Þjóðviljinn - 05.05.1976, Page 16
UOÐVIUINN
Miðvikudagur 5. mai 1976
Enn minnkar
afli breta á
Islands-
miðum
á tímabilinu 9. feb.
til 24. april
minnkaði þorskafli
breta um 3,400 tonn
á Islandsmiðum
Að sögn Helga Agústssonar
fulltrúa i íslandsdeild norska
sendiráðsins i London skýrði
breska blaðið The Gardian frá þvi
i gær að þorskafli bresku tog-
aranna á íslandsmiðum á tima-
bilinu 9. febrúar til 24. april sl.
hafi verið 12.400 tonn en var á
sama timabili árið áður 15.800,
þannig að hann hafi minnkað um
3.400 lestir, þrátt fyrir miklu
þyngri sókn i ár.
A sama tima og breskt blað
skýrir frá þessari staðreynd,
skýrir Morgunblaðið frá þvi að
þorskafli breta á íslandsmiðum
hafi aukist mjög fyrri hluta þessa
árs. Hefur Mbl. sem heimild
breskar aflaskýrslur. Það vekur
margar spurningar hver sé
ástæðan fyrir slikum frétta-
flutningi hjá Mbl. Engu er likara
en blaðið vinni leynt og ljóst að
þvi að færa landsmönnum rangar
fréttir af afla breta og draga með
þvi móti kjark úr fólki, þannig að
auðveldara verði að plægja
akurinn fyrir samninga við breta.
Þetta er nefnilega ekki i fyrsta
skiptið sem Mbl. leikur þennan
ljóta leik.
—S.dór
Skemmdirnar á
bresku
herskipunum á
Islandsmiðum:
V iðgerðarkostn-
aðurinn kominn
í 700 milj. kr.
mikið rœtt um
landhelgismálið i
breskum blöðum i
gœr að sögn
Helga Agústssonar
íLondon
— Allt i einu i gær, tóku bresku
blöðin að skrifa mjög mikið aftur
um landheglisdeiluna og m.a. var
Times með frétt um málið á for-
siðu i dag. Astæðan er auðvitað
fyrst og fremst hótun bresku tog-
araskipstjóranna um að sigla
heim af Islandsmiðum, ef ekki
verður orðið við kröfum þeirra
um aukna flotavernd og allskonar
tjónabætur sem þeir hafa sett
fram. Nú funda útgerðarmenn
með bresku rikisstjórninni um
málið i dag en frétta af þeim fundi
má ekki vænta fyrr en i kvöld,!
sagði Helgi Agústsson, fulltrúi i!
Islands-deild norska sendiráðsinsj
i London er Þjóðviijinn ræddi við
hann i gær.
Helgi sagði að öll helstu blöð
Bretlands hefðu fjallað um máiið
i gær. Þau ræddu öll um hugsan-
lega heimsiglingu, fundinn sem
verður i dag og klippinguna á
Boston Gestrel um siöustu helgi.
Daily Express ræöir m.a. um
herskipaflotastærð breta um
þessar mundir i þessu sambandi,
sagöi Helgi. Segir blaðið að frei-
gátur breta séu nú 71. Þar af hafa
19 þeirra verið á Islandsmiðum,
togurunum til verndar. Niu
þeirra hafa orðið fyrir skemmd-
um og nemur viðgerðar-
kostnaðurinn á þeim, að sögn
Framhald á bls. 14.
'
*
Þó að kalt væri I veðri i gær var sumarsvipur yfir höfuðstað landsins. Þessi ungi listamaður notaði
sólskinið til þess að teikna á blað með malbikið eitt að undirlagi. Mynd EK.
Kvikmyndagerðar-
menn með
samninga við
við sjónvarpið:
Oánægðir með
úthlutun styrkja
Kvikmyndagerðarmenn hafa
nú samið við sjónvarpið og gilda
samningarnir til áramóta. Samn-
ingar hafa ekki verið i gildi milli
rikisútvarpsins og FK siðan 1970.
