Þjóðviljinn - 11.05.1975, Síða 17

Þjóðviljinn - 11.05.1975, Síða 17
Sunnudagur 11. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Vantar texta— mynd nr. 5 Mynd nr. 3 — og tek undir þau orð, sem formaðurinn viðhafði hér rétt áð^n: það verður að finna leiðir til að leitast við að stuðla að raunhæfum ráð- stöfunum til að breikka efnahagsgrundvöliinn, hleypa stoðum undir rekstrarþol atvinnulifsins og leita hvers kyns hugsanlegra ráða, sem tiltæk kynnu að reynast, til að mæta af þrótti þeim utanaðsteðjandi, sameiginlegu áföilum, sem þjóðin nú byr við, og sem ekki lama athafnamátt þeirra, er ábyrgð bera á undirstöðu-framieiðsluvegunum, né rýra lágmarks kaupgetu þeirra, sem allra verst eru settir, meira en algjör þjóðarnauðsyn krefst á hverjum tima. Hér kemur mynd nr. 5 I flokknum „Vantar texta” og væntum við þess, að lesendur leyfi nú imyndunaraflinu að leika sér. Ef svona frjósemi kemur ekki hugsuninni af stað... Af tæknilegum ástæðum hefur tvisvar fallið niður birting á þessum myndum og textúnum með þeim, en að öðru jöfnu reiknum við yfirleitt með að textar hafi borist og verði birtir hálfum mánuði eftir að myndin kemur fyrst i blaðinu. Berist þeir seinna, getum við ekki tekið þá með. Og snúum okkur þá að mynd nr. 3. G.Þ. sendir langan texta, sem birtist hér að ofan undir mynd- inni, en aðrar tillögur G.Þ. eru: — Mér er sama þótt þú sért úr Þingeyjarsýslunni — þú ert fenginn hingað til að skemmta gestum! — Góði siappað’ af! — Þeir birta myndir af hverjum sem er i Þjóðviljanum. Túnýstingur uppá eftirfarandi: — Hafið þér eitthvað sérstakt fyrir stafni í kvöld, ungfrú? Eða: — Þegiðu á meðan ég tala! Davið Þór Jónsson 10 ára sendir þennan texta: — Viðskulum gefa næsta ræðu- manni gott klapp. Og Árni Þórðarson: — Ég er bara að æfa mig áöur en ég fer I karlakórinn! Og við skulum reka lestina með texta Jóns Thórs Haraldssonar: — Ég hef engin andskotans mannsaugu! ÞORSTEINN FRÁ HAMRI TÓK SAMAN Þá hló marbendill Mér er i minni stundin þá marbendil hló; blíð var baugahrundin er bóndinn kom af sjó; kyssti hún laufalundinn, iymskan undir bjó; sinn saklausan hundinn sverðabaldur sló. Sögn úr Landnámu TrU á marmennla eða mar- bendla er forn, og kemur þegar fyrir i Landnámabók; þar segir svo frá: „Grimur hét maður Ingjalds- son, Hróaldssonar úr Hadd- ingjadal, bróðir Asa hersis; hann fór til Islands i landaleit og sigldi fyr.ir norðan landið; hann var um veturinn i Grimsey á Steingrimsfirði. Bergdis hét kona hans, en Þórir sonur þeirra. Gri'mur reri til fiska um haustið með húskarla sina, en sveinninn Þórir lá i stafni og var I selbelg, og dreginn að hálsinum. Grimur dró marmennil, og er hann kom upp,spurði Grimur: Hvað spáir þú oss um forlög vor, eða hvar skulum vér byggja á íslandi? Marmennill svarar: Ekki þarf ég aðspá yður, en sveininum, er liggur I selbelginum; hann skal þar byggja og land nema, er Skálm, merr yður, leggst undir klyfjum. — Ekki fengu þeir fleiri orð af honum. En síðar um veturinn reru þeir Grimur svo, að sveinninn var á landi; þá týndust þeir allir. Þau Bergdis og Þórir fóru um vorið Ur Grimsey og vestur yfir heiði til Breiðafjarðar; þá gekk Skálm fyrir og lagðist aldrei. Annan vetur voru þau á Skálmarnesi i