Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 1. júll 1975. Prentari spyr af gefnu tilefni i Þjóöviljanum sl. fimmtudag birtist frétt af samningamálum prentara. Þessi frétt var að þvi leyti frábrugðin öðrum fréttum af samningamálum verkalýðs- félaga sem birst hafa f blaðinu, að þar er gefiö i skyn, að prentarar hafi haft einhvers konar forystu- hlutverki að gegna i nýliðnum samningaviðræðum verkalýðs- félaganna, en hafi hins vegar heykst á hlutverkinu og misst forystuna úr höndum sér. Eða hvernig ber að skilja eftirfarandi málsgrein: „1 fyrra voru prentarar i 7 vikna verkfalli.... og virðist það hafa dregið svo móðinn úr félags- mönnum að þeir gerðu enga til- raun til að fá meiri kauphækkun en aðrar stéttir innan ASt.” (leturbr. min). Vegna furðulegs orðalags þessarar fréttar, sem hefði vel getað átt heima i blööum á borð við Morgunblaðið og Visi en er fráleit i blaði sem skartar með slagorð á borð við sósialisma og verkalýðshreyfingu i blaðhaus sinum. Það hefur viðgengist að blaðamenn undirrituðu fréttir sinar i blaðinu, en sá sem þetta skrifaði hefur ekki viljað kannast við afkvæmið, enda klausan óundirrituð. Væri gaman að fá að vita á hverju Þjóðviljinn eða höf- undur greinarinnar byggir þá skoðun sina, að prentarar eigi að fá meiri launahækkun en aðrir. Nú er ekki svo að skilja að ég sé á þvi að kjarabæturnar hafi veriö nægar. Siöur en svo. En hvenær I ósköpunum hefur Þjóðviljinn vakið máls á þvi að þessi stétt væri yfir aðrar hafnar? Hver hef- ur sá stuðningur verið, sem prentarar hafa notið umfram aðrar stéttir i blaðinu? Þessu væri skemmtilegt að fá svarað. Eða gæti ástæðan kannski verið sú, fyrir þessu orðalagi, að ein- hver i samninganefnd Blaða- mannafélagsins sé að reyna að hefna sin á þennan ómerkilega hátt vegna þeirrar sjálfsögðu kröfu Hins islenska prentara- félags, að faglærðir prentarar fái að vinna við þá hlið blaðaútgáfu sem snýr að prentverkinu, það er útlitsteikningu, án þess að segja sig úr prentarafélaginu og ganga i Blaðamannafélagið? Svari nú hver sem betur getur. Haukur Már Haraldsson, prentari. Hver hefur eftirlit með velferð barna í sveit? Hvernig er háttaö eftirliti með heimiium i sveit, sem taka börn að sér fyrir greiðslu? Hvaða stofnun sér um að börn hijóti þá meðferð, sem skylt er að veita þeim? Ein, sem tekið hefur á móti vannærðu barni frá sliku sveita- heimili, sem nýverið hefur aug- lýst á ný i dagblöðum, að það taki að sér börn. Hjá Barnaverndarráði rikisins fengum við þær upplýsingar, að tæki sveitaheimili fleiri börn en fjögur til sumardvalar gegn greiðslu, þurfi að koma til leyfi frá stjórnarráðinu. Ef eitt til fjögur börn eru á sveitaheimilum gegn greiðslu, ber barnaverndarnefndum viö- komandi hrepps að fylgjast með atlæti þvi, sem börnin njóta, og kvörtunum frá foreldrum skal koma til barnarverndarnefnda, ýmist viðkomandi hrepps þar sem barnið er i sveit, eða barna- verndarnefndar þeirrar byggðar, sem barnið á lögheimili i. Barnaverndarráð rikisins fylgist hins vegar með þeim heimilum þar sem fleiri en 4 börn eru tekin