Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 17
Sunnudagur 21. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Þegar oliukreppan svo-
nefnda skall á fóru menn
víða um lönd að leita að
nýjum ráðum til að spara
eldsneyti: sumir af hug-
sjónaástæðum, aðrir í von
um framtíðargróða. í Dan-
mörku hafa t.d. vakið at-
hygli tilraunir arkitekta-
hjóna, Kirsten og Per All-
ing, sem hafa komið sér
upp tækjum til að nýta sól-
arhita, og eru farin að
framleiða þau — í smáum
stíl enn— fyrir áhugasama
nágranna.
Útbúnaður þessi er næsta ein-
faldur.Hann er svartmálaður ál-
kassi með gleri yfir og einangrun
undir.I kassanum eru svartmál-
aðar leiðslur, fullar af vatni.Þeg-
ar sólin hefur hitað vatnið i leiðsl-
unum að vissu marki fer það inn.á
hitakerfi hússins og aftur út i sól-
18 fermetra útbúnaður eins og þessi hér annast alla hitaþörf einbýlis.
húss á sumrin og er góð búbót á veturna J^ermetrinn kostar nú um 30
þús Jslenskar kronur.
Sólarhitun í Danmörku
ina þegar það hefur skilað sinum
hita.
Þau hjón telja að þessi einfaldi
útbúnaður sé einkum hagkvæmur
ef að hann er ekki stærri en svo,
að hann nægir fjölskyldu i ein-
býlishúsi yfir sex heitustu mánuði
ársins, en er að öðru leyti hafður
til að draga úr oliubrennslu að
vetrarlagi.Ef menn koma sér upp
um 40 fermetra „sólarofni” þá er
einbýlishús þeirra sjálfu sér nóg
árið um kring, en á móti mælir
það, að með þessu móti er lagt i
allmikla fjárfestingu sem fram-
leiðir á sumrin allmikinn auka-
hita, sem ekki er unnt að nota til
neins.
Einn fermetri sólarofns getur
'skilað allt að 3000 kilókalorium á
dag.
JÓN L. ÁRNASON
Nú kemur þriðji þátturinn af
þessari gerð og kemur hann viku-
lega framvegis.
Jón L. Árnason er með allra
efnilegustu ungiingunum núna og
hefur árangur hans á undanförn-
um árum sýnt það þvi i haustmóti
T.R. 1973 sigraði hann unglinga-
flokkinn og siðan 11. flokk á skák-
þingi Reykjavikur 1974. Á skák-
þingi íslands 1974 lenti hann i
þriðja sæti með 4 1/2 vinning af 7
mögulegum.
Núna komu riðlamótin og lenti
hann i 2.—4. sæti i c. riðli og siðan
3. sæti i b-riðli, og það verður cf-
laust ekki langt þangað til að
hann teflir í landsliðsflokki þvi
Jón sem er aðeins 14 ára er á
hraðri uppleið. Og hér koma tvær
skákir með^kýringum eftir Jón
L.
Jón L. Árnason—Þór Valtýsson.
Skákþing íslands 1975
1. e4 c6
2. d4 d5
3. Rc3 dxe
4. Rxe Bf5
5. Rg3 Bg6
6. Rle2
(Sjaldgæfur leikur, en engu að
siður góður).
6. ... e6
7. h4 h6
8. Rf4 Bh7
9. Bc4 Rf6
(9. ...Bd6 svarar hvitur með Rg-
h5).
10. 0-0 Bd6
11. Rxe6!?
(Þetta er hugmyndin með 6.
leik hvits.)
11. ... fxe6
12. Bxc6
(Hvitui' hefur tvö peð upp i
mann og góð sóknarfæri.)
12. ... Bg8?
(Lélegur leikur. Hvitur sækist
einmitt eftir uppskiptum á hvit-
reita biskupunum þvi þá veröur
riddarinn stórveldi á f5. 1 9. ein-
vigisskák þeirra Tals og Botwinn-
iks (1960) varð framhaldið:
12. ...Dc713. Hel Rbd714. Bg8 +
Kf815. BxB HxB16. Rf5 og ef sú
staða er borin saman við stöðuna
eí'tir 15. leik hvits i skákinni sést
að svartur glatar tveimur tempó-
um á 12. ...Bg8).
