Þjóðviljinn - 01.07.1975, Page 9

Þjóðviljinn - 01.07.1975, Page 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. júli 1975. FJÖLBREYTT 2. HEFTI RÉTTAR ER KOMIÐ ÚT í greininni um sjötta heimsþingiö er fjallaö um þessa viöureign Diml- trofs við nasismann. Annaö hefti timaritsins Réttar 1975 er nýkomið út og flytur fjölbreytt efni að vanda. Þetta hefti er mikið helgað alþjóðlegum við- burðum og þá sérstaklega fjallað um hinn söguríka sigur víetnama yfir banda- ríska herveldinu og lepp- um þess. Verður hér vikið að því helsta er um er f jall- að í þessu hefti. í leiðara timaritsins vikur rit- stjórinn Einar Olgeirsson nokkuð að ástandinu innanlands og þá sérstaklega átökunum i kjara- baráttunni m.a. togaradeilunni og aðgerðum rikisstjórnarinnar i verksmiðjumálinu. Siðan segir ritstjórinn: „Allri spillingu, óreiðu og vit- leysu i atvinnu- og fjarmálalifi er við haldið, meðan verkalýðurinn ris ekki upp gegn þvi pólitiskt og eigi aðeins „faglega”, með verk- föllum og kaupgjaldsbaráttu. Hin pólitisku og faglegu samtök verkafólks og launafólks alls þurfa aö taka höndum saman eigi aöeins I varnarbaráttunni gegn árásum afturhalds, — eins og geröist nú svo myndarlega i bar- áttunni gegn bráöabirgöalögun- um, — heldur og I sókn til þess aö stjórna . landinu i þágu hins vinn- andi fólks”. A titilblaði er birt mynd af Ho Chi Minh og tilvitnun i erfðaskrá hans, þar sem hinn aldni leiðtogi vietnömsku þjóðarinnar segir m.a.: „En hvað sem yfir dynur, verð- um við að vera ákveðnir i að berj- ast gegn bandarisku árásar- mönnunum uns fullur sigur er fenginn. Fljót vor, fjöll vor, fólk vort mun ætið verða, að Bandarikjun- um sigruðum munum vér reisa land vort úr rústum tiu sinnum fegra en fyrr. Hvaða erfiðleikar sem ku'nna að biða okkar, þá mun fólk vort örugglega vinna fullan sigur. Bandarisku heimsvaldasinnarnir munu verða að hverfa á brott. Föðurland okkar verður samein- að. Landar vorir i norðri og suðri munu sameinast undir einu þaki. Það verður táknrænn heiður lands vors að vera smáþjóð, sem i hetjulegri baráttu hefur sigrast á tveim voldugustu heimsvalda- stefnum, —hinni frönsku og ame- risku, — og innt af hendi mikils- vert framlag til þjóðfrelsishreyf- ingar heimsins”. Forsiða 2. heftis Réttar er einn- ig helguð sigri vietnömsku þjóð- arinnar, en káputeikninguna gerði sem jafnan fyrr Þröstur Magnússon, auglýsingateiknari, sem á sérstakt lof skilið fyrir ein- staklega góðar kápumyndir á heftum Réttar á liðnum árum. Vonbjartasti sigurinn. Einar Olgeirsson ritar siðan grein um sigur vietnamanna er hann nefnir: „Vonbjartasti sigur veraldarsögunnar og við.” Einn- ig er birt kvæði Jóhannes- ar úr Kötlum: „Samviska þjóðar- innar”. f greininni kemst ritstjór- inn m.a. þannig að orði: „Bestu menn Bandarikjanna höfðu varað þjóðina við að láta valdið stiga sér til höfuðs og minnt á hið fornkveðna að „dramb sé falli næst”. Er nú ljóst að loks eru Bandarfkin að byrja að læra. Ýms blöð þar bera þess merki. Stjórnmál er stundum skilgreind sem „list hins mögu- lega”. Bandarikin hafa þvi i 30 ár verið að reyna hið ómögulega, m.