Þjóðviljinn - 11.05.1975, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 11.05.1975, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. mal 1975. Hér I Zwmger er safnið til húsa. í LEIT AÐ FRÆGUM LISTAVERKUM Eitt frægasta safn sigildra listaverka, italskra, spænskra, flæmskra, er i Dresden i Austur-Þýska- landi. Safn þetta á sér rætur i sextándu öld, en efld- ist að miklum mun i tið Ágústs sterka af Saxlandi. Fyrir heimsstyrjöldina siðari voru þar um 2200 málverk frægra meistara, og eru þá ótaldar högg- myndir og listiðnaður. Safnbyggingin varð mjög illa úti i loftárásum á Dresden rétt fyrir striðslok. Flest listaverkin höfðu þá verið falin. Hér segir frá leit- inni að listaverkunum i striðslok og ferli þeirra sið- ar. Listanemi gerir eftirmynd af sjálfsmynd Rembrandts meb Saskfu á hnjánum. Eitt frægasta verk safnsins er Venusarmynd Giorglones. Striðinu er nýlokið þegar þessi saga hefst. Dresden var að mestu i rústum eftir hinar miklu loftá- rásir breta og bandarikjamanna á borgina i febrúar 1945. Meðal þeirra bygginga sem voru varla annað en sviðnar rústir var Zwinger þar sem eitt frægasta listasafn heimsins, kennt við Dresden, hafði verið geymt. En hvað var orðið af listaverk- unum? Petrof hershöfðingi hafði tekið þetta mál að sér. Hann lét kalla á fólk sem hafði unnið við safnið. Það vissi fátt, þvi að nasistar höfðu falið verkin og engum sagt neitt um felustaðina. En þeir vissu um liklegan felustað einn sem þeir skýrðu hinum sovéska herstjóra frá. Það voru járðgöng ein við litinn bæ sem heitir Gross Cotta. Nokkrum stundum siðar höfðu verðir verið settir við jarð- göngin og höfðu þeir ströng fyrir- mæli um að hleypa engum inn fyrr en sérfræðingar kæmu frá Moskvu. Innan skamms hafði Lista- nefndin i Moskvu fengið skeyti um að Dresdensafnið væri fundið og var beðin um að senda lista- menn og sérfræðinga á vettvang undir eins. Þetta var daginn eftir sigurinn. 16. mai hafði verið safnað i sér- staka sveit sem fékk það verkefni að leita að myndum úr Dresden- arsafninu. Meðal þeirra var Grigoréf majór og listfræðingur, Sjurakof höfuðsmaður og sér- fræðingur i viðgerðum á mál- verkum og tveir ungir málarar. Yfirmaður flokksins var Rototaéf höfuösmaður. Flokkur þessi var kominn til Dresden eftir nokkra daga. Rembrandt i jarðgöngum 1 jarðgöngunum við Gross Cotta fannst grænn járnbrautar- vagn. Málverkum hafði verið stillt upp við þennan vagn. I daufri birtu vasaljósa glitraði á gamla ramma og lakk. Frá einni myndinni brosti Rembrandt við gestum á hinni frægu mynd sem hann gerði af sjálfum sér og Saskiu. Næst við Rembrand var Mynd af hvitklæddri konu eftir Titian, Ástarhátið Watteaus og nokkrar myndir eftir Rubens, hlaðnar lifs- fjöri. Þessi málverk voru ekki i nein- um umbúðum nema ein, sem stóð i miklum trékassa afsiðis nokkuð — gátu menn sér þess til að þar væri að finna höfuðdjásn safns- ins, Madonnumynd Rafaels. Hjálp i viðlögum Nokkrum stundum eftir þennan ágæta fund hafði myndunum ver- ið komið fyrir aftan á fimm stúdebeikerum og var ekið með þær undir öflugri vernd til hallar einnar, Pilniz, sem hafði sloppið óskemmd. Dregið var fyrir alla glugga i herbergjum þeim sem myndunun var komið fyrir i til að þær mættu venjast smám saman nýjum að- stæðum eftir myrkradvölina i jarðgöngunum. Hjálp i viðlögum var þegar i stað veitt nokkrum þeim myndum sem mest höfðu spillst i rökum jarðgöngunum. Sjúrakof limdi molnandi lit niður með fiskilimi, og limdi silki- pappir yfir staði sem hlaupiö höfðu upp. Það var nóg að gera, ekki sist hjá Grigoréf listfræðingi sem reyndi með samanburði við listaverkaskrár að komast að raun um það hvað vantaði. 