Þjóðviljinn - 04.07.1975, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. júH 1975.
Nú förum við beint
á Ol-leikana 1976!
Fyrsti leikurinn í undankeppninni fer fram
nk. mánudag. Við sátum hjá í fyrstu umferð.
Landsleikur islendinga gegn
norðmönnum er sá fyrsti sem
landinn leikur i undankeppninni
fyrir Ol-leikana sem fram fara
næsta sumar. i riðli með okkur
eru norðmenn og rússar, en í
fyrstu umferð undankeppninnar
slögu norðmenn finnana út og
rússar sendu júgóslava út i kuid-
ann. islendingar sátu hjá i fyrstu
umferð og leikirnir við norðmenn
og rússa fara allir fram i sumar,
heima og heiman.
Fyrsti leikurinn fer fram nk.
mánudagskvöld og mætum við
þar norðmönnum. Vissulega eru
likurnar á þvi að islendingar
komist nú i fyrsta sinn á sjálfa 01-
leikana með knattspyrnulið sitt
miklar. En hitt ber þó einnig að
hafa i huga að þegar vonirnar
hafa verið hvað mestar hafa
skellirnir oft verið stærstir og þvi
er trúlega gott að vera ekki með
Að loknum þessum leik hafa öll
liðin i 2. deild leikið 6 leiki og er
staðan þessi:
Breiðablik 6 5 0 1 26 : 4 10
Þróttur 6 4 1 1 12 :6 9
Selfoss 6 3 2 1 13 :6 8
Armann 6 3 2 1 9 :5 8
Haukar 6 3 1 2 12 : 8 7
Völsungur 6 1 2 3 4: 12 4
Reynir A 6 1 0 5 5: : 18 2
Vikingur Ó 6 0 0 6 3: :24 0
Markhæstu menn:
Hinrik Þórhallsson Brbl.
Sumarliði Guðbjartss. Self.
Þór Hreiðarsson Brbl.
Guðjón Sveinsson Haukum
Ólafur Friðriksson Brbl.
Heiðar Breiðfjörð Brbl.
Elias Sveinsson sigraði I hátökki, stökk 1,95 m.
of mikla bjartsýni. Lið norð-
manna er sterkt, þeir sigruðu
finna i seinni leik liðanna með
fimm mörkum gegn þremur og
sýnir það beitta sókn og þá von-
andi skemmtilegan leik framund-
an hér á Laugardalsvelli.
Asgeir Sigurvinsson fær ekki að
leika með liðinu i Olympiukeppn-
inni þar eð hann er atvinnu-
maður. Engum kom það á óvart
en hins vegar kom það ekki i ljós
fyrr en i vikunni að Hermann
Gunnarsson, sem valinn var i 22ja
manna hópinn er ekki löglegur og
verður það aldrei vegna atvinnu-
mennsku hans i nokkra mánuði
fyrir löngu siðan. í stað hans var
Karl Hermannsson tekinn inn og
var hann siðan einnig valinn i 18
manna hópinn sem fer um helg-
ina til Þingvalla og dvelst þar við
æfingar fram að leik.
Jóhannes Eðvaldsson kemur til
landsins á sunnudaginn en Elmar
Geirsson er hins vegar væntan-
legur á laugardag.
Landsliðshópurinn verður
kallaður saman á laugardag og
verður ein æfing i Laugardalnum
áður en lagt verður af stað til
Þingvalla. Þá verður væntanlega
valinn 16 manna hópur en lands-
liðið sjálft hins vegar ekki
ákveðið fyrr en skömmu áður en
leikurinn hefst. A sunnudeginum
verður ekið til Laugarvatns á
æfingu þar.en gist verður á Þing-
völlum. A mánudaginn verður
einnig létt æfing á Laugarvatni en
siðan er haldið til Reykjavikur
klukkan 18.00.
Andstæðingar okkar i undan-
keppninni eru sterkir. Okkar
menn eru einnig sterkir en óhætt
mun að fullyrða að þeir komast
ekki langt nema með góðum
árangri á heimavelli. 1 leiknum
gegn a-þjóðverjum björguðu
ÁHORFENDUR sigrinum með
botnlausum krafti sinum og það
er nákvæmlega það sama sem
þarf að gerast I heimaleikjum
okkar gegn norðmönnum og rúss
um. Við eigum góðan möguleika
að komast i fyrsta sinn á Ol-leik-
ana og því má enginn liggja á liði
sinu. Allir knattspyrnuunnendur
verða að mæta á völlinn, — ekki
til þess að horfa á eingöngu
heldur einnig til þess að berjast af
eldmóði.
