Þjóðviljinn - 23.08.1975, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 -
Israelskir hermenn I Golan-hæðum — geta þeir einbeitt sér að sýrlendingum i næsta striði?
Ný viðhorf fyrir Miðjarðarhafsbotni:
Sitja egyptarhjá
í næsta stríði?
Þegar þetta er ritað eru nokkrar
horfur á þvi að nýtt bráða-
birgðasamkomuiag takist milli
Egyptalands og tsraeis um
skiptingu Sinaí-skaga. Ef af þvi
verður, afhenda israelar egypt-
úm talsvarða spildu ásamt með
Rúdeis-oliulindunum og fjalla-
skörðunum Gidi og Milta, sem
hafa verulega hernaðarlega
þýðingu. Enn er ekki með öllu
ljóst hverju egyptar lofa tsraei I
staðinn, en breska blaðið
Observer heldur þvi fram aö
þeir muni heita þvi skriflega að
taka ekki þátt i striði gegn
israel næstu þrjú árin, og að
þeim árum liðnum verði hægt
að framlengja þann vopnahlés-
samning um ár i senn.
Bandaríkin, sem leggja mikla
áherslu á að hafa vináttu bæði
ísraels og þeirra rikja
arabiskra, sem hafa tiltölulega
hægrisinnað stjórnarfar, róa
öllum árum að þvi að þetta
samkomulag verði að veruleika
og á það lagið ganga israels-
menn. Að launum fyrir undan-
látssemina við egypta mælast
israelsmenn nú til stóraukinnar
hernaðarlegrar og efnahags-
legrar aöstoðar frá Bandarikj-
unum næstu árin. Sagt er að
ísrael fari nú fram á þrjá
miljarða dollara næsta árið, og
er sú upphæð hvorki meira né
minna en fimm sinnum hærri en
ísrael fær i ár frá Bandarikjun-
um. Langstærsti hluti þeirrar ,
upphæðar fer til vopnakaupa,
samkvæmt Reuter-frétt. En það
verður ekki tsrael eitt, sem
hagnast á þeirri hjálp: hún ger-
ir að verkum að það verður
ennþá háðara Bandarikjunum
en verið hefur til þessa.
Báðir sjá sér
hag I að semja
Bæði Egyptaland og Israel sjá
sér mikinn hag i þvi að
Sinai-samningurinn nýi verði að
veruleika. Honum fylgir að visu
að vigstaða tsraels gagnvart
Egyptalandi versnar, en á móti
gæti ísrael fengið þvi framgengt
að Egyptaland, hernaöarlega
sterkasti andstæðingur þess,
stæði fyrir utan hugsanleg
framtiðarstrið tsraels og araba.
Egyptar hafa fyrir sitt leyti
sára þörf fyrir frið um langa
framtið. Efnahagur þeirra er
mjög bágur, að ekki sé meira
sagt, og veldur þvi meðal ann-
ars ör fólksfjölgun á litlu land-
rými og skortur á arðbærum
auðlindum. Egypska stjórnin
bindur nú vonir við að gera
Súes-skurð að nýju að arðbærri
umferðaræð og hafa stofnað til
mikilla framkvæmda á skurð-
svæðinu i þvi sambandi. Það er
nokkurn veginn öruggt að það
fyrsta, sem israelar myndu
gera I næsta striði við egypta,
væri að sprengja i mél og mask
allt það, sem egyptar hafa
byggt upp með súrum sveita og
gifurlegum tilkostnaði á skurð
svæðinu siðan októberstriðinu
lauk, og á það sinn þátt I linari
afstöðu egypta gagnvart Israel.
Auk þess gerir egypska
stjórnin sér vonir um að fá rif-
lega efnahagsaðstoð frá Banda-
rikjunum og oliuauðugum
Arabarikjum, einkum
Saudi-Arabiu, og ljóst er að
Bandarikin yrðu miklu greiðari
i samningum á þeim vettvangi
ef egyptar drægju úr hörkunni
gagnvart ísrael. Og riki eins og
Saudi-Arabia yrðu varla mjög
fús á að f járfesta I framkvæmd-
um I Egyptalandi, ef likur væru
til þess að þær framkvæmdir
yrðu eyðileggingunni að bráð I
striði, sem gæti skollið á áöur en
varði.
Egyptar eiga
sitthvað á hættu.