26. mai var mikill dagur. Þá voru hlerarnir teknir frá Six- tinsku Madonnunni. Meðal við- staddra var Konef marskálkur. Þegar myndin kom i ljós tóku all- ir ofan sem einn maður. Svo hafði verið skipað fyrir, að gæta skyldi Pilnizhallar sérstak- lega vel. Striðinu var lokið, en enn voru varúlfasveitir á vappi. Hall- arverðir fundu til dæmis allstóran hóp skemmdarverkamanna i garði hallarinnar. Allur herinn hafði fyrirskipanir um að skýra umsvifalaust frá öll- um listaverkafundum, en það var ekki nema nokkur hluti af Dresdenarsafninu sem hafði fundist við Gross Cotta. Nasistar höfðu dreift myndunum um nám- ur, klaustur, kastala og sveitaset- ur. Svo til á hverjum degi bárust og einhverjar upplýsingar um fundin listaverk frá hinum ýmsu hersveitum. Þá var einhver úr flokkinum sendur á vettvang sem skjótast, en oftar en ekki sneri hann tómhentur til baka. Vegna þess að verk frá safninu i Dresden fundust aðeins i fimm af um það bil hundrað felustöðum, sem þessi sérhæfði hópur rannsakaði. I blautri kalknámu Einkar þungbær var leiðangur- inn til Pockau-Lengefeld við tékk- nesku landamærin. SS-menn sem höfðu gætt geymslustaðarins i kalknámun- um i Pockau flúöu á siðustu dög- um striðsins. Námumennirnir vissu, að farið hafði verið með einhverja fleka niður i námurnar. Þeir gerðu óvirkar jarðsprengjur við innganginn, fóru inn i göngin og fundu þar málverk allmörg. Einn þeirra, gamall kommúnisti skýrði sovéska herstjóranum frá fundi þessum. ,,Við fálmuðum okkur áfram eftir göngunum og lýstum okkur með kolatýrum, segir Sjúrakof. Raki draup af loftum og veggjum og vatn rann eftir þröngum göng- um. Við gengum um 200 metra inn i námuna og siöan snerum viö til vinstri og þar sáum við i litlum afkima litið fjalaskýli. Við tókum andköf þegar við lýstum á það. Inni i þvi var staflað málverkum i óreiðu og var á þeim þykkt lag ó- hreininda. Léreftin höfðu þrútnað mjög hér og þar. Ég strauk fingri yfir ramma og gyllingin fylgdi með — hún var orðin lin sem leir. Eftir tvær vikur til viðbótar hefðu myndir þessar ónýst með öllu. Málverkin voru tekin út úr göngunum með mikilli varkárni og þeim ekið að námuopinu. En hvernig átti að koma þeim upp? Að visu var vinda uppi yfir opinu, en virinn i henni var gamall og ryðgaður. Ef hann slitnaði með málverkin á uppleið gæti orðið slys sem ekki yrði bætt siðan. Sjúrakof höfuðsmaður ákvað að prófa vinduna sjálfur. Hann sett- ist I kassaskrifli sem þar lá og skipaði hermönnum sinum að hifa sig upp. — En þú gætir hrapað og drep- ið þig. .. — Dragið mig upp, segi ég! Svo var gert — virinn reyndist nógu sterkur. Þegar allar myndirnar höfðu verið dregnar upp fór einn af námumönnunum aö litlu skýli ekkilangtfrá námuopinu. Enginn lás var fyrir. Þarna voru nokkrir tómir rammar og svo hin fræga mynd Rúbens af Batsebu þeirri sem freistaði Daviðs konungs. Tilvera þessa