Þjóðviljinn - 07.11.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 07.11.1975, Side 7
Föstudagur 7. nóvember 1975. ÞJ6ÐVILJINN — StÐA 7 Leikfélag Reykjavikur hefur sent frá sér mótmæli gegn opin- berum skrifum um væntanlegt borgarleikhús, og talið þau van- hugsun þeirra einstaklinga, sem sömdu skrifin. (Mbl. 20.9.’75) Ekki ber það vott um sterkan málstað, að geta ekki tekið rétt- mætum ásökunum, og rætt málin án þess að verða sárreiður. ótti LR, um að almenningur taki af- stöðu á móti nýrri leikhúsbygg- ingu, án þess að kynna sér málið, rætist sfður, fari opinberar um- ræður fram. Þær umræður sem orðið hafa til að upplýsa gang mála fyrir almenningi nú uppá siðkastið, hafa einmitt sprottið af greinum þeim, sem L.R tekur af- stöðu til. En vegna þess, að LR. skrifar, að mikilvægt sé, að halda tengsl- unum milli áhorfenda og lista- mannanna, sem rikt hafi i Iðnó, verður LR einnig að skiljast, að tengsl eru alltaf gagnkvæm. Þau liggja ekki bara i boðskap, sem LRfærir almenningi, heldur einnig i þvi sem almenningur hefur að segja LR. Þau verða að miðla skilningi i báðar áttir. Og sá er lika tigangur fyrmefndra blaða- greina, lika þessarar en ekki að stunda áróður á móti Leikfélagi Reykjavikur. túlkunar. Eins og senan er teikn- uð hæfir hún vel þeim leikstil, er LR hefur mótað sér i gegnum ár- in, en ekki til nýrra tilrauna. Verkefnaval mun þvi liklega verða ósköp svipað héðan i frá sem hingað til. 4) Stærstí gallinn er eftir sem áður sá, að Leikfélag Rvk. er flutt upp i Kringlumýrina. Sýnir það algjört skilningsleysi Reykjavikurborgar á stöðu LR i bæjarmyndinni. Samtimis viður- kenna ráðamenn bæjarins að ekki sé um flutning miðbæjar Reykja- vikur upp i mýrina að ræða, i þeim skilningi, heldur fyrst og fremst nýtt geysistórt verslunar- og skrifstofuhverfi. Leikfélag Reykjavikur á sinn sess i hjarta höfuðstaðarins, ekki i úthverfi, hvaða nöfnum sem það kallast. Það sýnir að LR er ekki i mikl- um metum innan borgarstjórnar, aðblikkbeljanskulifá góða haga i norðurbakka Tjarnarinnar, á meðan LR hefur i 20 ár reynt að fá.lóð þar. Einnig má nefna það, að fyrir nokkrum árum stóð borginni til boða að kaupa Iðnó. (LR leigir húsnæðið mjög dýrt i dag), en hafnaði þvi þá, á þeirri forsendu að það væri of dýrt. ENDURBYGGIÐ IÐNO Hvað er það sem gerir Iðnó og Leik- félag Reykjavíkur að leikfélagi Reykjavíkur? Hlutdræg lýsing 1) A tjörninni er stöðugt verið að leika leikrit, sem áhorfendur viöurkenna og taka þátt i að vissu marki. Þar gerast sorgarleikir jafnt sem gleðileikir, og áhorf- endur á leið i Iðnó staldra við áð- ur en þeir fara inn. Hver leiksýn- ing I Iðnó hefur þannig sinn að- draganda utanhúss. Leik- stemmningin rikir löngu áður en tjaldið er dregið frá. 2) Sjálft húsið er litið, og þröngt er um hvern einstakling. Vitneskjan um það gerir, að fólk reynir að troða öðrum varlega um tær og þó ekki sé nema þetta er það hluti af andrúmsloftinu i Iðnö. Umhverfið ber svip alþýðu- leikhúss, en ekki hálfopinberrar byggingar. 3) Fjarlægð öftustu raðar er um 11 metrar frá senunni (laus- lega lesið af mynd sem birtist i Þjóðv. 3.9) Eftir þvi sem fjar- lægðin minnkar komast orðin bet- ur til skila og meira sést af smá- atriðum leiksins. Leikandinn seg- ir áhorfandanum sem nálægt sit- ur meira, en þeim sem fjær er. 4) Mér vitanlega hefur LR aldrei notað senuna i Iðnó öðru visi en sem andsjársenu, þ.e. að bakhlið leikaranna snúi sem mest að tjöldunum og framhlið þeirra, snúi sem mest að áhorfend- um. Hreyfingar á senunni hafa einskorðast að mestu við hreyf- ingar frá hægri til vinstri og öf- ugt. Leikararnir koma ekki það langt fram, að þeir séu á meðal á- horfenda, þannig að allar hliðar þeirra verði að framhlið. LR hef- ur ekki beitt sér fyrir tilrauna- starfsemi að neinu ráði i upp- færslum. 5) Verkefnaval LR hefur ein- kennst af léttu skemmtiefni og revium öðru fremur. Valið hefur m.a. miðast við hæfi leikara LR, andsjársenuna og fjárhags- afkomu. Ekki heldur þar hefur nýsköpun ráðið rikjum. 6) Helst litur út fyrir að LR sé staðnað sem leikfélag, og hafi týnt sinni köllun i brauðstritinu. Breytingarnar koma innanfrá og eitt sér hjálpar það LR litið að fá nýtt og stórt hús til að leika i. Hvernig verður svo í „nýjum miðbæ”? 1) Aðdragandinn við Leikhús- heimsóknir verður allt annar. Kringlubær mun ekki hafa annað aðdráttarafllengi vel en bókasafn og leikhús. Umhverfið verður þrettán hæða skrifstofubygging, búðargluggaútstillingar og bila- stæði. Væntanlegur garður verð- ur látinn sitja á hakanum og bila- stæðahús einnig. 