Breiðafirði, en um sumarið eftir sneru þau suður. Þá gekk enn Skálm fyrir, þar til er þau komu af heiðum suður til Borgar- fjarðar, þar sem sandmelir tveir rauðir stóðu fyrir; þar lagðist Skálm niður undir klyfjum undir^ hinum ytra melnum; þar-nam Þórir land fyrir sunnan GnUpá til Kaldár, fyrir neðan Knappadal, milli fjalls og fjöru; hann bjó að Rauðamel hinum ytra.” Marbendilsspá úr Hálfs sögu og Hálfsrekka „Þetta haust reru feðgar tveir á fiski og drógu marmennil. Þeir færðu hann Hjörleifi. Konungur fékk hann i hendur hirðkonu einni og bað hana gera vel við hann. Engi maður fékk orð af honum. Kertisveinar glimdu og slökktu ljósin. 1 þvi biH sló Hildur horni á skikkju Æsu. Konungur sló hana með hendi sinni, en Hildur sagði hundinn valda, er lá á gólfinu. Þá laust konungur hundinn. Þá hló marmennill. Konungur spurði, hvi hann hló. Hann svarar: — Þvi, að þér varð heimsklega, þvi að þau munu þér líf gefa. Konungur spurði hann fleira. Hann svarar engu. Siðan lést konungur mundu flytja hann til sjóvar og bað hann segja sér það er hann þyrfti að vita. Hann kvað, er hann fór til sjóvar: Eg sé lýsa langt suður i haf: Viil danskur konungur dóttur hefna. Hann hefur úti ótal skipa, býður hann Hjörleifi hólmstefnu til. En er þeir reru þangað með hann, sem þeir höfðu hann upp dregið, þá kvað hann: Sögu kann eg segja sonum Háleygja vilgi góða, ef þér viijið heyra : Hér fcr sunnan Svarðar dóttir, of drifin dreyra, frá Danmörku. Hefur sér á höfði hjáim upp spenntan, herkumbi harðlegt, lléðins af létta. Skammt mun sveinum, sé það sem er, Hiidar að biða hér á ferli Bresta mun baugröst, brá mær augum um héruð hingað hegna til þegna. Hafa skal hver drengur hjör og mörg spjót, áður komi mikil fram málmhrið siðan. Þó munu, ef það er satt, þá fer ilia, hafa aiiir alkeypt ár, þá er kemur vár. Þá lét Hjörleifur konungur hann utan borðs. Þá tók einn maður i hönd honum og spurði: — Hvað er manni best? — Marmennill svarar: Kalt vatn augum, cn kvett tönnum, iéreft liki, lát mig aftur I sjó! Dregur mig engi i degi siðan maður upp I skip - af mararbotnum.” Jón Árnason segir um hugmyndir manna um marbendla: „Marbendillinn hefst við á mararbotni, en sést aldrei ofan sjávar nema þegar hann hefur veriö dreginn, sem siðar skal getið. Af honum dregur marbendilssmiði nafn, er það gulhvitur kalksteinn, allur hruf- óttur og körtóttur utan, er skolar upp af mararbotni. Segja menn að slikt séu smiðisgripir marbendla. Landnáma og sagan af Hálfi og Hálfsrekkum sýna það best að marbendla- trúin er ekki ung. Ekki all- sjaldan hafa menn náð mar- bendlum og að visu oftast dregið þá Ur sjó lifandi, og hafa þeir þá stundum verið með öngla og net, en þó ganga sögur af þvi að þeir hafi fundist reknir af sjó dauðir eða komiö innan Ur hákarlsmaga. Þegar svo ber við að þeir eru dregnir lifandi, vilja þeir ávallt komast Ut aftur a sama svið sem þeir eru dregnir á; fáorðir eru þeir og sinna litt mönnum. Litt kunnug er mönnum háttsemi marbendla, en það vita menn að þeir eiga kýr góðar, eru þær allar sægrá- ar að lit og hafa blöðru milli nasanna eða framan á grönun- um, og verði hUn sprengd, þá næstkýrin, annars eru sækýr ó- hemjandi. Sækýr eru ágætar mjólkurkýr og góðar til undan- eldis.” Jón