13. Bxg8 Hxg8
14. Hel + Kf—
15. Itf5
(Þessi staða er hliðstæð stöð-
unni i fyrrnefndri skák milli Tal
og Botw. nema svartur hefur
hvorki leikið Dc7 né Rbd7)
15. ... He8?
(nú leikur svartur endanlega af
sér Hqnum virðist hafa yfirsést
næSti|ieikur hvits!)
16. Hxe8! Rxe8
17. Dh5+ Kf8
18. Bxh6! gxh6
(ef Df6 þá 19. Hel!)
(Ef Kf8 þá 21. Rh6! Dd722.
Dg8+ Ke723. Hel+ Kd824. Rf7 +
Kc7 25. Hxe8).
21. g4! Dc7
(Eða 21. ...Bf422. g5+ Bxg5 23.
hxg5 Kxg5 24. Dh4+)
22. g5 + Ke6
23. Hel + gefið
(Þvi ef 23. . ..Kd5 þá Dg8+J
Jón L. Árnas.—Einar
Valdimarss.
Boðsmót T.R. 1975
1. e4 c6
2. d4 d5
3. Rc3 dxe4
4. Rxe Bf5
5. Rg3 Bg6
6. Rle2 h6?
(Tempótap. Nú þarf hvitur ekki
að leika h4)
7. Rf4 Bh7
8. Bc4 Rf6
9. 0-0 Rd5
(Ef 9. ,.e6, þá Bxe6!)
10. Df3 e6
11. Hel RxR
(11. ..Be7 svarar hvitur með 12.
R4h5 0-013. Rxg7 Kxg714. Rh5 +
Kh8 15. Bxh6)
12. BxR Dxd4?
(Skárra var 12. ...Be7 13. Rh5 0-
0 14. Be5! þó svarta staðan sé
slæm)
13. Bxe6! Df6
(Ef 13.. fxB þá 14. Hxe+ Be7 15.
IlxB +! KxH16. Hel+ Kd7 17.
Hdl)
14. Bd7+ !!
(Eftir 14. Bc8+ fellur „aðeins”
hrókurinn á a8)
14.... Kd8
(Auðvitað ekki 14. ... KxB
vegna Hadl+ Kc8 16. He8+)
15. Bg4 Be7
16. Ilad 1 + Ke8
17. Rh5! Dxb2
(Ef 17. ...Dg6 þá HxB+! Kf8
(KxH 19. De3+ De4 20. Dc5+ Ke8
21. Rxg7+ mát) 19. Hxf7+!! Kxf7
(Dxf7 20. Bd6+ Kg8 21. Be6!!)
Bg5+ og hvitur vinnur).
18. Hxe7+! Kxe7
(Ef 18. ... Kf8 þá He8+ )
19. De3+ gefið
19. Dxh6+ ' Kf7
20. Dh7 + Kf6
Kennara vantar
Einstaklingsíbúð
i námunda við Kennaraháskólann eða i
miðbænum.
Upplýsingar i sima 28412.
Minning
Kolbeinn
Árnason
Fæddur 21. sept. 1916. —
Dáinn 4. okt. 1974
Á þessum degi fyrir 59 árum
fæddist Kolbeinn Árnason, og þó
nú sé liðið nær þvi ár frá láti hans,
langar miig að minnast hans með
nokkrum fátæklegum orðum.
Hann fæddist á Akureyri, sonur
hjónanna Árna Stefánssonar tré-
smiðs, og Jóninu Friðfinnsdóttur.
Kolbeinn var sá sjötti i röðinni af
ellefu systkinum sem náðu
fullorðinsaldri. Ég man eftir þvi
að móðir hans sagði mér að Kol-
beinn hefði verið óvenju yndislegt
barn og það veit égr að hann
reyndist móður sinni ætið góður
sonur fram á hennar siðasta dag.