ö. orðum: ekki rekið pólitik, heldur fengiö hálfan heiminn til að elta óra eina.Manni kemur i hug við slikt það sem franskur stjórnmálamaður sagði eitt sinn við ungan son sinn: Þú munt sjá það, sonur minn, er þú eldist og undrast þá af hve hverfandi litlu viti heiminum er stjórnað. — Má- ski fara þá sumir fjölmiðlar is- lenskir aö átta sig á þvi að hafa vaðið i villu og reyk i 30 ár og leg- ið hundflatir fyrir ameriska áróðrinum. Mjög virðist þó efins að Morgunblaðið megni þar nokk- uð að læra. Það virðist enn syrgja hvern einasta fasista, er fellur af valdastóli.” Þá segir einnig: „Hetjuþjóð Víetnam sýndi það afburða hug- rekki að láta aldrei bugast sem þjóð, hvernig sem bandariskt hervald brenndi, eyddi og drap.” Siðan vikur Einar að baráttu is- lendinga gegn bandarisku her- veldi og rifjar upp ummæli Brynjólfs Bjarnasonar er hann lét falla er bandariskt herlið kom hingað 1951. En þar segir: „Við getum unnið sigur i Sigur vietnama— Skyldan við grænlendinga—og sa mfy I ki nga rstef na n aöalefni hins marxiska tímarits um þjóðfélagsmál þessari baráttu við hið ægi- legasta herveldi allra tima og við munum vinna þann sigur, aðeins ef við glötum ekki sál okkar .... Hættulegra en allar eyðileggingar i styrjöld væri það ef við glötum sál okkar, vit- und og vilja sem þjóð. Og þessi verðmæti getum við varðveitt, þó við eigum ekki þau vopn, sem Bandarikin beita. Og með þessum vopnum,sem munu reynast meiri en öll múgmorðstæki Bandarikj- anna, munum við sigra, ef við höldum lifi.” Sigur Vietnams sannar þessi orð hans. 1 heftinu birtir Njörður P. Njarðvik kvæði sitt: „Knatt- spyrnuvöllur i Santiago de Chile.” Hjalti Kristgeirsson fjallar á skem'mtilegan hátt um kjarasamninga, verðbólgu og kaupmáttinn i grein er hann kall- ar: „Aron, Bóas og Daniel og Ebenesar að auki i viðureign við xyz”. Hann kynnir greinina með eftirfarandi inngangi: „Aron, Bóas og Daníel eru 3 heiðursmenn i hinum fjölmenna hópi islenskra launamanna. Þeir áttu aðild að kjarasamningum við kaupgreiðendur sina i febrúar 1974, en i skjóli verðbólgu voru þeir samningar sviknir þannig að 15mánuðum siðar þarf krónutala kaupsins að hækka um l/3ja-2/3ju til að staðið sé við upphafleg á- kvæði. Hver ber sökina á þessum stuldi sem felst i rýrnun kaups- ins? Fánýtt er að skella skuldinni á verðbólguna, eitthvert hljóta verðmætin að renna. Ekki fær Ebeneser og félagar þeirra neitt i sinn hlut af þýfinu, en litlir ljótir karlar ,x, y og z, sjást hlaupa um með úttroðna vasa.” Erlingur E. Halldórsson á i heftinu tvær ljóðaþýðingar úr leikriti Brechts Móðirin. Það fyrra heitir Lofgerð um kommún- ismann en hið siðara Lofsöngur móðurinnar. Skyldan við grænlendinga Grein með þessu nafni eftir rit- stjórann rifjar upp afstööu islend- inga til þeirrar ákvörðunar dana að gera Grænland að amti i Dana- veldi og minnt á að helminga- skiptastjórnin 1953 fól sendinefnd íslands hjá Sameinuðu þjóðunum að sitja hjá er fjallað var um essa innlimun. Siðar er bent á, vernig allt stefnir i þá átt að Grænlandverðö algerlega ofurselt alþjóðlegu hringavaldi eftir inn- göngu dana I EBE. Vikið er að