Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.07.1975, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 1. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Ættmóðir flestra grímseyinga lést 100 ára 5 œttliðir fylgdu henni til grafar Sl. laugardag var Inga Jóhannesdóttir jarðsett frá kirkjunni í Grimsey að viðstöddum flestum í- búum eyjarinnar og nokkrum ættingjum sem komu frá meginlandinu. Inga mun vera ættmóðir stórs hluta allra grímsey- inga. Hún lést frá fimm ættliðum/ sem af henni eru komnir og þar af búa fjölmargir af niðjum hennar í Grímsey. Inga Jóhannesdóttir var tæp- lega 101 árs er hún lést á sjúkra- húsinu á Akureyri. Henni hafði enst heilsa vel allt sitt lif og allt fram til þessa árs að þrótturinn tók að minnka og hlaut hún sið- an andlát i svefni 18. júni. Vant- aði hana þá aðeins tvo daga til að ná 101 ári. Inga varð landsþekkt eftir að Jökull Jakobsson átti við hana ákaflega eftirminnilegt viðtal i útvarpinu. Inga var fædd 20. júni 1874 á Þönglabakka i Þorgeirsfirði. Fyrri maður hennar hét Bjarni Gunnarsson en hann drukknaði i mars 1907. Attu þau hjónin fjög- ur börn. Siðari maður Ingu hét Guðlaugur Oli Hjálmarsson. Hann lést árið 1956 og áttu þau eitt barn saman. Inga kom fyrst til Grimseyjar árið 1914 og bjó hún ásamt Guðlaugi Óla að Bás- um i 15 ár, en að þeim tima liðn- um fluttu þau til Húsavikur og voru þar i fimm ár. Enn fluttu þau Inga og Guðlaugur Óli aftur til Grimseyjar og þar átti Inga heimili siðan. Að sögn Alfreðs Jónssonar oddvita fór jarðarförin fram á látlausan og virðulegan hátt. Séra Pétur Sigurgeirsson jarð- setti i góðu veðri, glampandi sól og logni. Meðfylgjandi mynd tók sj. er likfylgdin kom inn um kirk juhlíðið. —gsp Framsókn í Vestmannaeyjum Brýtur trúnað við kjósendur Kosnir sem vinstri menn en starfa sem hœgrimenn Framsóknarmenn i Vest- mannaeyjum hafa nú rofið vinstrasamstarf það, sem staðið hefur I Eyjum i niu ár og eru gengnir til fulls samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn þar. Við síð- ustu bæjarstjórnarkosningar i Vestmannaeyjum stóðu fram- sóknarmenn þó að sameiginleg- um framboðslista með Alþýðu- bandalaginu og i framhaldi af þvi fengu þeir kjörinn framsóknar- mann i bæjarráð, sem annan tveggja kjörinna bæjarfulltrúa af sameiginlega listanum. Fram að siðasta bæjarstjómar- fundi hafði Framsókn verið i meirihlutasamstarfi við Alþýðu- bandalagið og Alþýðuflokk, en á fundinum gerðu þeir samkomu- lag við Sjálfstæðisflokkinn um kosningu til bæjarráðs, og nefnda, svo og um kosningu for- seta bæjarstjórnar. Að sögn Garðars Sigurðssonar, alþingismanns og bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins i Eyjum, var og á þessum siðasta bæjarstjórn- arfundi lesinn upp málefnasamn- ingur framsóknar og ihalds, sem greindi frá framhaldi þeirra framkvæmda, sem unnið hefuf verið að. Á bæjarráðsfundi fyrir bæjar- stjórnarfundinn, var samþykkt að fela bæjartæknifræðingi og bæjarlögfræðingi að fara með framkvæmdastjórn bæjarins þar til nýr bæjarstjóri hefði verið ráð- inn, en á bæjarstjórnarfundinum féll þessi tillaga á jöfnum atkvæð- um. Þess i stað var samþykkt með atkvæðum hins nýja meiri- hluta, gegn atkvæðum minnihlut- ans, að bæjarráð færi með fram- kvæmdastjórn bæjarins þar til bæjarstjóri