Þjóðviljinn - 05.03.1976, Side 13
Föstudagur 5. mars 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Eins og bjóðviljinn skýröi frá
fyrir allnokkru hefur í vetur
gengiö ákaflega illa að halda
saman viö æfingar A-lands-
liöinu í kvennahandbolta og
hafa i rauninni aðcins þrjár
stúlkur sýnt áhuga á þvi að æfa
og leika með landsliðinu.
Staðfesting á þessari frétt
bjóðviljans sem á sinum tima
var i senn umdeild og vefengd,
hefur nú fengist. f fyrir-
Landsliði unglinga
teflt fram gegn USA
Ekki hefur tekist aö halda saman A-landsliðinu í
kvennahandbolta og margt er í óvissu fyrir vikið
huguðum þremur leikjum gegn
bandariska kvennalandsliðinu
veröur teflt fram þvi landsliði,
sem á að leika á Noröurlanda-
móti unglinga i byrjun april. A—
landsliðið starfar ekki lengur og
stúlkurnar þrjár sem æft hafa í
vetur af fuilu kappi, eru ckki
nieð gegn bandarikjamiinnum,
þar eð þær hafa náð 22ja ára
aldri og koinast þvi ekki i ung-
lingalandsliö.
í fréttatilkynningu frá HSt
segir aö nú sé teflt fram „ungu
og upprcnnandi liði” og eins að
„nokkur þáttaskil séu nú i
landsliði kvenna”. Aðrar
skýringar eru ekki gefnar. Ekki
varð stjórn HSt við þeirri ósk
bjv. að boðað yrði til blaða-
mannafundar, þar sem skýrt
yrði fyrir fjölmiðlum og is-
lenskum handknattleiksunn-
endum hvernig standi á þessum
róttæku breytingum i landsliðs-
málunum og hvers vegna til
þeirra hafi þurft að gripa.
Landsliðið er núna samansett
af kornungum og litt eða ekkert
reyndum leikmönnum að lang-
mestu leyti. Fimm þeirra hafa
aldrei leikiö landsleik áður og
þrjár hafa aldrei leikið með
unglingalandsliði áður. Aðeins
ein stúlka liefur umtalsverða
leikreynslu, Erla Sverrisdóttir
úr Ármanni.
Á hitt ber að lita, að á margan
hátt hefur stjórn HSÍ brugðist
hárrétt við þeirri aðstööu, sem
komið hefur upp hjá kvenna-
landsliðinu. Áhuga- eða kæru-
leysi leikmanna á ekki að svara
meö neinu öðru en brottrekstri
og sjálfsagt er að yngja upp
jafnharðan og leikmenn eldast
eða þreytast. Hér er hins vegar
tekið ansi stórt stökk og það sem
verra er... engar skýringar eru
gefnar.
Fyrirhuguð ferð islenska
landsliðsins til Evrópu f vor er
nú i óvissu.Ekki er óliklegt að
hælt verði við landsleikina sex
sem þá átti að lcika, þar eð
samið var um A-landsleiki en
ekki unglingalandsliðsleiki.
Spurning er hins vegar hve
langl hægt er að teygja hugtakið
að „yngja upp” og hvort hægt sé
með réttu að kalla hið kornunga
iandsliö okkar A-landslið. —gsp
bessi skemmtilega mynd af þeim Irinu Rodninu og Alexander Zaitsev
var tckin skömmu fyrir siðustu áramót þegar þau gengu i hjónaband.
Ótrúlegir
yfirburöir
hjá Rodninu
og Zaitsev
Eins og við skýrðum frá I bjóð-i-
viljanum i gær höfðu þau Irina
Rodnina og Alexander Zaitsev
mikla yfirburði i fyrri hluta
keppninnar i listskautahlaupi á
HM, sem nú stendur yfir i Gauta-
borg, og I siðari hluta keppninnar
I fyrrakvöld voru yfirburðir
þeirra enn meiri, og þegar upp
var staðið höfðu þau hlotið rúm-
lega 4 stigum hærri einkunn en
næsta par, sem eru ótrúlegir yfir-
burðir i jafn harðri og jafnri
keppni sem listskautahlaup er.
Og jiar með tryggðu þau sér HM-
litilinn i 4. sinn i röð, en Irina
Rodnina hefur alls orðið 8 sinnum
heimsmeistari, og það I röð, og
tvisvar ÓL-meistari. úrslit para-
keppninnar urðu sem hér segir:
1. Rodnina/Zaitsev, Sovétr.
140,94 st.
2. Kermer/ Oesterreich, A-
Þýskal. 136,88 st.
3. Vorobejva/ Valsov, Sovétr.
136,36 st.
4. Gross/ Kagelmann, A-þýskal.
135,71 st.
5. Tai Babilonia/ Gardner, USA
132,16 st.
6. Gorshkova/ Shevalovski,
Sovétr. 131,90 st.
Mörg óhöpp áttu sér stað í
keppninni að vanda. Til að mynda
féll hin unga bandariska stúlka
Babilonia tvisvar i siðari hluta
keppninnar, hefur sjálfsagt ætlað
sér um of i hinni hörðu keppni.
Eins var um Romy Kermer, sem
varð i 2. sæti, hún féll i tvöföldu
spinni, sem kallað er, og hefur
það oft komið fyrir hana, virðist
vera ill-leysanlegt vandamál hjá
henni.
Þá átti Irina Rodnina i erfið-
leikum vegna inflúensu sem hún
var með þegar siðari hluti keppn-
innar fór fram, en hún harkaði af
sér og sigraði, en sem kunnugt er
má iþróttafólk ekki einu sinni
taka inn kódifintöflur, þá flokkast
það undir lyf sem bönnuð eru á al-
þjóöamótum.