Dómarar verða sænskir. Að-
göngumiðasala fer fram við
Útvegsbankann og einnig á Akra-
nesi, Selfossi og i Keflavik.
—gsp
Völsungur náði
báðum stigunum
og Víkingur 0 er eftir á botninum
Nú syrtir i álinn fyrir Viking
ólafsvik sem situr nú eitt liða i 2.
deild á botninum með ekkert stig
eftir sex leiki af sjö I fyrri umferð.
Sl. miðvikudagskvöld sóttt
Völsungur Viking heim og
sigraði 2-1 i jöfnum og spennandi
leik. Sigurmark húsvikinga kom
á siðustu minútunum og skoraði
Hreinn Elliðason það beint úr
aukaspyrnu en hann kom ekki inn
á fyrr en rétt fyrir leikslok og var
þá töluvert haltur. Húsvikingar
hafa þvi ætlað að spara Hrein til
siðustu minútnanna, en það her-
bragð tókst fullkomlega.
Ingvi Stefánsson Á 3
Þorvaldur Þorvaldss. Þrótti 3
Ólafur Jóhannesson Haukum 3
ÍÞRÓTTIR
VIKUNNI
Knattspyma
Föstudagur 4. jdll
1. deild Laugardalsvöllur: Vlk—FH kl.
3. deild A Arbæjarvöllur: Fylkir—Leiknir —
3. deild A N jarftvlkurvöllur:
Njarövlk—Reynir —
3. deild B Garösvöllur: Vlöir—1R —
3. deild B Varmárvöllur:
Afturelding—Grótta —
20.00
20.00
Laugardagur 5. júll
2.deiid ólafsvíkurvöllur: Vlk 0—Þróttur — 16.00
2. deild Húsavlkurvöllur: Völsungur—Reynir
A — 14.00
2. deild Armannsvöllur: Armann—Haukar — 14.00
3. deild A Þorlákshöfn: Þór Þ-Grindavlk — 16.00
3. deild B Vik I Mýrdal: USVS—Stjarnan — 16.00
3. deild C Stykkishólmur:
Snæfell—Bolungarvík — 16.00
3. deild D ólafsfjaröarv.: Leiftur—KS — 16.00
3. deild D Akureyri: KA—Efling — 16.00
3. deild F Neskaupstaður: Þróttur N—KSH — 16.00
3. deild F Fáskrúösfjöröur:
Leiknir—Huginn — 16.00
3. fl. A Vestmannaeyjavöllur:
IBV—Vlklngur — 15.00
3. n. D Sauöárkrókur: Tindastóll—Leiftur — 16.10
4. H. E Sauöárkrókur: Tindastóll—I.eiftur — 15.00
5. fl. E Sauöárkrókur: Tindastóll—Leiftur — 14.00
3. n. D Akureyri: Þór—Völsungur — 16.10
4. n. E Akureyri: Þór—Völsungur — 15.00
5. ffc E Akurevri: Þór—Vöisungur — 14.00
3. n. D Siglufjöröur: KS—KA — 16.10
4. fl. E Slglufjöröur: KS—KA — 15.00
5. fl. E Siglufjöröur: KS—KA — 14.00
4. fl. A Vestmannaeyjavöllur: IBV—Fram — 14.00
4. n. D Þingeyri: HVl—Bolungarvlk — 16.00
Sunnudagur 6. júll
2. deild Kópavogsvöllur: UBK—Selfoss kl. 20.00
3. deild B Vlk I Mýrdal: USVS—Vlöir — 16.00
2. n. A Vestmannaeyjavöllur: IBV—KR — 15.00
3. n. E Fáskrúösfjöröur: Leiknir—Huginn — 16.10
4. n. F Fáskrúösfjöröur: Leiknir—Huginn — 15.00
5. n. F Fáskrúösfjöröur: Leiknir—Huginn — 14.00
3. n. E Héraösvöllur: Höttur—Þróttur N — 15.00
5. n. F Héraösvöllur: Höttur—Þróttur N — 14.00
4. n. F Eskif jöröur: Austri—Valur — 15.00
5. n. F Eskif jöröur: Austri—Valur — 14.00
Konur A Grindavfk: Grindavlk—Haukar — 14.00
— A Keflavlk: IBK—FH —14.00
— B Armannsvöllur: Armann—Þróttur —14.00
— B Stjörnuvöllur: Stjarnan—Fram — 14.00
5. n. A Vestmannaeyja völlur: IBV—Vlk — 14.00
Mánudagur 7. júll
Landsleikur — tsiand — Noregur/Finnland
3. deild F Seyölsfjöröur: Huginn—Þróttur
N kl. 20.00
Frjálsar Iþróttir
Laugard. 5. júll: Meistaramót pUta, telpna, stráka
og stelpna, Kaplakrikavöllur, Hafnarfiröi, kl. 14.00
fyrri dagur
Sunnud. 6. júlf: Meistaramót þeirra yngstu, Kapla-
krikavöllur, kl. 14.00, slöari dagur
Golf
5. júll: Leynir. S.R. mót. 18 holur m/forgjöf.
