Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. september 1975.
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
viö vinsæl lög
Tökum lagið
Sæl nú!
I dag tökum við fyrir annað kvæði eftir Joe Hill. Lagið, sem einnig er
eftir hann, munu sjálfsagt fæstir þekkja.en ég vona að þið getið lesið
ykkur fram úr nótunum. Hljómarnir heita öðrum bókstöfum en við eig-
um að venjast hér i þættinum og mun ég því setja okkar merkingu inn á
textann en samsvarandi hljóm yfir :.ótunum i sviga aftanvið.
EF AÐ STRÍÐSINS
FLOKK SKAL FYLLA
e(EM) B7 (H7)e B7
Á hverju ári er kastað fé
e D G
i kanónur og tundur
a(AM) G D
til landvarna þótt lagður sé
F(IS)7 B7
á lýðsins tugþúsundir
e B7 e B7
fjötur skorts og fátæktar
e C G
og þótt falli margir ungir.
C a G
Þvi skal ekki um þjóðardramb,
A7 D7
en þetta heldur sungið:
G D7 G
Ef að striðsins flokk skal fylla,
c D7 G
fáninn rauði er merki vort
C G
og byssunni ég beina vil að
A7 D7
böðlum auðs er skopu skort.
G D7 G
Verkamenn og verkakonur,
A7 D B7
vinnuaflsins stolta lið.
e a e
Risið upp til athafna
a A7
öreigar þvi skyldan kallar
D7 G
fyrir frjálsræðið.
Og þvi er byssa og bryndreki
i borgum inn i landi.
Þar sem enginn óvinur
fær ógnað dauða og grandi?
Ef ástæðan er ekki ljós
gakk öreigi til striðsins.
Rústum þetta þjóðfélag.
Það er hagur lýðsins.
Ef að striðsins flokk skal fylla o.s.frv.
Hljómar:e(EM), B7(H7),D,D7, G,C, a(Am), F(Is) 7, A7,
Und wurden zerstreul
unter alle Völker.
Die nachbiblische Gaschichte des
judischen Volkes. Sonderaus
gabe. Droemer Knaur Munchen
1974.
Höfundurinn hefur sett saman
fjölda bóka alþýðlegs fróðleiks,
hann er vinsæll i sinu heimalandi
og viðar, margar bækur hans
hafa orðið metsölubækur. Hér
segir hann sögu gyðinga eftir að
þeir höfðu glatað föðurlandi sinu
og dreifðust um allar jarðir.
Þetta er vel sögð saga, enda efnið
sögulegt. Gyðingar urðu að búa
sem sérstök þjóð innan um aðrar
þjóðir og streituðust við að halda
lögmálið þrátt fyrir ofsóknir og
innrætta andúð á þeim meðal
flestra þjóða. Trúarbrögð gyð-
inga treystu samheldni þeirra og
jafnframt einangrun og vissan
um að þeir voru guðs útvalin þjóð
varð sterkasta voppn þeirra i of-
sóknunum. Höf. telur að sivökul
kennd þeirra fyrir þjóðernislegri
sérstöðu sinni 'og lögmálinu hafi
orkað þvi að þeir héldu sérleika
sinum sem þjóð, þótt þeir hefðu
ekki þjóðtungu sér til styrktar.
Lokakaflarnir fjalla um gyðinga-
morð þjóðverja á striðsárunum
og fyrir striðið og stofnun þjóð-
r'ikis gyðinga. Myndir, töfiur og
skrár fylgja i texta og i bókarlok.
The Age of
Absolution
164R—1775
Maurice Ashley. History of the
Western World. General Editor:
John Roberts. Weidenfeld &
Nicolson 1974.
Bókaflokkurinn History of the
Western World, er vottur stöðugr-
ar endurskoðilnar sögunnar. Rit-
stjóri flokksins starfar við há-
skólann i Oxford. Leitast er við að
tjá og túlka höfuðatburði evr-
ópskrar sögu i sex bindum, sem
hefjast með siðmiðöldum og lýk-
ur með árinu 1973. Þetta bindi er
það þriðja i röðinni og kemur út
fyrst. Höfundurinn hefur sett
saraan nokkrar bækur um 17. ald-
ar sögu. Með vestfalska friðnum
hefst nýtt timabil i Evrópu,
Frakkland varð voldugasta riki
álfunnar, Sviþjóð verður stór-
veldi og Holland er loks viður-
kennt af stórveldunum. Einveldi
réttlætt með guðs náð verður hug-
sjón landstjörnarmanna. Jafn-
framt hófst menningarbylting,
sem bylti um rikjandi heims-
mynd og hugmyndum i guðfræði
og heimspeki og visindum. Efna-
hagsleg útþensla Evrópu hefst
fyrir alvöru á þessu timaskeiði.