2) Munurinn á u.þ.b. 600 ferm, stóru Iðnó i dag (auk leikmuna- geröar) til fullteiknaðs 4.500 fer- metra leikhúss i mýrinni segir sig sjálfur. Svona stóra byggingu verður að reka sem fyrirtæki, en ekki leiksmiðju,( td. Fjölflutn- ingsleikhúsið h.f., islenskun á repetoair.) Nýbygging mun vera vel fallin til að taka á mótji lista- hátiðum og sennilega er stærðin frekar miðuð við það en þarfir LR. t raun fer LR ekki eins vel útúr samstarfinu við borgina og það á skilið, heldur ætti það að nota þá peninga sem það hefur safnað saman til húss sem hæfði þvi betur. 3) Fjarlægð á milli öftustu sætaraðar og senunnar verður 14 metrar (lesið af fyrr- nefndri mynd) eða 3 metrum meiri en i Iðnó. Senubygging er teiknuð litillega bogamynduð, þ.e. andsjársena, en m jög auðvelt hefði verið að teygja hana lengra út i salinn, (amfisena) sem hefur þá kosti að stytta fjarlægðina á milli leikanda og áhorfenda, auk þess sem leikandi getur notað jafnt fram-, sem afturhlið til leik- Hlutdræg niðurstaöa: Sé borginni i raun og veru annt um Leikfélag Reykjavikur, og vilji styðja það, ætti hún að nota forkaupsrétt sinn og kaupa allt Iðnaðarmannahúsið við Tjörnina og siðan að gefa LR það. LR hefði þá frjálsar hendur um nýinnrétt- ingu hússins og gæti komið við nauðsynlegum breytingum. Auk þess yrði borgin að láta LR eftir lóð við Vonarstræti til nýrrar hliðarsenu. Af nógum er að taka, sé viljinn fyrir hendi. LR yrði i staðinn að byggja á tengslum sinum við almenning. Starfrækja hugmyndbanka um framtiðarsenuna og framtiðar- leikhúsið og uppúr þeim umræð- um, að efna til samkeppni um lausn verkefnisins. Það eitt tryggði LR bestu úrlausnina. Hvernig verður starfsemi ný- stofnaðs leikskóla háttað? Liggur ekki beint við að samvinna sé höfð um svo skyld verkefni sem byggingu nýs leikhús og rekstur leikskóla? Og er ekki skólaað- staða i nýju leikhúsi besta trygg- ingin fyrir nauðsynlegri nýsköp- un? Og eitt enn að lokum. Ég bið engan um að vera mér algjörlega sammála, og einhvers staðar gæti leynst maðkur i mysunni, jafnvel hér. Lesið allar fjölmiðlagreinar með hæfilegri tortryggni, þá munið þið komast nær kjarna málsins. Sigrún Sigurðardóttir sendir orð í belg frá Osló um borgarleikhús Verkalýös- og sjómannafélagið Bjarmi, Stokkseyri: Hver undansláttartónn mun álitinn veikleikamerki Sl. sunnudag var almennur fé- lagsfundur haldinn i verkalýðs- og sjómannafélaginu Bjarma á Stokkscyri, þar sem viðhorfin I kjaramálunum voru til umræðu. Að loknum umræðum var sam- þykkt með samhljóða atkvæðum að segja upp, frá og mcð 1. jan. nk. samningum félagsins við at- vinnurekendur. Þá var i lok fundarins sam- þykkt með samhljóða atkvæðum eftirfarandi ályktun: „Fundurinn hvetur fulltrúa að- ildarfélaga Verkamannasam- bands tslands á 7. þingi þess, sem halda á i þessum mánuði til að móta ákveðna og einarða stefnu I kjaramálum verkafólks til bættrar lifsafkomu þess. Fundurinn litur svo á, að Verkamannasambandið og Sjó- mannasambandið verði i kom- andi samningsgerð að hafa nán- ari samvinnu; en var i siðustu samningslotu um launakjör sjó- manna og þess verkafólks, sem að fiskverkun vinnur i landi og tvimælalaust bar mjög skarðan hlut frá borði miðað við áhættu þá, erfiði og þýðingu þeirra starfa, er þetta fólk vinnur fyrir þjóðfélagið. Rikisstjórnin hefur þegar lýst yfir að launahækkanir til þessa fólks komi ekki til greina. Ljóst er þvi að verkalýðshreyfingin verð- ur nú fremur en nokkru sinni fyrr að halda vöku sinni. Við varð- stöðu hennar bindur nú láglauna- fólkið i landinu vonir sinar um að ástand Viðreisnarstjórnar ár- anna, með geigvænlegu atvinnu- leysi, landflótta og enn stórfelld- ari lifskjaraskerðingu láglauna- fólks verði ekki að nýju hlutskipti alþýðu þessa lands. Verkalýðshreyfingin verður vel að vera minnug þess, að allar kjarabætur i gegnum árin hefur hún orðið að knýja fram með hörðum átökum við atvinnurek- endavaldið i landinu. Allt hjal nú- verandi rikisstjórnar um sam- starfsvilja við vérkalýðssamtökin er sviðsett i þeim tilgangi að slæva baráttuhug verkafólks. enda vitna öll verk núverandi rik- isstjórnar sannarlega um annað en samstarfsvilja við alþýðu manna. Hvern undansláttartón i verka- lýðshreyfingunni mun rikis- stjórnin og atvinnurekendur skoða sem veikleikamerki sam- takanna og herða þeim mun fast- ár kverkatökin að hálsi þess fólks. sem lifsbjörgina færir i þjóðarbú- ið.”

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.