Þjóðviljinn - 23.08.1975, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. ágúst 1975
Breiðablik í
1. deild
Þróttur átti aldrei möguleika
Breiðabhik tryggöi sér
fyrstu deildar sæti á næsta
ári með glæsilegum sigri í
óbeinum úrslitaleik við
Þrótt í gærkvöldi.
Þessi tvö lið áttu ein
möguleika á sigri fyrir
leikinn og var þetta
þvr endanlegt uppgjör.
— Það er greinilega betra liðið
sem er að sigra i þessum leik —
sagði Sölvi Óskarsson þjálfari
Þróttara þegar staöan var orðin
4:0 i lok siðari hálfleiksins. —
Fyrstu deildar draumurinn hjá
okkur er þó alls ekki búinn, ennþá
eigum við möguleika á sigri gegn
neðsta fyrstu deildar liðinu. Við
erum búnir að berjast við að
vinna fyrstu deildar sæti i niu ár
og við gefumst þvi ekki upp fyrr
en i fulla hnefana—.
Breiðavlik lék af mikilli skyn-
semi i erfiðu leikveðri i gær-
kvöldi. Nýi grasvöllurinn var
rennandi blautur og hávaðarok
gerði leikmönnum enn erfiðara
fyrir. Hinrik Þórhallsson skoraði
fyrsta mark leiksins snemma i
fyrri hálfleik og skömmu siðar
lék hann laglega upp vinstri kant-
inn, og sendi siðan á Þór
Hreiðarsson i dauðafæri. Þór
þakkaði fyrir sig með góðu skoti
sem endaði i marki Þróttara.
Þannig var staðan i leikhléi, 2:0.
1 siðari hálfleik, léku Blikarnir
frekarundan vindinum og var þá
um nær látlausa pressu að marki
Þróttara að ræða. Heiðar
Breiðfjörð skoraði þriðja markið
eftir laglegt samspil i gegnum
vörn Þróttara og ólafur Friðriks-
son gulltryggði sigurinn er 15
minútur voru til leiksloka með
fjórða marki Breiðabliks.
A siðustu sekúndum leiksins
skoraði Sverrir Brynjólfsson fyrir
Þrótt og flautaði ágætur dómari
leiksins, Guðmundur Haraldsson
leikinn af áður en Blikarnir höfðu
stillt sér upp á miðjuna.
Eins og áðúr segir voru yfir-
burðir Breiðabliks töluverðir.
Trúlega efast enginn um að þeir
eru vel að sigrinum komnir. Liðið
hefur farið af öryggi gegnum Is-
landsmótið og þeir fjölmörgu
Kópavogsbúar sem mættir voru
til að hvetja sina menn tóku þátt i
innilegri gleði þeirra að leik
loknum. ~8SP
uppskárulaunerfiðisinsmeð íslandsmeistaratitli
Þessi mynd var tekin i fyrrakvöld af Isiandsmeisturum Þróttar i 5. flokki. Strákarnir hafa æft saman
núna i 5 ár, þeir byrjuðu saman i 6. fiokki og nú uppskáru þeir laun eriðisins. Það gekk þó ekki átaka-
laust, leiknir úr Breiðholti náði að sigra þá i sumar i riðiakeppninni og þurfti þvi aukaleik milli liðanna
um rétt til þátttöku i úrslitunum. Þar sigraði Þróttur og skeiðaði siðan i gegnum úrslitin þar til bikarinn
var I höfn. 1 hreinum úrslitaleik mættu þeir Val og sigruöu með þremur mörkum gegn tveimur. Fyririiði
er Sigurður Helgi Hallvarðsson og þjálfari Tryggvi Geirsson. Ljósmynd: Einar. —gsp
Þeir hafa æft saman í 5 ár
„Eg er þrumu lostinn
yfir þessum fréttum”
— Nei það er litið nýtt
sem ég get sagt þér í bili —
sagði Tony Knapp lands-
liðsþjálfari er við
hringdum í hann í gær til
þess að afla nánari frétta
af þeim orðrómi að KR-
ingar hyggist meina
honum að fara með lands-
liðinu i haust. Þjóðviljinn
greip þessa f rétt nokkuð úr
lausu lofti í fyrradag og
birti i blaðinu i gær en nú
virðist það nokkurn veginn
staðfest að hún eigi við
haldgóð rök að styðjast.