A aðalfundi FK sem haldinn var
fyrir skömmu var félaginu kosin
ný stjórn. Sigurður Sverrir Páls-
son er formaður, Hinrik Bjarna-
son, ritari og Erlendur Sveinsson,
gjaldkeri. A aðalfundinum var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Fundur í Félagi kvikmynda-
gerðarmanna, haldinn 30. april,
1976, lýsir áhyggjum sinum yfir
þeim hætti, sem verið hefur á út-
hlutun styrkja til kvikmynda-
gerðar úr Menningarsjóði. Fund-
urinn telur, að miðað við núver-
andi stöðu islenskrar kvikmynda-
gerðar og þess f jár, sem til henn-
ar er veitt af opinberum aðilum,
berifyrstum sinn að vinna mark-
visst að uppbyggingu smámynda-
gerðar innan listgreinarinnar,
þar eð markaði, aðstöðu og til-
Framhald á bls. 14.
sagði Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Verkamannasambands
r
Islands um hœkkanafrumvarp
ríkisstjórnarinnar
— Það liggur i augum uppi að
verkalýðshreyfingin mun svara á
viðeigandi hátt þessari nýjustu
árás rikisstjórnarinnar á lifskjör
fólks og nú duga engin pappirs-
mótmæli og við munum athuga
okkar gang með tilliti til þess,
sagði Guðrúundur J. Guðmunds-
son formaður Verkamannasam-
bands Islands er við ræddum við
hann i gær og spurðum hann um
viðbrögð verkalýðshreyfingar-
innar við hækkunarfrumvarpi þvi
sem rikisstjórnin hefur lagt fram
á alþingi.
— Að minu áliti er það mjög at-
hyglisvert, að það er beðið með að
leggja þetta frumvarp fram,
framyfir 1. mai og þar á of-
an bætist, að rikisstjórnin
fæst ekki til að viðurkenna
að hér sé um fullkomna björg-
unaraðgerð að ræða og gefa
þannig i skyn að meira sé i
vændum. Það liggur þvi i loftinu
að hér er um fyrstu aðgerð að
ræða. Og komist rikisstjórnin upp
með þetta, verður allur kaup-
máttur launa i rjúkandi rúst i lok
þessa árs.
—- Ég dreg ekki i efa að gengið
verði áfram látið siga og siðan
má vænta innan tveggja mánaða
eða svo enn nýrra ráðstafanna.
Það sjá þvi allir að verkalýðs-
hreyfingin getur ekki tekið þessu
mótaðgerðalaust. Enda er nú svo
komið að hæggerðasta fólk, sem
oftast vill fara varlega að öllum
hlutum, er nú orðið standandi bit,
hvað þá hinir sem harðari eru af
sér. Það er mikil reiði rikjandi
hjá fólki úti rikisstjórnina.
— Forsætisráðherra er varla
búinn að sleppa þvi útúr sér i f jöl-
miðlum að búast megi við hægari
verðbólguvexti siðari hiuta árs-
ins, þegar hann slengir þessu
nýja frumvarpi framan i þjóðina.
Siðan kemur fjármálaráðherrann
i sjónvarp og segir að vandamálin
séu miklu dýpri og alvarlegri,
sem ekki verði leyst með þessu, —
hvað þýðir það? Auðvitað nýjar
aðgerðir innan skamms. Halda
menn svo að verkalýðshreyfingin
taki þessu öllu með jafnaðargeði?
Ég segi nei og ég á von á þvi að
undir það taki margir.
— Ég á von á þvi að næstu daga
muni verkalýðshreyfingin kalla
saman ráðstefnu um þetta mál og
eflaust verður einnig mikið um
fundarhöld hjá einstökum verka-
lýðsfélögum, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson að lokum. „
BSRB og skattahœkkanirnar
Nær að fresta fé til
stórframkvæmdanna
• Járnblendi 975 milj. kr.
oKrafla 2.865 milj. kr.
• Brú á Borgarfjörð 390 milj. kr.
Svofelld ályktun var einróma
samþykkt á fundi stjórnar
B.S.R.B.
„Stjórn Bandalags starfs-
manna rikis og bæja hefur fjallað
um frumvarp til laga um fjáröfl-
un til landhelgisgæslu og fisk-
verndar, rfkisfjármál og fjár-
mögnun orkuframkvæmda
sveitarfélaga.
