Þjóðviljinn - 15.10.1975, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 15.10.1975, Blaðsíða 21
koma vir i skrúfu varðskipsins, en það mistókst. Eftir þriggja stunda viðureign kvaddi Arvakur ofbeldisseggina meðþvi að klippa aftan úr breska togaranum Gavina og hélt siðan á brott. Skip- herra i þessum átökum var Höskuldur Skarphéðinsson. Allan júnimánuð voru að heita má lát- laus átök á miðunum. Um sama leyti sat Geir Hallgrimsson i Brussel, en NATO lýsti yfir „skilningi á afstöðu breta”. I júli- mánuði héldu þessi átök áfram, þá kom meðal annars fram bræðralag innrás.araflanna, þeg- ar bresku herskipin reyndu að verja vestur-þýskan landhelgis- brjót. t júli kveður Haag-dómstóllinn upp Urskurð um að bretar megi veiða hér við land 170 þUsund tonn á ári, sem var 25.000 tonnum meira enbretar höfðu sjálfir farið fram á i samningaviðræðum við islendinga! En nU heyrist enginn maður heimta það að islendingar sendi mann til dómstólsins, né skjóti máli sinu þangað. Á þessu sumri er fylgið óðum að hrynja af Sjálfstæðisflokknum, enda erú augu þjóðarinnar að opnast fyrir raunverulegu eðli hans i utan- rikismálum. Þess vegna reynir- flokksforusta ihaldsins nú að gera sig dýrlega með þvi að krefjast 200 sjómilna landhelgi. Þótti mönnum þessi afstaða ihaldsins firn mikil, enda hafði rikisstjórn- in sjálf áður lýst þessu sem sinni stefnu, auk þess sem Sjálfstæðis- flokkurinn hafði verið andvigur útfærslu landhelginnar i 50 sjó- milur. Ofbeldiö nær hámarki 1 ágústmánuði færa bretar sig upp á skaftið og fóru þeir jafnvel inn fyrir 12 milurnar til þess að stunda ránskap sinn. Forsætis- ráðherra bar fram mótmæli af þessu tilefni og sagði i viðtali við Þjóðviljann: „enginn samninga- grundvöllur við bresku stjórn- ina.” Bresku sjómennirnir eru teknir að þreytast á þessari veiðiaðferð sinni undir herskipavernd og þeir sækja um leyfi til sjóhersins til þess að mega stunda fiskveiðar utan „verndarsvæðanna” tima og tima. Jafnframt ber æ meira á þvi að treglega gangi að ráða menn á bresku togarana. Undir ágústlok ná ofbeldisverk herskipanna hámarki. 29. ágúst lést Halldór Hallfreðsson vél- stjóri á Ægi er hann var að skyldustörfum sinum i' framhaldi af þvi að breska freygátan Apolló keyrði á Ægi innan 12 milnanna. Reiðialda fór um þjóðina alla við þennan atburð, jafnframtþvi sem landsmenn voru þungum harmi slegnir. Ólafur Jóhannesson sagði á blaðamannafundi daginn eftir þennan atburð „Engar likur á samningum við breta eins og nú horfir.” Dregur til úrslita A ársafmæli landhelginnar sagði Lúðvik Jósepsson sjávarút- vegsráðherra f viðtali við Þjóð- viljann: „Lúaleg árás freigátu og siðar dráttarbáts á Ægi, sem leiddi til þess hörmulega atburðar að einn varðskipsmanna okkar lést við skyldustörf, sýnir að átökin fara harðnandi. Það er min skoðun að nú hljót- um við islendingar að herða stór- lega aðgerðir okkar gegn bretum. Þar vil ég nefna þessi atriði: 1. Stöðva tafarlaust alla fyrir- greiðslu og allar upplýsingar sem átt hafa sér stað við njósnaflug- vélarnar. 2. Tafarlaust ber að kalla heim sendiherra okkar hjá NATO, og loka þeirri skrifstofu algerlega og lýsa yfir að við munum ekki taka neinn þátt i starfi þeirrar stofnun- ar. 3. Slita ber stjórnmálasam- bandi við breta eða a.m.k. að sendiherra þeirra verði sendur héðan og allt hans starfslið. 4. Stöðva ber alla afgreiðslu við aðstoðarskip breska togaraflot- ans og lita ber á þau sem lög- brjóta. Við tökum auðvitað við veikum mönnum en öll brotleg skip á að taka föst. 5. Gerum bretum ljóst að við munum i engu tilfelli hlifa bresk- Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 E.P i \ N > tslendingar áttu góðan stuðning erlendis i landhelgisdeilunni 1972—1973. Hér eru á myndinni þeir Derek Smith og David Jarvis ásamt Jónasi Árnasyni. Myndin er tekin i Grimsby. Jónas ferðaðist oft tii Bretlands. til þess að kynna málstað okkar erlendis. Frá viðræðufundi I ráðherrabústaðnum Frá útifundinum á Lækjartorgi þegar bresku herskipin réðust inn i fslensku landhelgina um landhelgisbrjótum þó þeir leiti vars i veðrum. 