f var siðan stofnað i júni
það ár og eru hluthafar rikis-
sjóður, Akureyrarbær, Sjálfs-
björg Akureyri, fyrirtæki og
einstaklingar. Formaður
stjórnar félagsins er Hörður
Jónsson, verkfræðingur,
Reykjavik.
Undirbúningsfélagið hefur nú
gert tillögur um tilhögun við
stofnsetningu verksmiðjunnar
og sent frá sér alllanga greinar-
gerð um málið.
í greinargerð þessari kemur
fram, að fiskkassar úr plasti
hafi verið að ryðja sér til rúms
hérlendis sl. 3 ár og hafa um 200
þúsund kassar verið fluttir til
landsins.
Höfundar greinargerðarinnar
gera ráð fyrir þvi, að innan
fárra ára verði stofnmarkaður
fyrir fiskkassa hérlendis orðinn
um 600 þúsund kassar, og end-
urnýjunarmarkaðurinn verði
fyrir 100 þúsund kassa árlega.
Siðar segir i greinargerðinni,
að þeir .kassar, sem mest hafa
verið notaðir hérlendis séu ekki
fullnægjandi og nefna þar til að
þeir séu of dýrir, cif-verð 2.600
krónur kassinn, mál þeirra
kassa sé óheppilegt, þeir séu ó-
staflanlegir tómir, séu of þungir
fullir af fiski og is, eða 70 kiló og
þvi erfiðir i flutningi, og fleiri
vankantar eru til nefndir.
Stofnkostnaður fiskkassa-
verksmiðju er áætlaður 170
miljónir króna.
—úþ
Eitt af baráttumálum Alþýðubandalagsins
í borgarstjórn komið á rekspöl
Rafmagnfyrir
báta í höfn
Unnið er nú að því að
teikna og staðsetja raf-
tengikerfi við vestur-höfn-
ina, sem ætlunin er að
bátaflotinn geti notað sér
þegar hann liggur við
bryggju og spari þannig
keyrslu Ijósavéla.
Guðjón Jónsson, sem var vara-
borgarfulltrúi fyrir Alþýðu-
bandalagið á siðasta kjörtimabili,
lagði til við borgarstjórn á sinum
tima, að komið yrði fyrir aðstöðu
við höfnina þannig að hægt væri
að raftengja skip við land. Benti
Guðjón á að með þessu mætti
spara mikið fé, þvi meö þessu
móti þarf ekki að keyra ljósavél-
ar bátanna þótt verið sé að vinna i
þeim, auk þess sem þetta drægi
mjög úr skaðlegum hávaöa við
vinnu i vélarrúmi og menguri i og
við höfnina.
Samkvæmt upplýsingum hafn-
arstjórans i Rvik, Gunnars Guö-
mundssonar, hefur veriö gerður
frumuppdráttur fyrir raflagnir i
vestur-höfninni. Mun ætlunin að
leggja þangað rafmagn til við-
gerða og hitunar. Nú eru ákveðnir
Guöjón Jónsson.
þættirþessa uppdráttar i athugun
hjá Rafmagnsveitum Reykjavik-
ur.
Gunnar sagði, að ekki væri
hægt að sjá fyrir endann á þvi
hvenær verki þessu yröi lokið og
raftengikerfið komiö upp, og
sagði reyndar, að eins og fjárhag
borgarinnar væri nú háttað
mundi þetta raftengikerfi ekki
komast i gagnið á næstunni. — úþ
Útgerðarfélag
Skagfirðinga h.f.
Sauðárkróki
Aðalfundur tJtgerðarfélags Skagfirðinga
h.f. fyrir árið 1974 verður haldinn á
Sauðárkróki föstudaginn 2. mai 1975 og
hefst kl. 20.30. Fundarstaður: Félags-
heimilið Bifröst.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt sam-
þykktum félagsins.
2. önnur mál.
Stjórn útgerðarfélags Skagfirðinga h.f.
Sauðárkróki.
FÍL FÍL
Loftskeytamenn
Félagsfundur verður haldinn
að Bárugötu 11 í dag kl. 14.
Dagskrá: 1. Kjaramál
2. Önnur mái
Stjórnin