Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. júli 1975. Staðan Orslit leikja I 6. umferð 1. deildar: Fram —Vikingur 1:0 1A —Valur 2:1 FH — KR 1:0 Og þá er staðan i 1. deild þessi: Akranes Fram Valur Keflavik FH Vestmannae. KR Vikingur 6-3-2-1-13:6 -8 6-4-0-2- 5:2-8 6-2-3-1- 7:4-7 6-2-2-2- 4:4-6 6-2-2-2- 6:13-6 6-1-3-2- 6:5-5 6-1-2-3- 2:4-4 6-1-2-3- 2:5-4 Markahæstu menn: Guðmundur Þorbjörnss. Val 4 Örn Óskarsson IBV 4 Matthlas Hallgrimsson. IA 4 Jón Alfreðss. gaf eftir Eins og skýrt var frá í Þjóð- viljanum fyrir nokkru, neitaði Jdn Alfreðsson fyrirliði 1A að taka sæti I landsliðinu og gaf hann þá skýringu að hann hefði ekki áhuga á að leika með landsliðinu. Siðan hafa forráðamenn landsliðsins legið f Jóni að endurskoða þessa afstöðu sina, þar sem hann er tvl- mælaiaust okkar besti mið- vallarleikmaður f dag hér heima. Og nú hefur Jón gefið eftir og samþykkt að taka stöðu Asgeirs Sigurvinssonar i landsleikjunum gegn norð- mönnum og sovétmönnum og ef til vill fleirum f sumar. —S.dór. Jón tekur sæti f landsliðinu. U-landslið í körfunni Islenska unglingalandsliðið i körfuknattleik sem keppir á EM i Grikklandi i sumar hefur verið valið og verður þannig skipað: leikir Erlendur Markússon IR 6 Þorvaldur Geirsson Fram 0 Þorkell Sigurðsson Fram 0 Ómar Þráinsson Fram 0 Bjartmar Bjarnason Snæfell 0 Rikharður Hrafnkelsson Val 5 Pétur Guðmundsson Val 6 Ósk ar B jarnason Árm. 5 Ómar Sigurðsson Árm. 0 Liðstjóri: Gunnar Gunnarsson. Fararstjórar: Páll JUliusson, Sigurður V. Halldórsson. Dómari meö i förinni verður Kristbjörn Albertsson alþjóða- dómari. Þjóðir sem eru með ts- landi i riðli eru eftirfarandi: Sovétrikin, Tékkóslóvakia Pólland, Austurriki og Skotland. Mótið mun standa frá 15. júli til 24. júli. Leikir Islands munu fara fram i borginni Saloniki i Noröurhluta Grikklands. „Þeir eru örugglega með næst- besta liðið” — sagði Jón Gunnlaugsson miðvörður eftir að ÍA hafði sigrað Val 2:1 „Þetta ererfiðasti leikur sem við höfum leikið í sumar og þeir eru örugglega með næst-besta liðið f 1. deild," sagði Jón Gunn- laugsson miðvörður IA eftir leik IA og Vals si. laugardag, það þurfti ekki að spyrja hverja Jón teldi besta, glettnin í svipnum sagði til um það. Og það er alveg rétt hjá Jóni, skagamenn hafa sjaldan þurft að hafa eins mikið fyrir sigri í sumar og að þessu sinni. Þeir höfðu yfir í leikhléi 2:1 og eftir að Sigurður Dagsson hafði varið vítaspyrnu frá Teiti Þórðarsyni á 1. mín. síðari hálf- leiks, þurftu skagamenn að taka á öllu sínu til að verja fengið forskot, enda léku þeir gegn hvössum vindi í s.h. og Valsmenn voru ágengir, en mjög vel skipulögð vörn skagamanna hratt m sóknarlotum Vals og leiknum lauk því með sigri IA 2:1, sanngjörnum sigri betri aðilans í leiknum. Mörkin 6. mln. Ingi Björn Albertsson tók aukaspyrnu og sendi boltann inni vitateig 1A, þar myndaðist þvaga og úr henni var skotið á markið.en Davið varði en missti boltann frá sér fyrir fætur Kristins Björnssonar sem skoraði með þrumuskoti sem dansaði inn- an á markstöngunum áður en boltinn fór i netið. 1:0. 9. min. Haraldur Sturlaugsson framkvæmdi aukaspyrnu á mið- linu. Hann skaut föstu skoti i átt að marki undan vindinum, Sigurður Dagsson hugðist hand- sama knöttinn en Jón Alfreðsson truflaði hann og boltinn flaug i markið án þess að nokkur kæmi við hann eftir aukaspyrnu Haraldar 1:1. 