En egyptar eiga einnig ýmis-
legt á hættu viðvikjandi nýja
Sínai-samningnum. Fram að
þessu hefur þeim tekist að halda
einskonar pólitisku forustuhlut-
verki I arabiska heiminum, og
hefur sú aðstaða byggst á
mannfjölda þeirra, styrk
egypska hersins og jafnframt
þvi að pólitiskt séð hefur
egypska stjórnin löngum reynt
að fara bil beggja. arabiskra
rikja með tiltölulega róttækt
stjórnarfar eins og Sýrlands,
Iraks og Libiu og hinsvegar
Ihaldssamra einvelda eins og
Saudi-Arabiu og Jórdaniu. Ef
Sinai-samningurinn nýi þýddi i
raun að Egyptar drægju sig út
úr öllum þeim hernaðarátökum
við Israel, sem kynnu að
brjótast út næstu árin, er hætt
við að það hefði I för með sér að
önnur grannriki Israels — og þó
enn frekar palestinumenn — litu
svo á að egyptar hefðu brugðist
sameiginlegum málstaö araba I
deilunni við tsrael. Þetta myndi
að likindum hafa þær afleið-
ingar aö Egyptaland einangrað-
ist að meira eða minna leyti inn-
an arabiska heimsins og glataði
þar fyrrnefndu forustuhlutverki
sinu.
Sýrlendingar og
jórdanir
áhyggjufullir
Egyptar hafa reynt að sjá við
þessu með þvi að fá þvl
framgengt i yfirstandandi
samningaumleitunum að
Israelsmenn skuldbindi sig til að
gera hliðstæðan samning við
Sýrland um Golan-hæðir, en svo
er að heyra á fréttum að ekkert
verði úr þvi, enda ljóst að
Israelsmönnum er miklu
óljúfara að sleppa einhverju af
Golanhæðum sem eru á næstu
grösum við Israelskar byggðir,
en spildu af Sinai-eyðimörk.
Það þarf þvi varla aö taka
fram að Sýrland litur yfirstand-
andi samningaumleitanir
Israela og egypta illu auga og
sama er ekki einungis að segja
um baráttusamtök palestinu-
manna, heldur og Jórdaniu,
sem þó hefur yfirleitt verið til-
tölulega hægfara gagnvart
ísrael og vinsamleg Bandarikj-
unum. Hússein konungur þar á
nýlega að hafa látið i ljós að
hann óttist, að Sadat hyggist nú
draga Egyptaland út úr sameig-
inlegri fyllingu Arabarlkjanna
gegn Israel og láta Sýrland — og
ef til vill Jórdaniu — ein um það
að heyja næsta strlð við ísrael.
En fleiri og fleiri gerast nú til að
spá því, að enh eitt striðið fyrir
Miðjarðarhafsbotni sé óhjá-
kvæmilegt. Kveikjan að þvi gæti
sem best orðið Golanhæðir, sem
sýrlendingar eðlilega vilja fá
aftur sem hluta af sinu landi, en
Israelsmenn telja sig ekki mega
missa vegna þess að þær komi
að gagni sem hllfðarsvæði fyrir
byggðir þeirra I Galileu.
Enn óvist hvort
samið verður.
Fái israelsmenn þvi
framgengt að egyptar skuld-
bindi sig til að hafast ekki að I
hernaði gegn þeim næstu árin,
ættu þeir hinsvegar að standa
vel að vigi i næsta striði, ef af
þvi verður. Miðað við reynslu
undanfarinna stríða myndu
sameinaðir herir sýrlendinga og
jórdana varla standast Israels-
mönnum snúning, og ólíklegt
væri að stuðningur frá írak — ef
hann fengist að einhverju marki
— myndi breyta miklu þar um.
Ennþá er þó engan veginn vlst
að af Sinai-samningnum nýja
verði. Það eru ekki einungis
sýrlendingar, jórdanir og
palestinumenn, sem hafa illan
bifur á honum, heldur og sterk
öfl bæði I Egyptalandi og ísrael.
I egypska hernum er öfl, sem
eru á móti frekari samningum
við ísrael nema aö á móti fáist
full trygging fyrir þvl að öllu þvi
svæði, sem Israel tók af egypt-
um 1967, verði skilað, og hægri-
öflin i Israel telja að samning-
urinn þýði alltof mikla eftirgjöf
við egypta og láta það nú I ljós
með háværum og ekki ofbeldis-
lausum mótmælum.
dþ.
Túrisminn
gengið von-
um framar
Nú fer að siga á seinni hlutann
af ferðamannatimabilinu og þvi
fannst okkur tilvalið að hlera ofan
i þá sem mest afskipti hafa af þvi
að laða erlenda ferðamenn til
landsins og beina þeim i réttan
farveg um byggðir og óbyggðir
landsins.
Fyrst höfðum við tal af Birni
Vilmundarsyni forstjóra Ferða-
skrifstofu rikisins og spurðum
hann hvernig vertiðin hefði geng-
ið.