— Ég hef ekki enn náð sam-
bandi við stjórnarmenn i KR en
þessu heyrist hvislað af æ meiri
ákafa svo að ég hef vart ástæðu til
annars en að leggja trúnað á það
að orðrómurinn sé réttur. Þetta
virðist vera rétt en þó á ég ein-
hvern veginn bágt með að trúa
þvi að jafn mikið félag og KR er
og hefur verið, leggi sig niður við
hluti eins og þennan .
— Mér skilst á öllu að það sé
aðeins leikur KR við næstefsta lið
i 2. deild sem ég mundi missa af
ef ég færi út og ef KR endaði á
botninum i 1. deild. Ef hægt er að
fresta þeim leik þar til ég kem
aftur get ég ekki séð nokkra
ástæðu fyrir KR að banna mér að
fara. Ég eyði aldrei meiru en i
mesta lagi fjórum dögum i undir-
búning fyrir hvern leik svo að
verði leikurinn settur á meira en
fjórum dögum eftir að ég kem
heim ætti ekki að vera neitt þvi til
fyrirstöðu að ég fari i landsliðs-
ferðina.
— Vissulega var viðbúið að
þetta vandamál kæmi upp en ég á
ekki von á öðru en að sameiginleg
lausn finnist sem báðir aðilar geti
sætt sig við, þ.e. KSÍ og KR. I
landsliðsferðinni nær tveggja ára
starf mitt fyrir KSl hámarki og
það verður ekki átakalaust að
þurfa e.t.v að sitja heima.
— Ég er ekki i vafa um að hægt
verði að ná samkomulagi ef báðir
segir Tony
Knapp og á
bágt með að
trúa því að
KR hyggist
kyrrsetja sig
aðilar hafa áhuga fyrir þvi. Fólk
sem virðir knattspyrnuiþróttina
og er í forystuhlutverkum ætti
ekki að láta svona lagað koma
upp, þetta á að leysast i krafti
samstarfsvilja og gagnkvæmd
skilnings á þörfum hvors annars.
Ég er hræddur um að landsliðið
geti ekki misst mig i þessum
leikjum, það er ekki hlaupið i það
hlutverk að stjórna liðinu og
undirbúa fyrir þrjá erfiða leiki.
— Ég er steini lostinn yfir þvl
sem ég er að heyra um þessar
mundir. Ég hélt að ef þetta
vandamál kæmi upp yröi það
leyst átakalltið I snarheitum. Ég
hef verið með landsliðið I tvö ár
og neita þvi ekki að ég er stoltur
af árangri mínum. Ég held lika að
öll islenska þjóðin sé stolt af
landsliöi sinu og þvi sem viö
höfum gert. Maður hefði þvi átt
von á þvi að öllu yröi fórnað til
þess að gera landsliðið eins sterkt
og frekast er unnt.
— En eins og ég segi, — enginn
hefur haft samband við mig enn.
Ég hef heyrt þessu fleygt viöa að
og hef þvi ekki ástæðu til annars
en að trúa þessu. En mér finnst þó
aö ég hefði átt að vera fyrsti mað-
urinn sem fengi að heyra þetta, —
það er litið gaman að fá ekkert að
vita nema I gegnum blaðamenn
og fólk úti á götu sem stendur
þessu máli fjær en ég sjálfur.
Víkingur ísl.meistari
Vikingur tryggði sér I fyrrakvöld nafnbótina „Islandsmeistari utanhúss” með þvi að sigra Fram i
útslitaleiknum með 17-14. Lengi vel leit þó ekki gæfulega út hjá Vfkingum því í byrjun siðari hálfleiks
höfðu Framarar hvorki meira né minna en fimm marka forystu, 12-7. Þá kom hins vegar dauður kafii
hjá Fram, Vikingur skoraði 7 mörk og komst 114-12 forystu. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Víkingur
vinnur utanhússmótið.
Um þriðja til fjórða sætið léku Valur og Haukar og sigruöu þeir fyrrnefndu með miklum mun, 21-13.
—gsp
Tvö ný heimsmet
Tvö ný heimsmet hafa litið
dagsins ljós. Sovéska frjáls-
Iþróttakonan Faina Melnik rauf
70 metra múrinn I kringlukasti i
Sviss fyrir skömmu og bætti eigið
met verulega er hún kastaði 70.20
metra. Langþráöur draumur
hafði þar með ræst — aö þessu
hafði hún stefnt I allt sumar.
Þá kom einnig gott heimsmet I
sundi hjá Tim Shaw. Hann synti
400 m skriðsund á 3.53.32 og bætti
eigið heimsmet um nokkur
sekúndubrot. Shaw er aðeins 17
ára gamall og þykir að sjálfsögðu
geysilega lofandi sundmaður.