Þjóðviljinn - 19.11.1975, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. nóvember 1975.
Danir hjálplegir
Hafa gert allt sem þeir geta fyrir HSI,
sem sendir landsliðið í æfingabúðir
til Danmerkur 7. til 15. des.
— Danir hafa verið okkur
einstaklega hjálplegir og gert allt
sem i þeirra valdi stendur til þess
að vikudvöl islenska landsliðsins i
æfingabúðum i Danmörku
dagana 7. til 15. des. nk. megi
takast sem best, sagði Axel
Sigurðsson framkvæmdastjóri
HSl er við ræddum við hann i gær.
Axel sagði að danir hefðu boðið
liðinu að dveljast i hinu glæsilega
iþróttagistihúsi i Brunbyhallen og
fengi iiðið þar að auki þessa nýju
iþróttahöll til æfinga. Þá buðust
þeir til að koma á 4ra liða móti,
þar sem leika munu islenska og
danska landsliðið auk tveggja
sterkra félagsliða frá Á-Evrópu
og þar að auki verður svo einn
formlegur landsleikur milli
fslands og Danmerkur.
gegnum KSl og siðan hefur
Alan Wade verið þeim til
aðstoðar i Englandi.
Nú hafa skagamenn ákveðið
að augiýsa i ensku blöðunum
eftir þjálfara og ætla að biðja
George Kirby að vera sér til
aðstoðar við þetta mál.
Sagði Gunnar Sigurðsson
formaður knattspyrnudeildar
ÍA að þeir ætluðu að sjá til
hvað kæmi útúr siikri aug-
lýsingu áður en þeir leita
viðar fyrir sér, svo sem i
Þýskalandi eða Tékkóslóvakiu
en skagamenn hafa áhuga á
þjálfara þaðan. takist þeim
ekki að ná i góðan enskan
þjálfara.
—S.dór
Skagamenn
auglýsa
eft i r
þjálfara í
Englandi
Þegar islensku knatt-
spyrnuiiðin hafa ráðið sér
enska þjálfara hefur sú
ráðning vanalega farið i
betta stifa æfingaprógram
islenska liðsins verður lokaundir-
búningur þess fyrir leikinn við
júgóslava i undankeppni ÓL 18.
des. hér heima, en liðið mun æfa
mjög stift allt frá 1. til 18. des. og
sagði Axel að allt yrði gert til að
undirbúa það sem best fyrir
leikinn og að betur yrði sennilega
ekki hægt að gera en gert verður
fyrir liðið.—S.dór
Ofarlega á baugi að
taka upp greiðslur
til knattsp.manna
sagði Gunnar Sigurðsson form. knattspyrnu-
deildar ÍA— veltan hjá ÍA var um 12 miljónir
á þessu ári eða helmingi meiri en í fyrra
fengum við meö snikjum
allskonar auk þess sem við
höl'um fengið fjárstyrki frá
skagstrendingum, og hinum og
þessum aðilum og án þcssara
tryggu stuðningsmanna gæti
þetta ekki gengið lijá okkur.
— Kostnaðurinn við báða
Evrópuleikina varð um 6
miljónir, en þar vorum við eins
óheppnir og hægt var að hugsa
sér, þurftum i bæði skiptin að
ferðast cins langt og hægt var i
keppninni. Við hefðum stór-
grætt á þátttöku okkar i EB ef
við hefðum ekki þurft að fara
nema til Skotiands, Englands,
Þýskalands eða Norðurland-
anna.
— Ég er ansi hræddur um að
hvergi utan iþróttahreyfingar-
innar fengjust menn til að
stjórna eða taka þátt i starfi
fyrirtækis sem veltir 12
iniijónum, eins og verið hefur
hjá okkur, án þess að taka laun
fyrir, sagði Gunnar að lokum.
— S.dór
— Það liggur i augum uppi að það er ekki hægt
að bjóða mönnum slikt úthald i knattspyrnunni
sem var hjá okkur i ár án þess að þeir fái eitthvað
i aðra hönd. Þegar svo bætist ofan á landsliðs-
ferðir, þá eru menn orðnir frá vinnu i hátt í 2
mánuði á ári og þess vegna er vissulega ofarlega
á baugi hjá okkur að athuga hvort ekki er hægt að
greiða leikmönnum okkar vinnutap að einhverju
leyti. Ég veit að það verður mjög erfitt, en það
verður að athuga málið ofan i kjölinn, sagði
Gunnar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar
ÍA er við ræddum við hann og spurðum hann
um hvernig fjárhagsútkoman hefði verið hjá íA i
sumar eftir tvær umferðir i EB.