6. júlf: Leynir. S. R. mót 36 holur án forgjafar. Há-
marksforgjöf 13.
7. -3. júlf: Meistaramót allra klúbba.
A
L7
U
n
LJ
o
D
O
D
Liðið gegn norðmönnum
18 manna hópurinn sem
landsliðsnefnd hefur valið fyrir
leikinn gegn norðntönnum er
þannig skipaður: (aldur og
landsleikjafjöidi fyrir aftan)
Sigurður Dagsson Val
Arni Stefánsson Fram
30-11
21- 1
Gísli Torfason IBK 19-14
Jóh. Eðvaldss. Holbæk 24-12
Marteinn Geirss. Fram 24-22
Jón Péturss. Fram 24- 7
Jón Gunnl.ss. ÍA 25- 2
Janus Guðlaugss. FH 19-0
Björn Lárusson ÍA 30- 6
Ilörður Hilmarss. Val 22-3
Árni Sveinsson 1A 19- 1
Ólafur JúliussonlBK 23-12
Guðgeir Leifss. Vik. 23-24
Jón Alfreðsson ÍA 25- 1
Teitur Þórðarson 1A 23-13
Matthias. Hallgimss. tA 28-32
Karl Hermannsss. tBK 30-8
Elmar Geirsson Fram 26-16
Óskar Jakobsson vann besta afrek fyrri dags Reykjavlkurleikanna,
kastaði spjótinu 73,16 m. (ljósm. S.dór).
Reykjavíkurleikarnir:
Yngra fólkið sækir
á í frjálsíþróttum
Reykjavíkurleikarnir I frjáisi-
þróttum sýna svo ekki verður um
villst, að yngra fólkið er farið að
banka heldur fast á hjá þeim sem
trónað hafa á toppnum nokkur
undanfarin ár. Það sýnir til að
mynda árangur Þórdisar Gísla-
dóttur ÍR, sem sigraði Láru
Sveinsdóttur i hástökki á leikun-
um. Þærstukku sömu hæð, 1,55 m
en Þórdis var sigurvegarinn. Þá
sýndi unglingamet Sigurðar Sig-
urðssonar Árm. að það er aðeins
timaspursmál hvenær hann fer
framúr Bjarna Stefánssyni i
spretthlaupum. Bjarni sigraði að
visu á 22,0 sck. en Sigurður var á
22,1 sek.
Þá er Óskar Jakobsson, sem
enn er i unglingaflokki orðinn
einn okkar glæsilegasti íþrótta-
maður. Hann á ísi.iuetið I spjót-
kasti og hann setti nýtt u-met I
kúiuvarpi á leiknum. Og fleiri
sigla hraðbyri á toppinn.
Á ieikunum sigraði Jón S. Þórð-
arson i 400 m grindahl. á 57,2 sek.
Óskar i kúluvarpinu með 16,85 m.
Elias Svcinson i hástökki, 1,95 m
Erna Guðmundsdóttir i 200 m. hl.
kvenna á 26,4 sek. Friðrik Þór
sigraði i langstökkinu, 6,87 m.
Svandis Sigurðardóttir sigraði i
800 m hlaupi kv. á 2:30.9 min.,
Gunnar Páll i 800 m hlaupi karla á
1:58,6 min. Gunnar Snorrason i
3000 m hlaupi á 9:43,5 min. Guð-
rún Ingólfsdóttir i kúluvarpi kv.
10,95, Erna Guðmundsdóttir I 100
m grindahlaupi á 15,4 sek. og
sveit KR i 4x100 m boðhlaupi á
44,5 sek.
Þetta var á fyrri dag keppninn-
ar. —S.dór