Stjórn bandalagsins er sam-
mála stjórnvöldum um, að verja
verði fjármagni til landhelgis-
gæslu, eftir þvi, sem á þarf að
halda við núverandi aðstæður.
Hins vegar mótmælir stjórn
B.S.R.B. þvi harðlega, að fjár til
landhelgisgæslu eða annarra út-
gjalda rikisins á þessu ári, sé afl-
að með auknum álögum á al-
menning.
Nú er svo komið fjármálum
þjóðarinnar, að aðeins ein leið er
fær i þessu máli að dómi stjórnar
B.S.R.B., að frestað verði á þessu
ári tilteknum framkvæmdum, og
fjármunir i þess stað látnir ganga
til landhelgisgæslu og fiskvernd-
ar, eftir þvi sem þörf er á.
Stjórn B.S.R.B. vekur athygli á,
að á yfirstandandi ári er gert ráð
fyrir fjáröflun til:
1. Járnblendiverksmiðju á
Grundartanga 975 miij. kr.
sem litlar eða engar likur eru
fyrir að nota þurfi á árinu 1976.
2. Vegna Kröfluvirkjunar
a. stöðvarhús 1.694 milj.
b. borholur 600milj.
c. linulagnir 571milj.
Samtals 2.865 milj.
3. Vegna brúar yfir Borgarfjörð
390 milj.
Bandaiagsstjórnin bendir á
framangreindar framkvæmdir,
sem mögulegt væri að fresta á
þessu ári. Hins vegar hefur
stjórnin ekki fyrirvaralltiö að-
stöðu til að leggja fram fullmót-
aðar og rökstuddar tillögur i
þessum efnum.
Með frestun framkvæmda ynn-
ist það tvennt að auðvelda öflun
fjármagns til landhelgisgæsiunn-
ar og losa þjóðina við auknar
álögur, sem heimilin þola ekki.
Það er kominn timi til, að rik-
isstjórn og Alþingi sýni sama
kjark og einstaklingar verða að
hafa og taki ákvörðun um, að ekki
sé varið meiri fjármunum til
eyðslu og framkvæmda en unnt er
að standa undir án yfirvofandi
gjaldþrots.
Fari svo, að Alþingi taki þá
ákvörðun að auka álögur á heim-
ilinu og magna verðbólgu, er það
eindregin krafa B.S.R.B., að
vörugjaldið verði reiknað með i
visitölu til kaupgjaldsbreytinga
skv. nýgerðum kjarasamningum.
Stjórn B.S.R.B. mótmælir þvi, að
gerðum kjarasamningum verði
þannig enn rift með löggjöf. Slik-
ar aðgerðir hljóta að skapa full-
komið vantraust og gera samn-
ingsgerð alla erfiða i framtiðinni.
Sömuleiðis verði bannað að bæta
verslunarálagningu við væntan-
legt vörugjald.”
Hafna kröfum
útgerðarmanna um
1OO mílna
fiskveiðilögsögu
Brussel 4/6 ntb — A utanrikis-
ráðherrafundi Efnahagsbanda-
lags Evrópu, sem stendur yfir i
Brussel, skýrði Roy Hattersley
aðstoðarutanrikisráðherra breta
frá þvi i dag að bretar vildu koma
upp fiskveiðilögsögu allt að 50
milum, þar sem einungis bresk
skip fái að veiða.
Bretar hafa lengi verið mjög
tviráða á vettvangi EBE með
hvað þeir raunverulega ætla sér i
landhelgismálum. Hefur það
staðið bandalaginu mjög fyrir
þrifum þvi meðan bretar tvistiga
getur bandalagið ekki mótað
neina heildarstefnu i landhelgis-
málum. ,
Hattersley sagði að á einstaka
svæðum gætu bretar fallist á
minni lögsögu en 50 milur, en þeir
mundu aldrei hleypa neinum inn
fyrir 12 milur. Hvatti hann tii þess
að samþykktir um lögsögu og
veiðikvóta yrðu gerðar hið fyrsta
og visaði til þess að Ford Banda-
rikjaforseti hefði þegar undir-
ritað lög um útfærslu bandarisku
lögsögunnar i 200 milur.
Hattersleý sagði einnig að
breskir útgerðarmenn vildu að
Framhald á bls. 14.