þeirri þjóðfrelsisbaráttu sem ungir grænlendingar hafa nú tek- ið upp og bent á hvernig danir arðræni grænlendinga. Loks segir um skyldu okkar að hjálpa: „Vér megum minnast þess nú, Islendingar, að oss þótti vænt um það, er neyð vor var mest, að út- lendir menn urðu til að taka mál- stað vorn. Þvi ber oss að skilja að Grænlendingar þarfnast slikrar hjálpar frá oss nú. Það er talað um skyldu vora sem tekjuhárrarþjóðar að muna eftir fátækum löndum hins „þriðja heims”. Vér höfum eitt slikt við bæjardyrnar, — Græn- land, — þó ekki sé farið að beri- ast þar sem i fyrri nýlendum Evrópuvelda i Afriku og Asiu.” A eftir greininni um Grænland er frásögn um fanga án númers i Suður-Vietnam og minnst er Bram Fischer sem nýlega lést i dýflissu fasistastjórnarinnar i S- Afriku. Þessi frægi lögfræð- ingur sem barðist alla ævi gegn apartheit-stefnunni, en var sjálf- ur hvitur. Um hann segir svo i greininni: „Hann sat dæmdur i lifstiðar- fangelsi i Pretoriu. Fyrir fanga- klefa hefur hann fórnað auði, hróðri, þægindum, tignarstöðu, — forréttindalifi i sjálfu forréttinda- þjóðfélagi hvitra manna. En anda hans verður ekki blót- að á bak við fangelsismúra. Hann er einn þeirra fáu hvitu. S.-Af- rikumanna, sem kunna að hafa hin fjölbreytilegustu lifsviðhorf og skoðanir i stjórnmálum og trú- arefnum, en eiga sammerkt i þvi að sætta sig ekki þegjandi við þjóðfélag, sem grundvallað er á mannvonsku, og láta ekki gróm þess á sér festa. En eins og þeim er misboðið er gjörvöllu mann- kyni misboðið ásamt þeim af ó- mennsku stjórnkerfi, sem afsiðar hvita og svarta og hefur öll æðri gildi mannlegs félags að háði og spotti. Lif Abrams Fischers er eldskirsla MANNS, — þess lifandi anda sem engin harðstjórn fær grandað.” Þýdd grein er um „Heims- valdastefnuna og þróunina i þriðja heiminum”, þar sem m.a. er komið inn á arðrán heims- valdasinna og þá nýju verka- skiptingu sem er að mótast i sam- skiptum rikra þjóða og snauðra. Sjöunda heimsþingið: Viðamesta greinin i heftinu er þó grein ritstjórans Einars 01- geirssonar um sjöunda þing Al- þjóðasambands kommúnista 1935 og sigurinn yfir fasismanum. Þriðjudagur 1. júli 1975. ÞJOÐVILJINN - StÐA 9 Forsiöa 2. heftis Réttar tileinkuö sigri vietnama. Þröstur Magnússon gerði kápumynd. Þetta var eitt merkasta þing Komintern, en á þvi var vikið frá fyrri einangrunarstefnu og tekin upp samfylkingarstefna gegn fasismanum. Einar sat sjálfur þetta þing fyrir hönd Kommún- istaflokks Islands og koma inn i greinina persónulegar minningar frá þinghaldinu. Einar rifjar upp hvaða persónur settu einkum svip sinn á þingið. En fyrst og fremst fjallar greinin þó um það, hvers vegna kommúnistar brugðust svo seint við hættunni af fasismanum og tóku svo seintupp samstarf við sósialdemókrata. Einar segir m.a. „Ýmsir nútimamenn dæma hart það andvaraleysi, sem sósialistar, einkum þýskir úr báð- um höfuðfylkingum verkalýðs- hreyfingarinnar, kommúnista og sosialdemókrata, sýndu gagnvart hættunni á sigri fasismans i Þýskalandi 1933. Það er að visu skiljanlegt að menn dæmi hart, — en þó skyldu þeir hinir sömu stinga hendi i eigin barm