Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 16

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJiNN Sunnudagur 21. september 1975. Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Nýja dilkakjötíö á markaðinn: Þekkirðu gæðastimplana Dilkakjötið er nú væntanlega komið i verslanir en það hefur nú hækkað um 33,6% i heilum og hálfum skrokkum, eða úr 292 krónum i 390 krónur. Súpukjötið hefur hækkað um 31,7% læri 30,9% Kótilettur um 29,7% en lifur hjörtu, nýru og slátur með sviðn- um haus hækkar mun minna eða um 13,1—13,6%. Vert er að benda neytendum sérstaklega á að þess- ar fæðutegundir eru ekki siður hollar en sjálft dilkakjötið og vonandi notfæra þeir sér aö þær hækka mun minna. Jónmundur Ólafsson, kjöt- matsformaður hjá Framleiðslu- ráði landbúnaðarins sagði i viðtali við blaðið að dilkakjöt væri flokkað i III. gæðaflokka, en væri selt i' tveimur verðfiokkum, þ.e. I.og II. gæðaflokkur saman og III. siðan á öðru verði. Svo mun Stimpillinn á kjötinu hefur ekkert meö gæðin aö gera, aðeins miöinn sem festur er við skrokkinn einnig vera nú, en hækkunin á II. verðflokki (III. gæðaflokki) mun vera svipuð og á I. verðflokki hér að framan. Hins vegar er nokkuð magn ennþá til i landinu af eldra dilkakjöti, þ.e. frá þvi i fyrra og enn hefur ekki verið auglýst sér- stakt verð á þvi. Sagði Jón- mundur að svo hefði aldrei verið til þessa, en það kjöt er á þvi verði sem prósentu hækkunin er reiknuð af, en það var skráð 2. júni' s.l. Það er sem sagt full ástæða til þess að gæta sín með haustinu, þegar farið verður að frysta nýja kjötið, svo maður kaupi ekki það gamla á nýja verðinu. Og vilji maður hins vegar fá sér eldra kjöt, á það sem sagt að fást á gamla verðinu. Eru þess ekki dæmi að gamalt dilkakjöt hækki á milli verðlags- ára, en hins vegar er nautakjötið sem var á Utsölunni um daginn og er ekki nærri uppurið, á sama verði og nýja nautakjötið. Þurrkaöir ávextir Nú eru sannarlega siðustu for- vöð að tina sér „grös” fyrir veturinn og þurrka, þvi frostið feliir þau flest. Þeir sem eru dug- legir við að safna og rækta grös, kryddjurtirog blóm ættu að koma sér upp þurrkhengi fyrir jurtirnar. Ef einhvers staðar i eldhúsinu er auður veggur er til- valið að setja þar furufjöl og skrúfa i hana króka. Siðan er settur limmiði við hvern krók og skrifað á nafn jurtarinnar. Jurt- irnar eru svo bundnar i' litil knippi og hengdar á krókinn. Best er að hafa þurrkhengið fjarri gufu og reyk, þ.e. ekki vð eldavélina. A þetta má svo hengja ræktaðar kryddjurtir, steinselju, sólselju, graslauk ofl, og einnig blóðberg (timian), hvannablöð, vallhumal, smárablóm eða önnur villt islensk blóm, sem eru góð t.d. i jurtate. Það er vissara að gæta vel að inn, þegar maður kaupir nýja miðanum sem festur er á hækil dilkakjötið. Gæðamerkingar á dilkakjöti þekkja vist fæstirog spurðum við Jónmund hvernig dilkakjötið væri flokkað. Heilir skrokkar eru merktir með miða sem festur er við skrokkinn, en eftir að búið er að saga hann niður verður neytandinn að treysta kaup- manninum. Stimplarnir sem eru oft t.d. á hrygg og öðru niður- skornu kjöti hafa ekkert með gæðastimpil að gera, heldur eru stimplar um heilbrigðisskoðun á kjþti. Miðarnir sem festir eru við skrokkana eru liklega sjaldnast skiljanlegir hinum venjulega neytanda, nema með Utskýring- um, amk ekki ef um er að ræða merkinguna, sem gerð er sér- staklega fyrir utanlandsmarkað. Þá eru þyngdarflokkarnir 5 og gæðaflokkarnir III. Þyngdar- flokkamir em 6, 2, 8, 4 og T, en gæðaflokkarnir DI, D II, DIII, ! Þessir seinni stimplar munu alltaf vera á kjötinu, og það eru sem sagt þeir sem kaupandinn á að gæta að ef hann ætlar að kaupa heilan skrokk. Þá er væntanlega best að fá sér DI, þótt DII sé á' sama verði. DIII eru svo heldur ódýrari. DIII eru þó ekki skrokk- ar af eldri kindum, heldur þykja skrokkarnir hafa lélegri kjötgæði. Þs Látið frá ykkur heyra Við viljum hvetja lesendur til þess að skrifa okkur eða hringja ef þeir hafa hug- myndir i sparnaðarhornið, geta t.d. bent á skemmtilega heimatilbUna hluti, ódýra vöm o.s.frv. og einnig ef þeir vilja kvarta undan einhverju (t.d. verðlagi, þjónustu, vöru) og komum við þvi þá á fram- færi i „gæti verið betra”.Látið heyra frá ykkur, siminn er 73586 og ef þið skrifið þá merkið bréfin „Til hnifs og skeiðar”. fataskápur Þessi ágæti fataskápur er smfðaður af hagleiksmanni nokkrum, sem fékk hug- myndina er hann smiðaði leik- tjöld, en þau eiga sem kunnugt er að vera bæði létt og ódýr ef vel á að vera. Sem sagt skáp- urinn er gerður úr hessian- striga, sem strekktur er á málaða timburgrind. Hliðarnar á skápnum, ef hann ekki passar inn i herbergið á miili veggja, má gjarnan hafa úr bæsuðum eða máiuðum spónaplötum. Skápurinn er fallegur og ódýr og auk þess safnast ekkí i hann mikið ryk, þar sem vel loftar i gegnum strigann. Inn i svona skáp má svo setja tilbúnar skápainnréttingar, sem fást i verslunum, eða slá sjáifur upp spónaplötum með listum, sem körfum eða hillum er svo rennt upp á. A ekki einhver hliðstæðan hagleiksgripheima hjá sér, sem myndi sóma sér vel i sparnaðarhorninu? Betri lyfjaupplýsingar Gramur maður hringdi i okkur og vildi koma á framfæri kvörtunum varðandi upplýsingar um lyf. Hann hafði fengið lyf við magakveisu hjá lækni. Þegar hann svo tók lyfið, kom I ljós að það virkaði eins og svefnmeðal. Vinnudagurinn var ónýtur, þvi þótt hann hætti að kasta upp, svaf hann fram á skrifborðið sitt hálfan daginn. Þannig verka einnig t.d. sjóveikistöflur og vildi hann beina þeim tilmælum til lyfja- verslunar að hUn skyldaði að skýrt væri frá aukaverk- unum lyfja á umbúðunum. Hannsagðist t.d. hafa verið ger- samlega óökufær eftir þessa lyfjatöku. Ef til vill er skyldan hér íýrst og fremst læknisins, en þó væri ekki óeðlilegt að slikar upplýsingar stæðu á umbúðum, svo tryggt væri að þær kæmust til skiía.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.