til vistunar, og mun það framkvæmt með þvi, að fulltrúi frá ráðinu kemur á bæi þessa ein- hvern þann tima sumarsins, sem börnin dvelja þar. —úþ Kvennaráðstefna í Berlín í haust 23. júni s.l. komu saman konur i Reykjavik úr ýmsum stéttarfé- lögum ASl og BSRB, kvennasam- tökum, Háskólanum og MFtK til að stofna undirbúningsnefnd Is- lands fyrir þing það sem halda á i A-Berlin i lok októb. i tilefni hins alþjóðlega kvennaárs. Eins og fram kom i ræðu Evu Kolstad á dögunum i Háskólabiói verður þessi ráðstefna i Berlin haldin undir kjörorðum Kvennaárs S.Þ. : Jafnrétti, framþróun og friður. en hún verður opin einstaklingum og fulltrúum samtaka vlösvegar að úr heiminum og er að þvi leyti uppbót á ráðstefnu S.Þ. i Mexikó, en sú ráðstefna er einungis setin tilnefndum fulltrúum rikis- stjórna. Stefnt mun að þvi að senda rúman tug fulltrúa frá Is- landi frá sem flestum félögum, en einnig munu einstaklingar fara á eigin vegum. Undirbúningsstarf þingfulltrúa og annarra er áhuga hafa hefst 11. september. Stofnun útvistarfélags Ferðafélagið Útivist var stofnað 23. mars 1975, og er markmið þess að stuðla að úti- vist fólks i hollu og óspilltu umhverfi. Félagið hefur nú gefið út ferðaáætlun, þar sem fólki er gefinn kostur á hentugum ferðum, bæði löng- um og stuttum. Fyrstu ferðirnar verða farn- ar i byrjun júli, þar er um að ræða 15 lengri ferðir til ýmissa staða á landinu. Einnig er um að velja nokkurra daga ferðir á Vatnajökul. Styttri ferðirnar taka einn dag og verða þær farnar allt fram i byrjun desember. Gert er ráð fyrir að jafnt út- lcndingar scm islendingar geti notfært sér þessar ferðir. Félagsmenn fá afslátt á far- gjöldum. Skrifstofa (Jtivistar er i Lækjargötu 6, Rcykjavik, simi: 14(i0(>. I bréfi, sem Sigurður H. Ólafsson hefur sent Þjóðviljan- um um málefni aldraðra (birt þ. 10. þ.m.), segir m.a.: „Ýmsir hafa minnst á að erf- itt sé að fá starfsfólk á sjúkra- húsin, sérstaklega hjúkrunar- fólk. Þvi ekki að gera þá kröfu til félags hjúkrunarfólks, að geti það ekki lagt til nægilegan fjölda faglærðs fólks, verði leit- að til annarra i þau störf sem laus eru eöa verða. 1 þvi skyni verða haldin stutt námskéið fyrir væntanlegt starfsfólk.” Bréfritari er ekki sá eini, sem virðist telja eðlilegt að krefja stéttarfélagið um nægan fjölda hjúkrunarfræðinga, þótt ótrú- legt sé, hafa svipaðar raddir heyrst innan hjúkrunarstéttar- innar sjálfrar. Ég get ekki fall- ist á það að raunhæft sé að leggja slikar kvaðir á nokkurt stéttarfélag. Hjúkrun aldraðra er eitt helsta umræðuefnið I heilbrigðismálum þessa stundina. Hverjir eiga að starfa við það, og hvaða menntunar á að krefjast? Aö þvi er vikiö I þessari grein. Að gefnu tilefni Vegna þess að mér þykir áhugi S.H.