6. Viðverðum að stórauka land- helgisgæsluna og auka klipping- arnar.” Þetta voru aðalatriðin i þeim aðgerðum sem sjávarútvegsráð- herra vildi beita breta og kom enda siðar i ljós að margir vildu Lilju kveðið hafa. Framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins sagði i ályktun á ársafmæli útfærslunnar: „Alþýðubandalagið hvetur landsmenn til sóknar undir kjör- orbinu: „Við semjum ekki við breta, við sigrum þá”.” Mánudaginn 3. september lagði Lúðvik Jósepsson svo fram i rikisstjórninni sérstakar tillögur um aðgerðir gegn bretum. Var m.a. gert ráð fyrir þvi i tillögum Lúðviks að stjórnmálasambandi skyldi slitið. Þá töldu Framsókn- armenn eðlilegt að lýsa yfir slit- um stjórnmálasambands við breta kæmi til ásiglinga af bret- anna hálfu enn á ný. Tillögur Lúðviks i rikisstjórn- inni voru annars mjög i þá veru sem rakið var hér að framan, og siðar i vikunni lýsti rikisstjórnin þvi yfir að tekið yrði við sjúkum af aðstoöarskipum sem flyttu þá til hafnar, skipin yrðu tekin og skipstjórinn dæmdur ef hann hefði gerst sekur um að aðstoba veiðiþjófa áður. Þá kom einnig fram að ákveðið hefði verið að efla landhelgisgæsluna með þvi að leigja tvo hvalbáta. Eins og sjá má eru þessi tvö siðarnefndu at- riði mjög i samræmi við tillögur Lúðviks. Aðfaranótt 11. september sigldi bresk freigáta enn einu sinni á is- lenskt varðskip. Gerðu þá margir ráð fyrir þvi að nú yrði lýst yfir slitum stjórnmálasambands við breta samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra og sjávarút- vegsráðherra. Svo var þó ekki gert. Rikisstjórnin ákvað hins vegar að slita stjórnmálasam- bandi við breta kæmi til ásiglinga á nýjan leik. Þjóðviljinn birti 12. september annars vegar samþykkt rikis- stjórnarinnar og hins vegar til- lögu Lúðviks. Þegar hér var kom- ið sögukom iljós við samanburð, að allar tillögur Lúðviks höfðu ýmist verið afgreiddar eða voru að fá afgreiðslu —nema ein: Til- lagan um NATO. Það reyndist erfitt að fallast á slika tillögu fyrir vini NATO á íslandi enda þótt hverju mannsbarni væri ljóst að NATO hafði ekkert gert og ekkert viljað gera til að leysa landhelgisdeiluna. Þvert á móti hafði bandalagið staðið við hlið bretanna. Slit stjórnmála- sambands Bretarnir létu sér ekki segjast þó að hótað væri slitum stjórn- málasambands. Þeir héldu enn áfram ásiglingum. 23. september keyrði freigátan Lincoln tvisvar sinnum á varðskipið Ægi á mið- unum út af Austfjörðum. Fjöldi innlendra og erlendra frétta- manna voru vitni að þessum at- burði og sendu þeir fréttaskevti og filmur um allan heim sem tóku af öll ivimæli um sekt bretanna. Málsgögn voru siðan afhent dóm- nefnd eftir umfjöllun sjódóms og þegar niðurstöður málavafsturs lágu fyrir fimmtudaginn 27. sept- ember gerði rikisstjórnin eftir- farandi samþykkt: „Rikisstjórnin samþykkir að tilkynna bresku rikisstjórninni að verði herskip og dráttarbátar breta ekki farin út fyrir 50 milna mörkin fyrir 3. október 1973 komi slit á stjórnmálasamskiptum við Bretland til framkvæmda i sam- ræmi við ályktun rikisstjórnar- innar 11. sept.” En af hverju var ekki slitið strax — eins og samþykktin frá 11. sept. gerði ráð fyrir ef til á- siglingar kæmi? Það var vegna þess að á þriðjudeginum áður hafði borist bréf frá Heath forsæt- isráðherra breta um að hann væri reiðubúinn til þess að kalla her- skip sin út fyrir 50-milna mörkin. En þessu tilboði fylgdi annað: Ólafur Jóhannesson komi til London til viðræðna. En þessu tilboði Heaths fylgdi lika skilyrði! Islendingar hætti að áreita breska veiðiþjófa! Ekki þótti aðgengilegt að fallast á neitt slikt og þegar leið að miðnætti

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.