Þjóðviljinn - 09.05.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.05.1976, Blaðsíða 11
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 9. mal 1976. FYRSTI LANGHUNDUR FRÁ Búdda mikill og ljótur og gengiö inn I hann aftan veröan. Tiger Balm garöar; glæfraleg glysgirni úr þvi fór aö koma los á bresk yfirráð þar. Arið 1959 fékk eyjan sjálfstjórn i öllum innanlandsmálum og i kosningum þá náði flokkurinn Peoples ActionParty, PAP, undir forystu Li Kúan Jú, 54% atkvæða og 43 þingsætum af 51. Þessi flokkur var þá talinn mjög vinstrisinnaður, en hvað um það, hann sveiaði kommúnisma og gekk i alþjóðasamband sósial- demókrata. Arið 1962 var sam- þykkt að Singapore gerðist aðili að sambandsrikinu Malasiu, en árið 1965 skildust leiðir aftur og hefur landið verið sjálfstætt lýð- veldi. Siðan 1965 hefur PAP reyndar haft öll þingsæti i Singapore og stjórnarandstaðan hefur sætt ýmsum kárinum: hér höfum við semsagt enn eina þver- stæðuna: Singapore er i reynd sósialdemókratiskt (margir mundu heldur segja tæknikrat iskt) einsflokksriki. Hvaö um það: þessi tiu ár sjálfstæðis hafa verið efnahagslegir uppgangs- timar: hagvöxtur einatt 13—15% og 1974 voru þjóðartekjur um 2500 bandarikjadalir á mann, sem er miklu meira en i flestum löndum Asiu öðrum ( i Malasiu voru þjóðartekjur þá 730 dalir i Indónesiu 130). Við skulum svo fjalla um það siðar, hvaöa verði þetta hagvaxtarstökk er keypt. Þjóöa kokkteill tbúar eru 2,3 miljónir sem fyrr segir, það eru tæplega 4000 ibúar á ferkHómetra og gerast ekki mörg svæði önnur þéttbýli. Þaö er Buslaö í kynlegri blöndu A gráum hretatima þegar öll tildragelsi sýnast óralangt i burtu, þá er ekki nema von að taugakerfið taki rösklegan kipp þegar stungið er upp á þvi að skjótast alla leiðtil Singapore. En þetta gerði SAS frændi i tilefni þess að hann var að taka i notkun þotu af DC-10 gerð á leiðinni frá Höfn þangað. Maður verður blátt áfram feginn og hugsar eins og litil stelpa, sem ók i vörukerru i Glæsibæ og kallaði, sannlega fri við pólitiska gagnrýni: Silli og Valdi erugóöir! Herra minn sæll og trúr: i svoddan tilviki er full- trúi SAS á íslandi ekki neinn hversdagslegur auglýsinga- meistari, hann er dularfullur leið- sögumaður, lamaklerkur, sem ætlar að ræna þér og senda upp i einhvern Shangri-La úr gömlum rómantiskum reyfara (eitt helsta hótel i Singapore ber reyndar nafn þessasæludalslifsflóttans úr skáldsögu James Hiltons). Úr lofti Og maður freistast til að setja saman gamaldags ferðasögu með öllum persónulegum smá- atriðum, eins og tiðkaðist i blað- inu Faxa i Keflavik hér á árunum ef einhver fór lengra en til Hafn- ar. 1 stilnum: og svo kom flug- freyja fram og mér fannst hún endilega geta veriö islensk. Og ég tók hana tali og hún sagði... Þó er rétt að vara sig á þessu. Jafnvel þó að tólf stunda flug i samfeliu alla leiö til Suðaustur-Asiu séu mikil reynsla, a.m.k. i fyrsta sinn. Ekki vegna þess að boöið er upp á sex rása músikprógram eða biómynd, heldur vegna þess að það er mikil sjón að sjá Asiu Anskoti sem Tyrkland er til- komumikið land úr lofti, einkum norðausturhlutinn með grimmum fjöllum, hvitum snjó, einangruðum þorpum i grábrún- um dölum og allt i einu blasir viö grænblátt Vanvatnið: hér bjuggu þeir greindu menn armenar áður en þeir voru drepnir. Og Indland er iskyggileg sjón úr lofti, endalaust og sprungið af þorsta, alsett örsmáum tituprjónshausum mannabyggða. Frá þessu sjónóu’horni dofnar eitthvað andúðin á Indiru Gandhi, sem hefur fangelsað margan góðan dreng. Ætlar hún lika að setja i tukthús