Þjóðviljinn - 19.10.1975, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. október 1975.
RAGNAR ARNALDS:
Verður meirihluti íslensks
iðnaðar í höndum útlend-
inga eftir
15 ár?
Baráttan fyrir efnahagslegu
sjálfstæöi íslendinga verður í
brennipunkti íslenskra
stjórnmála á næstu árum
•fc. jj ^
«t ti''
■ ■ ' -
Ráðstefna herstöðvaand-
stæðinga i Stapa um seinustu
helgi var ágætlega heppnuð.
Fundurinn var fjölsóttur, og þar
var unnið mjög gagnlegt starf til
undirbúnings vetrarstarfsemi
herstöðvaandstæðinga. bað var
niðurstaða fundarins, að á kom-
andi vetri væri mest um vert að
virkja sem flesta til starfa að
ýmsum verkefnum og heppi-
legast væri þvi að mynda ekki
formleg fastmótuð samtök að svo
stöddu, heldur yrði einkum unnið
i starfshópum en tólf manna mið-
nefnd hefði yfirsýn yfir starfið og
tengdi það saman.
Heiti þessarar ráðstefnu var
hersetan og sjálfstæði islands.
Orðin vísa til þess, að hers-
stöðvamálið er framar öllu öðru
sjálfstæðismál, en jafnframt var
það tilgangur ráðstefnunnar að
ræða herstöðvamálið i tengslum
við önnur sjálfstæðismál þjóðar-
innar. Ljóst er, að sú skerðing á
sjálfstæði landsmanna sem
erlendur her og aðild að NATO
hafa borið með sér, getur bein-
linis átt eftir að hverfa i skuggann
af öðrum og stærri hættum, sem
nú steðja að efnahagslegu sjálf-
stæði islendinga.
Evrópska stórríkið
Tæp fimmtán ár eru liðin siðan
átök hófust hér á iandi um
hugsanlega innlimun islands i
Efnahagsbandaiag Evrópu. bá
voru bretar að hefja samninga-
umleitanir um inngöngu i banda-
lagið og vitað var, að danir og
norðmenn kynnu að fara sömu
leið. bá risu upp ýmsir spámenn
hé á landi, sem hvöttu til þess, að
islendingar gengju i Efnahags-
bandalagið. En samningar breta
við bandalagið drógust mjög á
langinn, og timi vannst til itar-
legra umræðna um málið. Hér
varð þvi ekki um að ræða æsi-
kennda skyndiákvörðun á
nokkrum dögum, eins og þegar
islendingum var þröngvað i
Atlantshafsbandalagið, og með
tið og tima hjaðnaði þessi
hreyfing, og menn gerðu sér
almennt ljóst, að einfaldur
viðskiptasamningur við þetta
nýja stórriki Evrópu væri æski-
legri lausn fyrir islendinga. Um
skeið var þó hætta á þvi, að með
aðild okkar að friverslunar-
bandalaginu EFTA værum við
komnir inn i forsal Efnahags-
bandalagsins: En sú hætta er hjá
liðin að sinni. En við verðum að
gera ráð fyrir, að fyrr eða siðar
við breyttar aðstæður geti þessi
hætta hlasað við okkur á nýjan
leik.
Nýjustu áform:
220 þúsund milj.
Siðari tima barátta islendinga
gegn ásókn erlends fjármagns
hófst fyrir aðeins tiu árum. bá
var i fyrsta skipti um margra
áratuga skeið hleypt inn i landið
erlendu fyrirtæki, sem var svo
risavaxið i samanburði
við islenskt atvinnulif, að það
jafnaðist á við helminginn af
öllum þeim iðnaði sem fyrir var i
landinu. Siðan þetta var, hefur
verið tekin ákvörðun um
byggingu járnblendiverksmiðju i
Hvalfirði. bar er að visu óliku
saman að jafna, þar sem islend-
ingar eiga meiri hluta hlutafjár
og hafa þvi yfirstjórn þess i sinum
höndum, a.m.k. ef vilji er fyrir
hendi, en þesu nána samstarfi við
auðhringinn Union Carbide, sem
útvegar allt hráefnið og hefur
einkasöluumboð á fram-
Frá virkjunarframkvæmdum
leiðslunni, fylgir þó að sjálfsögðu
nokkur áhætta.