— Það er ekki endanlega búið
aö gera upp reikingana, en þó er
Ijóst að veltan hjá knattspyrnu-
deild 1A er um 12 miljónir kr, en
hún var um (i miljónir f fyrra.
Ég get heldur ekki sagt um
hvort hagnaður verður hjá
okkur, en þó hygg ég að einhver
afgangur verði, en hann er litill.
— Við fengum 1700 þúsund
útúr deildarkeppninni, 600
þúsund útúr bikarkeppninni, 2,3
miljónir kr. fengum við inná
leikinn við Omonla og 1800
þúsund við Dynamo. Hinn
helminginn, eða nær 6 miljónir
Hansi Schmidt, stórskytta Gummersbach-liðsins.
„Seljum okkur dýrt”
sagði Karl Benediktsson þjálfari Víkings um leikinn við
Gummersbach sem fram fer á laugardaginn
— Því einu get ég lofað
um þennan leik að við
munum selja okkur dýrt,
já við munum berjast með
öllum tiltækum ráðum.
Þeireru frægir fyrir hörku
og við ætlum okkur að sýna
þeim að við getum barist
lika, sagði Karl Benedikts-
son þjálfari Víkings á
blm.fundi í gær, en þar
sögðu Víkingar frá leik
Víkings og Gummmers-
bach í Evrópukeppni
meistaraliöa sem fram fer
í Laugardalshöllinni nk.
laugardag.
Geysilegurférðakostnaður ÍBV í 2.deild
„Auðvitað öflum
við peninga
eins og til þarf”
segja eyjamenn og leggjast gegn
riðlaskiptingunni sem talað hefur verið
um til að minnka kostnaðinn
Ljóst er að ferðakostnaðurinn i
2. deild verður á næsta sumri
mciri en nokkru sinni fyrr. Ný lið
taka þar þátt, fjögur að norðan,
eitt frá isafirði, eitt frá Seifossi,
og tvö af Reykjavíkursvæðinu.
Siðan eru vestm annaeyingar
níunda liðið og öli þessi ferðalög
lenda mest á þeim.
Við höfðum samband við
Hermann Kr. Jónsson, formann
knattspy rnudeildar ÍBV og
spurðum hann hvernig þeir hrein-
lega ætluðu að fara að þessu.
Fórust honum svo orð:
— Jú, vissulega litur þetta
skuggalega út, ferðalögin eru
gifurleg. Við munum væntanlega
reyna að sameina þessar ferðir
eitthvað, fara t.d. tvær ferðir
norður i stað fjögurra og afgreiða
þá tvö lið i hvorri ferð. Svo þarf
vitanlega að fara vestur á Isa-
fjörð og viðar. Auðvitað mun allt
starfið ganga út á það að afla
þeirra peninga sem til þarf, við
höfum alltaf átt við erfiðan ferða-
kostnað að striða og það er alveg
vist, að við kljúfum þetta ein-
hvernveginn. Ef við ætlum okkur
að taka þátt i keppninni verðum
við vitanlega að afla nauð-
synlegra peninga og við gerum
það hvað sem tautar og raular.
— Fáið þið vestmannaeyinga á
völlinn næsta sumar?
— Það er enginn vafi á þvi að
þeir munu mæta hér á heima-
leikina. Við höfum fengið
einstakan stuðning héðan og ég er
ekki vitundarögn hræddur um að
Framhald á bls. 10
Drætti í
happdrætti
HSÍ
frestað
15. nóvember sl. átti aö draga i
happdrætti IISÍ, en vegna þcss að
skil á miðum hafa ekki verið gerð
utan af landi, hcfur drætti verið
frestað til sunnudagsins 22. nóv.
nk. og verður drcgið strax að
loknum aukaleik v-þýsku meist-
aranna Gummersbach og þcss
liðs scm Vikingur velur til að
leika við þá, cn það hefur enn ekki
vcrið ákveðið hvaða lið það
verður.