þá sem ekki nema staðar við þrjú böm? Það var eitthvað um það i blöðunum.og ef þetta er rétt þá er það, hvað sem öðru liður, upphaf mikilla tfðinda i þessari mannmörgu og hungruðu álfu. Þrengsli og þverstæður En hvernig skyldi vera ástandið hjá þeim i Singapore, þar sem 2,3 miljónir manna hafa þyrpst saman fyrir sakir umsvifa breska heimsveldisins á aðeins 580 ferkilómetra eyju? En þaö var varla mikið annaö sem maður vissi um þetta eyriki áöur en viö Friða Björnsdóttir frá Timanum lögðum upp þangaö. Ekki man ég lengur hvað Phileas Fogg útréttaöi þar i Attatiu dög- um umhverfis jörðina. En það var sagt aö japanir hefðu tekiö þessa mikilvægu stöð i striðinu vegna þess aö fallbyssurnar sneru til sjávar og enginn bjóst viö þeim frá meginlandinu, yfir ■w I N Stamford Kaffles kom hér 1819 og sá að vel bar i veiði. Stytta hans cr þar scm hann steig á land. hið mjóa sund sem aðskilur Singaporeeyju frá Malasiu. Og þar meö ertu, löngu áður en sálin hefur náð þér, að sofna á einu af þeim lúxushótelum sem risið hafa i Singapore á siðustu árum. Háhýsin kubba sundur lágar linur kinversku hverfanna meðan sólin sest. Söngl út um op- inn glugga á þrisettum kinversk- um gagnfræðaskóla blandast saman við klukknahljóm og bumbuslátt frá indverska musterinufyrirneðan hæðina. Og svo heyrist alit i einu mikil skot- hrið. Það eru ekki gangsterar i ópiumhasar sem þar plaffa af miklum móð. Skothriðin berst úr þjóðleikhúsinu: þar eru amerik- anar að sýna söngleik um Buffalo Bill. You are my sunshine seytlar út i kyrrðina. Fróöleiksmolar En áður en lengra er haldið i að telja upp furður og þverstæður Singapore er rétt að tina saman nokkra nauðsynlega fróðleiks- mola. Singapura er sanskritarsam- setning og þýðir Ljónsborg. Hér á eynni voru áður venjuleg fiski- þorp malaja. En árið 1819 kom Stamford Raffles frá Breska Austurindiafélaginu auga á mikilvæga legu þessa staðar og lagði þar grundvöll að borg. Vöxt- ur borgarinnar hefur verið ör á okkar öld: þarna var þýðingar- mikil bresk herstöð, mikil höfn, miðstöö útflutnings á mikilvægu tini og gúmi frá Malakkaskaga (nú Vestur-Malasiu). A striös- árunum var eyjan hernumin af japönum sem fyrr segir, og upp ekki nema von að Breiöholtin hér teygi fingur ansi hátt upp i loftið og að takmörkun barneigna sé vigorð dagsins. 76% ibúanna eru kinverjar, 15% malajar, 7% ind- verjar og afgangurinn eru evrópskrar ættar. En ráðamenn i Singapore gera sér bersýnilega far um að láta lita svo út sem þeir séu alls ekki „þriðja Kina” (á eftir Alþýðuveldinu og Tævan), heldur sé Singapore margþjóða- riki. Af kurteisi við nágrannana er látið sem malajamál sé þjóð- tunga, en i reynd er einhverskon- ar enska samgöngumál ibúa. Þessi þjóðahristingur er reyndar mikili lykill að pólitik i Singapore og verður nánar vikið að þvi siðar. En sem litið dæmi um hann skal nefnt að á þessu ári (ári drekans að kinverskum sið) eru tiu almennir fridagar tengdir kristnum dómi, kinverska nýja árinu, buddasið, hindúisima og múðhameðstrú. Þríhjól og krókódílar En af þvi sem sagt hefur verið er ljóst, að lengi má upp telja þverstæður ólikustu ættar. Singa- porehöfn en hin fjórða stærsta i heimi og þar eru velbúnar bryggjur til afgreiðslu á gámu- skipum stórum — en við mynni Singaporearinnar þar sem Raffles steig á land er enn verið að skipa upp úr flatbotna kin- verskum prömmum með fornleg- um aðferðum. Beinaberir karlar á yfirbyggðum þrihjólum (af- komendum riksjunnar sem dreg- in var um götur allra austur- landasagna áður fyrr) keppa enn við ökufanta þá sem