Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 10

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 10
ÍOSÍÐA— ÞJóÐVILJINN Sunnudagur 21. september 1975. Undanfarin ár hefur áróður fyrir trimmi, skokki, megrunarkúrum og öðrum „velferðarþjóð- félagsráðstöf unum" orðið æ þyngri. Fólk hefur gert sér Ijósari grein fyrir mikilvægi þess að mæta þægindum og hreyfingar- leysi með einhvers konar skrokkæf ingum til að verja sig gegn hjartaslagi, margasári, stressþreytu og líkamlegu hruni. íþróttaf élögin hér á íslandi hafa í auknum mæli lagt rækt við almenningstíma, þar sem ekki er hlaupið og æft með keppni eingöngu fyrir augum. Sérstakir lei kf i m istímar fyrir almenning eru orðnir al- gengt og æ vinsælla fyrir- bæri og er það einkum kvenþjóðin sem hefur not- fært sér þann möguleika á heilsurækt. En það er fleira til en kerf isbundnar leikfimis- æfingar. Menn geta einnig farið í judó, badminton, borðtennis og aðrar iþróttagreinar, þar sem gerter ráð fyrir f leirum en þeim einum, sem vil ja æfa næstum hvert einasta kvöld með keppni og verðlaun í huga. Við hringdum í nokkra aðila sem bjóða almenn- ingi upp á einhvers konar heilsurækt. Mikið vantar upp á að hér sé um tæm- andi úttekt á slíkum félögum eða fyrirtækjum að ræða, en þó má fá nokkuð glögga mynd af þeim möguleikum sem fyrir hendi eru á komandi vetri. —gsp ALMENNINGSIÞROTTIR Júdódeild Ármanns með frúa rleikf im i og júdóæfingar Ekki er ótrúiegt að Júdódeild Ármanns sé cinn stærsti aöilinn sem býður upp á leikfimi og heilsurækt fyrir aimenning. Auk júdósins, scm i vetur verður i fyrsta sinn skipt i æfingaflokka og keppnisflokka, er sérstök frúar- leikfimi fyrir þær konur sem ckki hafa hug á að æfa eingöngu eftir júdókerfinu. 1 samtali við Reimar Stefánsson, formann deildar- innar, kom fram að tilbúningur vetrardagskrárinnar er langt kominn. Sagði Reimar að almenn leikfimi væri þegar hafin og siðan byrjuðu júdóflokkar i byrjun október. Hverju námskeiði er lokið af á einum og hálfum mánuði og er þvi verið að skrá fólk allan veturinn. Nýir bætast stöðugt við og aðrir falla út. Aðstaða júdó- deildarinnar er að Ármúla 32 i sérstökum sal sem þar er. Er æft þar meira eða minna allan daginn og fram eftir kvöldi. Gufubað og ljós eru fyrir hendi til ókeypis afnota og einnig geta þeir sem vilja keypt sér nudd. er það þó einkum hugsað fyrir konurnar sem þarna æfa annað hvort i frúarieikfimi eða júdó. Fyrir karlana er eingöngu boðið upp á judóæfingar enda eru þær að verulegu leyti byggðar upp á almennum leikfimis- æfingum. I vetur verður hins vegar i fyrsta sinn skipt i tvo aðalflokka, annars vegar fyrir þá sem vilja æfa judó með einhvers- konar keppni fyrir augum og hins vegar fyrir þá sem eingöngu vilja styrkja skrokkinn og halda við heilsunni. 1 Armúla 32 er opið nær allan daginn frá morgni til kvölds og þar eru frekari upplýsingar veittar og tekið við þátttökutil- kynningum. Siminn þar er 83295. Verð fyrir hvert timabil, 6 vikna langt, er krónur 3.500 og eru tveir timar i hverri viku. gsp Kaffisopi og Karmen-rúllur fylgja meö Heiisuræktin IIEBA i Kópavogi hefur starfað i nokkur ár og er til húsa að Auðbrekku 53. t samtaii við annan eigandann, Margréti veröa æ vinsælla verkefni hjá íþrótta- félög- unum Sölvadóttur, kom fram að nokkuð frábrugðin tilhögun er á starfinu þar og t.d. þvi, sem iþrótta- kennararnir i húsi Jóns Þor- steinssonar bjóða upp á. Eingöngu er um kvennatima að ræða hjá Hebu og fer þar fram alhliða leikfimisþjálfun. Að hverjumtima loknum er unnt að fá þægindi á borð við snyrtingu, hárþurrku, karmenrúllur o.fl. Saunabað mun einnig vera á staðnum. Heilsuræktin Heba skipuleggur