Ó. á málefninu lofs- verður, mun ég leitast við að svara honum nokkru nánar hér, og vil þá nota tækifærið til þess að beina orðum minum til ann- arra, sem málið er skylt. Þá er þvi fyrst til að svara, að hér á landi eins og víðast hvar annarsstaðar þar sem skilning- ur rikirá mikilvægi fullkominn- ar heilbrigöisþjónustu, eru i gildi lög um hjúkrun — hjúkr- unarlög. Þar segir i 1. gr.: Rétt til að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarkonu eða hjúkrunarmann hefur sá einn, sem til þess hefur fengið leyfi ráðherra. I 2. gr. segir m.a.: Leyfi skv. 1. gr. skal veita þeim, sem lokið hefur prófi i hjúkrunarfræðum frá hjúkrunarskóla hér á landi eða frá Háskóla tslands. 4. gr.: Ekki má ráða aðra en hjúkrunarkonur eða hjúkrunar- menn skv. 1. gr. til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa við sjúkra- stofnanir, elliheimili, heilsu- vernd eða hjúkrun i heimahús- um. 8. gr.: Heimilt er að þjálfa sjúkraliða til aðstoðar við hjúkrun.... (Gerður er greinar- munur á sjálfstæðum hjúkrun- arstörfum og aðstoðarstörfum i hjúkrun. Þau siðarnefndu eru unnin undir stjórn og i umsjá þeirra er annast hin fyrrnefndu, þ.e.a.s. hjúkrunarfræðinga (innskot mitt)). I 10. gr. laganna segir m.a.: Brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum samkv. þeim varða sektum, nema þyngri refsing liggi við að öðr- um lögum. Enginn vafi getur leikið á þvi, að lögin eru sett i þeim tilgangi að tryggja sem besta og örugg- asta hjúkrun til handa öllum, er hennar þarfnast, þvi i þeim felst sú krafa að þeir er láti þessa þjónustu i té, hafi jafnan yfir að ráða nauðsynlegri menntun til starfsins. Það er hinsvegar staðreynd, að fjöldi starfandi hjúkrunar- fræðinga er ekki nægur eins og er og horfir þar til mikilla vand- ræða verði ekkert að gert. I mörgum tilvikum hefur verið gripið til þess ráðs að ráða til hjúkrunarstarfa fólk án hjúkr- unarmenntunar, en slikt verður að teljast afar óæskileg þróun, þar eð það tefur vafalitið nauð- synlega nýliðun i hjúkrunar- stéttina og dregur verulega úr gæðum þeirrar þjónustu, sem heilbrigðisstofnunum ber að veita. Vandann verður að leysa með tilliti til þeirra ákvæða, sem lög- bundin hafa verið, bæði i hjúkr- unarlögunum og lögum um heil- brigðisþjónustu. En þá verður auðvitað að gera ráðstafanir til þess að hægt sé að framfylgja þeim. Stéttarfélagið getur vissulega reynt að hafa áhrif á þróun mála og hefur gert, en þaö þarf F ormaður Hjúkrunar- félagsins svarar grein um málefni aldraðra lika á skilningi og aðstoð ann- arra aðila að halda. 1 fyrsta lagi er þörf aukins skilnings á mikilvægi hjúkr- unarstarfsins og nauðsyn þess að það sé kunnáttusamlega af hendi leyst. 1 öðru lagi þarf að tryggja það að starfs- og lifsskilyrði hjúkr- unarfræðinga verði eftirsóknar- verð. 1 þvi sambandi er náttúr- lega rétt að taka það fram, að þar kemur starfið sjálft til hjálpar, þvi óhætt mun að fullyrða að hjúkrunarstörf veiti ölium sem þau stunda mikla lifsfyllingu. En það virðist þó ekki duga og sætir e.t.v. engri furðu, þegar aðrir þættir eru at- hugaðir, sem beinlinis hindra hjúkrunarfræðinga i þvi að starfa, eða verða til þess að ekki fjölgar nægilega i stéttinni. An þess að fara ýtarlega út i þá sálma má þó t.d. nefna launa- mál stéttarinnar, óhentugan og oft óreglubundinn vinnutima (vaktavinna, gæsluvaktir o.