— Hún hefur verið töluvert
betri en i fyrra. Við sjáum á töl-
um um fjölda þeirra útlendinga
sem koma til landsins að þeim
hafði fjölgað um örfá prósent i
júlilok og liklega verður ágúst-
mánuður betri. Ég verð þó að
viðurkenna að við bjuggumst við
meiri aukningu þvi i fyrra varð
mikill samdráttur vegna kreppu-
ástandsins.
— Þið skipuleggið margar
ferðir útlendinga um landið.
— Já, við vorum með 24 hring-
ferðir um landið, við höfum nefnt
þær Grand Tour around Iceland i
auglýsingum erlendis. 1 þeim er
gist á Edduhótelum, Hótel Húsa-
vlk og Hótel Höfn. Þessar ferðir
hafa verið mjög vinsælar og þátt-
taka i þeim góð. Auk þess skipu-
leggjum við ferðir um Suðurland,
hálendið og önnumst hópferðir
fyrir erlendar ferðaskrifstofur
þannig að alls hafa ferðirnar ver-
ið um 100 i sumar. Þetta er svip-
aður fjöldi og i fyrra en fjöldinn i
þeim hefur verið töluvert meiri.
Einnig má nefna að við höfum
skipulagt tvær stórar ráðstefnur
hér á landi, ráðstefnu norrænna
búvisindamanna sem um 800
manns sóttu og nú stendur yfir
ráðstefna norrænna lögfræðinga
sem telur um 1.100 þátttakendur.
Ég gæti trúað að þessar ráðstefn-
ur skiluðu um 100 miljónum króna
inn i landið I erlendum gjaldeyri.
— Nú, svo fórum við út i að
auglýsa vikuferðir um landið
fyrir islendinga þar sem gist er á
Edduhótelunum. Islendingar
hafa verið fremur tregir við að
gista á hótelunum en þessar ferð-
ir gáfust mjög vel, það hafa á
þriðja hundrað fjölskyldna not-
fært sér þessa þjónustu en hún
gerir ráð fyrir að menn fari á eig-
in bilum. Einnig gerðum við til-
raun með að skipuleggja 8 daga
hringferð um landið fyrir islend-
inga þar sem ferðast var með rút-
um og gist á Edduhótelum. Voru
farnar tvær slikar ferðir og full-
bókað i báðar. Er ætlunin að
fjölga þessum ferðum næsta
sumar.
— Hvernig hefur útkoman á
Edduhótelunum verið?
— Hún var mjög góð i júli en
ágúst var siðri. Þar hafði lokunin
á Múlakvisl þó nokkuð að segja en
svo hefur veðrið ekki verið sem
best. En um heildarútkomuna á
skrifstofuna er litið hægt að segja
fyrr en upp er staðið. Það veldur
okkur töluverðum erfiðleikum að
þurfa að segja til um verðlag i
september fyrir næsta ár, við
verðum að skipuleggja starfsem-
ina fyrir næsta sumar núna en
hver getur sagt fyrir um hvernig
verðlagið verður þá? Það þýðir
samt ekki annað en að vera bjart-
sýnn og vona að næsta vertið
Rœtt við Björn
Vilmundarson
hjá
Fe rðas k rifs tofu
ríkisins
og Geir Zoega
verði ekki siðri en þessi. Núna um
áramótin munum við opna
landkynningarskrifstofu i Banda-
rikjunum. Við höfum samstarf
við hin Norðurlöndin um slika
skrifstofu þar til i fyrra þegar
samdrátturinn fór að segja til sin.
Nú höfum við gert nýjan samning
og betri og höfum fengið leyfi til
að taka upp samstarf á nýjan
leik. Við munum þvi hafa okkar
fulltrúa úti i Bandarikjunum frá
næstu áramótum, sagði Björn að
lokum.
Ferðaskrifstofa Geirs Zoé'ga
hefur skipulagt ferðir útlendinga
hingað til lands rúmlega eina öld
og er reyndar umboðsaðili hinnar
þekktu ferðaskrifstofu Cook en
Thomas Cook hefur verið nefndur
faðir þess túrisma sem nú tröll-
rlður heimsbyggðinni. Við spurð-
um G°ir hvernig sumarið hefði
borið sig.
— Það hefur gengið vonum
framar. Við höfum ekki skipulagt
fleiri ferðir en vanalega en þátt-
taka i þeim hefur verið mun betri.
Þá komu hingað mun fleiri
skemmtiferðaskip en i fyrra.
— Og hvernig er útlitið fyrir
næsta sumar?
— Það er gott ef ekki verður
allt vitlaust i verðlagsmálum. Við
eigum von á mun fleiri skemmti-
ferðaskipum en I sumar en ferðir
þeirra eru oft skipulagðar mörg
ár fram i timann. —ÞH
sunnudagur —
smáauglýsingar:
lægsta verð