Guðmundsson lærði var margs vis um marbendla sem annað. Hann segir svo frá: Marbendill, sjódvergur — eftir Jón Guð- mundsson lærða „Gamall málsháttur einn hér i landi er so sem margur segir i dæmisögum:' Þá hló mar- bendill. En hvar af það er komið, hefur sagt verið að bóndi nokkur dró þann sjódverg sem sig nefndi marbendil, með stóru höföi, höndum siðum, en likastur sel niður frá nafla. Hann vildi á öngvum visindum fræða bónda; þvi flutti hann hann nauðugan i land með sér. Bóndans hústrU, ung og lystug, kom til sjóvar, fagnaði bónda, kyssandi og klappandi. Bóndi gladdist og lagði henni pris og lof, en slóð sinn hund frá sér sem honum fagnaði með hUstrUnni. Þá hló marbendill er hann sá þetta. Bóndi spurði þvi hann hló. Marbendill svaraði: — Að heimskunni. Sem bóndinn gekk heimleiðis frá sjónum, rasaði hann og datt um þUfu nokkra. Hann bölvaði þúfunni mikillega og hvar fyrir hUn hefði nokkurn- tima verið sköpuð að standa i sinu landi. Þá hló marbendill, þvi hann var i ferðinni nauðugur borinn, og sagði: Misvitur ertu, bóndi. So hélt bóndi marbendil hjá sér þrjár nætur. Kaup- mannasveinar komu þar með varning til sölu. Bóndi hafði aldrei fengið so margsólaða og þykka svartaskó sem honum likaði, en þessir kaupsveinar þóttust hafa þá bestu. Bóndi mátti velja af hundrað pörum og sagði þá strax slitast og alla of þunna. Þá hló marbendill og sagði: Margur villist þó vis þykist. Hvorki fékk bóndinn af marbendli með bliðu eða striðu meiri fróðleik en nU var greint, utan með þeim skilmála að bóndi skyldi flytja hann Ut aftur rétt á það sama mið sem hann var upp dreginn, og skyldi hUka á árarblaði bónda, þá skyldi hann Ur leysa öllum hans spurn- ingum, en með öngvum kosti ellegar Bóndi gjörði og so eftir briár nætur. Og sem hann var kominn á árarblaðið, spurði bóndi hvörn tilbUning fiskimenn skyldi hafa, ef þeir vildu fisknir vera. Marbendill svaraði: Tuggið járn og troðið skal til öngla hafa, og setja öngla- smiðju þar sem heyra má til ár og lár (sjóar og vatns nið), og herða öngul i jóra mæði, hafa gráan griðungsvað og hráan hrossskinnstaum, til beitu hafa fuglsfóarn og flyðrubeitu, en mannskjöt i miðjan bug — og muntu feigur ef þU ekki fiskar. Fráleitur skal fiskimanns öngull. Þá spurði bóndi að hvörri heimsku hann hefði hlegið þegar iiann lofaði hUstrU sina, en sló hundinn. Marbendill svaraði: Að þinni heimsku, bóndi, þvi hundur þinn elskar þig öngvu siður en lif sitt, en kona þin vill þig dauðan og er hin mesta hóra. En þUfan sem þU bölvaðir er þin féþUfa, og nógur rikdómur undir; þvi varstu misvitur, bóndi, þvi hló ég þar að. En svartaskórnir duga þér þina ævi, þvi þU átt ekki marga daga eftir ólifað, þeir duga þér þá þrjá daga. — Og i þvi steyptist hann af árar- blaðinu, og skildi þar með þeim. En allt reyndist eftir þvi sem marbendill hafði sagt. Oft leysir hann öngla af fiski- mönnum, þar sem hann býr nærri miðum, utan i kross liggi hnúturinn, og mörgum öngli náði hann af mér forðum.” Marbendill i hákarlsmaga t ferðabók Eggerts Olafs- sonar og Bjarna Pálssonar er tekin til yfirvegunar vottfest lýsing á marbendli, og segir niðurstaða þeirra sina sögu um fyrirbærið: Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.