verður ráðinn, en um- sóknarfrestur um stöðuna rennur út þann 10. júli. Um þetta tiltæki framsóknar, sem mun vera sprottið af þvi, að þeir sjá enn ofsjónum yfir vel- gengni Alþýðuflokksins I siðustu bæjarstjórnarkosningum þar, sagði Garðar: — Eins og kunnugt er bauð Al- þýðubandalagið fram með Fram- sókn i Vestmannaeyjum siðast, K-lista. Hugmyndin að baki þvi var einfaldlega sú skoðun Al- þýðubandalagsins, að á þeim tim- um, sem þá voru, ættu menn að leggja niður flokkspólitiskar deil- ur og bjóða jafnvel allir sameig- inlega fram til bæjarstjómar. Samstaða náðist þó ekki milli fleiri aðilja en framsóknar og Al- þýðubandalags. Þegar ljóst var, að 2. maður af K-listanum var kominn i bæjarráð, þe. framsókn- armaður, á atkvæðum sem greidd voru Alþýðubandalaginu, og horfinn til samstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn, lét ég færa eftir- RÆTT VIÐ GARÐAR SIGURÐSSON faranditilbókará bæjarstjómar- fundi: „Kosið var fyrir rúmu ári til bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Nú hefur það komið i ljós, að ann- ar maður af K-listanum, Sigur- geir Kristjánsson, hefur gengið til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn án samráðs við okkur, meðfram- bjóðendur sina. öruggt má telja, að stór hluti kjósenda K-listans stefndi ekki að sliku samstarfi. Með þessari ákvörðun Sigur- geirs Kristjánssonar hefur hann brotið þann trúnað, sem mikill hluti kjósenda K-listans fól hon- um, þó ekki hafi verið um þetta neitt skriflegt samkomulag frem- ur en um neitt annað i tengslum við hið sameiginlega framboð. Þegar ekki eru gerðir skriflegir samningar i slikuni tilvikum gild- ir I staðinn svokallað heiðurs- mannasamkomulag. Teljum við Alþýðubandalagsmenn að með þessari ákvörðun hafi Sigurgeir Kristjánsson gengið gegn sliku samkomulagi. Auk þess þykir okkur Alþýðu- bandalagsmönnum það endan- lega ljóst, að með þessari ákvörð- un Sigurgeirs Kristjánssonar að ganga til samstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn hafi hann fyrir fullt og allt komið i veg fyrir, að nokkru sinni verði unnt fyrir aðra flokka að bjóða sameiginlega fram með Framsóknarflokkn- um.” Garðar sagði að sér virtist sem þetta uppátæki Sigurgeirs og framsóknarmanna mæltist ákaf- lega illa fyrir hjá miklum hluta kjósenda, enda væri þetta beint trúnaðarbrot við þá. Undir lok fundarins lét Garðar færa eftirfarandi til bókar: „Fulltrúi Alþýðubandalagsins vill lýsa yfir þvi, að þótt Alþýðu- bandalagið eigi ekki aðild að nú- verandi meirihluta muni það styðja að framgangi allra góðra mála, og miða afstöðu sina hér eftir sem hingað til fyrst og fremst við hagsmuni bæjarfé- lagsins, en ekki flokkspólitiska skiptingu i bæjarstjórn.” —úþ Það verður erfitt fyrir ókunnugan mann að taka við Magnús Magnússon. en ég mun aðstoða hann eftir þörfum verði þess óskað, sagði Magnús Magnússon bœjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem hœttir í dag — Það hlýtur að verða óskap- lega erfitt fyrir ókunnugan mann að taka við bæjarstjórastarfi hér I Vestmannaeyjum eins og málin standa I dag, svo mörg og flókin vandamál sem við okkur blasa, sagði Magnús Magnússon hinn vinsæli bæjarstjóri I Vestmanna- eyjum, sem Framsókn og ihald hafa sameinast um að bola burtu úr stöðu bæjarstjóra, er