og at- huga hvcrnig menn bregðast nú við enn ægilegri hættum”. v,Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. En þegar við, sem upplifðum valdatöku fasismans og hrun þýskrar verkalýðshreyf- ingar, áttuðum okkur á hvað gerst hafði, þá var það bjartsýni 19. aldarinnar: trúin á óhjá- kvæmileika framþróunar, sem var brostin. Við sáum að sá möguleiki var til að allt yrði lagt i rústir, framfaraöfl mannfélags- ins eyðilögð með likamlegri út- rýnjingu forustuafla þeirra, jafn- vel mannfélagsskipaninni kippt aftur á bak um aldir. Spurningin, sem krafðist þá — og krefst enn — svars, er hvernig stóð á að kommúnistaflokkarnir megnuöu ekki að móta i tima rétta stefnu gegn fasismanum og hvað var um Komintern, uns það alþjóðasamband loks 1935 á 7. heimsþinginu mótaði þá sögulegu stefnu samfylkingarinnar. Við skulum ihuga þessi atriði gaum- gæfilega.” Þegar höfundur leitar svara við fyrrgreindri spurningu þá segir hann: „Sú afstaða,sem að minu áliti hefur valdið hinni róttæku sósial- istisku — þ.e. kommúnistisku — hreyfingu mestum skaða, er það, sem á erlendu máli er nefnt „sektirismus”, furðulegt sam- bland af ofsaróttækni, réttrúnaði og ofstæki — og tekur oftast á sig mikinn „vinstri” svip á yfirborð- inu og óskapast þá mjög gegn þvi, sem það kallar „endurskoð- unarstefnu” („revisionismus”). Hins vegar ber að muna að ein- mitt vinstri hreyfingin — kommúnisminn — i alþjóðahreyf- ingu sósialismans er til orðin i baráttu við sjálfa tækifærisstefn- una, sósialdemókratismann, þ.e. uppgjöfina fyrir burgeisastéttinni og þjónustustarfsemina við rikis- valdið, — og er þvi eðlilega alltaf betur á verði gegn slikri „hægri” stefnu en hinni „vinstri”. Góður sósialisti hatar ranglæti og kúgun auðvaldsþjóðfélagsins og fyrirlitur svikin við málstað- inn. En ef hann ætlar sem góður marxisti að leiða frelsisbaráttu verkalýðsins til sigurs, þá verður hann cinnig að geta hugsað skýrt og ákveðið með hliðsjón af öllum aðstæðum baráttuaðferðina i hvert sinn, meðal annars getað hiklaust ákveðið að verja borg- aralegt lýðræðisform hins rang- láta auðvaldsskipulags gegn fas- ismanum og i þvi skyni unnið með svikulum sósialdemókratiskum foringjum (og öðrum) (svo ekki sé talað um heiðarlegan sósial- demókratiskan verkalýð, sem trúir þeim enn og treystir), ef þeir fást til baráttu gegn fasism- anum.” Siðan lýsir Einar viðureigninni við þetta ofstæki og hvernig Dimitroff hafði forgöngu i barátt- unni fyrir samfylkingu. En höf- undur hefur jafnan samtimann i huga er hann rifjar upp þessa at- burði. Hann segir: „Reikningsskil Dimitroffs við hina „sjálfumglöðu ofstækis- stefnu”, „hinn forheimskvaða rétttrúnað”, við þá einangrunar- sinna, sem ekki skilja „að forusta kommúnistaflokks fyrir verka- lýðnum kemur ekki af sjálfu sér” — var mjög hörð.” „Forustu kommúnistaflokks verður hann að ávinna sér i bar- áttu verkalýðsins. 