Kolbeinn ólst upp i foreldrahús-
um og þegar hann hafði aldur til
hóf hann nám i trésmiðum hjá
föður sinum og lauk þvi á tilskild-
um tima. Þann 16. desember árið
’39 kvæntist hann unnustu sihní'
Halldóru Egilsdóttur frá Austur-
landi i Axarfirði, og veit ég að
Kolbeinn áleit það alltaf sina
mestu gæfu i lifinu aö hafa fengið
hana að lifsförunaut. Þau voru á-
kaflega samhent og man ég sér-
staklega eftir þvi þegar þau voru
að byggja húsið sitt að Þingvalla-
stræti 30. Þar unnu þau bæði af
dugnaði, framsýni og þráut-
seigju. Þau höfðu þá nýhætt bú-
skap á Austurlandi og flutt til
Akureyrar og bjuggu þá á meðan
húsið var i smiðum, hjá móður
Kolbeins i Gránufélagsgötu 11. Og
efalaust var það stór áfangi þegar
þau gátu flutt i nýja húsið sitt, og
þeim tókst fljótlega að gera það
vistlegt og hlýlegt, bæði innan
húss og utan. Kolbeinn var gest-
risinn maður og virtist það vera
þeim hjónum báðum meðfætt að
taka ætið á móti hverjum gesti
eins og væri hann sérstakur au-
fúsugestur. Enda varð það fljótt
svo, að æði gestkvæmt gerðist i
Þingvallastræti 30, sérstaklega
þó á sumrin. Það voru ættingjar,
vinir og kunningjar og þá gjarnan
langt að komnir, og veit ég að
margir minnast gestrisni þeirra
hjóna með þakklæti. Það var
gott að koma til þeirra, og gaman
að blanda geði við þau. Kolb.einn
var ræðinn og gat komið vel fyrir
sig orði. Hann hafði skemmtilega
kimnigáfu og best man ég hann
brosandi, en hann var lika ófeim-
inn að segja álit sitt og gat verið
fastur fyrir ef á þurfti að halda.
Kolbeinn var mikill náttúruunn-
andi og hygg ég að margar bestu
stundir sinar hafi hann átt við
einhverja veiðiána með stöng i
hendi Eftir að Kolbeinn flutti til
Akureyrar vann hann við tré-
smiðar og hef ég heyrt frá þeim
sem unnu með honum að öllum
hafi likað vel við hann á vinnu-
TIL FELAGSMANNA
MÁLS OG
MENNINGAR
Gíróseölar vegna árgjalda 1975
hafa veriö sendir út.
Vinsamlegast greiöiö árgjöldin
viö fyrsta tækifæri.
MÁL OG MENNING
1
stað, enda var hann duglegur til
vinnu og samviskusamur i alla
staði. Það var gott að biðja hann
bónar eða leita ráða hjá honum,
hann réði ölium heilt Þau hjónin
eignuðust ekki börn, en hinum
mörgu systkinabörnum sinum
reyndist hann góður frændi og
hollvinur. Ég kom til þeirra
hjóna i júni 1974 og var tekið eins
og alltaf með glaðværri hlýju. Ég
var varla komin inn úr dyrunum
þegar Kolbeinn bauðst til þess að
keyra mig upp i kirkjugarð til að
ég gæti vitjað um leiði tengdafor-
eldra minna og þegar við stóðum
þar við leiði foreldra hans datt
mér sist i hug að næst þegar ég
ætti erindi i kirkjugarðinn á
Akureyri yrði það til að fylgja
Kolbeini sjálfum til grafar. Ég
vissi að visu að hann var oröinn
sjúkur af þeirri véiki sem flestir
fara halloka fyrir en ég vildi vist
ekki trúa þvi að hún ætti eftir
að leggja þennan sterka og lifs-
glaða mág minn að velli. 1 veik-
indum hans stóð konan hans við
hlið hans eins og klettur og reyndi
allt sem i hannar valdi stóð til að
gera honum þessa raun léttbær-
ari, og ég veit að hann hefði viljað
þakka henni af hjarta fórnfýsi
hennar uns yfir lauk.
Þau hjónin höfðu um árabil á
heimili sinu tvær fullorðnar kon-
ur, þær Þuriði móður Halldóru og
Margréti fóstru hennar. Þessum
konum reyndist Kolbeinn einkar
vel og var þeim hlýr og nær-
gætinn. Ég bið guð að styrkja þær
allar, Halldóru, Þuriði og Mar-
gréti og gefa þeim ljós trúar og
vonar i framtiðinni.
„Drottinn minn, gef þú dánum
ró, og hinum likn sem lifa.”
Mágkona.
J.S.IL