Þjóðviljinn - 15.10.1975, Qupperneq 29
Miðvikudagur 15. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 29
Sýning opnuð á teikningum
eftir Kjarval
Hafa aldrei verið sýndar áður
Ein af yngstu myndunum á sýningunni, kölluð Hörpuleikur.
i sýningarsal i Brautarholti 6
verður i dag opnuð sýning á
teikningum eftir Jóhannes S.
Kjarval. Eru þar sýndar 54
myndir, sem aldrei hafa verið á
sýningu áður. Elstu teikning-
arnareru frá árunum 1911-12 og
þær yngstu frá siðustu árum
listamannsins. Það eru börn Jó-
hannesar S. Kjarval, Sveinn
Kjarvai innanhússarkitekt og Ása
Lökken Kjarval, sem að sýning-
unni standa.
Elstu myndirnar eru teiknaðar
i Lundúnum, þegar „pabbi var
þar og ætlaði að komast að sem
nemandi i Royal Academy of Art,
en þaö tókst ekki, sem kunnugt
er, þvi að hann var aðeins
Islenskur fiskimaður,” sagöi
Sveinn Kjarval. Myndirnar, sem
sýndar eru i Brautarholti, eru
aðeins litið úrtak úr þeim fjölda
mynda, sem Sveinn fann i fórum
föður sins að honum látnum.
Sveinn kvað börn sin hafa haft
mestan veg og vanda af undir-
búningi og uppsetningu sýningar-
innar, en þau eru Hrafnhildur
Tove Kjarval, leirkerasmiöur,
Jóhannes S. Kjarval, arkitekt og
Ingimundur S. Kjarval, nemi.
Myndirnar eru margskonar,
vatnslitamyndir, tússteikningar,
pennateikningar, blekteikningar
og rauðkritarmyndir.
Um næstu mánaðamót stendur
til að opna sýningu á teikningum
Kjarvals I Galleri Gavlhuset i
Álaborg I Danmörku. Verða þar
einnig sýndar teikningar, sem
Þetta er ein af elstu myndunum á sýningunni, teiknuð á Temsár-
bökkum.
fundust I fórum listamannsins að
honum látnum, og aðrar en þær
sem nú eru til sýnis i Brautar-
holti. Allar þessar teikningar,
bæöi þær sem nú eru sýndar hér-
lendis og þær sem sýndar verða i
Alaborg, eru i eigu þeirra syst-
kina, Asu og Sveins.
Sem fyrr segir veröur sýningin
opnuð i dag, á afmælisdegi Jó-
hannesar Kjarvals og hefði hann
i dag oröið niræður, hefði hann
lifaö. Fyrirhugað er að sýningin
standi yfir I tiu daga, til 25. þ.m.,
og verður hún opin kl. 16-22 alla
dagana.
dþ
Teikning af Jóhanni ,
Sigurjónssyni.rithöfundi, gerð
1914.
MÓTMÆLIR UNDANSLÆTTI
Vélstjórafélag Vestmannaeyja:
Merki
kvenna-
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Vélstjórafélags Vestmannaeyja
samþykkti á fundi 12. þ.m. að lýsa
eindregnum stuðningi við út-
færslu landhelginnar I 200 milur,
Verkalýðsfélagið Stjarnan i Grundarfirði:
Lýsir furðu
á ummælum
Matthíasar
verkfalls
til sölu
Framkvæmdanefnd kvenna-
verkfallsins hefur gefið út sér-
stakt merki i tilefni verkfallsins.
Verður merkið selt til fjáröflunar
fyrir starfsemi framkvæmda-
nefndarinnar, sem hefur eðlilega
i mörg horn að lita þessa dagana
og viða er þörf fyrir
framkvæmdafé.
Sölufólk er beðið að vitja
merkjanna á Hallveigarstöðum
og verða þau höfð þar til
afhendingar klukkan 5-7 dag
hvern. Merkið kostar 50 krónur.