1 þvi efni duga engar yfirlýsingar um forustu- hlutverk kommúnista, til þess áð ná slikri forustu verður flokkur- inn að ávinna sér traust verka- lýðsins sökum daglegrar fjölda- starfsemi sinnar og réttrar stjórnmálastefnu” — segir Dimitroff i ræðu sinni. — Og þetta á enn erindi til fjölda kommún- istaflokka, m.a. var lögð sérstök áhersla á þetta atriði i sögulegum samþykktum miðstjórnar Kommúnistaflokks Tékkósló- vakiu i april 1968 (Dubcek-tim- anum)”. I lok greinarinnar fjallar höf- undur um samfylkingu á stór- veldasviði og kemur þar inn á baráttuna gegn fasismanum i seinni heimsstyrjöldinni og sigur- inn fyrir 30 árum. Loks bendir hann á þá hættu er enn vofir yfir mannkyninu frá þeirri yfirstétt er ræður yfir gereyðingarvopn- um. „Ekkert villidýr er grimm- ara en auðmaðurinn sem óttast um auð sinn og völd” og siðan beinir ritstjórinn skeytum sinum að bandariskri auðmannastétt. En um valdhafa i alþýðustórveld- um segir Einar: „Valdamenn al- þýðustórveldanna þurfa að var- ast að láta valdið — rikisvaldið — stiga sér til höfuðs. Valdið — rikisvaldið ekki sist — er i eðli sinu alger mótsögn við hugsjón jafnt sósialisma sem samfylking- ar, — en valdið, vald alþýðunnar, er forsenda fyrir framkvæmd hvortveggja hugsjónarinnar. Of- stæki það, sem vaidið getur skapað i alþýðurikjunum, hefur þegar leitt til hörmulegustu ill- verka i heimi sósialismans. Af þvi þarf að læra, og læra til fulls. Vald Sóvétrikjanna er undir- staða að valdi sósialismans i heiminum. Vald þeirra er það eina, sem heldur villidýrinu i Washington i skefjum. Bresjnef sýnir hæfileika sem stjórnskör- ungur stórveldis með samningum við Willy Brandt og Nixon. En hann á eftir að sýna sig sem mik- ill marxistiskur leiðtogi með þvi að ná samfylkingu við Mao og Dubcek. Þaö þarf vald til að semja um vopnahlé við voldugan andstæð- ing, en það þarf umburðarlyndi til að ná samstarfi við raunverulega samherja, sem hafa á ýmsum sviðum ólikar skoðanir.” Annað efni: Auk fyrrgreindra greina er að finna æviminningar um rúss- neska rithöfundinn Drabkinu og júgóslavneska kommúnistaleið- togann Veljko Vlahovic. Þá er birt stofnfundargerð Verkalýðs- sambands Norðurlands frá árinu 1925, auk þess innlend og erlend viðsjá og Neistar. Algróiö land þar sem áöur voru aðeins gróðurlausir melar A siðustu 3 árum hefur verið sáð i og borið á um 320 hektara af llrfoka landi norðan Sandár á I? iskups tungna a f ré tti. Svæði þetta er vestan Kjalvegar en norðan vegarins að Hagavatni. Uppgræðslan hefur verið kost- uð af þremur aðilum. Fjáreigend- ur, sem fara með sauðfé i afrétt- inn, hafa greitt um 1/4 hluta á- burðarins, Biskupstungnahrepp- ur hefur greitt annan fjórðung hans, en Landgræðsla rikisins hefur greitt helming áburðar og allt fræ og að auki kostað flutning og dreifingu. Framlög fjáreig- enda siðustu þrjú ár hafa numið samtals kr. 800420,— en Biskups- tungnahrepps kr. 809800.