stýra leigu- EFTIR ARNA BERGMANN Uppskipunarbátar við mynni Singaporeárinnar. Hér steig agent á land 1819... bilum japanskrar ættar — en hvorir tveggja eiga þaö til að bjóöa ferðalangi upp á „nice girl”. Þú gengur fram hjá loft- kældum veitingastaö á hóteli þinu, þar sem boðið er upp á franska steik og vinarvalsa, og við nasta horn standa sveittir kinverskir eða malajakokkar og brasa smokkfisk eða satay. A austurhluta eyjarinnar gefur að lita krókódilabú, þarliggja þessir forljótu andskotar þröngt i þróm niðri þar til þeir eru flegnir (sumir segja lifandi) og skinni þeirra breytt i dýra tiskuvöru. En atvinnurekstur af þessari tegund heldur undan fyrir firnamiklum oliuiðnaði sem ris á eyjunum fyrirsunnan borgina,eða þá á þvi landi sem búið er til við strendurnar úr rusli sem til fellur og uppgreftri úr húsagrunnum. Kínverskir gyöingar Við Rae Course Road má sjá i einu musteri firnastóran Búdda, sem nær upp í rjáfur, og má ganga inn i hann aftanverðan sér til upplyftingar. Niðri i bæ risa virðulegar enskar kirkjur og hafa hljótt um sig. Mestur hávaði er frá musterunum indversku, þegar liður að sólsetri er þar barið i bumbur og bjöllum hringt meðan stórlega friðir menn og hörkulegir fara með heilagan eld og liklegt að viöstaddir kasti sér á grúfu þegar mest er barið: Þá sigur þrihyrningur logandi niður frammi fyrir mynd guðsins. Til aðsem flestu væritil skila haldið I þessari trúarbragðafjölbreytni brá ég mér i samkunduhúsið á föstudagskvöldi það var mikil freisting að sjáikinverska gyðinga róa fram í gráöið og ákalla guð ísraels á hebresku: adonai elo- henu, adonai ekhod. Þar var mér ágæta vel tekiö, enda munaði minnstu að það væri ég sem fyllti rétta tölu i „minjan” til guðsþjón- ustu. Einn hálfkmverskur gyð- ingur náði i bænabók fyrir mig og sýndi mér hvar þeir voru staddir og var ekki vitund hissa á þvi að kominn var maður frá Islandi. Hinsvegar tók hann eftir þvi, að eitthvað var kunnáttu minni i bænalestri ábótavant, ég sé, sagði hann, aö þú kannt ekki mikið. Ekki frekar en ég, ég er nú ekki vel sterkur heldur. En þú ættir að tala við rabbiann okkar, hann er ansi fróður... Gerfiperlur Það sem er skemmtilegt við „menningarlegt andrúmsloft” slikrar borgar, það er sjálf bland- an, blanda trúarbragða, tungu- mála, þjóða, menningarstrauma. Indverskur musterisdans og reyk- háfar stóriðjunnar i baksýn En fyrirbærin hvert um sig eru einskonar undanrenna, eftir- likingar, glerperlur. Þarna eru klúbbar ýmiskonar sem að inn- réttingu og viðfangsefnum eru stælingar á breskum hliðstæðum. Musterin og garðarnir eru stælingar á þvi sem gert var i Madras eöa Kanton. o'g gripir i fffflll M ' WXM L f Kinversk gata I Singapore Sunnudagur 9. mai Í976. • ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11 Þegar byggt er þá er byggt hátt þeim bera þvi vott, að smekkur og sannfæring hafi þynnst og ruglasUá leiðinni. Eitthvað svipaö má segja um stutta blöndu af dönsum kinverja og malaja og indverja sem túrhestum er boðið upp á og heitir réttilega „Instant Culture Show.” En spaugilegasta dæmið um glannalega glysgirni með þjóðlegu yfirbragði eru svo- nefndir Tiger Balm garðar. Tveir kínverskir bræður frá Birma urðu rikir á smyrslum sem kölluðust Tigrabalsam og voru allra meina bót. Þeir gáfu Singa- pore „garða”, sem áttu öörum þræði að auglýsa krem þetta. Standa i görðunum drellar háir bræðrum þessum til heiðurs og eru á myndir af þeim. En garðarnir eru furðulegasta sam- safn af sterkmáluðum stand- myndum af froskum stórum og drekum og öpum og vitringum og