Merkið er blátt: kvennaárs-
merkið ljöst I dökkbláum grunni.
Gleðitíðindi, ef
sönn reynast
Þær fregnir hafa borist frá
Sovétrikjunum að þar hafi verið
fundin upp málning, sem hamlað
gæti yfirisingu á skipum á norð-
lægum slóðum. Þessi málning
mun hafa verið sýnd á fiskveiði-
sýningunni i Leningrad i ágúst.
Fundur verkalýðsfélagsins
Stjömunnar Grundarfirði haldinn
13. 10 1975 lýsir fullum stuðningi
við útfærslu landhelginnar I 200
sjómilur.
Fundurinn hvetur alla lands-
menn til órjúfanlegrar samstöðu i
þessu brýnasta hagsmunamáli
þjóöarlnnar. Fundurinn lýsir
furðu sinni á þeim ummælum
sjávarútvegsráðherra i sjón-
jafnframt þvi sem fundurinn
mótmælti allri undanlátssemi og
samningum um veiðar erlendra
þjóða innan 50 milna markanna.
varpsþættinum Kastljósi að is-
lendingar geti enganveginn varð-
ið landhelgina.
Telur fundurinn slik ummæli
sem og annan undanslátt einungis
veikja stöðu Islendinga gagnvart
öðrum þjóðum.
A aðalfundinum var stjórn og
trúnaðarmannaráð endurkjöriö.
Formaður er Sigurður Lárusson.
Ragnar Páll sýnir
Dagana 11. til 19. október gefst
fólki kostur á að sjá málverk eftir
Ragnar Pál aö Kjarvalsstöðum,
en hann var fyrsti listamaðurinn
sem sýningarráð Kjarvalsstaða
neitaði um afnot af sölum hússins
á sinum tima. Eftir þá neitun hélt
hann sýningu i Bogasalnum.
A þessari sýningu, sem er
sjötta einkasýning Ragnars Páls,
eru 75 verk og er rúmur helming-
ur þeirra til sölu, en hitt eru verk i
einkaeign og hafa fæst þeirra ver-
ið sýnd áður. Þar á meðal eru 10
portrait, meðal annars af dr.
Kristni Guðmundssyni fyrrver-
andi ambassador og Sigurliða
Kristjánssyni kaupmanni. Til
sölu eru 20 olíumálverk, 13 vatns-
litamyndir og 5 pastelmyndir og
er verð sölumyndanna frá 35 til
175þús.kr. Auk mannamyndanna
eru á sýningunni landslagsmál-
verk einkum frá Vestfjörðum,
Snæfellsnesi, Þingvöllum, Land-
mannalaugum og Siglufirði.
Einnig eru á sýningunni nokkrar
blómamyndir, húsamyndir og
bátamyndir.
Sýning Ragnars Páls er opin
daglega kl. 16-22 til sunnudags-
kvöld 19. október. Það var núver-
andi hússtjórn, sem leyfði Ragn-
ari Páli að sýna að Kjarvalsstöð-
um.
Þessimynd var tekin á barnamyndasýningu i hinum nýju húsakynnum
MIR á dögunum.
Armeníukvöld
í MIR-salnum
Félagið MtR, Menningartengsl
Islands og Ráðstjórnarrikjanna,
efnir til Armeniu-kvölds i húsa-
kynnum sinum að Laugavegi 178
á fimmtudagskvöld 16. október
kl. 8.30. Þar munu félagar úr
sendinefnd MIR, sem heimsótti
sovétlýðveldið Armeniu i sumar,
segja frá ferðinni og sýnd verður
kvikmynd. I MlR-salnum hefur
verið komið upp sýningu á ljós-
myndum, eftirprentunum, bókum
o.fl. til kynningar á Armeniu og
armenum. Tekursú sýning við af
sovésku barnamyndasýningunni,
sem margt manna hefur skoðað i
MlR-salnum að undanförnu.
Aðgangur að Armeniu-kvöldinu
er öllum heimill.
(Fréttatilkynning frá MIR)