Nú eru hins vegar uppi áform
um erlenda stóriðju á tslandi,
sem fela i sér, að erlent fjármagn
i islenskum atvinnuvegum verði
gifurlega aukið á næstu árum frá
þvi, sem nú er. t skýrslu iðn-
þróunarnefndar, sem skilaði áliti
sinu i júnimánuði s.l. eru lagðar
fram hugmyndir um stefnumótun
i orku og stóriðjumálum á næstu
15 árum. bar er gert ráð fyrir, að
járnblendiverksmiðjan i Hval-
firði verði tvöföld að stærð miðað
við það, sem nú er ráðgert. I
Eyjafirði verði byggð önnur járn-
blendiverksmiðja. Framleiðslu-
afköst ál verksmiðjunnar i
Straumi verði nær tvöfölduð frá
þvi sem nú er, og byggð verði ál-
verksmiðja i Reyðarfirði, tæp-
lega 70% stærri en sú, sem nú er i
Straumsvik. Auk þess verði
Stóriöjuhugmyndir lönþróunarnefndar
Framieiösla: Staöur: Hugsanlegt byggingarár: Afköst i tonnum: Orkunotkun I Gwst. Kostnaður i þús. milj. $ = 165:
Málmbl. 1. Hvalf jörður 76 47.000 550 18
Álver 1. Straumsvík 80 11.000 2001 14
Álver II. Straumsvík 80 44.000 700 J
Málmbl. Eyjaf j. 81 43.000 500 17
Málmbl. II. Hvalf j. 83 47.000 550 17
Magnesium Reykjanes 84 27.000 500 12
Álver 1. Reyðarf j. 86 50.000 800 13
Álver II. Reyðarf j. 90 50.000 800 12
Tafla þessi er byggð á texta skýrslunnar. Niöurstöðutalan, 103 þús. milj. er byggð á skýrsiunni,
þó með breyttu gengi, en kostnaðarverð hverrar verksmiðju er áætlað i grófum dráttum út frá
þessari tölu og öðrum upplýsingum. — R.A.
byggð Magnesium cloride og
Magnesium málmbræðsla á
Reykjanesi. Stofnkostnaður þess-
ara iðjuvera mun vera um 103
þús. milj. króna á núverandi
gengi. Stofnkostnaður orkumann-
virkja á Suðurlandi, Norðurlandi
og Austfjörðum, sem til þess þarf
að knýja þessi miklu iðjuver
ásamt kostnaði við flutningslinur
og hafnir mun nema um 116 þús.
milj. króna miðað við núverandi
gengi. Samtals er þvi áætlaður
heildarkostnatur þessara fram-
kvæmda tæpar 220 þús. milj.
króna, og skiptist á fimmtán ára
timabil (sjá tölu hér neðar á
siðunni).
Andvirði
álverksmiðju
á hverju ári!
■ bað skal tekið fram, að i
skýrslu nefndarinnar er um það
rætt, að fara beri með gát i
þessum efnum og þvi séu aðeins
settar fram hóflegar hugmyndir
um takmarkaðar stóriðjufram-
kvæmdir. Og þetta er þá niður-
staðan: 220 þús. milj. fram-
kvæmdir.
Nú er hætt við, að margir eigi
erfitt að gera sér grein fyrir,
hversu stór þessi tala er, 220 þús.
milj. króna, en til samanburðar
má geta þess, að allur hinn mikli
skuttogari sem keyptur hefur
verið til landsins á undanförnum
árum er að verðmæti um 25 þús.
milj. kr. á núgildandi verðlagi, og
öll útflutningsframleiðsla islend-
inga á þessu ári er áætluð um 50
þús. milj. króna.