margskonar figurum úr kin- verskum sögum. Efst i görðunum eru figúruhópar sem segja siöferðilega uppbyggilega dæmi- sögu: um tvo skólabræður.og var annar duglegur og hinn hyskinn, um það hvernig fór fyrir iðju- lausu börnunum rika fólksins og þar fram eftir götum. Við Clemenceauveg ris sér- kennileg bygging þjóðleikhússins, en heimamenn virtust ekki hafa neitt við það aö gera sjálfir: þar sungu ameriskir gestir You are my sunshine og von var á Shake- speare frá Englandi, Kaupmánn- inum i Feneyjum. Kvikmynda- húsin voru ekki sérlega freistandi, i þeim fór mest fyrir kynlausum en blóðþyrstum myndum úr draumaverksmiðjunni i Hong- kong, sem prjónar endalaust upp gamlan kinverskan sagnasokk. Glæpir og refsing Þeir i Singapore hafa staðið i þvi að kveða niður ránskap á göt- um, skipulagt vændi, eiturlyfja- brask Fylgir þessu starfi sið- ferðilegur harðlifssvipur, harðar refsingar og lögregludýrkun. Fangelsi mikið á austurhluta eyjarinnar er eitt af þvi sem túristum er sýnt og fylgja út- skýringar á þvi, að það sé notað til að endurbæta unga gangstera með vinnu. Fái þeir t.d. tveggja ára dóm með ströngum vinnuaga, siðan er þeim sleppt heim með þvi fororði, að þeir verði að halda sig innandyra eftir að dimmir næstu tvö árin — ef þeir hins- vegar eru gripnir úti við að kvöld- lagi eru þeir án alla miskunn sett- ir inn aftur, ég held i þr jú ár. Það er allt að 500 dollara sekt við þvi að kasta rusli á götur — og það verður aö segja aö Singapore er mjög hrein borg, miklu hreinni en margar evrópskar höfuðborgir. Dauðarefsingar eru við lýði og það var allalgengt að blaöið Strait Times skýrði frá dómum þar sem menn fengu 3—7 ára fangelsi fyrir rán og voru þar aö auki barðir með einhverskonar niu rófna ketti. Þvi var haldið fram, aö Singapore væri orðin hættulitil borg að ganga um og feröamenn veru bersýnilega hvergi smeykir. En glæpir voru áberandi hluti af tali manna og blaða: skartgripa- innbroti villur,hótun glæpaflokks um að kveikja i tilteknum kvik- myndahúsum ef hann fengi ekki 200 þúsund dollara (singapore- dalur er um 75 krónur) Mál mála var þaö, að breskur kæliskápa- maður hafði játað á banabeði að hafa höggvið konu sina seylonska i spaö i herbergi 1417 á Hilton- hóteli fyrir nokkrum árum. Geymthana siðan heima hjá sér I píasti og sementi. Engan haföi grunað neitt. Og kinverjar sem eru sagðir firnalega áhugasamir um veðmál oghappdrætti, spurðu svo mikiö eftir herbergisnúmer- inu 1417 að ég held það hafi verið búið að banna númer þetta á skeiövellinum. Ekkert klám hér, en . . . Yfirvöldin eru á móti siðu hári og „klámi” — og þar með eru engar myndir af berum stelpum i blöðum og timaritum sem seld eru á staðnum. En þeir klóku tæknikratar sem stjórna borginni hafa haldið opnum einum öryggisventli syndarinnar. Hann heitir Búkistreet. Þar mynda götur tvær T og er þar hægt að drekka til morguns bjór eða viski (en næturklúbbar hætta kl. 3). Og um þessa götu strunsa ekki vændiskonur, heldur strákar meö hormónarass og frauðbjóst, mjög málaðir og taka sig vel út. Og túristarnir koma upp úr miðnætti og horfa á þessa skrýtnu fugla sem eru orðnir löghelgaður part- ur af ferðamannastrauminum. Og veit ég nú ekki lengur hvort er merkilegra, að horfa á svip- brigðin á gestunum eða á þessa skrautlegu heimamenn, sem kallast Billy boys. Hvaö skyldi Maó formaöur hugsa um að tarna? hugsaði ég. (1 næstu grein sem birtist á miðvikudag verður sagt frá vel- megun i Singapore og hverju veröi hún hefur veriö keypt)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.