John Curry, sá sem sigraði i
einstaklingskeppni karla I list-
dansi á skautum i Innsbrucl^
leiðir keppnina eftir fyrri hluta
hennar.
Þrír landsleikir
í kvennahandbolta
Olympiulið Bandarikjanna i
handknattleik kvenna er væntan-
legt hingað nk. laugardag og mun
dvelja i vikutima við keppni og
æfingar. Þrir landsleikir verða
leiknir auk leikja gegn islenskum
1. deildarliðum, og fara allir
landsleikirnir fram utan Reykja-
vikur.
Sá fyrsti fer fram i iþróttahúsi
hersetuliðsins á Keflavikurflug-
velli nk. sunnudag og hefst
klukkan 15.00. Sá næsti verður i
Hafnarfirði föstudaginn 12. mars
og sá þriðji á laugardeginum uppi
á Akranesi.
Á Akranesi fer þarna fram
fyrsti landsleikurinn i nýja
iþróttahúsinu og verður enda
mikil viðhöfn. Skólahljómsveit
Kópavogs leikur i hálfleik og fyrir
Einn hjá
hersetuliðinu,
annar í
Hafnarfirði
og sá þriðji á
Akranesi
leikinn, en á undan aðalleiknum
er forleikur.
tslenska landsliðið er skipað
eftirtöldum stúlkum:
t/3 •o
XJ c CTJ
c a i
J D
1 Alfheiður Emilsd. A 1 5
12 Gyða Clfarsdóttir F.H. 7 5
2 Jóna Margrét Brandsd.
F.H. 0 0
3. Katrin Danivalsd. FH. 0 0
4. Sigurborg Daðad. Br.bl. 0 3
5 Jóhanna Halldórsd. Fram2 2
6 Jenný L. Magnúsdóttir
Fram 0 0
7 Hrefna B. Bjarnad. Val
fyrirl. 5 3
8 Hjördis Sigurjónsd. K.R. 4 11
9 Halldóra Magnúsd. Val 0 2
10 Erla Sverrisdóttir, A. 11 9
14 Harpa Guðmundsd. Val 1 3
Þjálfari liðsins er Pétur
Bjarnason.
Breytinga að
vænta í hand-
knattleiknum?
Undanfarið hefur nokkuð
verið ininnst á að breytinga
væri þörf i sambandi við 1.
deildar keppnina i handknatt-
leik, og hafa menn i þvi sam-
bandi beint augum til Sviþjóðar
og V-Þýskalands um fyrir-
koinulag á keppninni. t Sviþjóð
er fyrirkoinulagið þannig að
fjögur efstu liðin i 1. deild
keppa, þegar keppni 1. deildar
er lokið, uni Sviþjóðarmeistara-
titilinn, en i V-Þýskalandi er
keppnin i tveimur riðlum og
keppa tvö efstu lið i hvorum riðli
til úrslita um meistaratitilinn.
Þjóðviljinn hefur það eftir
áreiðanlegum heimildum, að
innan stjórnar HSt séu nú há-
værar raddir um breytingar, og
þá helst að snúa sér að sænska
fyrirkomulaginu. Um leið yrði
þá sennilcga fjölgað um tvö lið i
dcildinni. Hvort þetta fyrir-
komulag verður tekið upp strax
á næsta keppnistimabili er ekki
vitað, en sjálfsagt verður þcss
ekki langt að biða að breytingar
verði gerðar.
Aðalástæðan fyrir þessum
hugmyndum manna um
breytingar er fyrst og fremst
minnkandi aðsókn að leikjum 1.
deildar. Það kom svo hinsvegar
i ljós að hálfgildingsúrslitaleikur
milli FH og Fram fyllti Laugar-
dalshöllina. Menn þykjastsjá að
keppni fjögurra efstu liða í 1.
deild um lslandsmeistaratitil-
inn, eftir að venjulegri 1. deildar
keppni lýkur, myndi draga að
sér mikinn fjölda áhorfenda og
hreinlega bjarga fjárhagslegri
hlið mótsins, en sem stendur
munu vera mikil peningavand-
ræði hjá deildum félaganna
vegna minnkandi aðsóknar að 1.
deildar leikjunum i ár og i fyrra.
Þing HSt verður haldið i júni
n.k. og verður þetta mál eflaust
ofarlega á baugi þar, og ekki
óhugsandi að ákvarðanir um
breytingaf verði teknar.
—S.dór
Fram-stúlkur halda forskotinu
Stúlkurnar i Fram halda sinu
striki i 1. deildarkeppninni i hand-
knattleik kvenna. Á miðviku-
dagskvöld sigruðu þær FH með
12:7 og þar með eru hafnfirsku
stúikurnar úr leik hvað snertir
toppbaráttuna.
Toppliðin tvö sem berjast enn
gegn Frömurum eru Armann og
Valur og þau sigruðu bæði stórt i
leikjum sinum á miðvikudags-
kvöld. Armann vann KR 21:8 og
Valur vann Viking 19:8.
Tólf umferðir af fjórtán hafa þá
verið leiknar i 1. deildinni, og er
staðan þessi:
Fram 12 10 1 1 185:110 21
Valur 12 10 0 1 196:110 20
Armann 12 9 1 2 175:128 19
FH 12 8 0 4 159:123 16
KR 12 4 1 7 123:157 9
Vikingur 12 2 1 9 102:163 5
Breiðablik 12 2 1 9 101:125 5
Keflavik 12 0 1 11 124:199 1
Næstu leikir fara fram i Laug-
ardalshöllinni sunnudaginn 7.
mars. Klukkan 19.50 leika Ar-
mann og FH, siðan Fram-Valur
og loks KR-Vikingur. Laugardag-
inn 13. mars leika siðan Breiða-
blik og Keflavik i Njarðvikum.
—gsp