Meginbreytingin varð i landbún-
aðarrekstri, markaðsbúskapur
tekur við af sjálfþurftarbúskap,
og höfðu þær breytingar sem
fylgdu þeirri kerfisbreytingu rót-
tækust áhrif þegar frá leið, þar
sem meginhluti ibúa álfunnar
lifði af landbúnaði. Höfundurinn
tengir saman efnahagslegar og
menningarlegar forsendur að
þeim breytingum, sem urðu á
timaskeiðinu. Myndaval er gott,
bæði svart-hvitra i texta og lit-
mynda, sérprentaðra.
A Shadow on Summer
Christy Brown. Secker & War-
burg 1974.
Sögusviðið er New York og
landsetur i Connecticut. Aðalper-
sónan er ungur irskur höfundur,
Riley McCombe að nafni, sem
hefur slysast til þess að skrifa
metsölubók, sem bandariskur út-
gefandi hans hyggst notfæra sér.
McCombe var fram til þessa ó-
kunnur ibúi fátækrahverfanna i
Dyflinni. Tvær konur koma til
sögunnar, sem verða ástfangnar
af höfundinum. Ast kvennanna og
einmanaleiki listamannsins er
þemað i þessari skáldsögu, sem
hefur sér til ágætis lýriskan stil
og málsnilld. Þessi skáldsaga er
vel þess virði að hún sé lesin,
flokkast ekki tii billegri afþrey-
ingarbókmennta. Onnur bók höf-
undar, Down all the dáys, vakti
athygli, einkum vegna stilsins og
i þessari sögu nýtur still höfundar
sin enn betur.
Hugvitssemi
tjallans
Hvernig eiga menn að spara
hitunarkostnað i skólum nú á
þessum siðustu og verstu timum
orkuverðbólgu? Yfirvöld i
Berkshire County á Bretiandi
hafa fundið sitt svar: þau hafa
ákveðið að stytta sumarleyfi i
skólum um eina viku og bæta
þessari viku við jólaleyfið.
Fórnfús faðir
Það er ekki að spyrja að
foreldrakærleikanum. Prófessor
einn japanskur óttaðist mjög að
dóttir hans kynni að falla á inn-
tökuprófum i Tsuda háskólanum.
Hann ákvað þvi að taka próf þetta
i hennar stað og dulbjó sig þvi
sem ung stúlka og fór þannig
búinn á vettvang. Skórnir komu
upp um hann.
Tölva mótmælti
Það er ekki hægt að láta þriggja
ára stúlkubarn fá ökuskirteini,
sagði tölvan, og neitaði að fram-
lengja ökuskirteini Maud Taull.
Enda hafði töivan verið mötuð á
þvi, að Maud væri fædd 2-3-72.
Vesalings tölvan gat að sjálf-
sögðu ekki vitað, að kona þessi er
einhver elsti bilstjóri i Bandarikj-
unum — fædd annan mars árið
1872.
Magnaður
ástareldur
Átján ára stúlka frá Bristol i
Englandi neitaði alls ekki sekt
sinni, þegar hún kom fyrir rétt,
sökuð um að hafa kveikt i
sælgætisbúð sem hún vann i. Hún
hafði með aðstoð vinkonu sinnar,
tvisvar sinnum efnt til ikveikju i
búð þessari.
Stúlkan játaði, að hún hefði gert
þetta vegna þess, að hana hefði
langað svo agalega mikið til að
horfast i augu við slökkviliðs-
mann einn, sem hún var stór-
hrifin af. Þessar heitu ástir
kostuðu fyrirtækið 190 þúsund
sterlingspund.
Rosknir
Tarsanar
F'jórir ekta Tarsanar hittust
fyrir skömmu undir voldugri
frumskógarplöntu i Los Angeles
til að heiðra höfund Tarsan-
bókanna, Edgar Rice Burrughs.
F'undur þessi átti sér stað i til-
efni þess, að hundrað ár eru
liðin frá þvi að Burroughs
fæddist. Vöðvakarlar þessir fjórir
minntust dagsins með þvi að reka
upp hið fræga öskur sem Tarsan
er látinn reka upp þegar hann
kallar á fila sina i kvikmyndum.
Mennirnir eru James Pierce, 75
ára, Johny Weissmuller 71 árs,
Buster Grabbe, 67 ára}og Jock
Mahoney, 67 ára. Öskur þeirra
var dæmt gott og gilt.
Skrýmsli boðið á kvennafar
Margar lilraunir hafa mcnn gcrt til að berja auguin eða festa á filmu
skrýmslið fræga, sem sagan hermir að búi í vatninu Loch Ncss i skot-
landiNú siðast á að gabba skrýmslið með meintri þörf þess fyrir kynlif
og félagsskap.Búið var til paþpaskrsýmsli, hálft tonn á þyngd, var þvi
gcfið nafnið Ncllie og siðan ýtt á flot i vatninuEn að sjálfsögðu lét liið
Iifsreynda skrýmsli i Loch Ness ekki blekkjust af svoddan tiktúrum.