22. min. Varnarmaður Vals hugðistsenda boltann til Sigurðar Dagssonar markvarðar, Sigurði fipaðist að handsama boltann sem hrökk i stöng og Matthias sem fylgdi vel eftir náði að vippa honum i netið 2:1. Fyrir utan þessi þrjú mörk áttu bæði liðin nokkur mjög góð mark- tækifæri. Valsmenn áttu tvö opin færi, það fyrra átti Hermann Gunnarsson á 20. min. er hann stóð á markteig með boltann en var aðeins of seinn að skjóta og Davið Kristjánsson lokaði mark- inu vel og varði skot Hermanns þegar það loks kom. Hitt tæki- færið átti Ingi Björn um miðjan siðari hálfieik er hann komst inn- fyrir lA-vörnina en Davið varði meistaralega. Tvivegis i fyrri hálfleik var Matthias Hallgrimsson i dauða- færum en mistókst. Á 1. min. s.h. komst hann aleinn innfyrir Vals- vörnina en var of seinn aö skjóta og Dýri Guömundsson bjargaði i horn. Nokkrum sekúndum siðar var Árna Sveinssyni brugðið inn- an vitateigs og vitaspyrna dæmd. Teitur Þórðarson framkvæmdi hana en skaut á mitt markið og Sigurður Dagsson varði skotið. Kirby, þjálfari 1A lék að þessu sinni sama leikinn og á móti Fram. I siðari hálfleik þegar IA lék gegn vindinum tók hann framlinumann útaf og setti Þröst Stefánsson inná til styrktar vörn- inni. Þetta heppnaðist fullkom- lega öðru sinni hjá honum. Skagamenn með þá Jón Gunn- laugsson, Jón Alfreðsson, Björn Lárusson, Guðjón Þórðarson, Harald Sturlaugsson, Matthias og Teit sem bestu menn léku þennan ■ leik af miklu öryggi. IA var betri aðilinn i leiknum og átti sigurinn skilið. Valsmenn léku oft á tiöum vel saman útá vellinum einkum i fyrri hálfleik gegn vindinum. En þegar uppað markinu kom réðu framlinumenn Vals ekki við hina sterku vörn 1A og sóknin rann úti sandinn. Vörn Vals hefur oftast leikiðaf meira öryggi en að þessu sinni. Þeir Matthias og Teitur gerðu mikinn usla i henni, einkum gekk Valsmönnum illa að ráða við Matthias. en það bjargaði þeim hve eigingjarn Matthias var, vegna þess fór hann illa með margar sóknarlotur 1A. Bestu menn Vals voru þeir Albert Guð- mundsson eftir að hann kom inná, Dýri Guðmundsson, Hermann Gunnarsson, Ingi Björn og siðast en ekki sist fyrirliðinn Hörður Hilmarssdn. IBV— IBK 0:1 Ekkert markskot í seinni hálfleik! Leikur eyjamanna við keflvíkinga, sem fór fram i Eyjum sl. laugardag var að því leytinu sérstakur að ekki eitt einasta almenni- legt markskot leit dagsins Ijós í síðari hálf leik. Miðju- þófið var allsráðandi, kefl- víkingarnir lögðu alla á- herslu á varnarleikinn og tókst með því að varðveita fengið forskot úr fyrri hálfleik. Þeir Einar Gunnarsson og Karl Hermannsson léku ekki með kefl- víkingum i þessum leik. F'yrir- fram bjuggust þeir þvi ekki við stórum afrekum i þessum leik og sigurinn var þvi kærkominn. Vart getur hann þó talist sanngjarn, eyjamenn voru ákveðnari og sókndjarfari en lánið var ekki með þeim og þvi fór sem fór. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti, sóttu látlaust fyrsta stundarfjórðunginn, Upp úr einni slikri pressu eyjamanna fékk Ólafur Júliusson boltann, brunaði upp, gaf til Hilmars Hjálmarssonar sem vippaði lag- lega inn i markteig til Steinars. Þar stóð hann i dauðafæri og skoraði af öryggi. Eftir þetta jafnaðist leikurinn, Þegar Gylfi Baldvinsson var búinn að eiga 3 skot I stöng og út var honum skipt útaf um miðj- an sfðari hálfleik. Inn á I hans staðkom Albert Gunnarsson sem hafði heppnina með sér i rikara mæli en Gylfi og skoraði annað mark R.eynis bókstaflega um leið broddurinn fór úr sókn eyja- manna og keflvikingar voru fastir fyrir i vörninni með Gisla Torfa- son og Þorstein markvörð sem bestu menn. Gula spjaldið hjá Magnúsi Péturssyni dómara fengu þeir Þorsteinn Ólafsson og Grétar Magnússon. — gsp og hann hljóp inn á völlinn. Þar með var sigur Reynis A tryggður i leiknum gegn Viking Ó. Reynir fær þarna sin fyrstu stig og verður ekki annað sagt en að þau hafi verið verðskulduð og langþráð. Steinar skoraði eina mark IBK af öryggi. Fyrstu stigin til Reynis Á

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.