Samkvæmt þessum áætlunum
nemi árleg fjárfesting i orku- og
iðjuverum tæpum 15 þús. milj.
króna næstu 15 árin og er það
álika upphæð á hverju ári og
kosta myndi að byggja eina
álverksmiðju á borð við þá sem
nú er i Straumsvik. Að sjálfsögðu
er hér um að ræða margfalt meiri
framkvæmdir en nokkur von er
til, að islendingar ráði einir við.
bvi er ekki aðeins áformað, að
erlend auðfélög reisi iðjuverin að
miklu leyti á sinn kostnað, heldur
hefurnú i fyrsta sinn um margra
áratuga skeið verið leitað til er-
lendra auðhringa um hugsanlega
eignaraðils þeirra að sjálfum
orkuverunum og boru fulltrúar
Suiss Aluminum einmitt á ferð
um Austurland i sumar til að
kynna sér virkjunaraðstæður þar.
Aödragandi aö
innlimun í EBE
Ef þessi áform verða að veru-
leika og ef sú stefna verður ráð-
andi, að erlend auðfélög eigi hér
væði við orkuver og iðjuver, er
ekki fráleitt að ætla, að a.m.k. 2/3
hlutar af þeseum gifurlegu fjár-
festingum yrðu á vegum erlendra
auðfélaga. Miðað við þessa þróun
mála má reikna með, að mikill
meirihluti alls iðnaðar og orku-
vinnslu i landinu verðu i höndum
útlendinga að loknu þessu
fimmtán ára timabili.
bað er þvi deginum ljósara, að
efnahagslegt sjálfstæði þjóðar-
innar er i hættu. Hættan er ekki
fyrst Qg fremst sú, að þessir
erlendu auðhringir muni beinlinis
hlutast til um islensk innanrikis-
mál, þótt sá möguleiki hljóti
ávalltað vera fyrir hendi. Hættan
liggur frekar i þvi, að þegar isl.
efnahagslif er orðið samofið
starfsemi alþjóðlegra auðhringa,
verði það sótt af ofurkappi að
þröngva islendingum i Efnahags-
bandalag Evrópu og þá verði
viðnámsþróttur landsmanna ti
varnar sjálfstæði sinu ortinn
lamaður.
Svartsýni —
bjartsýni
bessar hættur, sem við blasa og
steðja nú að sjálfstæði þjóðar-
innar i vaxandi mæli, kunna að
vekja með ýmsum nokkra svart-
sýni. Baráttan gegn hersetunni
hefur orðið langvin og torsótt, og
óneitanlega eru illar blikur á lofti.
Auðlindir tslands eru i hættu.
En þrátt fyrir þessar hættur, er
þó ekki ástæða til bölsýni, þegar á
allt er litið. Ef við berum saman
aðstæður nú og stöðuna, eins og
hún var fyrir rúmum áratug, þá
sýnist mér, að útlitið i sjálfstæðis-
málum islendinga sé þó þrátt
fyrir allt mun hagstæðara en það
var.
Fyrir tólf árum var andstaðan
gegn hersetunni i mikilli lægð,
þrátt fyrir gifurlegt starf
Samtaka hernamsandstæðinga á
árunum þar á undan. bá sat meiri
hluti ibúanna á höfuðborgar-
svæðinu framan við bandariskt
sjónvarp á hverju kvöldi, margir
fylgdust jafnvel betur með
almennum tiðindum i Bandarikj-
unum en hér heima á Islandi, ekki
sist var unga kynslóðin komin
með hálfan hugann inn i banda-
riskt umhverfi.
bá var aðild að Efnahags-
bandalaginu raunverulega á dag-
skrá og átti sér ýmsa talsmenn.
bá var nýbúið að gera samning
við breta og vestur-þjóðverja,
sem bannaði islendingum um alla
framtið að færa landhelgi sina út
fyrir 12 milna mörkin nema með
Frh. á bbj.22.