listaverks hékk sannarlega á bláþræði: það hefði getað brunnið ef einhver hefði hent frá sér eldspýtu i kæruleysi, það hefði getað komist i hendur spekúlanta sem seldu safngripi vestur á bóginn. Undir kúlugati Þannig var smám saman fyllt upp i eyðurnar. Leitarflokkurinn komst að þvi, að 197 myndir hefðu farist i sjálfum loftárásunum. I Albertinum fundust' 23 stórir rammar, en hvað var orðið af málverkunum? Lengi vel fréttist ekkert af þeim, fyrr en hermaður einn kvaðst hafa séð málverk i kjallara dómkirkjunnar i Meiss- en. Þar fundu leitarmenn siðan málverk eftir Corregio, Rem- brandt, Rubens og Tiepolo. Stórt safn grafískra verka fannst i Weesenstein kastala. Þrjár andlistsmyndir eftir Velazquez, málverk eftir Pouss- in, Manet og Degas. Stór felustaður fannst i Barnitz- óðalsetrinu. Þar hafði mjóu mun- að, þvi að fallbyssukúla hafði far- ið i gegnum vegg byggingarinnar og farið beint i gegnum hann. Sem betur fór höfðu myndirnar frá Dresdensafninu staðið beint fyrir neðan gatið sem myndaðist. Þær voru þaktar steinryki og múrsteinsbrotum og ærið verk að hreinsa þær. Listafjársjóður Dresdensafns- ins voru ekkí að’eins málverk — mikið starf var einnig að þvi unn- ið að bjarga höggmyndum og postulini og fékk starfshópurinn liðveislu sérfróðra manna frá Moskvu til að fást við þá hluti. Dresden — Moskva — Dresden Eftir tveggja mánaða þrotlaust og oft hættulegt starf komust menn að þeirri niðurstöðu, að flest það væri fundið sem finna mætti. Hópurinn i Pilnitz fékk þau svör við fyrirspurnum sinum um áframhaldið, að ákveðið hefði verið að fytja Dresdensafnið til Moskvu. Siðast i júli var sérstök lest hlaðin með mikilli leynd og hélt hún frá Dresden. Fylgdu henni 50 vélbyssuskyttur og á undan fór sérstök könnunareim- reið. A einum stað höfðu skemmdarverkamenn lagt járn- rusl á teinana, en eimlestarstjór- inn gat stöðvað lestina rétt áður en að þeim var komið. A landamærum Póllands og’ Sovétrikjanna kom upp annar vandi. Breiðara var á milli teina Sovétmegin og þvi varð að bera listaverkin á milli lesta. Vagn- arnir sem við tóku voru illa farnir eftir striðið og þurfti að gera við þá á staðnum. Þann tiunda ágúst kom lestin svo til Moskvu og tóku á móti henni starfsmenn Rikis- listanefndarinnar og Púsjkin- listasafnsins, heldur betur i hug- aræsingi. Næsta dag voru kassarnir opn- aðir. Mörg málverkin, einkum þau sem höfðu legið I rökum nám- um, voru mjög illa farin. ,,Sjúk- lingarnir voru þegar lagðir á „uppskurðarborð”. Bak við þung- ar eikardyr hófu viðgerðarmenn Púsjkinsafnsins að iðka sinar göf- ugu kúnstir. Þeirra beið langt og strangt starf. Það var ekki fyrr en sumardag einn árið 1955 að Dresdensafnið var aftur opið almenningi. Lang- ar raðir mynduðust við dyr Púskinsafnsins; þetta voru tið- indi sem Moskvubúar hafa mun- að eftir siðan. Sýningin i Moskvu var um leið kveðjusýning, þvi sovétstjórnin hafði ákveðiðað Dresdenarsafnið héldi aftur heim til Þýska alþýðu- veldisins. Stepan Sjúrakof, sem gjörþekkti sérkenni og ásigkomu- lag hvers málverks, hélt þetta sama ár til DDR til að afhenda safnið eigendum þess. Var honum að vonum vel fagnað á þvi fræga menningarsetri. (Byggt á grein frá APN úr Sovétskaja kultura).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.