einnig sérstaka megrunarkúra fyrir konurnar og ef þess er óskað er ekki látið nægja að keyra þær áfram i megrunaræfingum heldur einnig útbúinn sérstakur matseðill. I hverjum flokki eru siðan veitt verðlaun til handa þeim sem taka af sér flest pundin. bað er ekki svo litið i húfi i þessari megrunarkeppni, fyrir utan það að kilóunum fækkar, sem trúlega er það mikilvægasta, eru verðlaunin sem keppt verður um strax i haust hvorki meira né minna en ferð tii Kanarieyja á fyrsta flokks hótel með fyrsta flokks fæði. Vonandi að pundunum fjölgi bara ekki um of þar. Aðspurð sagði Margrét að verðið væri tæplega fimm hundruð krónur fyrir hvern tima. Hvort það teldist dýrt eða ekki vildi hún ekkert segja um, slikt yrði að meta þegar þjónustan hefði verið reynd og ávöxtur starfsins kæmi i ljós. —gsp „Besta leikfimin er trúlega sú, aö annast allt viöhald á skíöaskálanum í Skálafelli” iþróttaféiág kvenna hefur nú starfað i fjörutiu ár. i spjalli við formann félagsins, Friði Guðmundsdóttur, kom fram að á vegum félagsins fer fram fieira en lcikfimisæfingar i gamla Miðbæjarskólanum. öðru hvoru er stormað með þær konur, sem áhuga hafa á skiðaiþróttinni, upp i Skálafeli. Þar er skroppið á skíði, nauðsynleg trésmiðavinna vcgna viðhalds á skáianum lcyst af hendi og hellt upp á kaffisopa i sjálfboðavinnu handa þvi fólki scm notfærir sér þá skiðaaðslöðu sem fyrir hendi er i Skálafelii. — Þetta • er hin ágætasta leikfimi — sagði Friður. Við náum lika með þessari sjálfboða- vinnu og ýtrasta sparnaði peningum sem lækka reksturs- kostnað félagsins töluvert. Iþróttafélag kvenna býður upp á leikfimiskennslu fyrir konur i tveimur aldursflokkum. Annars vegar eru stúlkur á aldrinum 12- 17 ára og hins vegar er frúarleik- fimisflokkur. Vetrinum er skipt i tvö þriggja mánaða timabil og reiknaði Friður með þvi að verðið fyrir hvort timabil yrði fjögur til fimm þúsund krónur. Kennari i vetur verður Sigrún Siggeirs- dóttir og hefur hvor flokkur tvo tima i viku, á mánudags- og fimmtudagskvöldum. — Fyrir nokkru vorum við einnig með sérstakan flokk i skokki — sagði Friður. Aðstöðu fyrir hann höfðum við I Baldurs- haga (undir stúkunni við Laugar- dalsvöll). Nú höfum við misst það húsnæði þannig að skokkflokk- urinn hefur lagst niður. Júdó, badminton, fimleikar og frúarleikfimi lþróttafélagið Gerpla i Kópa- vogi er nú að hefja sitt fimmta starfsár. Peildir i þessu félagi eru fjórar, júdó, fimleikar borðtennis og badminton. Sveina Sveinbjörnsdóttir, for- maðir Gerplu, sagði að i öllum deildum væri fólk, sem ekki æfði með keppni fyrir augum heldur eingöngu til þess að taka þátt i skemmtilegum leik um leið og heilsufarið nyti góðs af. Einnig væri á vegum fimleikadeildar- innar sérstakur frúarleikfimis- flokkur og á sinum tima hefði verið reyynt að halda úti öðrum flokki fyrir karla. Ahuginn þar reyndist þó ekki nægur. Gerpla rekur starfsemi sina einkum i iþróttahúsunum tveimur i Kópavogi. Einnig hefur verið notast við aðra staði, s.s. iþróttahús KFUM fyrir Judóið og borðtennisið fer allt fram i Laugadalshöll. Vetrinum hjá Gerplu er skipt i tvennt eins og svo viða annars staþar. Þátttökukostnaður er mismunandi eftir deildum og sagði Sveina að eingöngu væri miðað við að ná inn fyrir hús- kostnaði, sem hefur aukist mjög undanfarið. Tekið er við þátttökutil- kynningum hjá formönnum ein- stakra deilda en það eru þessir aðilar: Fimleikar og frúar- leikfimi: Þórunn Isfeld Þorsteinsdóttir i sima 42015. Badminton: Karl M. Karlsson i sima 43090. Judó: Anna Hjalta- dóttir i sima 17916. Borðtennis: Guðrún Einarsdóttir I sima 43054. gsp

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.