-. Þetta starf virðist bera góðan árangur, og er nú nær algróið land, þar sem fyrir 3 árum voru svo til gróðurlausir melar. Landið hefur ekki verið girt af, og er margt fé á þvi siðari hluta sum- ars. Ekki er að sjá að það valdi skemmdum en teðslan myndar frjósaman jarðveg. A fundi um landgræðslumál i Aratungu 16. júni sl. samþykktu fjáreigendur að leggja fram að sinum hluta andvirði allt að 20 tonna af áburði til áframhaldandi uppgræðslu á þessu svæði i sumar. Hreppsnefnd hafði áður samþykkt að Biskupstungna- hreppur kostaði önnur 20 tonn. Landgræðslan mun leggja fram 50 tonn á móti, allt fræ og kosta flutning og dreifingu. Hluta af á- burðinum verður dreift á land það, sem grætt hefur verið á sið- ustu árum, en hitt verður notað til áframhaldandi uppgræðslu á ör- foka landi. Með tilliti til fenginnar reynslu af uppgræöslu án girðinga gerði áðurnefndur fundur eftirfarandi samþykkt: — Almennur sveitarfundur um uppgræðslu, haldinn að Aratungu 16. júni 1975, varar við þeirri stefnu, að Landgræðsla rikisins girði stór flæmi afréttarlanda, þegar sýnt er að ekki er nægt fjármagn til að græða innan þeirra girðinga, sem þegar eru fyrir hendi. Bendir fundurinn á að hagstæð- ara er að girða minni girðingar og græða hraðar upp, þar sem rofabörð eru, en á örfoka landi verði grætt upp án þess að girtar séu sérstakar landgræðslugirð- ingar. Bendir fundurinn i þvi sambandi á reynsluna af upp- græðslu norðan Sandár á Bisk- upstungnaafrétti,— Allir þeir 30—40 bændur úr Biskupstungum, sem fund þenn- an sátu, samþykktu þessa álykt- un. EYJÓLFUR J. EYFELLS NÍRÆÐUR Á NÆSTA ÁRI „Held áfram að mála í næsta lífi sé þess kostur” — sagöi listmálarinn er hann kynnti yfirlitssýningu sína á Kjarvalsstöðum „Þessi botnlausa efnishyggja er aö gera út af viö flest f þessum heimi” segir Eyjólfur. „Ég hef alltaf veriö jafnaöarmaöur og strax sem barn skildi ég aldrei hvers vegna einn var Iátinn vera fátækur meöan aörir voru jafn rfkir og raun bar vitni.” ,,Ég hef málað myndir frá þvi ég man cftir mér” sagði Eyjólfur J. Eyfclls listmálari sem opnaði 28. stóra yfirlitssýningu að Kjar- valsstöðum. „Móðir min gaf mér stilabók sem ég átti að skrifa i mina fyrstu stafi en áður en mér tókst að skrifa einn cinasta staf var hver siða undiriögö fyrir teikningar. Þá var ég fimm ára og siðan hef ég fengist við mynd- list af fullum krafti. Siöustu 60 ár- in hef ég helgað mig myndlistinni algjörlega". — Hvað heldurðu að þetta séu margar myndir sem þú hefur málað um æfina? — Það er ómögulegt að segja. Þó er ég ekki frá þvi að þær nái jafnvel sjö til átta þúsundum. Mér hefur sem betur fer enst starfsþrekið vel. Ennþá get ég málað að vild og handstyrkurinn er slikur að ég á ekki i nokkrum erfiðleikum með penslana. Hver veit nema ég geti haldið áfram aö mála i næsta lifi, sagði Eyjólfur sem hefur frá barnæsku haft yfir að ráða rikum dulrænum hæfi- leikum og er i fösfu sambandi við framliðið fólk. „Ég tala oft við aldraðan framliðinn mann og að- spurður sagði hann mér að ég gæti málað að vild minni þarna hinum megin ef ég bara kærði mig um það.” Eyjólfur mun vera elstur núlif- andi listmálara. Hann hefur haldið fjölda sýninga, innanlands og utan auk þess sem hann hefur tekið þátt i samsýningum. Að þessu sinni sýnir Eyjólfur a.m.k. 125 myndir og eru þær allar i einkaeign og viða að komnar. Sýningin er opin til 6. júli daglega frá klukkan 16.00-22.00. A laugar- dögum og sunnudögum er hins vegar opnaö klukkan 14.00 og opið til 10. —gsp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.