við rædd- um við hann i gær, I tilefni af þvi að hann hættir nú sem bæjarstjóri eftir 9 ára starf. — Ég geri mérfulla grein fyrir þvi að sá sem tekur við af mér þarf mikið til min að leita fyrst i stað, annað er óhugsandi og mér er alveg sama hver maðurinn verður, ég mun aðstoða hann eins mikið og hann óskar eftir. Þegar ég tók hér við bæjarstjórastöð- unni á sinum tima, talaði fráfar- andi bæjarstjóri ekki orð við mig ég fékk ekki einu sinni já eða nei ef ég spurði hann einhvers. Og það var nógu erfitt fyrir mig þá að þreifa mig áfram þótt allt væri með eðlilegu móti, hvað þá nú fyrir nýjan mann eftir allt það sem á undan er gengið. — Hvað veldur þvi Magnús að Framsókn snýst svona við nú? — öfund. Það er ekkert nema öfund i okkar garð fráþvi isiðustu kosningum. Þeir töldu okkur fá of mikið fylgi. Og þeir segja sem svo: ef þessu heldur áfram og á- ætlanir um uppbyggingu stand- ast, þá kæmi meirihlutinn mjög sterkur út i næstu kosningum, en framsóknarmenn munu gleym- ast. Ég hef bent þeim á það, að siðast voru alveg sérstakar að- stæður sem ekki verða fyrir hendi viö næstu kosningar en eftir sem áður héldu þeir sig við þetta. Hitt vil ég taka skýrt fram, að ég er sammála þvi sjónarmiði Sigur- geirs að það sé æskilegra þegar tveir eða þrir flokkar vinna sam- an að bæjarstjórinn sé utanað komandi maður. — Aftur á móti, eins og málin standa i dag hjá okkur, með öll þessi járn i eldinum, tel ég ekki rétt að skipta um bæjarstjóra nú. Framundan er til að mynda upp- gjör við Viðlagasjóð og það er svo mikið og flókið verk að það hlýtur að krefjast fullkominnar þekk- ingar á öllum þeim mörgu og flóknu málum sem þvi við koma, og það verður nær ógerlegt fyrir ókunnugan mann að fara i þessi mál. Það bjargar að visu mikið að bæjartæknifræðingurinn, og bæj- arlögmaðurinn eru góðir starfs- menn sem eru hnútum vel kunn- ugir en samt dugar það eitt ekki til. Þess vegna tel ég að þeir hefðu átt að láta okkur ljúka þessu mikla verki en lýsa þvi yfir fyrir næstu kosningar að utanaðkom- andi maður verði ráðinn bæjar- stjóri. — Hvernig er almennningsálit- ið i bænum vegna þessa máls? — Það eru örugglega margir ó- ánægðir með þetta. Allir sem við mig hafa talað eru það, en það er nú kannski ekki alveg að marka, mér er málið of skylt. En mér er sagt það af kunnugum að það sé megn óánægja með þetta. Og þá ekki siður það að Framsókn skuli nú taka höndum saman við Sjálfstæðismenn, þar sem Sigur- geir hafði lýst þvi yfir fyrir sið- ustu kosningar að samvinna við þá kæmi ekki til greina. Nú hefur þetta verið svikið og fólkið er mjög óánægt. — Nú tekur þú aftur við sim- stöðvarstjórastarfinu? — Já, ég geri það. Maður sest svo sem ekki i nein rólegheit þar, mjög margt á eftir að gera i sam- bandi við simamálin i Eyjum, þvi þótt kerfið sé komið I sæmilegt horf er mikið starf sem þarf að vinna þar. Það verður þó aldrei eins erilsamt og bæjarstjóra- starfið. — Þú sagðir mér einu sinni i vetur Magnús, að þú hefðir ekki tekið þér fri frá störfum nema sem svarar tveim vikum siðan fyrir gos, ertu ekki orðinn þreytt- ur? — Jú, ég verð að játa það, ég er orðinn lúinn og ætli ég láti það ekki eftir mér að taka mér eins og tveggja vikna fri i sumar. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.