þ.h.) og mikið vinnuálag, bæði andlegt og likamlegt. Hjúkrunarstéttin er nær ein- göngu konur og gildir um þær hið sama og aðrar útivinnandi konur, að allflestar vinna tvö- faldan vinnudag. Þegar starfs- degi lýkur utan heimilis, biða þeirra heimilisstörfin. Þó er skortur á barnagæslu stór þátt- ur i málinu, jafnvel þótt ýmsum þyki (og það oft með réttu) að hjúkrunarkonur sitji i þeim efn- um i fyrirrúmi annarra stétta. Að þvi er varöar menntun hjúkrunarfræðinga, þá er rétt að benda á það að skortur er á hjúkrunarkennurum. A meöan þeir eru ekki nægilega margir hlýtur að vera erfiðleikum háð að sinna menntun stéttarinnar sem skyldi. Þá má einnig benda á, að framhaldsnám i allflestum sérgreinum hjúkrunar þarf að sækja til útlanda, þar með talið kennaranám. Slikt þykir að visu ekkert tiltökumál þegar ein- hleyp kona á i hlut eða karl- menn, hvort heldur þeir eru ó- kvæntir eða kvæntir, en allir vita hver viðhorfin verða ef gift- ar konur og mæður vildu taka sig upp og fara utan til 1—2ja ára náms. Að visu má e.t.v. vænta breyt- inga á þessum þætti mennt- unarmálanna hér heima, þvi Nýi hjúkrunarskólinn mun stofna til framhaldsnáms i a.m.k. einni grein hjúkrunar nú i -haust og er vonandi að þar sé aðeins upphaf að meiru og að fleiri sérgreinar bætist við, þ.á m. hjúkrun aldraðra. Þá er ég þess fullviss að ný- stofnuð námsbraut i hjúkrunar- fræðum við Háskóla Islands á eftir að verða til þess að stór- auka og bæta þá þjónustu, sem hjúkrunarstéttinni ber að láta i té. En þrátt fyrir þær umbætur, sem orðið hafa, þá er samt sem áður býsna margt sem þarf að breytast til betri vegar, eigi nokkur von að vera til þess að nægilega fjölgi i hjúkrunarstétt- inni. Hjúkrunarfélag Islands hefur frá upphafi reynt að beita áhrifum slnum á flestum þeim sviðum, sem hér hafa ver- ið nefnd og i sumum tilvikum orðið allvel ágengt en miður i öðrum. Að þvi er varðar aldraða sér- staklega, þá eiga þeir auðvitað rétt á hjúkrun algjörlega sam- bærilegri þeirri, er aðrir þjóðfé- lagsþegnar eiga að njóta og þvi megum við ekki gera neitt minni kröfur i þeirra tilviki. Hér er vissulega þörf úrbóta þvi málefni þeirra eru i ólestri og þjóðfélaginu til vansæmdar, eins og S.H.Ó. bendir á i bréfi sinu. Þó finnst mér ástæðulaust að geta ekki um það, þegar þessi mál eru til umræðu, að margir einstakiingar og hópar, bæði innan heilbrigðisþjónust- unnar og félagsmálastofnana og fleiri aðilar, hafa sýnt þeim mikinn áhuga og unnið þar ó- metanleg störf við allskostar ó- fullnægjandi skilyrði. Hjúkrunarfélag Islands hefur aldrei hindrað neinn i þvi að veita öldruðum eða öðrum að- stoð og umönnun, þó að þar hafi verið um ófaglærða ein- staklinga að ræða. Hinsvegar hefurfélagið mótmælt þvi að til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa sé ráðið fólk, sem ekki hefur til þess nauðsynlega undirbúnings- menntun, enda er slikt brot á lögum og sú þróun vart til þess fallin að leysa þann vanda, sem skortur á hjúkrunarfræðingum óneitanlega er. Reykjavik 26. júni 1975. Ingibjörg Helgadóttir formaður Hjúkrunarfélags lsla«ds.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.