Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 22

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Side 22
22 SÍÐA — ÞJ6ÐV1LJINN Sunnudagur 21. september 1975. Kanslarinn brosir breitt Eins og sjá má af myndum þessum hefur Helmut Schmidt, kanslari Vestur-Þýskalands, heldur betur kynnt sér þá kosn- ingatöfra sem víða eru taldir bráðnauðsynlegir stjórnmála- mönnum og amrfkanar kaiia ,,keep smiling”. Haltu áfram að brosa. Sálfræðingur einn við Max Planck stofnunina vestur-þýzku hefur tekið þetta skelfilega glott kanslarans til athugunar. Hann telurglottið eða brosið bera vott um ýkta viðleitni til að ná sam- bandi við aðra, sé það „krampakennt” en láti samt i Ijós „ekta tjáningu”. Sálfræð- ingurinn les og óvissu út úr brosi Schmidts: „I mikilli spennu, þegar menn eru i sjónarsviði og á annan hátt i aðstæðum sem baka mönnum nokkurn ótta, hafa menn tilhneigingu til að ýkja þau merki sem þeir senda frá sér.” Dvergur Framhald af bls. 3. en fyrir doktorsritgerð sina hlaut Jean Brissé hið mesta lof.,,Loks- ins gat ég sætt mig við að ég var dvergur”. Brissé opnaði málflutnings- skrifstofu, hélt fyrirlestra við há- skóla og varð einn af virtustu lög- fræðingum landsins. Sama fýsnin til að staðfesta sig með afrekum réði fristundum Jeans Brissé. Fyrst af óljósri löngun Daviðs til að takast á við risann Goliat, en siðar ræður á- nægjan af afrekinu ein — og dvergurinn hefur t.d glimt við marga erfiða tinda Pyrenea- fjalla, meira að segja nokkra sem eru meira en 3000 metrar á hæð. Jean Brissé hefur lengi haft mætur á skotvopnum, allt frá þvi að faðir hans gaf honum byssu til sjálfsvarnar. Hann segir að byss- ur og skotfimi gefi sér „visst vald” og skotæfingar hjálpa hon- um til aö „veita útrás árásar- hneigðum”. Foreldrar dvergsins reyndu i lengstu lög að halda honum frá konum og kynli'fi, og ótti hans við konur skaut djúpum rótum i vit- und hans. Hann stóð á þritugu þegar þjónustustúlka ein hjálpaði honum yfir versta þröskuldinn. Rúmlega fertugur felldi hann hug til hjúkrunarkonu einnar og bað hennar simleiðis. Hún tók sér mánaðar umhugsunarfrest og játaði siðan. Þau hafa siðan lifað saman i þrjáti'u ár og er það hjónaband hið ágætasta. En um það segir sjálfsævisagan af hátt- vfsi. Leikfimi búningar Fimleika buxur Ballet búningar Æfingabúningar Æfingaskór Það var mikill ánægjusvipur á andliti þessarar górillu, sem er ein aðal- stjarna dýragarðsins i New York, þegar dýragarðsvörðurinn reyndi að gera henni hitabylgjuna i sumar bærilegri með hressilegri vatnsgusu. En nú fer brátt að liða að þvi að hún fari að sakna hitabylgjunnar miklu, sem minnti hana þrátt fyrir ailt á heimkynnin. lönskólinn í Reykjavík Meistaraskólinn 1975—1976 tekur til starfa föstudaginn 10. okt. næstkomandi og verður settur kl. 5 siðdegis þann dag i stofu 202. Innritað verður til 3. október i skrifstofu skólans á venjulegum skrifstofutima. Teknir verða mest 50 nemendur og ganga þeir fyrir, sem lokið hafa sveinsprófi i múrun og húsasmiði árið 1973 eða fyrr. Skólagjald er kr. 9.000.- Skólastjóri. SKIPAUTGCRB RÍKISINS M/s Baldur fer frá Reykjavik miðvikudaginn 24. þ.m. til Breiða- fjarðarhafna. Vöru- móttaka: mánudag og þriðjudag. Ný kennslubók: Mál og mál- fræðiæfingar Skuggsjá hefur gefið út nýja kennslubók, Mál- og málfræðiæf- ingar ásamt leiðbeiningum eftir Skúla Benediktsson. 1 formála segir höfundur á þá leið, að ónógar æfingar séu i mál- fræðibókum þeim sem völ er á við móðurmálskennslu. Sé bókinni ætlað að bæta úr þessu. Upphaf- lega ætlaði höfundur að hafa bókina æfingar einar. „En að at- huguðu máli sá ég þörf á að koma að ýmsum málfræðireglum og leiöbeiningum. Þær eru þó minni að vöxtum fyrir þá sök, að fyrir nokkrum árum samdi ég bókina Kennslubókiíslensku.þar sem ég tengi almenna málfræði setn- ingafræði”. 1 bókinni er að finna verkefni fyrir hina ýmsu bekki gagnfræða- skóla, en að meginstofni eru þau fyrir þriðja og fjórða bekk. Verkefnin eru hin fjölbreyti- legustu. Beðið er um orðflokka- greiningu, málfræðilega grein- ingu, spurt um orðmyndun og málnotkun, einnig greinamerkja- setningu, kennt sitthvað um orð- tök og málshætti og svo brag- fræði. Leiðbeiningar fylgja með verkefnum. Emil Björns- sonsextugur Séra Emil Björnsson, frétta- stjóri sjónvarps, er sextugur i dag. Hann tekur á móti gestum i húsi Slysavarnarfélagsins á Grandagarði kl. 15 til 18 i' dag. Þjóðviljinn árnar honum heilla á þessum timamótum. Konur Framhald af bls. 2. „Er ætlast til að giftir bændur hafi tvö atkvæði i félögum, meðan ógiftir sitji eftir með eitt?” „En kona i óvigðri sambúð telst varla maki né launþegi bónda, hún verður útundan”. „Hugsið ykkur bara ef konan yrði kosin til Búnaðarþings, hún kemst ekki að heiman til svo langrar dvalar i Reykjavik”. „Mér finnst nú búskapurinn vera einkamál bændanna”. En hvað um það, það var sam- þykkt með 39 samhljóða atkvæð- um að leyfa mökum bænda aðild að Stéttarsambandi bænda. Ágústa Þorkelsdóttir. Misnotkun Framhald af 5. siðu. liðsforingja, sem útskýrði málin svona: „Það var nauð- synlegt að leggja þorpið i eyði til að bjarga þvi.” í Hvita húsinu var i tið Nixons ekki talað um að fela upplýsingar heldur að „halda aftur af ” þeim. t stað „ég hafði rangt fyrir mér” eða „ég laug” var sagt „ég mismælti mig”. Og svo framvegis. Misbeiting valds er venjulega tengd misnotkun tungunnar. Vietnam, Watergete og seinni uppljóstranir um leyni- þjónustuna CIA og alrikislög- regluna FBI, hafa ýtt undir þá hundingjaafstöðu, sem stappar nærri samsæri, að orð sem mælt eru af opinberri hálfu séu ætluð til að fela sannleikann, ekki til að miðla honum.” (AB tók saman)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.